Morgunblaðið - 05.10.1960, Side 5

Morgunblaðið - 05.10.1960, Side 5
Miðvilíudagur 5. ok’t. 1960 MORC1JTSBL ÁT>ÍÐ 5 H.f. Eimskipafélag íslands hf. Detti- foss er 1 Rvík. Fjallfoss er á leið til Antwerpen. Goðafoss er á Norðfirði. Gullfoss er á leið til Leith. Lagarfoss er í Keflavík. Reykjafoss er á leið til Ventspils. Selfoss er á leið til Ham- borgar. Tröllafoss er á Siglufirði. Tungufoss er á leið til Rvíkur. H.f. Jöklar. — Langjökull lestar á Austfjarðahöfnum. Vatnajökull er á ieið til Leningrad. Skipadeild SÍS.: — Hvassafell er á leið til Gdynia. Arnarfell kemur til Rvíkur á morgun. Jökulfell losar á Húnaflóahöfnum. Dísarfell er í Borg- arnesi. Litlafell er í Faxaflóa. Helga- fell er í Onega. Hamrafell er á leið til Batumi. Skipaútgerð ríkisins: Hekla er í R- vík. Esja fór í gær austur um land. Herðubreið er á Kópaskeri. Skjald- breið fer 1 dag vestur um land til Ak lireyrar. Pyrill er á leið til Seyðisfjarð ar. Herjólfur fer fá Rvík kl. 21 í kvöld til Vestmannaeyja og Honafjarðar. Eimskipafélag Reykjavíkur hf. — Katla er á leið til Rvíkur. Askja er á leið til ítalíu. Flugfélag íslands hf.: Gullfaxi fer til Oslóar, Khafnar og Hamborgar kl. 8:30 i dag. Kemur aftur kl. 23:55 í kvöld. Fer til Glasgow og Khafnar kl. 8 í fyrramálið. Innanlandsflug: I dag til Akureyrar, Húsavíkur, Isafjarðar og Vestmanna- eyja. A morgun til Akureyrar, Egils- Btaða, Kópaskers, Patreksfjarðar, Vest mannaeyja og Þórshafnar. Loftleiðir hf.: — Leifur Eiríksson er væntanlegur kl. 23 frá Stavangri. Fer til New York kl. 00:30. Blessuð sólin elskar allt, allt með kossi vekur; haginn grænn og hjarnið kalt hennar ástum tekur. Geislar hennar út um allt eitt og sama skrifa á hagann grænan, hjarnið kalt: himneskt er að lifa! Hannes Hafstein: Mælt fram í skemmtiför. ÞESSI mynd af Falcon-sex tettinum birtist I nýju texta- hefti ,,do re mi“, sem kom út fyrir nokkrum dögum. Þar er einnig grein um Falcon-sex- do re mi tettinn, ásamt viðtölum við hljóðfæraleikara og er það ætlun útgefanda heftisins að kynna Iesendum þess yngri hljóðfæraleikara landsins og hljómsveitir þeirra. Hefti þetta er með nýju sniði, það flytur vinsælustu dægurlaga- textana með gítarhljómum og kennsluþátt í gítarleik. Það gerir þeim, sem hafa áhuga á kleift að leika öll lögin, sem í heftinu eru, ef þeir æfa sig með nægri þolinmæði. Einnig er í heftinu skemmtilegt sam- tal við hinn vinsæla söngvara Sigurdór. Frágangur á ritinu er allur hinn smekklegasti og til þess vandað í hvívetna. Má öruggt telja að þetta rit verði vinsælt meðal tán- inganna, enda er það einkum ætlað þeim til skemmtunar og fróðleiks. Sálfræðingurinn: Annað hvort borgið þér reikninginn eða ég geri yður vitlausan. ★ Konan: — Hvernig særðust þér maður minn? Hermaðurinn: — Af sprengju, frú. Konan: — Sprakk hún? Hermaðurinn: — Nei, hún skreið til mín og beit mig. ★ Rakari: — Hef ég rakað yður áður? Viðsk.v.: — Nei, ég fékk þetta ör í Frakklandi. ★ Sér maðurinn þinn fyrir þér, Lísa? — Hvort hann gerir blessaður, i síðastliðinni viku útvegaði hann mér hvorki meira né minna, en fimm staði til að þvo á. ★ Skoti hitti Ameríkana, sem var að virða fyrir sér hina gríðarstóru Forth-brú. — Beyrðu sagði Ameríkaninn, hvaða smá járnstöng er þetta, sem liggur yfir ána þarna? — Veit ekki, svaraði Skotinn, hún var ekki þarna í gær. Georg: — Hefurðu nokkurn tíma kynnst manni, sem hefur komið þér til að skjálfa og titra við minnstu snertingu? Marta: — Já, tannlækninum. BLÖÐ OG TIMARIT Samtíðin — októberblaðið er komið út, fjölbreytt og skemmtilegt. Ritstjór inn skrifar forustugrein um Vífilsstaða hælið: Hálfrar aldar sigursókn gegn hvíta dauðanum. Freyja skrifar fjöl- breytta kvennaþætti. Pá er framhalds sagan: Hver var hún? Smásagan: Hún kom, sá og sigraði. Ingólfur Davíðsson skrifar þáttinn: Ur ríki náttúrunnar. Guðm. Arnlaugsson skrifar skákþátt. Arni M. Jónsson skrifar bridgeþátt. Ennfremur eru vinsælir danslagatext- ar, draumaráðningar, afmælisspádóm- ar fyrir alla daga októbermánaðar, grein um Elvis Presley, getraunir, krossgáta, bókarfregn o.m.fl. Forsíðu myndin er af rússnesku leikurunum Elina Bystritskaja og Pyotr Glebof í nýrri kvikmynd. Aukablað af heimilisritinu Heima er bezt, er komið út. I því er meðal ann- ars bókaskrá yfir fjölda bóka með upp lýsingum um þær. Einnig er greinin Bókasafn alþýðu, eftir Steindór Stef- ánsson frá Hlöðum. Grein um bók- ina ..Hrakhólar og höfuðból" og höf- und hennar Magnús á Syðra-Hóli eftir Jochum M. Eggertsson. verðlaunaget- xaun o. £1. Níræð verður í dag frú Gróa Árnadóttir Smáratúni 15, Kefla- vík. Hún dvelur nú sjúkrahúsinu í Keflavík. 60 ára er í dag, Bjarni Þórð- arson, Jófríðarstaðavegi 8, Hafnarfirði. Á morgun fimmtudaginn 6. eiga gullbrúðkaup hjónin Þor- gerður Árnadóttir og Stefán Þórðarson, Snorrabraut 32. Nýlega hafa opinberað trúlofun sina ungfrú Ingibjörg Ámunda- dóttir, frá Vatnsenda, Árn. og Kjartan L Jónsson frá Sauðár- króki. 2. október voru gefin saman í hjónaband í Neskirkju af séra Jóni Thorarensen, ungfrú Fjóla Bótólfsdóttir, Breiðholti við Lauf ásveg og Ólafur Gíslason, skrif- stofumaður, Mávahlíð 5. Heimili þeirra verður fyrst um sinn að Breiðholti við Laufásveg. HUSRÁÐ Stúlka óskast þarf að geta annast lamaða konu. Fær tilsögn. 2ja herb. íbúð á hitaveitusvæði fylg- ir. Tilb. merkt: „1500— 1736“ og upplýsingar í síma 14286. Saumanámskeið hefst 14. okt. í Mávahlið 40. Væntanlegir þátttakend ur tali við mig sem fyrst. Brynhildur Ingvarsdóttir Trillubátur Til sölu trillubátur 314 t. með 24 ha. Albinvél. Selst mjög ódýrt Uppl. í síma 32171 og 34545 eftir kl. 19. Húsmæður Þrítug kona vill taka að sér hreingerningu og ræst ingu í heimahúsum. Uppl. í síma 35660 frá 1—5 aðeins í dag. Ung barnlaus hjón sem vinna bæði úti óska eftir 2ja herb. íbúð. Fyrir- framgreiðsla. Sími 10615 næstu daga frá 6—7 á kvöldin Ráðskona óskast á norðlenzkt sveita heimili. Má hafa með sér 1—3 börn. Nýtt steinhús, rafmagn, sími. — Uppl. í síma 34961. Vil gjarnann taka ráðskonustöðu hjá 1—2 mönnum í Reykjavík. Tilb. merkt: „Ráðskona — 1735“ sendist fyrir 15 okt. á afgr. Mbl. Tilboð óskast í sem nýjan 49 lesta bát. I Leiga gæti komið til greina Uppl. hjá Landssambandi ísl. útvegsmanna. Kona óskar eftir að leigja litla 2ja herb íbúð, helzt í Vesturbænum. Húshjálp. Uppl. i síma 34823. Rósir eru viðkvæmar og visna mjög fljótt, þó er hægt að fá þær til að standa lengur, ef vel er um þær hugsað. Oft fara blómin á alveg nýafskornum rós um að hanga, áður en þau hafa breitt almennilega úr sér. Þetta er hægt að lagfæra með því að dýfa stilkunum augnabliik ofaní sjóðandi vatn, en til þess að guf- an eyðiieggi ekki blómin verður að vefja pappír utanuim þau á meðan. Keflvíkingar nokkur eldhúsborð til sölu (tækifærisverð). Uppl. hjá Einari Gunnarssyni, Smára túni 32. — Sími 2232. Keflavík 4ra—5 herb. íbúð eða ein býlishús óskast til leigu. Uppl. í síma 1804, Keflavík. Múrarar Tilboð óskast í utanhús- púsningu á húsinu Unnar- braut 12, Seltjarnarnesi. — Uppl. á staðnum eða í síma 23392. Hafnfirðingar Námskeið í teiknun og mál un, verður í Flensborgar- skólanum 2 kvöld í viku kl. 8—10. Uppl. í síma 50239 milli kl. 7 og 8 e.h. Bjarni Jónsson Pels Nýr danskur pels til sölu. Stórt númer. Uppl. í síma 12052. íbúð óskast húshjálp kemur til greina. Uppl. í síma 22150. Kona óskast frá kl. 1—7. Má hafa með sér barn. — Uppl. í síma 50125 eftir kl. 7. Ungur maður með gagnfræðipróf og bíl próf óskar eftir vinnu, má vera erfiðisvinna. — Tilb. sendist afgr. Mbl. merkt. „Reglusamur — 1008“ Herbergi 1—2 herb. með húsgögnum óskast til leigu sem fyrst. Tilb. sendist Mbl. fyrir 7. okt, merkt: „Strax — 1009“ Tvær reglusamar símastúlkur óska eftir 2 herb. og eldhúsi eða að- gangi að eldhúsi, strax eða 1. nóv. Uppl. í síma 35950 kl. 4—7 á morgun. Mótatimbur til sölu er mótatimbur að- eins naglrekið, einnig nagl ar í stærðum 2” 214’’ 3” — Simi 23297. Tek menn í fæði Uppl. í síma 16639. Hlutabréf í sendibílastöð til sölu. — Sími 36184 eftir kl. 7,30 á kvöldin. Kona eða stúlka óskast til afgreiðslustarfa. Athugið, vinnutími eftir há degi. Austurbar Sími 19611. Pússningasandur til sölu ódýr. Upplýsingar í síma 50230. Lœknisstaða Til umsóknar frá 1. des. 1960 að telja er staða L aðstoðarlaiknis á lyflækningadeild Landspítalans. Laun samkvæmt launalögum. Staðan verður veitt til 4 ára í senn. Umsóknir með upplýsingum um aldur, námsferil og fyrri störf, sendist til skrifstofu ríkisspítalanna, Klappaistíg 29, íyrir 15. nóv. 1960. SKRIFSTOFA RlKISSPlTALANNA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.