Morgunblaðið - 05.10.1960, Qupperneq 13
Miðvik'udagur 5. okt. 1960
MORGTJTShLAÐlÐ
13
Hitt og þetta 'frá SÞ:
írinn á forsetastóli
— Islenzkur blaðafulltrúi —IMýlenduskipulagið
afturgengið — Skugginn yfir þinginu
Á forsetastóli SÞ: írinn, Frederick H. Boland, og framkvæmda-
stjórinn, Dag Hammarskjöld. — IIm þá hafa leikiS stríðir
stormar. —
New York, 1. október.
V M forsetastól allsherjar-
J>ings Sameinuðu þjóðanna og
framkvæmdastjóra þeirra
leika nú stríðir stormar. —
Aldrei hafa önnur eins hvass-
viðri geisað í ræðum þjóða-
leiðtoganna hér, eins og ein-
mitt á þessu þingi. Um það
ber öllum saman, sem sótt
hafa þessar samkomur að
staðaldri.
En hið græna marmaraborð
þingforsetans er traust og stöð-
ugt. Engin hætta er á að því
verði auðveldlega velt. En hver
situr í sjálfum forsetastólnum? Á
þeim manni, sem þar á sæti mæð
ir mjög.
Forseti 15. þingsins er írinn
Frederick A. Boland, margreynd
ur stjórnmálamiaður og diplomat
lærður hagfræðingur og fræði-
maður, sem á yngri árum sínum
lék á píanó í danshljómsveit og
Stundaði hnefaleik sér til heilsu
bótar og skemmtunar.
Enn sem komið er hefur
hvorki reynt á músíkhæfileika
hans né handstyrk. Á fundinum
í morgun þurfti hann að berja
hamri sínum lengi og hart í borð
ið í miðri ræðu Krusj effs forsæt-
isráðherra Sovétríkjanna, áður
en hann fengið komið að áminn-
ingu til ræðumannsins fyrir ljótt
orðbragð. Honum tókst þó að
stöðva hinn herskáa forsætisráð-
herra og biðja hann að stilla orð
um sínum í hóf.
Hagfræðingur að menntun
Boland er fæddur í Dublin ár-
ið 1904 og er því 56 ára gamall.
Hann lauk hagfræðiprófi í Dubl
in, en stundaði framhaldsnám í
fræðigrein sinni í háskólunum í
Harward, Ohicago og Norður-
Carólínu. Þegar hann dvaldi á
námsárunum sínum í Bandaríkj-
unum vann hann m.a. fyrir sér
með því að leika í danshljám-
sveit, sem ferðaðist um landið.
Síðan árið 1929 hefur Boland
verið í utanríkisþjónustu fra.
Jafnframt hefur hann tekið þátt
í fjölmörgum aiþjóða ráðstefnum
fyrir hönd lands síns. Hann varð
sendiráðsritari í París árið 1932.
Tveimur árum síðar tók hann
við starfi í utanrí'kisráðuneyti
írlands. Árið 1936 varð hann for
stjóri deildar utanríkisviðskipta
og árið 1946 tók hann við stjórn
utaríkisráðuneytisins.
Hann var sendiherra írlands í
London árin 1950—1956. Síðan
árið 1956 hefur hann verið einn
af fulltrúum írlands á þingi Sam
einuðu Þjóðanna. Á síðustu fjór
um þingunum hefur hann verið
varaformaður írsku sendinefnd-
arinnar. Árið 1958 var hann for-
maður fjórðu nefndar þingsins.
Boland er kvæntur listmálar-
anum Frances Kelly, en lands-
lagsmyndir hennar og manna-
myndir eru allþekktar. Áður
mun hún hafa hallast nokkuð að
kubisma. Þau hjón eiga fimm
uppkomin börn, einn son og
fjórar. dætur.
Rólegur og veðurbitinn
„Freddie" Boland, eins og
hann oft er kallaður af kunningj-
um sínum er meðalmaður á hæð,
gráhærður og rauður í andliti.
Honum stekkur sjaldan bros á
forsetastóli. Þó gat hann ekki
stillt sig um að kíma þegar Mac-
millan forsætisráðherrg Breta
lét í ljós sérstaka ánægju yfir að
eiga þess kost að ávarpa hið
virðulega þing undir forsæti full
trúa lands, „sem mitt eigið land
er tengt svo nánum tegslum". Þá
hló allur þingheimur og frinn
í forsetasœtinu líka. Mun mönn-
Eftir Sigurð
um almennt hafa komið í hug
hin langa, og ekki ævinlega ást-
úðlega viðureign íra og Breta.
íslenzkur blaðafulltrúi
þingforsetans
Forseti allsherjarþingsins hef-
ur mikið að gera. Hann hefur
yfirumsjón með öllu starfi þings
ins, í samráði við framkvæmda-
stjóra samtakanna, varaforseta
þingsins og nefndaformenn.
Hann kemur einnig töluvert
fram út á við fyrir þess hönd. Til
hans er leitað um margvíslegar
upplýsingar um starfsemi þings-
ins af hálfu blaða og annarra
fréttastofnana. En 2500 frétta-
menn og ljósmyndarar fylgjast
með því, sem hér gerist og segja
heiminum frá því.
Eitt fyrsta verk hins nýkjörna
forseta var að ráða sér blaða-
fulltrúa. Varð íslendingurinn,
ívar Guðmundssonð fyrrverandi
fréttastjóri Morgunblaðsins, fyr-
ir valinu. En hann hefur starfað
við upplýsingadeild Sameinuðu
þjóðanna sl. 9 ár, um skeið í
Kaupmannahöfn en lengstum hér
í aðalstöðvunum í New York, og
getið sér hér gott orð. Er ég þess
fullviss, að íslenzkir blaðamenn,
ekki hvað sízt gamlir samstarfs-
menn hans samgleðjast honum
með þann heiður, sem honum er
sýndur með ráðningunni sem
blaðafulltrúi forseta aillsiherjar-
þingsins.
Blaðafulltrúinn hefur skrif-
stofu við hlið skrifstofu þeirra
Bolands og Hammarskjölds, sem
eru að baki þingsalarins og því
rétt við forsetastólinn. Þar verð-
ur hann helzt að vera viðiátinn,
hvenær sem forsetinn þarf á
honum að halda.
Aldrei hafa svo margir . . .
Um þetta þing hefur verið
sagt, að aldrei í veraldarsög-
unni hafi svo margir þjóða-
leiðtogar haft jafnmikið að
segja hver öðrum og fulltrú-
arnir á þessu þingi. Hingað
hafa komið 10 þjóðhöfðingjar
og a.m.k. 15 forsætisráðherr-
ar, auk mikils fjölda utanrík-
isráðherra og annarra ráð-
herra. Á Vínarráðstefnunni
árið 1814 voru saman komnir
flestir leiðtogar Evrópu. Á
friðarráðstefnunni í Versölum
árið 1919 áttiu 27 ríki fulltrúa
og á friðarráðstefnunni í París
árið 1946 áttu 21 ríki fulltrúa.
Bjarnason
Á fundi allsherjarþingsins nú
eiga 98 ríki fulltrúa.
Þrjár hinna fyrrnefndu ráð-
stefna komu saman að loknum
styrjöldum til þess að semja frið
og leggja grundvöll að varanleg-
um friði og öryggi í heiminum.
öll veröldin veit, hvernig það
hefur tekizt. Það þing, sem nú
ste'ndur yfir og tvær billjónir
manna standa að, og eiga fulltrúa
á, er einnig að leita að friði. Af-
vopnunarmálin eru eitt helzta
dagskrármál þeirra. En aldrei
hefur þó horft eins ófriðlega á
nokkru þingi síðan síðari heims-
styrjöldinni lauk og einmitt á
þessu.
Þessi staðreynd blasir við
þrátt fyrir það, að síðan að
síðari heimsstyrjöldinni lauk
hafa 600 miljónir manna ver-
ið leystar undan oki nýlendu-
skipulagsins og hlotið frelsi
og aðild að samtökum Sam-
einuðu þjóðanna.
Fulltrúar kommúnistaríkjanna
Kennsla í norsku
og sænsku
í háskólanum
hér kenna nýlenduskipulaginu
og lýðræðisþjóðunum um örygg-
isleysið í heiminum í dag. En
eru það ekki einmitt hinar vest-
rænu lýðræðisþjóðir, sem hafa
verið að afnema nýlenduskipu-
lagið á síðustu árum og stuðla
þarmeð að auknu frelsi og jafn-
rétti meðal þjóðanna?
Nýlenduskipulag Rússa
En hvernig hafa forysturíki
hins alþjóðlega kommúnista hag
að baráttu sinni fyrir frelsi og
mannihelgi í heiminum á þeasum
sama tíma?
Er það ekki einmitt Sovét-
Rússland, sem tekið hefur upp
merki hins gamla og úrelta ný-
lendiuskipulags, með undirokun
mikils fjölda þjóða og landa?
Hvað um Eystrasaltslöndin, sem
fengu sjálfstæði í svipaðan mund
og fsland, eftir heimsstyrjöldina?
Þessi þrjú litlu lönd, sem þó
voru byggð milljónum manna
hafa hreinlega verið innlimiuð
í Sovétríkin og svipt öllu frelsi
og sjálfstæði. Er til svívirðilegri
nýlendukúgun en þetta — og það
á miðri 20. öld? Og hvar er
frelsi og sjálfstæði Póllands,
Ungverjalands, Austur-Þýzka-
lands, Tékkó-Slóvakíu, Rúmeníu,
Albaniu, Búlgaríu, Ytri-Mongol-
íu og Norður-Kóreu í dag?
Þessi lönd hafa öll verið gerð
að hjálendum Rússa, að meira
eða minna leyti. í sumum þeirra
hafa verið' gerðar blóðugar upp
reisnir, sem bældar hafa verið
niður með hroðalegum manndráp
um hins Rauða hers Sovétríkj-
anna.
Nei, þótt hinar vestrænu
lýðræðisþjóðir hafi markvisst
unnið að afnámi nýlenduskipu
lagsins síðan heimsstyrjöld
inni lauk, sem bezt sést á þvi
að á þessu allsherjarþingi
hafa hvorki meira né minna
en 16 gamlar nýlenduþjóðir
fengið inngöngu í samtökin
sem frjálsar og óháðar þjóðir,
þá er nýlenduskipulagið þó
ekki dautt. Það eru Rússar og
hinn alþjóðlegi kommúnismi,
sem hafa tekið það upp að
nýju og hneppt fjölda þjóða í
þrælakistu þess.
Skugginn yfir 15. þinginu
Þetta er sorgleg staðreynd, sem
enginn sæmilega sjáandi maður
kemst framhjá að viðurkenna.
Það er sama, hve mikið er tal-
að um jaauðsyr. friðar og öryggis
í heiminum. Á meðan frelsi og
mannhelgi er fótumtroðin verð-
ur erfitt að skapa grundvöll var
anlegs friðar. Ofbeldi og einræði
býður nýju ofbeldi og öryggis-
leysi heim.
Skuggi þessarar staðreyndar
hvílir yfir 15. þingi Sameinuðu
þjóðanna, þrátt fyrýr einlæga
þrá fól'ksins um víða veröld eft-
ir friði og hamingju.
— S. Bj.
Heimili fyrir merm
Leigja bíla án ökumanns
NÝLEGA var stofnað í Reykja-
vik fyrirtæki, sem hefur það að
markmiði að leigja bíla án öku-
manns. Fyrirtækið nefnist Bíla-
leigan Falur hf. og hefur ein-
ungis nýjar Volkswagen-bifreið-
ir til leigu. Þjónusta þessi er
fyrst og fremst hugsuð fyrir
ferðafólk, innlent og útlent,
sölumenn o. fl., enda til komin
vegna mikillar eftirspurnar að
undanförnu.
Fyrirtæki með þessu sniði hafa
um margra ára skeið starfað í
nágrannalöndum okkar. Þess
má geta, að erlendir ferðaskrif-
stofumenn, sem hér voru á ferð
nýlega, létu það álit í ljós, að
mikilvægur liður í því að gera
ísland að vinsælu ferðamanna-
landi væri að ferðafólk gæti
fengið leigð farartæki og farið
um landið að vild, eftir því, sem
hver og einn hefði tíma og getu
til. —
Fyrirtækið mun ekki leigja
yngri ökumönnum en 21 árs bíla
sína og er þáð í samræmi við
reynslu erlendra fyrirtækja sam
bærilegra.
Stofnendur Bílaleigunnar Fals
hf. eru tveir ungir menn, Hákon
Daníelsson og Stefán Gíslason.
Þeir hafa kynnt sér rekstur
slíkra fyrirtækja erlendis með
það fyrir augum að þjónusta
fyrirtækis þeirra hér verði svip-
uð og annars staðar í heiminum.
Bílaleigan Falur hf. verður
fyrst um sinn opin eftir kl. 17,
í Skipasundi 55, og allar upp-
lýsingar veittar í símum 35341
og 12476.
f HAUST taka til starfa við Há-
skóla fslands tveir nýir sendi-
kennarar í Norðurlandamálum,
þeir Odd Didriksen cand. mag. í
norsku og Jan Nilsson fil. mag.
í sænsku. Þeir munu hafa nám-
skeið í háskólanum fyrir al-
menning í vetur, og eru vænt-
anlegir nemendur beðnir að
koma til viðtals sem hér segir:
í norsku: Framhaldsflokkur
fimmtudag 6. okt. kl. 8,15 síðd.,
byrjendaflokkur þriðjudag 11.
okt. kl. 8,15 síðdegis, í VI.
kennslustofu. — Byrjendur eru
beðnir að hafa með sér Lingua-
phone-bók í norsku, sem fæst í
Hljóðfærahúsinu, Bankastræti 7.
f sænsku: Kennt verður á
mánudögum og miðvikudögum
kl. 8,15 til 10 síðdegis, og verður
kennslan til jóla eingöngu ætluð
byrjendum. Væntanlegir nem-
endur eru beðnir að koma til
viðtals miðvikudaginn 5. okt. kl.
8,15 síðdegis í II. kennslustofu
sem bíða dóms
Á AÐALFUNDI félagsins Vernd
I ar, sem haldinn var sl. þriðju-
dag, var m. a. samþykkt tillaga
þess efnis, að samtökin beittu
sér fyrir því, að sett yrði á stofn
i heimili í Reykjavík fyrir menn,
sem lokið hafa eða bíða dóms.
| Þetla heimili mundi fyrst og
fremst hafa gistiherbergi og
| mötuneyti þar sem einstaklingar
gætu fengið aðhlynningu á
' meðan þeir dvelja í Reykjavík.
Sömuleiðis yrðu þar vinnustof-
ur og samkomustaður fyrir
þessa menn. Heimili þetta mundi
einnig hafa það hlutverk að
annast vinnumiðlun fyrir þá, og
með hjálp sérfróðra manna að
stuðla að því, að gera þá að nýt-
um þjóðfélagsþegnum.
f samtökunum, sem stofnuð
voru 6. apríl 1959, eru nú 130
einstaklingar, 14 félög og 31 fyr
irtæki, sem styrkja samtókin á
ýmsan hátt með framlögum. —
Skrifstofa samtakanna er nú í
Aðalstræti 10, og hafa fjö’,-
margir leitað þangað. Fram-
kvæmdastjóri hefur verið ráð-
inn Axel Kvaran stud. jur. Lög-
fræðilegur ráðunautur er Guð-
mundur Ingvi Sigurðsson.
Stjórn samíakanna skipa:
Þóra Einarsdóttir formaður. séra
Bragi Friðriksson, varaform.,
Lára Sigurbjörnsdóttir, ritari
Benedikt Bjarkiind gjaldkeri,
Rannveig Þorstemsdóttir, Helgi
Vigfússon og Baldur Möller, sem
skipaður er af dómsmálaráðu-
neytinu.