Morgunblaðið - 02.11.1960, Síða 5

Morgunblaðið - 02.11.1960, Síða 5
Miðvikudagur 2. nóv. 1960 MORCVNBLAÐIÐ 5 l*aS einkennilegasta við lífið er, aS ef þú neítar aS taka viS nokkru nema binu bezta, færSu það oftast. Somerset Maugham. Það er ekki nægilegt að taka ákvörð nn, það verður lika aS framkvæma hana. Barbara Eing. Það, sem er Jafn algengt dauðanum, hlýtur að vera velgjörningur. — Schiller. Til þess að mennirnir þreyi af lífið, leyna guðirnir þá hamingju dauðans. — Lukanus. Þegar ein hurð lokast, opnast önnur. — Cervantes. — Hvernig varð kjaftaskjóðan í næsta húsi við þig brjáluð? — Hún reyndi að hafa síðasta orðið í rifrildi við bergmálið! — ★ — •— Hversvegna ertu að gráta, væni minn? — Vi ðeigum að fá sætsúpu og pönnukdkur að borða heima 1 dag. ■— Nú, er það nokkuð til að gráta útaf? — Já, ég rata ekki heim. ★ — Skrambi ertu oðrinn horað- ur. — Já, ég er byrjaður að megra mig. Ég lé.ttist um 20 pund á mánuði. — Jæja, þú verður þá alveg horfinn einhvei iitíma í júní. ★ — Ég var í skírnarveizlu hjá Jóni í gær. — Nú og hvað var dóttirin lát- in heita? —■ Hún átti að heita Sara. En af því að guðsmóðirin stamaði, var hún skírð Sahara. Söfnin Sýningaraalur náttúrugripasafnsins er lokaður. Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla úni 2. Opið daglega kl. 2—4 e.h. nema nánudaga. Listasafn Einars Jónssonar er opið frá kl. 1,30—3,30 miðvikudaga og sunnu daga. Þjóðminjasafnið: — Opið sunnudaga kL 1—4, þriðjudaga, íimmtudaga og laugardaga kl. 1—3. Listasafn ríkisins er opið þrlðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kL 1—3, 670x15 640x15 600x16 á jeppa Friðrik Bertelsen * Tryggvagötu 10 ,5 Sími 12-8-72 * 60 ára er í dag Daníel Símon- arson, fyrrum bóndi í Hellisfirði, nú starfsmaður hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur til heimilis að Hringbraut 121. Verzlun Friðriks Bertelsen Tryggvagötu 10 V33 — Það er nú eitt gott við það að lifa á steinöldinni, þá þarf maður ekki að læra mikið í sögu. Lúðvík Þorgeirsson, kaupmað- ur og íþróttafrömuður, er fimmt- Ugur í dag. Hann dvelst erlendis ] um þessar mundir. Sl. laugardag opiniberuðu trú- | lofun sína ungfrú Elínborg J. Pálmadóttir frá Akureyri og Jón j G. Sveinsson stud. oecon, Fjólu- götu 25. Nýlega hafa opinberað trúlof- un sína, ungfrú Arndís Sveins- dóttir, skrifstofumær, öldugötu 17, Hafnarfirði og Þórarinn Sóf- usson, stýrimaður, Silfurtúni. Opinberað hafa trúlofun sína ungfrú Edda Emilsdóttir, Eddu- bæ, og Tómas Börkur Sigurðsson j frá Barkarstöðum 1 Fljótshlíð. <®U> HVÍTT Á ELDHLS OG BÖÐ MENN 06 ,] = MALEFNlá MYNDIN hér að ofan sýnir hertogann af Kent taka á móti konunginum af Nepal, Maharajadhiraja Mahendra Bir Bikram Shah Deva, og drottningu hans, Ratna, á Gatwick-flugvellinum í Surr- ey, en konungshjónin eru nú í opinberri heimsókn í Bret- landi. íbúar hins fátæka fjallarík- is í Himalajafjöllum eru nú taldir um SVi milljónir. Þeir eru af ýmsum ætbálkum, ind verskum og mongólskum, og á 12. öld komust þeir undir tiltölulega sterka konungs- stjórn. Sú ætt, sem þá komst til valda, ríkti fram til 1769. Þá flúðu Gúrkar frá Ind- landi undan Múhameðstrúar- mönnum til Nepals og brutust til valda. Síðan hefur núver- andi konungsætt setið á valda stóli. 1846 missti konungur þó öll raunveruleg völd, þegar hin volduga . og f jölmenna aðalsætt Rana tryggði sér það með sérstakri löggjöf, að íor- sætisráðherraembættið skyldi jafnan vera innan ættarinn- ar. Tóku Ranar þá öll völd í landinu. Ættmenn þeirra sett- ust að öllum embættum og sátu beztu jarðirnar. Þeir tóku árlega af landsmönnum með sköttum og follum 1 millj. og 500 þús. sterlingspund, eyúlu 90% af því í eigin útgjöld, festu féð aðaliega í fyrirtækj um erlendis og í gimsteinum eða gulli. 10% var varið til að kosta her og njósnara, en hvort tveggja var í rauninni í einkaþjónustu ættarinnar. Konungar sátu eins og fangar í konungshöllinni og stunduðu fræðistörf, skáldskap og heims ins lystisemdir, svo sem kvennafar. Núverandi kon- ungur, sem fæddur er 1920, var í rauninni fangi í höll sinni fyrsu 30 ár ævinnar. Hann hefur gefið út nokkrar ljóðabækur, sem þegnar hans meta mikils. — 1950 gerði hann e. k. byltingu ásamt föð- Múrarar óskast til aS pússa ibúð í blokk. Uppl. í sóma 33808. Lítil Hoover þvottavél óskast til kaups. Tilb. óskast senil Mbl. — mesikt: „Þvottavél 1111“ I Anieríkani óskar eftir tveim til þrem herb. og eldhúsi með húsgögnum. Tilb. sendist Mbl., merkt: „Reglusemi — 1939“ | Pússningasandur til sölu ódýr. Upplýsingar í síma 50230. Iðnaðarpláss í Silfurtúni til leigu eða sölu. Uppl. í sima 34555. íbúð óskast Vantar 3ja eða 4ra herb. íbúð fyrir 15. nóv. Fyrir- framgr. Uppl. í síma 32383. Stúlka Stúlka óskast í létta vist um óákveðinn tíma. Sér- herbergi. — Uppl. í síma 35363. Risherbergi til leigu að Hjarðarhaga 38 1. hæð t.h. ur sínum, sem þá var viff völd að nafninu til. Þeir leit- uðu hæiis í indverska sendiráð inu í Katmandu, höfuðborg Nepals, og þaðan sendu þeir út yfirlýsingu til þegna sinm 1951, þar sem þingkosningar voru boðaðar. Þeir hlutu strax stuðning flestra aðalættanna, sem Ranar höfðu haldið niðri, svo og stúdenta og mennta- manna. Næstu árin voru frem ur ruglingskennd, stjórnarfars lega, Ranar létu smám saman undan, lofuðu kosningum og tóku nýja menn inn í rikis- stjórnina. Loks þegar kosn- ingar voru haldnar, tóks Rana- ættinni að fá nægilega mörg þingsæti til þess að geta tryggt sér sterk áhrif á fram vindu mála. 1955 kom núver- andi konungur til valda. Hann rak þá ríkisstjórn og þing frá völdum og tók sér einræðis- vald. Hins vegar hét hann lýð ræðislegum kosningum innan fárra ára og hófst þegar handa um mikilsverðar umbætur í at vinnulegu, menningarlegu og sjórnarfarslegu tilliti. Menn tortryggðu loforð hans um kosningar þar sem valdaað- staða hans var orðin nokkuð trygg eftir að hann hafði kom ið Ranaættinni á kné og öðlazt geysilega lýðhylii. Hann stóð samt við loforðið, og hlaut Kongressflokkur Nepals meiri hluta á þingi, en honum svipar mjög til Kongressflokksins indverska. Þingræðisstjórn rík ir nú í landinu, Ranaættin, sem menn óttuðust að myndi gera uppreisn, hefur nú sætt sig við að láta skattleggja lendur sínar, og konungur sit- ur í höll sinni, undirritar lög, yrkir og fæst við önnur hugð- arefni. Sendisveinn oskast hálfan eða allan daginn Steindórsprent H.f. Geymsluhusnæði til leigu í 90 ferm. kjallara í Laugarneshverfinu. |j Upplýsingar í síma 36415. DUNLOÞ Goldseal 800x14

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.