Morgunblaðið - 02.11.1960, Page 1
24 síður
47 árgangur
Miðvikudagur 2. nóvember 1960
Prentsmiðia Morguriblaðsins
^ v .
w'Ww».;- •••• v.-rroocn:
:íí*riSW(l»xSM::;
Bretaþing sett:
Bretadrottning víkur oð
veiðideilunni i
fisk-
hásætisræðu
London, 1. nóv. (NTB-Reuter)
ELÍSABET Bretadrottning
flutti í dag hásætisræðu við
setningu brezka þingsins. —
Sagði hún að helzta verk-
efni þingsins yrði að stuðla
að bættri sambúð Austurs
og Vesturs. I ræðu sinni,
sem ríkisstjórn Macmillans
hefur samið, hét drottningin
Sameinuðu þjóðunum fullum
stuðningi, kvað Breta munu
vinna eindregið að því að
ná samkomulagi í Genf um
bann við tilraunum með
kjarnorkusprengjur og sagði
að brezka ríkisstjórnin
mundi gera sitt ítrasta til að
koma á afvopnun undir al-
þjóðaeftirliti.
Bretadrottning minntist
nokkuð á fiskveiðideilur
Breta við íslendinga og
Norðmenn og sagði meðal
annars: —• Ríkisstjórnin
5 sviptir
ökuleyfi
G Æ R voru í sakadómi
Reykjavíkur kveðnir upp 5
dómar yfir mö(nnum, sem all-
ir höfðu gerzt sekir uxn að
aka u(ndir áhrifum áfengis og
valda árekstrum og öðrum ó-
höppum.
Voru menn þessir kærðir
fyrir þessi brot í sumar og
haust. Sá sem þyngstan dóm
hlaut, var dæmdur til ökuleyf-
issviptingar ævilangt, enda um
itrekun að ræða. Hinir menn-
iijnir fjórir voru sviptir öku-
Ieyfi ýmist í eitt ár eða hálft
ár. —
mun halda áfram að
styðja og efla fiskiðnað
vorn og reyna að leysa
viðkvæmar deilur varð-
andi fiskveiðitakmörkin,
einkum við þær þjóðir þar
sem fiskimenn okkar hafa
stundað fiskveiðar við
ströndina um langan ald-
ur. —
TIGNIR GESTIR
Það þótti tíðindum sæta að
meðal gesta við þingsetninguna
var margt tiginna manna, þar
á meðal Mahendra konungur í
Nepal og Ratna, drottning hans
og Konstantin krónprins Grikkja
og systir hans Sofía. Hertoginn
af Edinborg, eiginmaður Elísa-
betar, sat við hiið konu sinnar.
MIKILL MEIRIHLUTI
Ihaldsflokkur Macmillans hef
ur nú 100 þingsæta meiri hluta
í Neðri málstofunni og Verka-
mannaflokkurinn illa klofinn
vegna ósamkomulags um stefn-
una í varnarmálum. Ársþing
flokksins samþykkti í síðasta
mánuði að skora á ríkisstjórnina
að hafna afnotun af kjarna-
vopnum, en Gaitskell, formaður
Verkamannaflokksins, hefur neit
að að fallast á samþykktina.
FORMANNSKJÖR
Fara nú fram nýjar formanns
kosningar í Verkamannaflokkn-
um og býður Harold Wilson sig
fram gegn Gaitskell. Þingmenn
flokksins, sem eru 256, hafa þeg
ar greitt atkvæði, en þau verða
ekki talin fyrr en á fimmtudag.
Engar líkur eru taldar á því að
Wilson takist að fella Gaitskell.
) Hér getur að Hta háta á síld-
veiðum inni á Vestmanna-
eyjahöfn. Myndin var tek-
in í nóvember í fyrra. Menn
velta því nú fyrir sér, hvort
síldin muni koma inn á innri
höfnina aftur. Á tímabilinu
3. til 8. nóv. 1959 veiddust
rúmlega 6000 mál upp úr
höfninni, en þá fór mestur
hluti síldarinnar í bræðslu
á hafnir suður með sjó. —
Sjá þriðju síðu.
(Ljósm.: Sigg. Jónss.)
Flutti á
fæðingar■
deildina
Teheran, íran, 1. nóv. (Reuter)
ÍRANSKEISARI flutti í dag
skrifstofu sína til fæöingar-
heimilisins í einu af fátækra-
hverfum höfuðborgarinnar
þar sem Farah drottning og
dagsgamall sonur hennar
eru. —
Blaðamenn fengu í dag að
sjá krónprinsinn og taka af
honum myndir. Segja þeir
hann svarthærðan, með stór
augu og uppbrett nef eius
og móðirin.
Þegar íranskeisari hafði séð
son sinn og eiginkonu í morgun,
tilkynnti hann að til að geta
verið nálægt mæðginunum flytti
hann til fæðingarheimilisins og
stjórnaði ríki sínu þaðan.
SKATTALÆKKUN
Fagnaðarlæti íbúanna héldtt
áfram í dag og voru götur borg-
anna fullar af dansandi og syngj
andi fólki.
Fjármálaráðuneytið tilkynnti
Frh. á bls. 23
Njósnarar teknir
MOSKVU 1. nóv. (NTB-Reuter)
SAMKVÆMT upplýsingum Tass
fréttastofunnar rússnesku, var
bandarískur njósnari handtekinn
í Sovétríkjunum í dag. Maður
þessi, Mikail Platovsky, á að hafa
verið í félagi með öðrum banda-
rískum njósnara, Slavnov að
nafni, sem áður hafði verið hand
tekinn.
Segir fréttastofan að komið
hafi í ljós að Platovsky og Slav-
nov hafi verið smyglað inn í
Sovétríkin. Hafi Platovsky átt að
setjast að í Minsk og safna þar
upplýsingum. Þegar hann var
handtekinn, fundust í fóruin
hans tvö senditæki, símlyklar og
ýms njósnatæki, auk rússnesk*
vegabréfs, sem framleitt hafi
verið í Bandaríkjunum.
RÚSSNESKUR
Bandaríska útvarpið telur frétt
þessa eiga rót sína að rekja til
þess að rétt vika er síðan rúss-
neskur starfsmaður Sameinuðu
þjóðanna, Igor Yakoevlvich Mel_
ekh, var handtekinn fyrir njósn-
ir í New York.
Þá segir í Reutersfrétt frá Prag
að tékkneskur dómstóll hafi
dæmt tvo vestur-þýzka njósnara,
Wilhelm Kahabka og Frantisek
Puchl, til átta og fjögurra ára
fangelsisvistar.
Gullleit á Skeiðarársandi
/ 5
Indiafar hladið gulli og demönfurri^
fórst ibar fyrir 293 árum
„INDLANDSFAR hlaðið
gulli og gimsteinum strand-
ar á íslandi. — Dýrmætasti
farmur sem til landsins hef-
ur komið .„ ....“ Þannig hljóð
ar fyrirsögn á ritgerð eftir
Árna Óla, ritstjóra Lesbók-
arinnar, 3. maí 1936. Þar seg-
ir ritstjórinn frá því er hol-
lenzkt kaupfar strandaði á
Skeiðarársandi haustið 1667.
Nú er hafinn undirbúningur
þess að reyna að finna strand
stað skips þessa og hina dýru
málma, er það hafði innan-
borðs.
■A: Leyfi fengin
Staðfesti Bergur Lárusson
frá Kirkjubæjarklaustri við
Mbl. í gærkvöldi, að þetta væri
rétt. Kvaðst hann hafa aflað sér
leyfis jarðareigenda þar eystra,
svo og leyfi stjórnarvaida. —
Vonazt er til, sagði Bergur, að
hægt verði að fara á sandinn
seinnipart vetrar eða næsta
vor. —
Á FuIIkomin tæki
Jafnframt því sem Bergur
Lárusson hefur aflað sér leyfis
til að leita skipsflaksins í sand-
inum, hefur hann lagt drög að
því að kaupa frá Bandaríkjun-
um mælitæki sem „metaldetekt
or“ heitir, og gert er til þess
að leita að málmum í jörðu
niðri.
Það liggur ekki fyrir örugg
vitneskja um það hvar India-
farið strandaði. — Árni Óia
segir um þetta m. a.: „Þeir sem
bezt þekkja sagnir telja að skip
ið muni hafa strandað um 20
km leið fyrir vestan Ingólfs-
höfða.“
ir Erfitt verk
Inn á sandinn þarna er mjög
erfitt að komast, sagði Bergur
og nær ógemingur nema á
vetrum eða snemma á vorin, því
annars vegar er Skeiðará og
hins vegar Núpsvötn og Gígju-
kvísl. Þó Bergur hafi víða um
hina miklu sanda farið, hefur
hann aldrei komið á þessar
slóðir. — Eg mun nota skrið-
beltabíla, til að komast með
mælitækin, en þeir geta farið
yfir hvað sem er og hægt að
fara á flot á þeim ef þörf kref-
ur. — Nei, ég veit ekki frekar
en aðrir hvar á sandinum helzt
er að leita, en víst er að svæð-
ið er allmikið um sig, kannski
10—15 km frá austri til vesturs
og 5 km frá norðri til suðurs.
Eg hefi lengi haft hug á þessu.
Frh. á bls. 23