Morgunblaðið - 05.10.1960, Blaðsíða 22
22
MORCVNBLAÐ1Ð
Miðvikudagur 5. okt. 1960
Eiturlyf
YFIRVÖLD á Italíu sem
fengu til meðferðar mál
danska hjólreiðamannsins
Knud Enemark sem lézt í
hjólreiðakeppninni, hafa nú
gefiö út þá yfirlýsingu, að
Enemark hafi látizt vegna
um orðræðum í DanmSrku. BT
skoði, hvort frekari dæmi séu
um eiturlyfjanotkun innan
danskrar hjólreiðaíþróttar.
BT spyr: Hvar fékk Knud
Enemark örfandi lyf? Hvers
vegna kom lítil handtaska
hans ekki heim eins og annar
farangur hans en í þessari
litlu tösku geymdi hann ýmis
meðul?
Ekstrahladet segir: Skýrslan
frá ítölum hefur alvarlegar
afleiðingar í för með sér fyr-
ir danska hjólreiðaíþrótt. —
fyrst dæmdur frá starfi sínu ævi-
langt, en þeim dómi var breytt
í eins árs útilokun.
f>essi dómur kann nú aftur að
verða þyngdur. Þær raddir eru
háværar í Danmörku, sem segja
að útiloka beri ævilangt alla þá
danska hjólreiðamenn, sem neytt
hafa örfandi lyfja, því slíkt sé
brot á öllum iþróttamannalögum,
en þar er greinilega tekið fram að
ekki megi neyta lyfja sem örfað
geti eða aukið getu manna.
Þessar raddir benda á, að ann-
Mynd þessi var tekin er Albert undirritaði sinn fyrsta knatt-
spyrnusamning við Glasgow Rangers. Til vinstri er Bill
Struth. framkvæmdastjóri félagsins þá, nú látinn, og til
hægri James Bowie forseti Rangers, nú látinn.
ekki sólstingur
orsakaði dauBa danska
hjóíreiðamannsins
þess að hann neytti örfandi
lyfja í ofríkum mæli.
Eins og kunnugt er var
fyrst tilkynnt að Enemark
hafi látizt af sólsting. Krufn-
ing liksins var ákveðin en
neitað var að gefa niðurstöður
hennar upp fyrr en að aflokn-
um leikunum. Þegar leikunum
hafði verið slitið dróst enn að
tilkynning yrði gefin um hið
sanna í málinu. Er ýmis blöð
kröfðust niðurstöðu krufning-
arinnar, létu ttalir undan síga
og nú er tilkynningin kunn-
gerð.
it Blöðin æfareið
Niðurstaðan hefur valdið mikl-
krefst þess að lögreglan grand-
Vera kann að öðrum þátttak-
endum Dana í hjólreiða-
keppni Olympíuleikanna
verði hannað að taka þátt í
hjólreiðum þar til fyrir liggja
sannanir um það, að þeir hafi
ekki neytt örfandi lyfja sem
hinn látni.
ir Útilokun fyrir lífstíð
Að undanförnu hefur mikið
verið rætt og ritað um þetta mál
í Danmörku. Hefur það gert mál-
ið flóknara að á sl. ári komst
upp um danskan hjólreiðaþjálf-
ara, Arne Brösen, sem gefið hafði
mönnum sínum vitamínsprautur
fyrir keppni og í henni. Hann var
ar Dani á Olympíuleikunum hafi
verið lagður inn í sjúkraúhs eft-
ir sömu keppni og Eenemark lézt
í. Hann hafi vaknað til lífsins
sem ölvaður maður. Ekki fari á
milli mála að hann hafi neitt
örfandi lyfja. Og skyldu þá ekki
hinir vera samsekir.
En nú mun fram fara lögreglu-
rannsókn í málinu — en mál
þetta vekur nú orðið alþjóðaat-
hygli.
Alexander Webster ritstjóri afhendir Albert myndina litlu
sem tekin var fyrir 17 árum.
17 ára gömul mynd minnti á
upphaf mikils frægðarferils
SKOZKUR ritstjóri, Aiexander
Webster, frá stórblaðinu Sunday
Mail í Glasgow gekk í gær á fund
Alberts Guðmundssonar. Afhenti
ritstjórinn honum að gjöf litla
sögulega mynd. Er hún af Al-
bert og tekin er hann undirrit-
aði sinn fyrsta samning um knatt
spyrnu erlendis. Á mvndinni er
hann með forseta og fram-
SAUTJÁN ára gamall pilt-
»r er umtalaðasti knatt-
spyrnumaður Noregs í dag.
Hann heitir Roald Jensen
og leikur með félaginu
Brann í Bergen. Þó hann
sé ungur að árum, nær
frægð hans þegar út fyrir
landamæri Noregs og inn-
an skamms kann svo að
fara að frægð hans geti
farið víða. Er hann lék með
landsliðinu norska gegn
Svíum, varð hann þekktur
þar í landi á 90 mínútum
— og einn af þeim beztu og
traustustu í sænska liðinu,
framvörðurinn Sigvard
Parling, mun seint eða
aldrei gleyma þessum unga
norska pilti.
Roald Jensen átti drjúg-
an þátt í sigri Norðmanna
yfir Svíum, 3 gegn einu,
nú nýlega. Róáld Jensen
lék sér gersamlega að Sig-
varrd Parling og að því
kom í leiknum að Svíar sáu
sitt óvænna gerðu
stöðubreytingar þannig, að
Thorbjörn Jonsson, sem
nýlega er orðinn atvinnu-
maður, var settur til að
halda þessum bezta manni
norska liðsins niðri — en
einnig það mistókst. Roak’
hélt eftir sem áður áfra
að koma vörn Svíann
sem annars var traust,
út úr jafnvægi og að
leikslokum voru sænsku
liðsmennirnir og sænsk-
h’ knattspyrnuforystu-
menn fyrstir til að við-
urkenna þá staðreynd
og lofa þennan unga
norska leikmann.
Roald Jensen hefur
leikið knattspyrnu síð-
an hann var 8
ára. Á sl. ári
„sló hann fyrst
gegn“ og æ síð-
an hefur hann
verið í stöðugri
og hraðri fram-
för. Hann kom fyrst í
norska landsliðið gegn
Austurríki í sumar (næsti
leikur Norðmanna eftir að
þeir unnu ísland 4—1). Þar
stóð hann sig með þeirri
prýði að norsk blöð voru
sammála um að hann væri
mesta efni sem norsk knatt
spyrna hefði eignazt frá
því styrjöldinni lauk. Að sá
dómur var réttur, hlaut
staðfestingu í leiknum
gegn Svíum.
En nú hefur skipazt svo,
að sennilega mun gleði
Norðmanna yfir þessu
mikla efni, verða skamm-
vinn. Fulltrúar atvinnu-
mannaliða éru farnir að
elta hann og það mun ekki
líða á löngu áður en hann
heldur til annara landa.
Roald hefur þó gert öll-
um atvinnumannaliðum
ljóst, að hann getur ekki
bundið sig, fyrr en hann
hefUr lokið stúdentsprófi.
Velgengnin hefur ekki
stigið honum til höfuðs og
þegar hann gerist atvinnu-
maður, hyggst hann sam-
tímis mennta sig sem arki-
tekt.
17 ára Norðmanni boðin atvinnumennska
kvæmdastjóra Glasgow Rangrers,
en hjá því félagri hóf Albert
frægóarferil sinn í knattspyrnu.
★ Gestur Flugfélagsins
meí myndina
Saga myndarinnar sem Webst-
er afhenti er orðin nokkuð flók-
in. Sir Robert Jack prestur að
Tjörn á Vatnsnesi sem er Skoti
í aðra ættina, frétti af því að
þessi mynd væri til. Hann bað
íþróttafréttaritstjóra Sunday
Mail að leita hennar. Fannst film
an eftir mikla leit rykfallin f
kjallara hússins. Þegar svo Flug-
félag íslands bauð skozkum
blaðamanni hingað til lands (
landkynningarskyni var Mr.
Webster fyrir valinu. og hann
hafði myndina með sér.
ir Upphaf frægðarferils
Er hann í gær kom á skrifstofu
Alberts urðu fagnaðarfundir —
en ekki mundi Albert eftir mynd
inni. Var honum gjöfin afar kær
komin, enda er hún söguleg fyrir
hann. Nú eru 17 ár síðan mynd-
in var tekin, — frá því Albert
hóf þánn feril sem átti eftir að
ná hápunkti er hann var talinn
leiknasti knattspyrnumaður Ev-
rópu. Frá Rangers lá leið hans
til frægustu félaga Evrópu á
sviði atvinnumennskunnar.
★ Ekki gleymdur
Robert Jack sagði að enn væri
langt frá því að Skotar hefðu
gleymt íslendingnum sem stóð
sig svo vel í liði Rangers. Enn
væri talað um Albert í blöðum
af og til og dyggir áhugamenn
knattspyrnunnar myndu enn
veru hans þar og allan frægðar-
ferilinn sem á eftir fylgdi.
Athugasemd
VEGNA fréttar í gær um bif.
reiðaáreksturinn á Hafnarfjarð-
arvegl, skal það tekið fram til
að fyrirbyggja misskilning. að
bílstjórlnn á olíubílnum áttl
enga #ök á árekstri þessum.