Morgunblaðið - 05.10.1960, Side 23
Miðvikudagur 5. okt. 1960
MORCUNBLAÐIÐ
23
Um 300 nemendur
1 Handíðaskólanum
HANDÍÐA og myndlistarskólinn
var settur í gær að viðstöddum
kennurum, nemendum og gestum,
og er nú hafið 22. starfsár hans.
Frá stofnun skólans hafa á
6. þús. nemendur stundað þar
nám og í vetur munu þeir verða
um 300 og hafa aldrei verið fleiri,
síðan skólinn hóf starfsemi sína
með því fyrirkomulagi, sem þar
er nú.
Skólinn starfar i mörgum deild
um, þar á meðal eru tvær kenn-
aradeildirí teiknikennaradeild, en
aðalkennari við hana er Valgerð-
ur Briem og vefnaðarkennara-
deild. Einnig er almenn vefnaðar
deild, við hana kenna þær frú
Sigríður Halldórsdóttir, frú Guð-
rún Jónasdóttir, frú Margrét Ól-
afsdóttir og frú Kristín Jónsdótt-
ir. Frú Vigdís Kristjánsdóttir
■kennir myndvefnað og jurtalitun.
I kennsludeild hagnýtrar mynd-
SKÁK-
MÓT
SKÁKMÓX með þátttöku
Bobby Fischers hefst í Lido
i kvöld kl. 7,30.
Þetta verður- 5 manna
mót, en ekki fjögurra eins
og ráðgert var í gær. Þá
verður aðeins tefld einföld
umferð. Sá, sem bætist við
er Arinbjörn Guðmundsson.
listar eru aðalkennarar þeir Sig-
urður Sigurðsson, listmálari, yfir
kennari skólans og Sverrir Har-
aldsson, íistmálari. Þar er kennd
teiknun, málun, grafik, mosaik,
listasaga o. fl. Einnig kennir
Nielsen Edwin fjarvíddarteikn-
un.
Allar þessar deildir starfa á dag
inn. Auk þeirra eru kvöld ög sið-
degisnámskeið í teiknun, bók-
bandi, steinþrykki, mosaik, tau-
þrykki, útsaum, myndvefnaði, stíl
sögu húsgagnateiknun o. fl. Alls
kenna 22 kennarar við skólann og
eru þeir allir sérmenntaðir.
Lætur af störfum í lok skólaársins
í setningarræðu sinni bauð
skólastjórinn, Lúðvík Guðmurids-
son, kennara og nemendur vel
komna, sérstaklega þó tvo kenn
aranna þá Sverri Haraldsson og
Braga Asgeirsson, listmálara, en
þeir hafa l>áðir dvalið erlendis
við framhaldsnám.
1 lok ræðunnar gat skólastjóri
þess, að hann hefði í hyggju að
láta af störfum í lok þessa skóla-
árs, sagði hann að eftirmaður
sinn hefði ekki verið valinn, en
hann vonaðist til þess, að það
yrði Sigurður Sigurðsson, listmál
ari, yfirkennari skólans, sem
væri meðal fremstu listamanna
þjóðarinnar. Hann hefði oft
gengt störfum fyrir sig í veik-
indaforföllum og þar af leiðandi
fengið reynslu í starfinu.
Síðan lýsti skólastjóri skólan
settan og sagðist vona að nem-
endur hefðu sem mest gagn af
starfi sínu þar í vetur.
Dagslálrun 360 dilkar í
nýju sláturhúsi á Selfossi
Brezkur togari skemmir
veiðarfœri línubáta
SELJATUNGU, 4. okt. — Þriðju-
daginn 27. sept. sl. var tekið í
notkun nýtt sláturhús hjá S. Ó.
Ólafsson & Co. á Selfossi. Var
byrjað á byggingu þessari, sem
áföst er frystihúsi, í maímánuði
sl. og er henni svo langt komið
nú að hægt var að hefja slátrun í
sláturhúsinu sl. þriðjudag svo
sem áður segir.
Byggingin er reist á verzlunar-
lóð fyrirtækisins, sunnanvert við
fyrirhugað verzlunarhús en götu-
hæð þeirrar byggingar var reist
að nokkru leyti fyrir nokkrum
árum.
Öll er hin nýja sláturhúsbygg-
ing hin vandaðasta og smekk-
legasta að fyrirkorriulagi og
byggð eftir ströngustu kröfum er
gerðar eru nú til dags til slíkra
baráttu þar i landi. Ekki er þe.s ÍJ’Sf'f' A' er
ge.16 í tilkynningu Síarcke bver,!ÍT "ÆU,
hann muni draga framboð sitt
til baka.
Starcke hefur um margra ára
skeið verið formaður þings-
flokks Réttarsambandsins og á
sæti í núverandi ríkisstjórn.
Talið er sennilegast að Starcke
verði ekki í framboði við kosn-
ingarnar sem nú fara í hönd, en
hann er þó ekki álitinn ófáan-
legur til að sitja áfram í ríkis-
stjórinni. Viggo Starcke hefur
verið.ákveðinn andstæðingur ís-
lendinga í Handritamálinu.
Stareke s júkur
VIGGO Starcke, leiðtogi Réttar-
sambandsins í Danmörku, hefur
tilkynnt að vegna vanheilsu
verði hann að hætta við þátt-
töku í væntanlegri kosninga-
NORDFIRÐI, 4. október: —
Mikill fjöldi brezkra togara er
nú að veiðum á línumiðum Norð
fjarðarbáta. Svæði það, sem togar
arnir halda sig aðallega á, er
20—40 mílur undan landi, en
einnig eru þeir oft grynnra. Svo
mikið er af togurum þarna, að
sjómennirnir hafa ekki getað lagt
línuna á þeim miðum sem þeir
hafa ætlað á.
Fréttaritari blaðsins átti í gær-
kvöldi tal við Þorleif Jónasson
skipstjóra á vélbátnum Qullfaxa.
— Fergusson
Frh. af bls. 24
SNJÓLÍNAN HÁTT
Norðvestur af Grímsvötnum
var flogið yfir sigdæld, þar sem
sýnilega hefur brotnað og sigið
nýlega. Er þetta á sama stað og
umrótið haustið 1955, þegar einn
jg kom hlaup í Skaftá, svo þarna
á hlaupið í ánni frá um daginn
sýnilega upptök sín. Segir Sigurð
ur Þórarinsson, sem skoðaði
deeldina 1955, að þá hafi hún
verið dýpri, en svipuð að um-
tnáli.
Loks var flogið í stefnu á Kerl
ingarfjöll og yfir Langjökul, með
það fyrir augum að líta á skrið-
jöklana. Virtist snjólínan eða
hjarnmörkin vera óvanalega Xiátt
í Tungnaárjökli a. m. k., að því
er Jón Eyþórsson tjáði okikur, en
hann sagði að það mundi Sigur-
jón Rist mæla nákvæmar.
f OKIÐ AÐ HVERFA
Á leiðinni heim sást vel yfir
Ok, sem Jón sagði að væri að
hraðhverfa. Gígurinn, sem ekk-
ert mótar fyrir á herforingja-
ráðskortinu, er nú utan við fönn
ina og gígbarmurinn aiveg snjó-
laus, þó svolítill snjór sé enn í
botninum. Annars sögðu þeir fé-
lagar að í sumar hefði greinilega
bráðnað meiri snjór en venju-
lega, bæði í fjöilum og á jöklum.
í fyrrakvöld, er hann fór í róður,
ætlaði hann út í svonefnda Gull-
kistu, sem löngum hefur verið
fengsælt mið. Þeir á Gulfaxa
neyddust þó til að snúa við, er
nokkuð var komið áleiðis og fara
á önnur mið sökum togarafjöld-
ans. Sagðist Þorleifur sjaldan
hafa séð slíkan togararfjölda sem
þarna var á miðunum. Fleiri l>át-
ar urðu líka að snúa við. Virðist
sjómönnum sem togararnir hópist
þar að sem bátarnir leggja línuna
og er helzt að sjá, að Bretarnir
geri sér meiri aflavon þar sem
ijátarnir eru.
4 sinnum yfir línuna
í fyrradag fór brezki togarinn
Serron, GY 309 fjórum sinnum
yfir línu vélbátsins Glófaxa er
hann var að draga og sagði Björn
Sveinbjörnsson að sér hefði virzt
að togarinn hreinlega elti þá. Fór
sá brezki fyrst á brott, eftir að
Glófaxa hafði verið siglt nálægt
honum og nafn og númer tekið.
Glófaxi missti þó aðeins eina
línu og tvö dufl.
Vélbáturinn Hafrún, sem var
nálægt Glófaxa, varð einnig fyrir
barðinu á sama togara og tapaði
Hafrún nokkrum línum og dufli.
— S. L.
Kosið í Þ rótti
á Siglufiiði
SIGLUFIRÐI, 3. október: —
Þróttarkosningunum, um val
fulltrúa á 27. þing ASÍ, lauk kl.
rúmlega sex í dag. Atkvæði
greiddu 380.
Úrslit urðu þau, að A-listi,
kommúnista, hlaut 212 atkv. og 5
fulltrúa kjörna. B-listi, lýðræðis-
sinna, hlaut 164 atkv. og engan
kjörinn. Auðir seðlar og ógildir
voru fjórir.
Kommúnistar hafa jafnan haft
ríflegan meirihluta í Þrótti, en nú
bættist þeim góður liðsauki þar
sem voru öll Framsóknaratkvæð-
in í félaginu. Börðust Framsókn-
armenn öllu harðar undir merkj-
um kommúnista en þeir sjálfir.
— Stefán.
— Kongó
Framh af bls 1
í síðustu viku og 60 aðrir eru á
leiðinni.
Mobutu hershöfðingi hélt í dag
útvarpsræðu og sagði að herinn
í landinu mundi áfram gegna
sama hlutverkinu og undanfarið,
eða þar til stjórnmálamennirnir
hefðu fundið leið til að koma á
ríkisstjórn sem byggði stefnu
sina á réttlæti, friði og frelsi.
Frá Elisabethville hafa borizt
fréttir um að fjöldi hvítra manna
hafi verið handtekinn fyrir að
brjóta útgöngubann, sem sett var
á í hverfum hvítra manna fyrir
tveim dögum. Hinir handteknu
voru fluttir til næstu lögreglu-
stöðvar, þar sem þeir urðu að
sýna skilríki sín.
12,65x15
föst frystihúsbygging,
metrar.
1 suðurenda sláturhússins er
fjárrétt fyrir 350 fjár og er
henni skipt í hólf. Útaf réttinni
í vesturhluta byggingarinnar, er
fyrst aðalvinnusalurinn með af-
þiljuðum aftökuklefa, en úr þess-
um sal gengur kjötið síðan inn í
annan sal þar sem snyrting þess
og vigtun fer fram en þaðan geng
ur það síðan inn í kalda geymslu
og loks í frystiklefann. Fara
kjötskrokkarnir alla þessa leið á
járnslá og þarf eigi neitt að bera
kjötið til fyrr en það er tekið
urhluta byggingarinnar er
vinnusalur þar sem innmatur er
flokkaður og slátursala fer fram,
gæruklefi, klefi fyrir hausa og
blóð, kaffistofa starfsfólks og
hréinlætisherbergi.
Frágangur allur á byggingunni
er hinn vandaðasti og aðstaða
starfsfólks til fyrirmyndar.
Sláturhússtjóri er Sigurjón
Stefánsson og vinna undir hans
stjórn 10—12 manns. Leyft er
að slátra daglega 350 fjár, en
sláturhúsið mun starfrækt allt
árið og þá teknir til slátrunar
stórgripir sem jafnan fellur
nokkuð til af.
Yfirsmiður byggingarinnar er
Sigurður Guðmundsson bygginga
meistari á Selfossi. Raflagnir
annaðist Rafgeisli h.f. og er raf-
lýsing í húsinu mjög fullkomin.
— Múrverk annaðist Friðrik
Sæmundsson, múrarameistari.
Rann á grindverk
KL. rúmlega 19 í gærkvöldi var
bifreiðin G-99 á leið niður Skóla-
vörðustíg. Munu hemlar bílsins
hafa bilað og rann hann áfram,
lenti fyrst utan í öðrum bíl og
síðan á grindverki úr járnpípum,
sem liggur meðfram gagnstéttar-
brúnni norðanmegin við Lauga-
veginn.
Ekki urðu slys á mönnum, en
bifreiðin skemmdist all mikið.
úr frystihúsinu til sölu. I aust- Einnig skemmdist grindverkið.
Þakka hjartanlega heimsóknir, blóm, skeyti og raunar-
legar gjafir á fimmtugsafmæli mínu 23. sept. sl.
Guð blessi ykkur öll.
Kristín Guðjónsdóttir, Búrfelli
Mínar beztu þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig
á afmælisdaginn minn 30. sept. sl. — Lifið öll heil.
Gerða Eiríks, Gunnarshólma
Þakka af alhug auðsýnda vináttu í tilefni af sextugs
afmæli mínu 9. sept. sl. — Guð blessi ykkur öll.
Guðm. Jóhannesson, Arnarhólt
Eiginmaður minn
SÉRA SIGURÐUR M. PÉTURSSON
Breiðabólstað Skógarströnd
lézt þann 3. okt. sl. Jarðarförin auglýst síðar
Arnbjörg Eysteinsdóttir
Eiginmaður minn
GUÐMUNDUR GUÐBRANDSSON
frá Leiðólfsstöðum
lézt að heimili okkar Álfheimum 42 þann 4. þ.m.
Jarðarförin auglýst síðar
Sigríður Einarsdóttir
Jarðarför eiginkonu minnar
OKTAVlU GUÐMUNDSDÖTTUR
Reykjadilíð 10
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudag. 6. okt. kl. 13,30.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Þorkell Sæmundsson
Konan mín
SVAVA BJÖRGÓLFS
frá Siglufirði
verður jarðsett frá Dómkirkjuíini fimmtudaginn 6. okt.
klukkan 1, 30.
Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna og barnabarna.
Sigurður Björgólfsson
Jarðarför eiginmanns mins,
JÓHANNESAR SVEINSSONAR
Básenda 14,
fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 6. þ.m. —
Athöfninni verður útvarpað.
Fyrir mína hönd og barnanna
Petrína H. Guðinundsdóttir
Jarðarför bróður okkar
ÓSKARS BJÖRNSSONAR
Lækjargötu 20, Hafnarfirði
sem lézt í Landspjtalanum 2. þ.m. fer fram frá Þjóð-
kirkjunni í Hafnar/irði, laugardaginn 8. okt. og hefst kl.
2.00 e.h. — Blóm afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast
hins látna er bent á líknarstofnanir.
Systkinin