Morgunblaðið - 02.11.1960, Page 8

Morgunblaðið - 02.11.1960, Page 8
8 MORCVNRLÁÐIÐ Miðvikudagur 2. nóv. 1960 Viðreisn gjaldþrofasjóðarma í athugun hjá ríkisstjórninni j Væntanlega hægt að veita lán fyrir jólin út á þessa árs framkvæmdir Frá umrœðum á Alþingi UMRÆÐUM um gjaldþrota- sjóði landbúnaðarins var fram haldið í efri deild Al- þingis í gær. Ingólfur Jóns- son, landbúnaðarráðherra, flutti skelegga ræðu um mál- ið, þar sem hann upplýsti m. a., að ríkisstjórnin hefði til athugunar, hvernig hægt væri að koma föstum fótum undir þessa sjóði. Kvaðst ráð herra vænta farsællar lausn- ar þess máls, og þess, að sjóð imir gætu lánað út á fram- kvæmdir þessa árs nú fyrir jólin, eins og þeir hefðu gert. Ingólfur Jónsson taldi, að erfitt yrði að fá samþykkt frumvarp Framsóknarþing- mannanna um 160 millj. kr. eftirgjöf af lánum sjóðanna, en taldi að Hermann Jónas- son mundi vel skilja erfið- leikana á því, þar sem hann hefði ekki getað fengið sam- þykkta 30 milljón kr. eftir- gjöf er þrengt var kosti þess- ara sjóða við efnahagsráð- stafanirnar vorið 1958. Almennar stjórnmála- umræður Ásgeir Bjarnason, 1. þm. Vest ttrlands, tók fyrstur til máls um þetta frumvarp, í efri deild í gær. Fjallaði ræða hans eink- um um stjórn- málaþróun al- mennt. — Kvað ræðumaður á- vallt hafa verið betur hugsað um hag sjóða landbúnaðarins þegar Framsókn armenn hefðu átt aðild að rík- isstjórn, því að þeir hefðu ætíð haft í huga, hvernig bjarga mætti afkomu sjóðanna. Hins vegar deildi ræðumaður á nú- verandi ríkisstjórn og þá næstu á undan fyrir skeytingarleysi gagnvart þessum sjóðum. Gylfi Þ. Gíslason, mennta- málaráðherra, talaði næstur. — Kvað hann þingmenn sammála um að umræddir sjóðir væru gjaldþrota. Væri því hér um að ræða stórkost- legt vandamál. Hins vegar væri ágreiningur um hvernig þetla vandamál skyldi leyst, hvort rík isstjórninni bæri skylda til að greiða halla sjóðanna eða ekki. Framsóknarmenn héldu því fram, að stjórninni bæri skylda til þess, en frumvarpsflutning- ur þeirra sýndi þó, að þeir hefðu aðra skoðun á málinu, en þeir héldu fram, og tæki flutningur frumvarpsins af öll tvímæli um að ríkisstjórnin væri ekki skyldug til að greiða hallann. Þá upplýsti mennta- málaráðherra, að gengisbreyt- ingin sl. vetur hefði hækkað skuídir sjóðanna um 52,4 millj. kr., en ekki um 90 millj., eins og Hermann Jónasson hefði haldið fram daginn áður. — Menntamálaráðherra kvað kostn að við sjóðina óeðlilega mik- inn. Væri rekstrarkostnaður Ræktunarsjóðs 0,95% af útlán- um, en Byggingarsjóðs 2,12%. Til samanburðar nefndi ráð- herrann, að rekstrarkostnaður Framkvæmdabankans væri 0,23 % af útlánum, Veðdeildar Lands bankans 0,35% og Fiskveiða- sjóðs 0,29%. Aðalatriðið að leysa vandann Ingólfur Jónsson, landbúnað- arráðherra, kvað það rétt, sem fram hefði komið við þessar umræður, að það væri mikill vandi, að leysa fjárhagslegt öng þveiti þessara tveggja sjóða landbúnaðarins. Vandræði sjóð- anna yrði hvorki leyst með stór- yrðum né með því að leitast við að finna þá seku eða sek- ustu um fjár- hagsafkomu þeirra. En aðal- væri að finna atriði þessa máls lausn þess, svo Ræktunarsjóð- ur Islands og Byggingarsjóður sveitabæja gætu áfram verið sú lyftistöng íslenzkum land- búnaði, sem þeim hefði ætíð verið ætlað. Þörf landbúnaðar- kjöl, sagði landbúnaðarráðherra. ins fyrir aukið fjármagn væri brýn, og nefndi ráðherrann sem dæmi að eftir 30 til 40 ár yrði íslenzk landbúnaðarframleiðsla að vera helmingi meiri en nú, ef hún ætti að geta annað eftir- spurn landsmanna. Framleiðsla mjólkur hefði dregizt saman ár- in 1958 og 1959 vegna áhrifa efnahagsráðstafana vinstri stjórn arinnar og hefði orðið að flytja inn smjör frá Danmörku af þeim sökum. Nú yrði hins vegar ekki hörgull á landbún- aðarvörum. Á réttan og öruggan grundvöll Spurningin er, hvernig við get um komið lánr :j ððunumi á rétt- an og öruggan grundvöll, hélt landbúnaðarráðherra áfram. — Ræktunarsjóður skuldar nú tæp- lega 23 milljónum meira en nem ur eign hans og útlánin eru bund in til fleiri ára en tekin lán og eru þ'au með lægri vöxtum. Það er ekki atriði í þessu sambandi hvort sjóðirnir hafa tapað meira við gengisbreytingu þessarar stjórnar eða vinstri stjórnarinn- ar, en það sýnir traust Framsókn armanna á núverandi ríkisstjórn, að þeir skuli ætlast til að hún leysi mörgum sinnum erfiðara vandamál, en vinstri stjórnin gafst upp við að leysa. Fram- sóknarmenn fóru með stjórn landsins, er þessir sjóðir voru féflettir um 30 milljónir vorið 1958, en þá hreyfðu þeir hvorki hönd né fót sjóðunum til bjargar Þáverandi forsætisráðherra og formaður bankaráðs Búnaðar- bankans Hermann Jónasson, gat ekki fengið samþykkt frumvarp um að ríkið tæki á sig þessa 30 millj. kr. skerðingu sjóðanna. Los Paraguayos, sem koinnir eru hingað til lands til aS skemmta í Storkklúbbnum, sjást hér er þeir sligu út úr fiugvélinni í fyrrakvöld. (Ljósm. Sv. Þormóðsson). Hann mun því skilja manna bezt, að það verður erfitt að fá sam- þykkt nú, að ríkið taki að sér að greiða 160 milljónir til þessara sjóða. En háttvirtir Framsóknar- menn, sem telja sig sérstaka málsvara landbúnaðarins, hefðu ekki átt að geyma kröfuna unz hún var orðin svo há, því auð- veldara hefði verið að leysa þetta mál í áföngum. Koma hag sjóðanna á réttan kjöl Ríkisstjórnin hefur nú rætt vandamál þessara sjóða og er fullur vilji innan stjórnarinnar að koma hag þeirra á réttan Quasimodo og prinsarnir SÆNSKA akademian er vax- andi stofnun. Á seinustu árum hafa Nóbelsverðlaunin fallið í skaut afbragðsmanna: Laxness, Jiménez, Camus, Quasimodo og nú Perse. Hræðslan við almenn ingsálitið veldur því að Ezra Pound hefur ekki fengið þau enn þá. Líklega kemur að því, þrátt fyrir stjórnmálaflan hans sem leiddi þennan gáfumann að tinda stóli fasismans. Thomas S. Eli- ot segir um Pound: „Ekkert nú- lifandi skáld býr yfir jafnmiklum krafti og hann. Hann á næmasta eyra allra núlifandi skálda. — Pound hefur bæði sem skáld og þýðandi — lítum á þýðingar hans úr kinversku — haft meiri þýð- ingu en nokkur annar“. í Morgunblaðiuu rakst ég á skeyti frá Quasimodo, þar sem hann ræðir um Saint-John Perse. Skeytið hljóðar þannig: „Aðal- skáld úrkynjunarstefnunnar í Evrópu merkir: Helzti túlkandi nútímaljóðlistar, þeirrar, sem hófst með Arthur Rimbaud. — Kveðjur. Quasimodo." Salvatore Quasimodo kallaði Perse „prins úrkynjunar", Morgunblaðið bað um nánari skýringar. Og Sr. Quasimodo lætur myrkur sitt berast á hjara veraldar og þótti víst nóg um skammdegið samt. Ekki er það ný bóla að fræg skáld láti hafa eftir sér vafa- samar staðhæfingar. Nú væri sosum allt í lagi ef þessir höf- úndar létu fylgja' ummælum sín- um eitthvað svipað þessu: „Við erum nú þannig gerðir að við þurfum sífellt að vekja á okkur athygli á mannfundum með fáránlegum upphrópunum. Vissu lega á þetta ekki að gegna öðru hlutverki en skemmtileg fífla- læti“. En nú er komið að fólk- inu, þessu dásamlega óbreytta alþýðufólki. Það grípur lumm- urnar og smjattar á þeim af áfergju hungraðra slána, sem þrútnar ofvæni bíða véfrétta and ans jöfranna og geta ekki alltaf gert greinarmun á sleggju dómi og véfrétt. Því fyigir vissu lega ábyrgð að vera rithöfundur. Smávegis glapsýni er hægt að fyrirgefa, að því leyti er rithöf- undur í svipaða sveit settur og þorri manna, en þegar hann endurtekur trúðlæti sín án þess að blikna fer mörgum að verða um og ó eins og stendur í dæg- urlaginu. Baudelaire, Lautréamont og Arthur Rimbaud hófu nýtt tí'.ia bil í Ijóðlist Evrópu. Af spá- mennsku fundu ungu mennirn- ir tveir, Lautréamont og Rim- baud, hvar skórinn kreppti. Þeir lögðu grundvöll nútíma ljóðlist- ar, svo hún er óhugsandi án þeirra. Báðir eru þeir um tví- tugt þegar eldingarnar ljósta himininn. Þegar Lautréamont veslast upp á sóðalegu hóteli á Montmartre treður Rimbaud sig- urhrósandi inn í París. Rimbaud fæddist 1854 í Charleville. Nó- belsverðlaunaskáidið nýja Saint- John Perse minnir á þessa höf- unda í voldugum prósaljóðum sínum. Perse er sérlega vel kom- inn að verðlaununum og veit- ingin til hans sigur fyrir nútíma ljóðlistina. Og skáldið er einnig á meðal okkar, á tröð þeirra manna sem • eru á þess tíma. Fer jafnhratt okkar tíma, fer jafnhratt þessum mikla stormi. Hlutverk þess meðal okkar: skýring boðskaparins Og svarið gefst því fyrir uppljómun hjartans. Þetta er úr Ijóðabálk eftir Perse: Vindar. Jón Óskar þýddi úr frönsku. Jón Óskar hefur einnig þýttljóðeftir Lautréamont og Rimbaud, sumt er bírt en annað kernur senn fyrir almenn- ingssjónir. Starf Jóns er virðing- arvert og ætti að launast ríku- lega, því þar er gerð tilraun til að kynna íslendingum fjársjóði heimsbókmenntanna. „Ef ljóð mitt ekki hefur hrað- ann á, týnir það slóðinni“, segir Perse. „Já, stundin nýja er að minnsta kosti mjög ströng“; seg- ir Rimbaud í bók sinni Árstíð í víti. Og Rimbaud bætir við: En nú er vaka. Veitum viðtöku öllum lindum orku' og raunverulegar blíðu. Og um sólarupprás munum við koma vopnuð eldlegri þolinmæði inn í glæsi- legar borgir. (Þýð. Jón Óskar). Svo eru menn að tala um prins úrkynjunar, en sá sem gerir það skal kallast konungur úrkynjunarinnar. Maður sviptur heilbrigðu m.ati reynir að gera þeim til hæfis sem vilja bók- menntir án spennu og hug- myndaflugs, meinlaust klapp á koll vélarinnar, smurðar hend- ur, vélin geltir áfram en hjarta mannsins mótast í þessari vél og enginn talar um uppljómun hjartans. 1. nóvember 1960. Jóhann Hjálmarsson. Eins og ég nefndi áðan er það þjóðarnauðsyn, að þessir sjóðir geti starfað eins og þeim er ætl- að. Þeir þurfa að fá fastar og tryggar tekjur, sem ekki fara allar í vexti og afborganir af skuldum. Það þarf að veita lán- in á þeim grundivelli, að þau komi að fullum notum. Það má gera með því móti, að land- búnaðarvörur séu seldar á því verði, sem kostar að framleiða þær. Þá svaraði landbúnaðarráð- herra nokkrum atriðum úr ræðu Ásgeirs Bjarnasonar um verð- lagningu landbúnaðarvara og benti á hvernig fullt samkom-u- lag hefði verið um verðlag í 6- mannanefndinni nú í haust, en kvað bændur hafa kvartað und- an því, að verðlagsgrundvöllur væri ekki réttur. Sagði ráðherra, að þau mál, sem brýnust væru fyrir landbúnaðinn í dag, væri rétt afurðaverð og fyrirgreiðsla með lán. Gat hann þess, að nú væri í athugun, að hækka skala á virðingu framkvæmda á veg- um bænda, svo lánin verði nokkuð í samræmi við bygging- arkostnað. í niðurlagi ræðu sinnar svaraði landbúnaðarráðherra enn nokkr um atriðum úr máli Framsóknar- manna, en lauk máli sínu með því, að minna enn á þá brýnu nauðsyn, að rétta við sjóði Bún- aðarbankans og tryggja landbún- aðinum lánsfé. Er Ingólfur Jónsson hafði lok- ið máli sínu var málið tekið af dagskrá og umræðunni frestað, enda var klukkan þá nær fjögug, og liðinn fundartími deildarina- ar. ísfirðingar boðnir til Jap an T O M O I, netaframleiðendurnir japönsku, buðu nýlega tveimur ísfirzkum netagerðarmönnum í ferð umhverfis hnöttinn. Þetta eru þeir Guðmundur Sveinsson og Guðmundur Guðmundsson, sem um árabil hafa sett upp alls kyns net og nætur á ísafirði, og Siglufirði yfir sumarmánuðina. Héldu þeir af stað í langferðina fyrir helgi. Fóru fyrst til megin- lands Evrópu, þaðan með þotu yfir heimskautið til Tokio — og heimleiðis fljúga þeir yfir Kyrra haf og síðan heim um Bandarík- in. Tomoi er einn stærsti neta- framleiðandi í Japan og hafði á síðasta ári 40% útflutningsins. Mikið hefur verið keypt til fs- lands og hefur heildverzlunin Marco umboðið hér. Marco hafðí milligöngu um boðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.