Morgunblaðið - 02.11.1960, Síða 12

Morgunblaðið - 02.11.1960, Síða 12
12 MORCUNBLAÐ1Ð Miðvik'udagur 2. nóv. 1960 JMwgniilritafrifr trtg.: H.f. Ai'vakur Reykjavlk. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórarí Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson Lesbók.: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 2? 480. Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. SJOÐIR LAND- BÚNAÐARINS t UMRÆÐUM á Alþingi um sjóði landbúnaðarins, hef- ur verið upplýst, að fjárhag þeirra sé nú þannig komið, að sameiginlega eigi þeir tæpum 3 millj. kr. minna en þeir skulda. Þannig vantar í Ræktunarsjóð tæpar 23 millj. en Byggingarsjóður á aftur á móti tæpar 20 milljónir. — Þetta eru sannarlega alvar- leg tíðindi, en þó aðeins enn ein sönnunin fyrir því, hvernig „vinstri stefnan" hefur leikið fjárhag landsins °g glöggur vitnisburður um viðskilnað vinstri stjórnar- innar. Augljóst mál er að tryggja verður landbúnaðinum að- gang að eðlilegum lánsfjár- markaði til ræktunar og byggingar og munu þau mál nú rædd innan ríkisstjórnar- innar, sem mun leitast við að finna viðunandi lausn þessa vandamáls. En þetta gjaldþrot sjóða landbúnaðarins sýnir ljós- lega að á þessu sviði eins og svo mörgum öðrum verður nú að byrja á ný að byggja upp frá grunni. Þar hefur allt verið látið reka á reið- anum, eins og á svo mörgum öðrum sviðum í þjóðlífi okk- ar á tímum vinstri stefnu, óstjórnar og ábyrgðarleysis. Það er létt verk að flytja á Alþingi tillögur um, að ríkissjóður taki að sér að j greiða tugi eða hundruðmill- jóna fyrir þennan sjóðinn eða hinn. í sambandi við sjóði landbúnaðarins má gjarnan hafa það hugfast, að úr ríkissjóði hafa verið greiddar í þá nokkuð yfir 100 milljónir króna á síðasta áratug. Allt er þetta fé horfið og sömuleiðis allt stofnfé sjóðanna. Nú er því ekki annarra kosta völ en að leggja nýjan grundvöll á þessu sviði og er vonandi að í framtíðinni verði gætt meiri hagsýni í meðferð fjárins en hingað til hefur verið gert. » VEÐRATTAN UTAN UR HEIMI Jasskóngurinn i EINS og frá hefir verið sagt í fréttum, kom hinn heims- frægi jassleikari og hljóm- sveitarstjóri, Louis „Satchom" Armstrong, sl. föstudag tii Leopoldville, höfuðborgar hins unga og „ótamda“ lýðveldis Kongó — og var fagnað af inn- fæddum sem þjóðhöfðingja. — Hér að ofan er fyrsta myndin, sem við höfum rekizt á, frá komu ,Satchoms“ til Kongó, þar sem hann er umkringdur aðdáendum. Þetta var þó að- eins byrjunin — skömmu seinna urðu viðtökurnar miklu stórkostlegri. — ★ — Louis Armstrong er eins konar sendiherra Bandaríkj- anna, er hann nú ferðast um Afríku þvera og endilanga, því að ferð hans er að nokkru kostuð af bandarísku stjórn- inni. Jafnframt ætlar svo Pepsi Cola-fyrirtækið sér að mata krókinn á þessari ferð hans. Það tekur sem sé einn- ig þátt í kostnaðinum — og kemur í leiðinni vöru sinni á framfæri við íbúa hinnar svörtu álfu á margvíslegan hátt. — ★ — En hvað um það — senni- lega má segja, að Bandaríkja- stjórn geti verið ánægð með þá fjárveitingu, sem hún hef- ir lagt til Afríkuferðar Arm- strongs. Honum hefir nefni- lega á svipstundu heppnazt það, sem stjórnmálamönnun- um og hermönnum Sameinuðu þjóðanna hefir engan veginn Kongó tekizt. Hann hefir vakið gleði og ánægju, þar sem áður ríkti óvinátta og tortryggni — og það munu Bandaríkjamenn telja sér til tekna. — ★ — Þannig var t. d. svo frá skýrt í fréttum í sambandi við komu Armstrongs til Leopold ville, að hinar andstæðu fylk- ingar fylgismanna þeirra Lum umba og Mobutus hafi á svip- stundu gleymt erjum sínum og sameinazt um að fagna jass leikaranum þeldökka. — Og innfæddir trumbuslagarar, klæddir apaskinnum og hvít- málaðir í framan sendu hon- um eftirfarandi kveðju frá tam tam bumbum sínum: — Velkominn til lands feðra þinna . . . DLÖÐUNUM hefur orðið ** tíðrætt um þau áföll, sem sjávarútvegurinn hefur orðið fyrir vegna verðfalls afurða og aflabrests og er það að vonum, því að slíkt tjón kemur auðvitað niður á þjóðarbúinu í heild. Aftur á móti hefur árað vel fyrir annan meginatvinnuveg þjóð arinnar, landbúnaðinn. Það sem af er þessu ári hefur tíðarfar verið með eindæmum gott og heyfeng- ur víðast með allra bezta móti. Snemma voraði og hausttíðin hefur verið þann- ig að allt fram að þessu hefur kúm jafnvel verið beitt sumsstaðar hluta úr degi. Þannig léttir veðurfar- ið mjög undir með landbún- aðinum í ár. En það er ekki fyrst og fremst sú staðreynd, sem vekur bjartsýni heldur hljótum við að vona að veð- urfar hafi hérlendis batnað og muni í framtíðinni verða betra en það hefur oft verið áður. Ef þær vonir rætast, er engum blöðum um það að fletta, að landbúnaður á bjartari framtíð en almennt hefur verið talið til þessa. Það hefur þegar sýnt sig, að kornrækt getur verið arð- vænlegur atvinnuvegur hér- lendis og vissulega mun það flýta fyrir því að veruleg kornrækt hefjist hér, ef veðrátta helzt svipuð og hún hefur verið í ár. Og jafnvel þótt uppskera bregðist að nokkru eitt og eitt ár, á það ekki að þurfa að standa í vegi fyrir kornrækt hér, því að sannleikurinn er sá, að uppskerubrestur verður víð- ar en hérlendis og oft eru þurrkarnir í hinum hlýrri löndum jafnskaðsamlegir og rigninga- og kuldatíð okkar. En batnandi veðrátta er auðvitað ekki einungis til hags fyrir landbúnaðinn. Á flestum eða öllum sviðum hlýtur hún að greiða fyrir blómlegu atvinnulífi og auka bjartsýnina. En sérstaklega eru þó líkur til að á næstu árum muni ferðamanna- straumur til landsins stór- aukast, ef veðurfar helzt svipað og í sumar. Þegar er það margrætt, hvern hag við gætum haft af móttöku ferðamanna og skal ekki um það fjölyrt, en stað- reynd er það að áhuginn á íslandi sem ferðamannalandi fer mjög vaxandi Campbell ekki af baki dottinn j ÞAÐ er nú ákveðið, að Don- ' ald Campbell, hinn frægi, j enski hraðaksturskappi, læt- , ur gera við hinn mikla bíl I sinn, „Bláfugl", sem skemmd j ist mjög mikið í síðustu reynsluferð fyrir mettilraun, sem Campbell hugðist gera ! á Bonneville-saltsléttunni í Utah í Bandaríkjunum í sl. mánuði. — Campbell hefur lýst því yfir, að hann hygg- ist alls ekki gefast upp, þrátt fyrir þetta óhapp sitt — og muni aftur fara til Utah að ári með Bláfugl sinn, við- gerðan og endurbættan. Campbell hlaut nokkur meiðsl í slysinu, en þó vonum minni, svo að ganga þótti kraftaverki næst. Hann lá í sjúkrahúsi í Salt Lake City í Utah um tveggja vikna skeið, og dvaldist s»ðan annan hálfan mánuð 1 Beverly Hills í Kaliforníu, sér til hvíld- ar og hressingar Nú hefir hann haldið heim til Englands á ný, filhraustur og stálsleginn, og nyggst taka til við að endur- smiða Bláfugl. — Ég tel, að ég hafi lifað af , hraðasta“ bílslys, sem um get- ur, segir Campbeli. — Það a ég eflaust fyrst og fremst að þakka því, hve stjórnklefinn í bílnum mínum var rammbyggður — og einnig hinum góða flugmanns- búningi og hjálminum, sem ég hafði á höfðinu. í þessari óhappaför minni jók ég hraðann þannig, að ég notaði um 90% af orku bifreiðarinnar — og náði 580 km á klst. er ég hafði ekið 2500 metra leið. Þá skullu tvær mjög snarpar vind- hviður á bílnum. Hin fyrri breytti stefnu hans, og á meðan ég var að reyna að ná aftur réttri stefnu, skall á önnur vind hviða, sem hrakti bílinn yfir í olíurönd þá, sem markar brún akbrautarinnar. Þar sem Bláfugl var með drif á öllum hjólum, bitu hjólin hægra megin sig föst í hina þéttu akbraut, en þau vinstri fengu hins vegar minni viðspyrnu, er þau lentu í olíu- Donald Campbell röndinni. Þetta mun hafa verið orsök þess, að híllinn snarsner- ist — og ég rotaðist í kastinu. r \ Ég man ekkerfr frekar, hv ð gerðist, en þeir, sem rannso„uoii staðinn, hafa sagt mér, að Blá- fugl hafi tekizt á loft og farið í stórum stökkum um 300 metra leið, síðan hafi hann lent á hlið- inni og runnið þannig áfram 80 metra í viðbót, en á leiðinni brotnuðu bæði hægri hjólir. af. — Ja, það voru nú meiri .ætin, maður — púh!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.