Morgunblaðið - 24.09.1960, Síða 13

Morgunblaðið - 24.09.1960, Síða 13
Laugardagur 24. sept 1960 M 0 R C TI /V B 14 Ð I b 13 Steindór J. Þórisson f ramkvæmdast j óri AÐ KVÖL.DI 12. september barst sú harmafregn að Steináór J. Þórisson hafi látist á sjúkra- tiúsi í Kaupmannanöfn. en þann dag var gerður á honum uppskurður. Hann veiktist skyndilega tæpum mánuði áður og var um sl. mánaðamót flutt- ur til Kaupmannahafnar í hend- ur færustu lækna. En þrátt fyrir öra þróun læknavísindanna varð lífi þessa unga manns ekki bjarg að. Steindór Þórisson var fæddur á ísafirði 3. september 1937, son- ur hjónanna Óiafar Jónsdóttur og Þóris Bjarnasonar bifreiða- stjóra. Hann lauk prófi frá gagn fræðaskólanum á ísafirði vorið 1954 og prófi frá Verzlunarskóia fslands vorið 1958 og var um hríð við nám í Bretlandi. Ég, sem þessar línur rita, fygldist mikið með þesurh elskuiega og góða bróðursyni mínum og með mér var hann mikið, fyrst sem barn og síðar sem starfsmaður, frá því fyrir innan fermingar- aldur og til haustsins 1957. þann tíma árs sem hann var ekki í skóla. Hann varð sne-nma mik- ill og góður starfsmaðar, fjöl- hæfur og verkhagur og mátti þegar á fermingaraldri trúa hon um fyrir störfum, sem fullorð- inn væri, því hann hafði þá þeg- ar öðlazt skilning og þroska fiill tíða manns. Vorið 1958 gerðist hann starfsmaður hjá Isborg hf. i Reykjavík og varð síðar fram- kvæmdastjóri þess fyrirtækis. Steindór var myndarlegur maður og manna geðfeildasi.ur. í skapi var hann ljúfur og hóg- vær við hvern sem var að skipta. Framkoma hans öll var fíngerð og fáguð, hann lagði aldrei nein- um illt til, en öllum gott, enda var hann af öllum, sem hann þekktu, talinn einstakt ijúf- menni og drengur góður í beztu merkingu þess orðs. Steindór var elztur fimm syst- kina og reyndist hann foreldrum sínum framúrskarandi góður son ur og var hann systkinum sínum einstakur bróðir og má þar hans líka vandlega leita. 'Snemma á þessu ári opinber- aði hann trúlofun sína með Ingi- björgu Egilsdóttur Sigurgeirsson ar hæstaréttarlögmanns í Reykja vík, ágætri og myndarlegri stúlku. Hún varð fynr þeirri ó- hamingju að veikjast skömmu síðar. I veikindum hennar reynd ist hann hinn trygglyndi og hug- prúði maður, og henni gaf hann allar sínar frístundii og gerði allt sem á hans færi var til þess að gera henni lífig sem ánægju legast og enga ósk átti hann heit ari en að kvænast heitmey sinni og búa henni sem bezt heimili og að því hafði hann markvisst og ákveðið unnið þegar ógæf- tma bar að dyruin. sár er harm- ur okkar allra, en sárastur er þó hennar harmur. Lífið er oft torskilið. Við eig- um bágt með að skilja hvers vegna ungur maður, sem á fram tiðina fyrir sér, er kaliaður burtu, en þeir sem eru gamlir og misst hafa heilsuna og þrá sjálf- ir hvíldina eru látnir lifa í mörg ár. En maðurinn lifir — þótt 'hann deyji. Við trúum því, að við eigum eftir að sjá þennan og aðra ástvini okkar og vera með þeim þegar lífi okkar á þessari jörð lýkur. Þeir deyja ungir, sem guðirnir elska. Eins og við öll elskuðum Duma, eins og við kölluðum hann, þá trú- um við því að guðirmr elski 'hann. Við hörmum öll brottför hans, skyldmenni hans og vinir og mörg tár hafa fallið frá því hann lézt. Það er þung sorg, sem lögð er á unnustu hans. foreldra, systkin, aldraðar ömmur hans, tengdafólkið og okkur skyid- menni hans önnur og aðra vini að sjá á bak honum í blóma lífs- ins. En enginn má sköpun renna. — Minningarorð En það er okkur öllum huggun í harmi okkar að við megum öll geyma í hjörtum okkar bjarta og fagra minningu um góðan, myndarlegan, dugmikinn og elskulegan dreng Svo vel tel ég mig hafa þekkt hann, að ég trúi því að hann sjálfur eigi enga heitari ósk, en að þeir’ sem hann heitast unni láti ekki sorgina ná yfirtökun- um, heldur veri sterkir og æðru- lausir. Ég ætla að vona að sú ósk hans megi rætasc sem allra fyrst með Guðs hjálp. Elsku Dtnni minn, ég vil flytja þér hjartans þakkir mínar, konu minnar og barna fyrir vináttu þína og samfylgd. Mér varst þú alltaf hjartfólginn. ailt frá því að þú varst lítill fallegur og elskulegur drengur, sem alltaf varst svo góður við alta og vild- ir að öllum liði vel og enginn ætti bágt. Allur þinn stóri skyld menna hópur og vinir þínir hugsa þetta sama og ég og gamla vinkonan þín Ólafía. sem ekki getur verið við útför þína send- ir þér hjartans kveðjur og þakk- ir. Vertu sæll elsku frændi minn og vinur. Guð blessi þig um alla eilífð. Matthías Bjarnason. Fæddur 3. september 1937. Dáinn 12. september 1960. Skapari álls er lifir, hæst í hæð- um huggarinn mildi, þeirra er syrgja og krjúpa. Lát frá mínum innstu hjartans æðum óma þá. Orð ná að bera bænarmál, blessum mæddri sál. Sendu engil, faðir, friðarboða að faðma, styrkja. trúuð börn á jörð. Svo að gegnum skúrir skin af roða skynjum vér. Skýrt er, að vort hið veika ráð er vilja þínum háð. Signdu, faðir, svefni mjúkum, hægum son, og hvíldu rótt í faðmi þér. Veittu alltaf yl og krafti nægum ofan frá. Upp þá, barnsleg bænín mín berst aftur, Guð til þín. Einn að vestan Góð stúlka óskast á hótel úti á landi. — Uppl. í síma 10039 Prjónavél til sölu Mótordrifin prjónavél nr. 14 til sölu. Vélin er með 100 cm. nálaborði sjálfvirkum stoppurum og nið- urvindingu. — Uppl. í síma 14361. Saumavélar til sölu 4 nála ,,Latlosk“ saumavél og tveggja nála teygjuvél til sölu. Vélarnar henta sérstaklega vel við næríata- framleiðslu. — Uppl. í síma 14361. Atvinnurekendur Ungur maður með Samvinnuskólapróf, sem um sex ára skeið hefur unnið við tollútreikning og önnur tollafgreiðslustörf óskar eftir atvinnu hjá fyrirtæki í Reykjavík eða Hafnarfirði. — Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: ,,1695“. Vökukona óskast í Kópavogshæli (kvennadeild) 1. okt. — Upplýsing- ar lijá yiirUjúkrunarkonuiini í símum 19785 og 19084. Trésmíðavél Til sölu er sambyggð trésmíðavél. Uppl. gefur Hrafukell Alexandersson, Hellissandi. IJtgerðarmenn Netagerðin O:\di h.f. Akureyri, hefur til sölu nælon- smásíldarnætur, með 44 umförum á alin, lengd efriteinn 170 faðmar, neðriteinn, 190 dýpt um miðju 43 faðmar. Nætur þessar geta verið hvort sem vera skal fynr blökk eða bát. Upplýsingar í herbergi 24, Hótel Vík, kl. 5 til 9 e h. næstu daga. Sigfús Baldvinsson — Þorvaldur Guðjónsson íbúð til sölu milliliðalaust Glæsileg nýtízku íbúðarhæð í nýju húsi í vestur- bænum er til sölu. — 4 herb. og eldhús. — Sér hitaveita. — Fallegt útsýni, laus nú þegar. — Upplýsingar í síma 12841. 5 herb. hæð rúmgóð og vönduð íbúð er til sölu við Barmahlíð. Upplýsingar gefur: Málflutningsskrifstofa VAGNS E. JÓNSSONAR Au^turstræti 9 — Sími 14400. Útboð Tilboð óskast í smíði 2000 sorpíláta fyrir hreinsun- ardeild bæjarins. — Lýsinga og skilmála má vitja á skrifstofu vora Traðarkotssundi 6. INNKAUP VSTOFNUN REYKJAVlKURBÆJAR (Jtboð . Tilboð óskast um hita-, hreinlætis- og loftræsilagnir i barnaskóla við Hamrahlíð, hér í bæ. — Útboðslýs- ingar og uppdrátta má vitja í skrifstofu vora, Trað- arkotssundi 6. INNKAUPASIOFNUN REYKJAVlKURBÆJAR Mayco hdrgreiðsluvörur Nýkomnar Kalt permanent Háralitir, fljótandi 32 litir Háralitir, Creme 34 litir Shampoo, 6 tegundir Hárlakk o. m. fl Hallddr Jónsson hf. Heildverzlun Hafnarstræti 18 — Símar 125-86 & 2-39-95 Opna í dag nýtt klæóskeraverkstæði að Bankastræti 6. Mun kappkosta að hafa fataefni og 1. flokks vinnu. Bankastræti 6, 2. hæð — Sími 10935 .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.