Morgunblaðið - 05.10.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.10.1960, Blaðsíða 1
24 siður 47 árgangur 227. tbl. — Miðvikudagur 5, októbcr 1960 Prentsmiðia Morgunblaðsins Cape Canaveral, Florida, ý. október. — (NTB) — BANDARÍKJAMENN skutu í dag á loft nýjum gervihnetti, sem þeir nefna „Courier I b“ eða hraðboði 1 þessa hnattar b. Hlutverk að bæta er símasamband milli landa og getur hann á tólf mínútum tekið á móti og sent áfram jafn mörg orð og fara nú á heilum degi um alla sæsíma- strengi og talstöðvar yfir At- lantshaf. Atvinnubótafé frá SÞ Leopoldville, Kongó, 4. okt. (NTB-Reuter). TILKYNNT var í dag að Samein- uðu Þjóðirnar hefðu samþykkt að veita $500.000,— til framkvæmda í Kongó, sem stuðli að því að bæta úr atvinnulyesisástandinu þar. Upphæð þessi verður notuð til framkvæmda í fimm héruðum landsins, og veita 4.600 manns vinnu í tvo mánuði. Fyrir fé þetta verður aðallega unnið að nýrækt, vegagerð, vatnsveitum og áveitum. KENNARASKORTUR Fræðslufulltrúi SÞ í Kongó hefur skýrt frá því að flestir barnaskólar landsins hafi tekið til starfa á mánudaginn og einnig nokkrir af æðri skólunum. En mikill kennaraskortur ríkir þar, og erfðilega hefur gengið að fá kennara við iðnskólana og ýmsa aðra æðri skóla. Um 80 belgískir kennarar sneru aftur til Kongó Frh. á bls. 23 á mínútu A SPORBAUG Stuttu eftir að hnettinum var skotið á loft frá hlustunarstöð á Long Island við New York. Hrað boði mun fara á sporbaug yfir Miðjarðarlínu í 1150 til 1200 kílómetra hæð. Hann getur tekið á móti og sent 68.000 orð á mínútu, hvort heldur er frá f jarriturum eða tal að orð. Hnötturinn er kúlulaga, hálfur annar meter í þvermál og vegtur 230 kíló. 16 Á LOFTI Nú eru 16 bandarískir gervi- hnettir á sporbaug umhverfis jörðu, og senda átta þeirra stöð- ugt upplýsingar til jarðar. Skömmu áður en Hraðboða var skotið á sporbaug, höfðu Bandaríkjamenn skotið eldflaug af gerðinni „Scout“ í 5.600 km. hæð. Hafði eldflaugin meðferðis tæki til rannsókna á kjarna- sprengingum í háloftum. Tókst skotið mjög vel. GK>CNLANID NVFUNDN AL AN D St. JOHNS • <*• i*« s*«Mílur Kortið sýnir Nýfundnaland og miðin þar fyrir austan. — Krossað er við staðinn, þar sem Ieki kom að Skúla Magnússyni og strikalínan sýnir leiðina, sem Maí dró togarann inn til St. Johns, 190 mílna vegalengd. Skúli Magnússon kom til St. Johns í gœr með sjó í vélarúmi ) honum til hjálpar. eins og áður hefur verið skýrt frá. TOGARINN MAÍ kom uml hádegi í gær inn til St. Johns á Nýfundnalandi með togar-| ann Skúla Magnússon í eftir- dragi og var þá liðinn réttur sólarhringur frá því að Maí Hið nýja fæðingarheimili á horni Eiríks- og Þorfinnsgötu. Þar líti dagsins Ijós táp- mikil, reykvísk œska Nýtt fæðingarheimili i Reykjavík I GÆR var hið nýja fæðingar- heimili Reykjavíkiurbæjar, sem stendur á horni Eiríks- og Þor- finnsgötu, formlega tekið í notk- un. Á fæðingarheimilinu eru rúm fyrir 25 sængurkonur, einn- ig eru þar þrjár fæðingarstofur, og má segja að aðstaða fæðandi kvenna hér í Reykjavík hafi xnjög batnað með tilkomu stofn- unarinnar. Forstöðukona er Ilulda Jensdóttir, og yfirlæknir Guðjón Guðnason. Gestum bæjarstjórnarinnar og blaðamönnium var boðið að skoða húsakynni fæðinigarheimilisins nýja í gær, en þar voru áður íbúðir. Hafa miklar endurbætur á húsnæðinu farið fram, skipt var um rúður, huurðir og gólf. dúka, leiðslur voru lagfærðar, innréttingu breytt, veggir og loft máluð og þannig mætti lengi telja. f kjallara hússins fer allur þvottur fram og er hann þveginn, þurrkaður og strokinn í nýtízku vélum. Á fyrstu hæð hússins er tvískipt eldhús, borð- stofa starfsfólks, geymslur o. fl., en á hæðunum fyrir ofan eru 12 sjúkrastofur, 3 fæðingarstof- ur, sóttvarnarherbergi, vöggu- Framh. á bls. 2. kom Skúla til hjálpar og tók hann í tog um 190 mílur aust- ur af Nýfundnalandi, er leki kom að skipinu. Dælurn- ar höfðu vel við á leiðinni, en talsverður sjór var í véla- rúmi skipsins er það kom til St. Johns. Fréttaritari blaðsins í St. Johns símaði í gær, að kl. um 5 á mánu dagsmorgun hafi skipstjórinn á Skúla Magnússyni, Þorbjörn Finnbogason, tilkynnt að leki væri kominn að skipinu og þar af leiðandi vélar stöðvast. Tog- arinn Maí frá Hafnarfirði, skip- stjóri Benedikt Ögmundsson var staddur næst togaranum og kom Ókunnugt um orsakir. Um miðjan dag í gær var ekki enn kunnugt um hvað valdið hefði lekanum. Átti þá að taka Skúla í slipp og kanna skemmd- irnar. En Maí fór aftur út á veiðar kl. 3. Áhöfnin er öll heil á húfi í St. Johns. Hvort hún verður látin bíða þar eða koma heim, fer eft- ir því hve langan tíma tekur að gera við skipið, að því er Þor- steinn Arnalds skrifstofustjóri Bæjarútgerðarinnar tjáði blað- inu í gær, en vonast væri til að það gengi fljótt. Togarinn Skúli Magnússon er 677 smálestir að stærð, byggður í Bretlandi árið 1948. Eigandi er Bæjarútgerð Reykjavíkur. Löndunarbann haft i huga ef ekki næst samkomulag Grimsby, ý. október. Einkaskeyti til Mbl. E F ekki næst samkomulag um fiskveiðilögsöguna við Is- land fyrir 12. þ. m. munu Bretar taka til athugunar hvort ekki beri að banna landanir íslenzkra togara í Grimsby. í yfirlýsingu sem Mr. G. H. Harker, ritari fé- lags vélstjóra og sjómanna á togurum í Grimsby, gaf út í dag, segir að félögin hafi heit- ið brezku ríkisstjórninni að- gerðarleysi til 12. október. En ef ekkert samkomulag náist fyrir þann tíma álíti þeir nauðsynlegt að gripið verði til þess að banna landanir ís- lendinga. Frh. á bls. 2. Hittast aftur New York, 4. ot. (NTB). KRÚSJEFF forsætisráðherra So- vétríkjanna óskaði í dag eftir að ræða við Macmillan forsætis- ráðherra Breta að nýju, en þeir áttu viðræður í síðustu viku. Var það ætlun Krúsjeffs að þeir hitt- ust um hádegið, en þar sem Mac millan var upptekinn, tóku þeir þá ákvörðun að hittast í kvöld. Viðræðurnar fara fram á gisti- húsi Macmillans í New York.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.