Morgunblaðið - 30.10.1960, Blaðsíða 15
Sunnudagur 30. okt. 1960
MORCVN<il'AÐlÐ
15
— Bláa bandid
Framh. aí bls. 13.
baráttu sína í sameiningu. Allir
vita, hvað um er að vera, og
skilja hver annan. Þetta er á-
reiðanlega ein ástæðan fyrir hin
um góða árangri.
— Hvernig liður dagurinn?
— KL 8 er farið í bað og síðan
á fætur. Kl. 9 er morgunmatur,
i3L2 hádegismatur o.s.frv. Milli kl.
eitt og sjö er útgönguleyfi fyrir
|>á, sem vilja. Kl. hálfellefu er
allt komið í ró.
fe — Er það ekki mikill svefn?
— Menn lesa í rúmum sínum
fram eftir nóttu.
— Héx er auðvitað mikið les-
»?
— Já, blöðin eru náttúrulega
f
þaullesin, en bðkakoistur er hér
ekki enn mikill. Þú mættir mjög
gjarnan skila því til bókaútgef-
enda og annarra, sem bækur
kynnu að hafa aflögu, að hér
eru allar bókagjafir afarvel
þegnar. Dagurinn líður aðallega
við lestur, spil, tafl og samræð-
ur. Sýndar eru kvikmyndir, sem
Upplýsingaþjónusta Bandaríkj-
anna er svo hugulsöm að senda
okkur, og einu sinni í viku flyt-
ur Jónas Guðmundsson erindi.
Svo fá menn heimsóknir, og
margir verja tímanum til þess
að hugsa um vandamál sín, rekja
sporin að staðnum, þar sem þeir
villtust, og reyna að ákveða Þau
spor, sem framundan eru, þegar
út héðan er komið.
íbúð til sölu
Rúmgóð tveggja herb. kjallaraíbúð í Skjólunum með
sér kyndingu í mjög góðu standi, til sölu.
Upplýsingar í sima 23371.
Ford vörubifreið
til sölu í mjög góðu lagi. Smíðaár 1952. Bifreiðin er
með nýrri vél, nýjum fjöðrum og nýjum palli. —
Hagstætt vevð ef samið er strax. Upplýsingar gefn-
ar í síma 32946.
Vppboð
Nauðungaruppboð verður haldið að Grensásvegi 26,
hér í bænum, þriðjudaginn 1. nóv n.k. kl. 11 f.h.
Seld verða áhöld og vélar tilheyrandi verzluninni
Kjöt & Álegg (þb. Ragnars Baldvinssonar) m. a. kjöt-
sög, búðarvogir, áleggshnifur^ frystitæki, peninga-
kassi og búðardiskar.
Greiðsla íari fram við hamarshögg.
Borgarfógetinn í Reykjavík
Verzlunarpláss óskast
helzt nálægt miðbænum. Margt kemur
til greina. Uppl. sendist Mbl. fyrir mánu-
dagskvöld merkt: „Raftæki — 1929“.
Nútíma kona vill
nýtízku saumavél
hII
Aldrei áður hefir verið svo ánægjulegt og auðvelt að sauma. Allan daglegan
saumasicap gerið þér með Husqvarna Automatic. Hún saumar beinan saum,
teygjanlegan saum, ,hnappagöt‘ zig-zag, sjálfvirkt mynstur, rykkir^ bætir,
stoppar, varpar saum, blindfaldar, festir tölur o. fl. o. fL
Husqvarna er auðveld í meðförum, fjölbreytt notagildi, sænsk framleiðsla.
Kynnist vélinni og reynið hana og ef þér veljið Husqvarna hafið þér tekið
ákvörðun, sem þér munuð aldrei iðrast.
HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKILMÁLAR
Husqvarna kostir
Hringskytta, sem gefur fullkomið öryggi að tvinninn
flækist ekki, skyttuna þarf aldrei að smyrja.
Vélin er steypt í heilu lagi, sem tryggir nákvæmni í
notkun.
Innbyggður hraðastillir í vélina gerir mögulegt við
mynstursaum og hnappagöt að sauma mjög hægt, spor
fyrir spor.
Þér stjórníð vélinni með hraðastilli á gólfinu, sem vinnur
mjög mjúkt.
Kennsla fyigir i kaupunum. ,
Það er leikur að sauma á
lHusqvarna óuawnatío
Einkaumboð:
GUNNAR ASGEIRSSON H.F.
Suðurlandsbraut 16 — Sími 35200.
Bezt að auglýsa í MORGUNBLAÐINU
Málfundafélagið Ö ÐIMIM
félag S]álfstæðisverkam. og sjomanna
AÐALFUIMDLR
élagsins verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu í dag, 30. október 1960 og hefst kl. 2 e.h.
DAGSKRA:
1. Venjuleg aðalfundarstorf 2. Lagabreytingar
3. Önnur mál
STJÓRNIN,