Morgunblaðið - 02.11.1960, Side 23

Morgunblaðið - 02.11.1960, Side 23
Miðvik'udagur 2. nóv. 1960 M O R C 11 N R r, 4 Ð IÐ 23 bækur á uppboði Dýrmætar A FÖSTUDAG kl. 5 heldur Sig- urður Benediktsson bókauppboð í Sjálfstæðishúsinu, og hefur þar á boðstólum rúmlega 150 bækur, meira og minna dýrmætar bóka- mönnum og vandfegnar. Einna sjaldgæfastir er sjálfsagt „Qvein- Stafir", kveðnir við brottför sr. Steingríms Jónssonar frá Odda. Þetta eru aðeins 4 bls. kver frá 1825 en hefur ekki verið á neinni bókaskrá og menn því ekki vitað að það var tiL - /Jbrótfir Framhald af bls 22. Til þess að gera æfinga tim- ana enn fjölbreytilegri munu reyndustu judo-menn féagsins koma í heimsókn og sýna leikni sína jafnframt því sem þeir æfa nemendur í að glíma. Kennari á námskeiðinu verður Sigurður H. Jóhannesson, en hann er sá eini hér á landi, sem hefur gilt próf í þessari grein íþróttanna. — Sparisjóður Framh. af bls. 13. ekki af því stofnaður neinn varasjóður, sem hægt er að miðla af til framkvæmda eða menningarmála í sveifinni. Um síðustu áramót var spari- sjóðurinn kominn á þiúðju milljón, og varasjóður hans um hálfa milljón. Formaður sjóðs- ins, Ólafur Magnússon tilkynnti þarna í hófinu, að ábyrgðar- menn og meirihluti stjórnar sjóðsins hefði ákveðið að sjóð- urinn veitti núverandi gjaldkera sínum, Snæbirni rhoroddsen, kr. 30 þúsund í viðurkenningar- skyni fyrir vel unnin störf. Við sveitungar Snæbjarnar óskum honum til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenn- ingu, og færum Sparisjóð Rauða sandshrepps, og stjómenduin hans þabkir og árnaðaróskir á þessum merku tímamótum í sögu sjóðsins. Látrum 11/10 1960. Þórður Jónsson. — Gullleit Frh. af bls. 1. Með þeirri tækni, sem nú er hægt að beita, finnst mér það vera þess virði að góðmálmanna úr hinu hollenzka skipi sé leit- að. Vitað er að skipið var stórt og öll ballestin klukkumálmur. — Ámi Óla vitnar í Arbók Espólíns um það og Espólín seg- ir að skipið hafi einnig flutt t. d. gull, demanta, pell og purp ura og margt fleira. Hafi farm- urinn verið metinn á 43 tunnur gulls, sem hafi jafngilt 8,6 millj. króna“. -A Skipið sennilega heillegt Bergur Lárusson kvaðst helzt telja von í því að finna klukku- málminn — ballestina. Vísast er að neðri hluti skipsins hafi graf izt heilíegur í hinn síkvika sand og ætti því ballestin að vera á sínum stað. —oóo—• Þetta hollenzka skip hét Het Wapen van Amsterdam og var eitt glæsilegasta skip í verzlun- arflota Hollendinga á þeim ár- um. Þegar skipið strandaði var á því hinn mesti mannfjöldi. — Espólín segir 300 manns og hafi af þeim komizt lífs af 50 manns. Aðrir annálar herma lægri tölu, 200—250 manns og að 60 hafi komizt af. Mikið af dýrmætu góssi rak úr skipinu. Þá sat Bjelke á Bessastöðum og skikkaði hann Strengilega sýslumenn að flytja það til Bessastaða. Komu þó ei öll kurl til grafar. — Ritgeið Áma Óla um skipið er byggð á fjölmörgum annálum og öðrum heimildarritum og er hún mjög fróðlegur lestur. Einnig hefur Sigurður fengið „Lög Bók íslendinga", fyrsta prentun frá 1707 í pergament- bandi önnur útgáfa frá 1708 er ekki nærri eins sjaldgæf. Þá má nefna þrjú bindin af „Forordn- inger og aabne Brefe, sem Magn ús Ketilsson gaf út 1776—1787, Þjóðsögur Jóns Árnasonar í frum útgáfu, íslands Landnámsbók frá 1774, Heims-Kringlu, gefin út í Hrappsey 1779 frumútgáfur af ljóðabókum Eggerts, Bjarna og Seingríms og Æfi Eggerts Ólafs- sonar bók sem einhvern tíma hef ur kostað 80 aura, en Sigurður segir að geti nú farið á 800 krón- ur. Á uppboðslistanum eru líka ýms eftirsótt rit, svo sem Ný fé- lagsrit, Árbækur Jóns Espolíns, Ármann á aliþingi, Klausturpóst- urinn og Biskupasögur, og ýmis- legt fleira, sem hér yrði of langt upp að telja. — Friðrik Ólafsson Framh af bls. 24. „Skákmaskína“ Mbl. leitaði í gær álits Friðriks á þessum ummælum Ásgeirs, en hann var tregur til. Fannst mið- ur, að menn „færu svona aftan að sér“, en sagði þó: — Ég verð að segja eins og er, að forráðamenn Skáksam- bandsins hafa litið á mig sem einhverja skákmaskinu. Svo hef- ur mér fundizt a. m. k., sagði Friðrik — og ég hef átt bágt með að sætta mig við það. — Það, sem einkum veldur, er sá styrkur, sem ríki og bær veit- ir mér nú til þess að ég geti helgað mig skákinni óskiptur. Ég er ekki að vanþakka þann styrk þó ég segi, að ég geti ekki fallizt á að forráðamenn Skák- sambandsins hafi rétt til að beita mér eins og skurðgröfu í mýr- lendi. Efst í huga skákmanna — Þar eð ég nýt hins um- rædda styrks lít ég á það sem hlutverk mitt að vinna að efl- ingu skákíþróttarinar hér hjá okkur og standa mig eins vel á erlendum vettvangi og ég fram- ast get, ef það mætti verða til þess að nafns íslands yrði getið meira í skákheiminum. — Þess vegna legg ég mest upp úr því að búa mig vel undir stærstu mótin. Baráttan um heimsmeistaratitilinn er vitan- lega efst í huga allra skákmanna — og úr því að ég á kost á að taka þátt í þeim leik finnst mér ekki nema eðlilegt og sjálfsagt að mæta þar. Fyrir mig persónu lega er heimsmeistarakeppnin líka mun eftirsóknarverðari en Olympíumótið. Erfitt sumar — Undanfarnar vikur hef ég tekið þátt í þremur mótum hér í Reykjavík á vegum Skáksam- bandsins — og skömmu áður á tveimur mjög erfiðum mótum í Argentínu. Annað þeirra var t. d. eitt það „sterkasta", sem haldið hefur verið fram til þessa. Lagt var mjög hart að mér að taka þátt í mótunum hér heima eftir að ég kom að utan og hef ég því ekki fengið þá hvíld frá skákinni sem ég þarfnaðist fyrir svæðamótið. __Afleiðingin er sú — og ég geri mér það fullkomlega ljóst — að ég er haldinn skákleiða, þessa stundina. Þetta er það, sem kom- ið getur fyrir alla skákmenn, ef þeir „keyra of hratt“. Og þetta er aðeins hægt að yfirstíga með þviað „veita sér þann rnunað" að gleyma henni um stund. Andleg endurnæring Ég fann það á síðasta mótinu hér í Reykjavík, að ég var ekki í essinu mínu. Ég þarf að hvíla mig algerlega frá skákinni áður en ég fer á svæðamótið í Hol- landi. Leggja skákina frá mér, snúa mér að einhverju öðru með t;: f HSTAFIK.51' ' '*<lfourÍA-SOÍCNAit - m : ; 1 > :f■<* f* B&wp JkVAi.ct i i.i.Mi joNstíorrujt ui*. '■ • | gg ViBlV s-(lí f. • n i, ÍÍ/S% <| 'M. .. : CffiíÍ $XztíStot SSX&Í* fx'< <> ft t> * hft t :: i tvortuw röíá>; . MtX ídk tli VftsSfiS * % /'l wmm ■ **** ****s * *•?»****»» $ —■ Íranskeisari Frh. af bls. 1. að í tilefni fæðingarinnar yrði veittur 20% afsláttur á öllum skattgreiðslum þessa árs. Eins og skýrt hefur verið frá, var fátækum börnum og mun- aðarlausum gefið sælgæti og leikföng á fæðingardegi krón- prinsins. En auk þess verður fimm drengjum og tveim stúlk- um, sem fæddust í fæðingar- heimilinu sama dag, gefnar sér- stakar gjafir. Prinsinn og drottningin eru bæði við beztu heilsu. Félagslíf Róðrafélag Reykjavíkur Innanhússæfingar eru á mið- vikudögum frá kl. 8,45 til 10,15 í leikfimissal Miðbæjarskólans. — Jökull Sigurðsson, íþróttakenn- ari, stjórnar æfingum. Eamkomur Almenn samkoma Boðun Fagnaðarerindisins Hörgshlíð 12, Reykjavík, I kvöld, miðvikudag kl. 8. an ég væri að gleyma skákinni og jafna mig. — Ásgeir lætur hafa efir sér að ég hefði getað haft það „ósköp rólegt“ í Leipzig með því að tefla aðeins fyrst í stað. Það er ekki sú hvíld, sem ég er að leita eftir. Þar hefði ég hvort sem er verið í hringiðunni allan tímann. Annað hvort hefði ég farið og teflt, eða farið hvergi. — Það, sem mér finnst mig vanti, er ekki að liggja upp í dívan. Ég er kominn með skák- ina á heilann og þarf að dreifa huganum og endurnæra mig and lega áður en ég legg í stórátök á ný. Að öðrum kosti get ég ekki vænzt árangurs. Ekki þjóðnýttur — Að lokum vil ég aðeins segja það, að ég lít ekki á sjálfan mig sem þjóðnýttan, ■ enda þótt ég njóti styrks stjórn : arvaldanna .Hins vegar hafa | sumir framámenn Skáksam- ! bandsins talið mig eitthvert verkfæri, sem keypt hafi ver iff og lagt í hendur þeirra — og það sé hin mesta óhæfa, að ég skuli ekki láta algerlega | að stjórn. — En ég er staðráð inn í því að gera mitt bezta , eins og hingað til. Ef ég veiti' mér ekki nægilega hvíld get ég ekki vænzt þess að ná mér á strik — og hefði ég farið á Ólympíumótið kæmi ég þreyttur á svæðamótið, þi< á milli mótanna er aðeins lið- lega vika. — Að ég líti of stórt á mig til að fara með íslenzku sveit- inni til Ólympíumótsins, það tel ég ekki svaravert. Þau um mæli lýsa aðeins hugarfari við komandj aðila og skaða mig á engan hátt. Skálholt á Kirkjufíiiigi KIRKJUÞING hélt áfram störf- um í gær. Var þá rætt frumvarp um Vídalínsskóla í Skálholti, sem minnzt var á í blaðinu í gær. Er ætlunin, að Vídalínsskólinn verði starfsskóli fyrir guðfræði kandidata, sem ætla sér að verða prestar. Þá var einnig rædd þingsálykt- unartillaga um stofnun kristilegs lýðskóla í Skálholti. Loks var lögð fram ályktun frá Æskulýðs- nefnd þjóðkirkjunnar um kirkju lega miðstöð og æskulýðsstarf- semi í Skálholti. Tveimur fyrrnefndu málunum var vísað til nefnda að umi’æðu lokinni. Leiðrétting í grein Jóns Ásbjörnssonar fv. hrd. í blaðinu í gær, varð lít— ilsháttar villa í síðustu setning- unni. Öll setningin á að vera þannig: En til þess telst að lög- gæzla og refsivarzla sé í svipuðu horfi og gerist með öðrum menn. ingarþjóðum. Hjartans þakklæti fyrir gjafir, skeyti og alla vin- semd og ánægju, sem ókkur var veitt á gullbrúðkaups- degi okkar. Guð.blessi ykkur öll. Sigríður og Elías frá Saurbæ Hj^rtans þakklæti votta ég öllum þeim mörgu, sem glöddu mig á 70 ára afmæli mínu með heimsóknum, blómum, skeytum og gjöfum. Kristinn Hróbjartsson Ég þakka hjartanlega öllum, sem glöddu mig á 70 ára afmælinu mínu rneð heimsóknum, gjöfum og skeytum og gerðu mér daginn ánægjulegan. Guð blessi ykkur öll. Jens M. Jensson, Vífilsstöðum Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir SVEINN SVEINSSON netagerðarmeistari er andaðist að heimili sínu 27. f.m. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju 3. þ.m. kl. 1,30. Blóm vinsamlegast af- þökkuð, en þeim sem vildu minnast hins látna er vinsam- legast bent á Dvalarheimili aldraðra sjómanna eða Styrkt arfélag lamaðra. Kolfinna Magnúsdóttir, börn og tengdabörn Útför mannsins míns EINARS KBISTJÁNSSONAR sem andaðist í Landakotsspítala 27. okt. s.l. fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 3. nóv. kl. 10,30 f.h. — Athöfninni verður útvarpað. Ólöf Isaksdóttir Útför eiginkonu minnar HELGU BJÖRNSDÓTTUR Óðinsgötu 4 sem andaðist 25. okt. í Bæjarsjúkrahúsinu, fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 3. nóv. kl. 3 síðdegis. Fyrir hönd barna okkar og tengdasonar. Finnur Gíslason Jarðarför systur okkar EYFRlÐAR JÓNSDÓTTUR frá Minni-Völlum fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 4. nóv. kl. 10,30 Blóm afþökkuð. En þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Krabbameinsfélagið. — Athöfninni verður út- varpað. Jóhanna Jónsdóttir, Guðjón Jónsson Sigurður Jónsson Þökkum sýnda samúð, við andlát og jarðarför ÞORBJARGAR FRIDGEIRSSONAR Aðstandendur Þökkum auðsýrida samúð við andlát og jarðarför KRISTJANS sveinssonar frá Bjarneyjum. Aðstandendur. Móðir okkar og fósturmóðir KARITAS BJARNADÖTTIR andaðist að Hrafnistu, mánudagsmorguninn 31. okt. Börnin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.