Morgunblaðið - 02.11.1960, Síða 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
MiðviKudagur 2. növ. 1960
Útibúið í Árósum
— fyrsta verkefni Leikfél. Kópavogs
Leikfélag Kópavogs byrjar
starfsár sitt með sýningu á gam
anleiknum „Útibúið í Árósum", í
þremur þáttum eftir Max Neal
og Kurt Kraatz. (Er þetta fjórða
leikár félagsins).
Frumsýnt verður að öllu for.
fallalausu fimmtudaginn 10. nov.
Leikstjóri er Einar Guðmunds-
son, leikari, en hann lauk prófi
frá Leiklistarskóla Þjóðleikhúss-
ins 1058.
Með hlutverk fara: Sigurður
Grétar Guðmundsson og Auður
Jónsdóttir. Auk þeirra fara með
veigamikil hlutverk leikkonurn-
ar Helga Löve og Vilborg Svein-
björnsdóttir. Alls koma fram í
leiknum 13 leikendur.
byrjað að sefa hann. Þetta er
fyrsta barnaleikritið sem Leik-
félag Kópavogs sýnir og hefur
mikið verið til þess vandað.
Einnig er í ráði að setja á svið
„Skuggasvein“ eftir áramótin.
Snorri Karlsson hefur sem fyrr
teiknað og málað öll tjöldin.
Sýningar á „Útibúinu“ verða
í Kópavogsbíói en á barnaleik-
ritinu í Kópavogsbíói og í Skáta-
heimilinu við Snorrabraut. —
Einnig mun verða farið með „Úti
búið“ í heimsókn til nágranna-
bæja og sveita, t d. verður það
sýnt í Hlégarði í Mosfellssveit
miðvikudaginn 23. nóvember.
---------------------------------•
Þá er einnig að ljúka æfingum
á barnaleikritinu „Lína lang-
áokkur", eftir sænsku sákldkon-
una Astrid Lindgren. Leikritið
er í fjórum þáttum. Er ráðgert
að frumsýna það sunnudaginn
13. nóv. Leikstjóri er Gunnvör
Braga Sigurðardóttir. Aðalhlut-
verk er leikið af Sigríði Soffíu
Sandholt. Geta má þess, að í leik
'þessum kemur fram api og er
Flestir
vildu
svartan
SKYNDIHAPPDRÆTTI Sjálf
stæðisflokksins efndi til skoð-
anakönnu.nar um það hvaða
lit fólk vildi hafa á bílnum,
ef heppnin yrði með. í skyndi
happdrættinu eru sem kunn-
ugt er tveir Volkswagen-bílar.
Auglýsyig um þetta var birt
í blöðunum o® sendu mörg
hundruð Reykvíkinga álit sitt.
— Yfirgnæfandi meirihluti
manna vill eiga svartan bíl —
og því voru dregin fimm ,nöfn
úr hópi þeirra, sem kusu þann
svarta:
Karen Bryde, Garðavegi 4.
Steingrimur Björnsson, Eski
hlíð 16B.
Emelia Möller, Vesturbrún
24.
Sveinn Ri',nar Árnason, Vík,
Mýrdal.
Jörundur Kristinsson, Álf-
heimum 34.
Allt þetta fólk fær nú 3
happdrættismiða hvert — og .
verður miðunum komið til t
þeirra. Næstkomandi þriðju-
dag verður dregið um Volks-
wagen-bílana tvo. — Hverjir
hreppa þá?
Dagskrá Alb’mgis
Sameinað Alþingi kl. 1,30 e.li.
1. Fyrirspurn: Veðdeild Búnaðarbank
ans. — Ein umr.
2. Rykbinding á þjóðvegum, þáltill.
— Hvernig ræða skuJi.
2. Hafnarstæði við Héraðsflóa, þáltill.
— Hvernig ræða skuli.
4. Byggingarsjóðir, þáltill. — Hvernig
ræða skuli.
5. Fjáraukalög 1958, frv. — 1. umr.
f. Virkjunarskilyrði í Fjarðará, þál.-
till. — Ein umr.
T. Lán til veiðarfærakaupa, þáltill. —
Ein umr.
8. Skaðabótaábyrgð rikis og sveitar-
félaga, þáltill. — Ein umr.
9. Síldariðnaður á Austurlandi, þáltill.
— Ein umr.
10. Sjálfvirk símstöð fyrir Austurland,
þáltill. — Ein umr.
11. Slys við akstur dráttarvéla, þáltill.
— Ein umr.
II. Utboð opinberra framkvæmda, þál.
till. — Ein umr.
18. Lánsfé til Hvalfjarðarvegar, þáltill.
— Ein umr.
14. Rafmagnsmál Snæfellinga, þáltill.
— Ein umr.
15. Umferðaröryggi á leiðinni Reykja-
vík—Hafnarfjörður, þáltill. — Ein
umr.
10. Gjaldeyristekjur af ferðamanna-
þjónustu, þáltilL — Ein umr.
Milljdnamæringurinn
skuldar íslendingunum
Tveir þeirra er sigldu Franz Terso
sviknir um umsamin laun
TVEIR þeirra manna, sem
sigldu sl. sumar skemmti-
snekkju fyrir ítalskan auð-
mann, Monzino að nafni, til
Grænlands, hafa verið svikn-
ir um umsamdar launa-
greiðslur. Hinn ítalski auð-
jöfur skuldar þessum mönn-
um um 24 þús. krönur alls
eða þar um bil.
★ Bjargað í hafi.
Grænlandsför þessa ítalska
manns var mjög í fréttum blað-
anna í sumar. Snekkju hans
„Franz Terzo“ var bjargað I hafi
og hún dregin inn til Reykja-
víkur. Áhöfnin sem siglt hafði
henni frá Hollandi, var afskráð
hér og send heim Umboðsmaður
eiganda snekkjunnar, einnig
ítalskur maður, Vittorio Barberis
að nafni, samdi við nokkra ís-
lendinga um að sigla skipinu til
bæjarins Sukkertoppen í Græn-
landi.
Ferðin til Grænlands gekk vel.
Þar urðu eftir á bátnum Guð-
mundur S. Jónsson, Unnarstíg
2, Hafnarfirði, er var skipstjóri,
og Einar Erlingsson, Suðurlands
braut. er var vélstjóri.
★ Hrakfarir enn .
Það hafði verið ákveðið að
sigla bátnum til Holsteinsborgar
og geyma hann þar í vetur, er
Mousinni færi frá Sukkertoppen,
En vegna bilunar á ,gyrokompás‘
og stýri, var frá þessu horfið,
er komið var til 'Syðri Straum-
fjarðar. Þar hafa Bandáríkja-
menn mikla bækistöð. Stóð til
Heiimlcllingar
HEIMDELLINGAR! — Gerið
skil í skyndihappdrætti Sjálf-
stæðisflokksins. Á þriðjudag-
inn verður dregið um bílana
tvo.
| / NA /S hnúíar 1 ^ SV 50 hnútor SnjóJcoma > ÚSi V Shúrir ft Þrumur 'W.:% KuUatkH Hiftski/ H H*9 L Lati
Segja má að lægðirnar á
kortinu snúist hvor um aðra,
því lægðin yfir Grænlands-
hafi hefur hreyfzt suður, en
hin NNA. Er útlit fyrir norð-
austanátt hér á landi, þegar
írlandslægðin nálgast Færeyj-
ar. Sú lægð er mjög djúp, 960
mb. í lægðarmiðju.
Veðurspáin
klukkan 10 í gærkvöldi:
SV-mið: SA og síðar austan
átt og rigning í nótt.
SV-land til Breiðafjarðar,
Faxaflóamið til Breiðafjarð-
armiða: SA gola og dálítil
rigning í kvöld, en A eða NA
stinningskaldi og skýjað á
morgun.
Vesfirðir, Vestfjarðamið og
norðurmið: SA kaldi og úr-
komulitið i kvöld, en hvass
NA og snjókoma á morgun.
Norðurland til SA-lands og
NA-mið til SA-miða: SA-
kaldi, en allhvass A eða NA
á morgun, rigning öðru hverju
boða frá þeim hjálp til að gera
við stýrið. en umboðsmaður eig-
anda, Vittorio Barberis, vildi
enga aðstoð þiggja. Bað hann
Islendíngana að leggja bátnum
þar á firðinum, því lengra yrði
ekki farið. Gengu þeir vel frá
bátnum. Þetta var í lok ágúst-
mánaðar. Er þeir kvöddu um-
boðsmanninn bað hann þá um
að gera ekki upp laun sín við
umboðsmann sinn í Reykjavik,
skipamiðlara, fyrr en hann (Bar-
beri) hefði skrifað Faaberg bréf.
Á það var fallizt.
ÍC Greiðsiur launa stöðvaðar.
Hingað til Reykjavíkur komu
Guðmundur og Einar 1. sept.
ember. Nokkrum dögum
síðar kom skeyti til Faaberg
skipamiðlara og lagt fyrir
hann að stöðva greiðslur til
Guðmundar og Einars. Þeir
hefðu valdið tjóni á bát Mon.
zinis hins ríka og þeir yrðu
að bæta það.
Þessu mótmæltu þeir Guð-
mundur og Einar, en árang.
urslaust. Þeir hafa ekki enn
fengið um 24.000 krónur, sem
þeir eiga inni hjá MonzinL
★ Lögfræðingar í málið.
Báðir eru þeir fjölskyldumenn
Guðmundur og Einar. Guðmund
ur sagði við Morgunblaðið í gær,
að sýnt væri að meiningin væri
að hafa þetta fé af þeim fé-
lögum. Málatilbúningur væri að
þeir hefðu skemmt snekkjuna. Á
það hefði aldrei verið minnzt
einu orði meðan Barberi var með
þeim í Grænlandi.
Þeir félagar hafa nú leitað að-
stoðar lögmanna við að fa sín
umsömdu laun, en skriflegir
Athugasemd
í TILEFNI af grein í Tímanum
28. þ. m. vill framkvæmdanefnd
miðstjórnar Menningartengsla
íslands og Ráðstjórnarríkjanna.
upplýsa, að reikningar félags-
ins hafa verið gerðir upp, end-
urskoðaðir og samþykktir án at-
hugasemda, og hafa ekki komið
fram innan félagsins neinar að-
finnslur við fjárreiður hans.
Reykjavík, 29 október 1960.
Hannes Stephensen,
Árni Böðvarsson,
Jón Múli Árnason,
Þorvaldur Þórarinsson,
Kristinn E. Andrésson,
Halldór Jakobsson,
Ragnar Ólafsson.
Þ E S S I mynd var tekin I
skömmu áður en íslenzka
skipshöfnin á Franz Terzo
lagði úr höfn hér, áleiðis til
Sukkertoppe,n. Talið frá
vinstri eru Þröstur Sigtryggs-
son, skipstjóri, Einar Erlings-
son, vélstjóri, Guðmundur S.
Jónss<yi, stýrimaður, Óskar
Gíslason, háseti og Bjarni Guð
björnsson, vélstjóri. — Lengst
tH hægri er Vittorio Barberis,
umboðsmaður auðjöfursins
Monzino,
samningar voru gerðir um þau
og bar Faaberg skipamiðlara að
inn þá greiðslu af hendi í. h.
Monzini.
Við munum, ef þörf krefur
gera þetta mál að milliríkjamáh.
— Hreinum svikum og lygum á
sýnilega að beita til að hafa af
okkur laun okkar, sagði Guð-
mundur.
Stjórnmálanám-
skeið Varðar
á Akurcyri
KLUKKAN 8 í kvöl-d, miðviku-
dagskvöld, hefst stjórnmálanám
skeið Varðar, félags ungra Sjálf-
stæðismanna á Akureyri, í Verzl
unarmannahúsinu. Gísli Jónsson,
menntaskólakennari, flytur er-
indi um ræðumennsku.
Klukkan 8 á föstudagskvöld
flytur Ragnar Steinbergsson, lög
fræðingur, erindi um fundar-
sköp á sama stað.
Skákmótið
í Leipzig
SÍÐUSTU þrjár umferðirnar, sem
tefldar hafa verið á Ólympíumót-
inu í Leipzig hafa farið þannig:
ísland vann Austurríki 2V4—lMs.
Israel vann ísland 3—1.
ísland vann Chile 2%—1 %.
Staðan í B-riðli er nú þanni:g
1. Svíþjóð 11 vinningar
2. ísrael .. 10 y2 —
3— 4. Austurríki 9V4 —
3— 4. Kúba .... 9V4 —
5. Finnland 8 —
6— 8. Danmörk 7% —.
6— 8.Chile .... 7 % —
6— 8. Spánn 716 —
9—11. Pólland .. 7 —
9—11. ísland 7 —
9—11. Noregur 7 —
12. Indland .. 4 —
I keppninni við Austurrikí
vann Guðmundur Janetschek, en
jafntefli varð hjá Freysteini og
Robatch, Arinbirni og Beni og
Kára og Lokvenc.
I keppninni við ísrael gerði
Freysteinn jafntefli við Cherniak
og Ólafur við Persitz, en Aloni
vann Gunnar og Guthi Guðmund.
I keppninni við Chile vann
Arinbjörn Larrain, Gunnar vann
Ader jafntefli varð hjá Freysteini
og Letelier, en Jimenez vann
Ólaf.