Morgunblaðið - 05.10.1960, Page 14

Morgunblaðið - 05.10.1960, Page 14
14 MORCVNBLAÐIÐ Miðvikudagur 5. okt. .1960 M u n i ð Spilakvöld Eyfirðingafélagsins í Sjáifstæðishúsinu fimmtudaginn 6. okt. kl. 8,30. Stjórnin Rafmótorar einfasa og þrífasa Margar stærðir == HÉÐINN =: Vélaverzlun — Sími 24260 Verzlunarráð íslands vill ráða viðskiptafræðing eða mann með hliðstæða menntun til starfa á skrifstofu ráðsins. Upplýsingar veittar á skrifstofunni, Pósthússtræti 7, V. hæð. Tilkynning frá Barnamúsíkskólanum Allir nemendur, sem innritazt hafa í I. bekk og efri bekki Barnamúsíkskólans, komi til viðtals í skólanum FIMMTUDAG 6. eða FÖSTUDAG 7. okt. kl. 3—7 e.h. og hafi með sér afrit af stundaskrá sinni. Nemendur FORSKÓLADEILDAR mæti við skólasetningu n.k. MIÐVIKUDAG 12. okt. kl. 3 e.h. Skólastjórinn ÞAKJÁRN 7—8—9 og 10 feta nýkomið Pantanir óskast sóttar strax Helgi Magnússon & Co. Hafnarstræti 19 — Símar: 13184 og 17227 / Stefanía Jónsdóttir frá Saurbæ - minning HINN 12. maí sl andaðist Stef- anía Jónsdóttir frá Saurbæ á Langanesströnd, eftir uppskurð og fárra daga legu í sjúkrahús- inu í Keflavík. Stefanía var fædd í Krossavík í Þistilfirði 23. marz 1892. For- eldrar hennar voru Jón Árna- son frá Gunnarsstöðum í Þistil- firði og Vilhelmína Stefanía dóttir Karls Friðriks Sörensens, verzlunarstjóra á Vopnafirði. Ætt Jóns er velþekkt bændaætt í Þingeyjarsýslu og telur margt mætra manna þar. Þau Jón og Vilhelmína hófu búskap í Krossa vik í Þistilfirði. Efni voru lítil, en jarðnæði gott og hafa ungu bjónin vafalaust horft vonglöð- um, björtum augum til framtíð- arinnar þar. En fyrr en varði brá skugga yfir. Unga konan í Krossavík varð fyrir slysi og dó eftir fáa daga. Jón stóð eftir með fjórar ungar dætur, lítil efni og forstöðuiaust heimili, Þá var það að þrjú heimili í sveit- inni buðu honum barnfóstur. Það þáði hann. Atvik þettá sýn- ir hverra vinsælda og álits Krossavíkurhjónm nutu meðal sveitunga sinna. Jón fluttist með elztu dóttur sína að Þórshöfn á Langanesi og vann þar að smíði og fleiru um nokkur ár. Hann hélt ágætu föðursambandi við dætur sínar meðan þær voru að alast upp. Árið 1903 fluttist hann til Ameríku ásamt tveim elztu dætrum, sem þá voru komnar yfir fermingu. Þriðja dóttirin fluttist vestur, litlu síð- ar með föðurbróður sínum, sem heim kom frá Ameríku. Yngsta dóttirin, Stefanía, átti einnig kost á að fara með honum vest- ur, en hún neitaði ákveðið þvi boði. Örlögin höfðu ætlað henni starfssvið hér heima. Stefanía var aðeins fimm vikna gömul, þegar hún missti móður sína. Járnbrá Einarsdott ir og maður hennar Einar Krist jánsson, á Garði í Þistilfirði tóku hana í fóstur. Járnbrá var merk iskona ,hún var ljósmóðir í sveitinni í fjöldamörg ár. Stef- anía litla var ekki eini hvítvoð- ungurinn, sem hún reiddi heim til sín og annaðist fyrstu vik- urnar, ef heilsa móður eða aðrir erfiðleikar voru á að annast hann. Járnbrá naut virðingar og vinsældar allra sem þekktu hana og. untu hennar líknar- handa við Ijósmóðurstörf, Steí- anía naut hins bezta uppeldis hjá fósturforeldrum sínum. Hun ^ vandist þar snemma vinnu og var það henni góður skóli um öll venjuleg störf í sveit. Garð- ur var í þjóðbraut. Þar voru gestkomur tíðar. Þar var áning- arstaður ferðamanna áður en þeir lögðu upp á Axarfjarðar- heiði og hvíldarstaður, er komið var af heiðinni hvort heldur var að kvöldi eða nóttu. Þar var gististaður póstsins í hverri ferð. Þar mættu gestir jafnan alúð og gestrisni, glaðværð og fyrir- greiðslu, ef þess þurfti með. Þetta var æskuheimili Stefaníu. Hún leit á það sem beztu for- eldrahús. Einn vetur dvaldi hún á Akureyri við saumanám. Mun hún hafa haft nug á að vera Hafnarfjörður Unglingar úskast til að bera blaðið út AFGREIÐSLAN Arnarhrauni 15 — Sími 50374. Telpa 13—14 ára óskast til sendiferða. Þarf að hafa hjól. Uppl. í skrifstofunni. JHo¥0tttiÞfiifeiifr Sími 22480. Snain suða M atreíðsla auðoeld Bragðíð Ijúffengt Royal köldu búðingarnir sjálfri sér nóg um flest það, er gera þurfti á heimili. Ad fóstur- foreldrum sínun. látnum hatði Síefanía jafnan heimili sitt að Garði hjá fóstursystur sinni, Kristrúnu Einarsdóttui, Ijósmóð ‘ ur og Jóni Guðmundssyni mannt - hennar. Reyndist Kristrún henni - sem bezta systir, trygglynd og ráðholl. Árið 1917 giftist Stefanía Ein- ari Hjartarsyni frá Ytra-Álandi. Þau byrjuðu búskap á Fjalla- seli. Eftir fá ár fluttust þau að Hallgilsstöðum á Langanesi og bjuggu þar um skeið. Árið 1930 fluttust þau að Saurbæ á Langa- nesströnd. Þar var þá þríbýli og réðust þau í að kaupa einn þriðjunginn úr jörðinni. Mörg verkefni biðu hjónanna þar. Með vinnufúsum höndum, sam- hug og bjartsýni tóku þau til starfa. Það þurfti að stækka girðingar, auka ræktun. byggja peningshús og hlöður. Loks kom súgþurrkun og fleiri umbætur. Áfram var haldið í áttina að markinu, sem var að gera Saur- bæ að góðu býli og öruggu til búskapar. Veturinn 1956 brann hjá þeim bærinn. Fólkið slapp á síðustu stundu út úr eldinum. En inn- bú allt og kýrnar í fjó-únu misstu þau. Þetta var mikið á- fall. En þó var nú 'agt upp í nýjan áfanga, að koma upp íbúðarhúsi. Þetta tókst vel. Eft- ir rúmt ár fluttu tsu í gotz, vandað steinhús með flestum þeim þægindum, sem nú eru gerðar kröfur til. Nú fóru í hönd áhyggjuminni og léttari tímar og hjónin nutu ánægju og arðs af verkum sín- um. En svo kom nú líka kallið' til Stefaníu, sem aliir verða að hlýða. Þau Einar og Stefanía eign- uðust átta börn. Einn dreng misstu þau í bernsku. Þau sem upp komust eru: Járnbrá, símastjóri á Bakka- firði, gift Magnúsi Jóhannes- syni. oddvita á sama stað., Ing- unn, gift Árna Guðmundssyni frá Syðra-Lóni bílstjóra búsett í Keflavík. Arndís, gift Sigur- birni Þorsteinssyni frá Viðidal, bónda í Saurbæ; Ásdís, gift Birni Guðmundssyni, bónda 1 Lóni í Kelduhverfi; Guðbjörg Halldóra, gift Gústaf Sigurjóns- syni búsett í Vestmannaeyjum; Jón Vilhelm, húsameisfa ri, kvæntur Helgu Pálsdóttur frá Beingarði i Skagafirði, búsettur í Keflavík; Björn, heima hjá föður sinum, ókvæntur. Eins og flestra húsmæðra lá verkahringur Stefaníu að mestu innan veggja heimilisins Upp- eldi barna sinna og annarra barna, sem dvöldu þar um lengri eða skemmri tíma lét hún sér mjög annt um og öll störf heimilisins vann hún af alúð og umhyggju. Hún var vel verki farin, fljót til verks og rösk og veittist því létt að afkasta miklu. Áhyggjur og erfiði lét hún aldrei á sig fá. En léttlyndi hennar og gamansemi stráði sól- skinsblettum i kringum har.a, sem ekki gleymast peim. sem með henni dvöldu. Hun var fast lynd og trygglynd og manni sín- um ástkær förunautur. Blessuð sé minning hennar. G. H.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.