Morgunblaðið - 09.11.1960, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.11.1960, Blaðsíða 20
Að haustnóttum Sjá bls. 11. ffgmtlígftftUk 257. tbl. — Miðvikudagur 9. nóvember 1960 íþróttir eru á bls. 18. Liðskönnun hjá kommúnistum ? MORGUNBLAÐIÐ hefur fregnað að kommúnistar hyggi nú á allsherjarliðskönnun. Eins og kunnugt er langar þá mikið til að reyna að koma af stað almenn- um pólitískum verkföllum, en óttast þó um leið að sú tilraun gæti farið út um þúfur. Munu þeir því telja nauðsynlegt að kanna lið sitt, til að geta betur gert sér grein fyrir styrk sínum og eins hinu, hvers hlut- leysis þeir megi vænta af nytsömum sakleysingjum. Líklegast er talið að liðskönnunin verði í formi einhvers konar undirskriftasöfnunar og þá einna helzt um brottrekstur varnarliðsins. — Má þá búast við að „Samtökum hernámsandstæðinga“ verði beitt fyrir vagninn. Ef að þessum nýju kúnstum kommúnista verður, má gera ráð fyrir að undirskriftasöfnunin verði afhent opinberlega og verður þá fróðlegt að sjá, hverjir hafi látið ánetjazt. Bátinn rak alelda á hafnargarðinn Kommúnistar innlima Þjóðvörn VESTMANNAEYJUM 8. nóv. — Mikinn reyk lagði yfir höfnina hér síðdegis í gær. I>að var verið að brenna bát, á.tti að draga hann út úr höfninni og láta hann reka upp I Urðir, en þetta fór á annan veg. ★ Báturinn er gamall, Sjöfn, tuttugu tonna, síðast gerður út af Einari Sigurðssyni. Tveimur tunnum 'af olíu var heilt niður í vélarrúmið Síðan var kveikt í og mb. Ágústa tók Sjöfn í tog. Á undanförnum árum hefur ó- nýtum bátum alloft verið komið fyrir kattarnef á þennan hátt — og í Urðum brotnar það í spón, sem eldurinn skilur eftir Hann var orðinn allhvass, 6—7 vindstig, þegar Ágústa kom út í hafnarmynnið. Vildi þá svo iila til, að Sjöfn slitnaði aftan úr. ★ Ágústa renndi upp að hiið Sjafnar og Bogi Ólafsson stökk um borð. Báturinn var þá al- elda að aftan, en Bogi batt samt taugina á ný enda þótt bitinn væri orðinn svo mikill að menn á Ágústu héldust vart vxð á þil- fari meðan legið var vt'j Sjöfn. Happ- drættið DREGIÐ var í happdrætti Sjálfstæðisflokksins í gær- kvöldi, og höfðu þá allir mið arnir selzt. Upp komu nr. 5541 og 7212 Var nú aftur haldið af stað — og voru bátarnir rétt ko.nr.ir út úr hafnarmynninu þegar taugin slitnaði öðru sinni. Var pa kom- ið myrkur, töluverður sjór og allhvasst. Rak Sjöfn aielda á nyrðri hafnargarðinn utanverð- an og þótti ekki árennilegt að reyna að festa taugin.r aftur í bátinn. Hurfu menn frá við svo búið. Verst er, að braK úr bátn- um kemur sennilega tii með að reka inn í höfnina og má segja, að þetta hafi verið misheppnuð hreinsun. — Sigurgeir. Arinbjörn Guðmundsson Stórt tap fyrir Noregi LEIPZIG 8. nóv. — Norðnienn unnu íslendinga á Ólympíuskák mótinu með 2% vinningi gegn Vz. Arinbjörn gerði jafntefli við Lange, Lindblom vann Gunnar og Hoen vann Ólaf, Biðskák var hjá Freysteini og Johanr.essen, og stendur Norðmaðurinn betur. — Freystelnn. ★ Frammistaða Arinbjarnar á mótinu hefir vakið sérstaka at- hygli. Hann hefir engri skák tapað, unnið 7, en gert 9 jafn- tefli. Þannig hefir hann hlotið bandsúrum hafði verið stolið og 11% vinning í 16 skákum. Itveim perlufestum. EFTIR fregnum að dæma úr herbúðmm Þjóövarnarflokks ís- lands, er nú svo komið málum þar, að kommúnistum hefur tek- izt að ná til sín algjörum yfir- ráðum. Nú síðast hefur það gerzt að fimm af sjö þeirra manna, er skipuðu fyrstu miðstjórn Þjóð- varnarflokksins hafa dregið sig i hlé. Ástæðan til þessarar sundrung ar innan flokksins, er sú — eftir því sem Mbl. veit bezt — að í herbúðunum hefur verið sýndur algjör undirlægjuháttur gagn- vart kommúnistum, einkum nú á yfirstandandi ári. Hafa hinir gömlu miðstjórnarmenn ekki getað sætt sig við svo niðurlægj- andi hlutskipti flokks síns. Hafa miðstjórnarmenmirnir 5 neitað að taka kjöri í nefndir og trúnaðarstöður innan flokksins og óskað að draga sig í hlé frá öllum störfum á hans vegum. Þessir menn voru allir í fremstu víglínu flokksins er hann var og hét. — Ber þar fyrstan að nefna sjálfan miðstjórnarformanninn Úrum og perlu- festum stolið í FYRRINÓTT var rúða brotin i sýningarglugga skartgripaverzl- unar Kornelíusar Jónssonar við Skólavörðustíg. Nokkrum arm- Gullþórir seldi í Svíþjóð Farmurinn metinn til jafns við refafóður □- Sumarblíða SIGLUFIRÐI, 8. nóv. — Hér er hálfgerð sumarblíða, hiýtt og milt. Allan snjó hefur tekið upp í byggð, en föl er þó enn á fjalla tindum. Siglufjarðarskarð var mokað í gær og var allmikill snjór í því á köflum. — Guðjón. Gautaborg, 8. nóvember. Einkaskeyti til Mbl. GULLÞÓRIR frá Vest- mannaeyjum seldi afla sinn á mánudagsmorguninn fyrir mjög lágt verð, eða samsvar- andi því, sem fæst fyrir úr- gangsfisk í refafóður. Virtust það samantekin ráð kaup- manna að bjóða ekki hærra í aflann. Lúða seldist öll á Iaugardag- inn fyrir kr. 1.90—3.90 og er það lakara en verðið, sem hefur ver- ið hér á lúðunni. í gær fór kass- inn á 16—18 krónur, en í kass- anum eru 40—50 kg. Fullt leyfi Þessi söluferð Gullþóris er því mjög misheppnuð og sagði skipstjórinn við mig i gærkvöldi að hingað mundu þeir ekki koma aftur. Hann staðhæfði ennfrem- ur, að hann hefði aldrei sagt blaðamönnum, að hann hefði leitað sænskrar hafnar vegna veðurs. Kvaðst hann hafa plögg frá tollyfirvöldum í Reykjavík, sem veitt hefðu fullt leyfi til þessarar söluferðar. Bendir allt til þess, að Svíarnir hafi óttazt, að ef söluferðin hefði heppnazt, mundu íslenzkir bátar flykkjast til Svíþjóðar með afla sinn og að sjálfsögðu hefði það mikil áhrif á markaðinn, því Gullþórir var með miklu meira aflamagn en sænsku bátarnir koma yfirleitt með að landi. Útsala í morgun hringdi ég til fisk- hafnarinnar og leitaðiuppiýsinga um sölu bátsins. Var mér sagt, að hann hefði selt 327 kassa (40—50 kg. hver), en ég fékk ekki upp- gefið heildarverðmæti farmsins. Þegar beðið var um þær upplýs- ingar var svarið blátt áfram: „Nei“. Reiknast mér til, að báturinn hafi fengið u. þ. b. sex þiisund sænskar krónur, en síðdegisblað ið „Göteborgs Tidningen" segir íslendingana hafa orðið að halda „útsölu“ til að losna við fiskinn — og ekki borið nema fjögur þúsund kr. úr býtum. Léleg vara Skrifstofa fiskihafnarinnar gaf þær upplýsingar, að hér hafi ekki verið um samantekin ráð kaupmanna að ræða. Hins vegar hafi fiskurinn verið þvældur eft- ir langa ferð, fyrst til Englands og síðan til Svíþjóðar. Ennfrem ur, að hér væri aðeins kassafisk- ur talinn boðlegur. Sænsku sjó- mennirnir settu fisikinn beint í kassana, um leið og hann kæmi upp úr sjónum, en það gerðu fs- lendingarnir ekki. Hann væri ís- aður í lestina. Síðan lögðu þeir áherzlu á það að sænski fiskurinn væri sá bezti í heimi. íslenzki fiskurinn hefði verið með afbrigðum léleg vara. Þar að auki hefðu íslenzkir bát- ar ekkert leyfi til að landa í sænskri höfn. Skipstjórinn á Gullþóri harð- neitaði því, að fiskurinn hafi verið lélegur, síður en svo. Áætl að var, að báturinn héldi heim- leiðis síðdegis í dag eftir að farið hefði fram smáviðgerð á áttavita. — Fréttaritari. Valdimar Jóhannsson, bókaút- gefanda, þá Bárð Daníelsson, verkfr., fyrrv. bæjarfulltr. flokks ins, Þórhall Vilmundarson, menntaskólakennara, sem svo mjög tók þátt í útvarpsumræð- um og skrifum fyrir flokkinn, Þórhall Halldórsson fulltrúa og Magnús Baldvinsson múrara, en báðir voru þeir mjög virkir í starfi innan miðstjórnarinnar og báðir munu hafa verið í fram- boði. Ekki upp~ lýst oé fullu LEITINNI í Lagarfossi var lokið í gær og kom ekkert frekar i Ijós en það, sem áður hefur ver- ið greint frá. Tollþjónar voru farnir að hyggja að öðrum skip- um, sem kornin voru í höfnina, en þaiu voru Tröllafoss, Tungu- foss og Askja. Ekki hafa tollverðir komizt til botns í rannsókn þess varnings, sem tekinn var í Lagarfossi. Þar er um tvo vafakassa að ræða og ætla þeir enn að fara yfir farm- skrána til þess að fullvissa sig um að allt sé með felldu. Mjög margir af áhöfn Lagar- foss hafa verið yfirheyrðir. All- ir, sem áttu smyglvarning í vist- arverunum, hafa játað. Munu þeir vera sex talsins. — Hins veg ar gat rannsóknarlögreglan ekki gefið neinar upplýsingar um þá, sem viðriðnir voru smyglkassana £ lestum skipsins. Rannsókn málsins stendur enn yfir. Einn skipverji á Tröllafossi var staðinn að smygli. Yar hann kominn með varninginn á land — í tösku. Spilakvöld H AFN ARFIRÐI. — Félags- vist Sjálfstæðisfélaganna er í Sjálfstæðishúsinu í kvöld og hefst kl. 8,30. — Eins og áður verða verðlaun veitt og síöar heildarverðlaun. wTýrw í Kópavogi TÝR, félag ungra Sjálffctæðis- manna í Kópavogi, heldur að- alfund sinn í kvöld að Melgerði 1. Fundurinn hefst kl. 8,30. Fé- lagsmenn og nýir meðlimir ættu að fjölmenna á fundinn. Heilbrigðisnefnd hótar um 20 fyrirtœkjum lokun Á FUNDI bæjarstjórnar s.l. fimmtudag voru lagðar fram og staðfestar fundargerðir heil- brigðisnefndar frá 21. og 25. okt. sl., þar sem um 20 fyrirtækjum var hótað lokun. Voru það m.a. veitingastaðir, frystihús, kjöt- og fiskverzlanir. Vegna þessa snéri Mbl. sér til borgarlæknísembættisins og spurðist frétta um málið. Var blaðinu tjáð, að það væri tilvilj- un, að svo mörg mál þessa eðlis væru tekin fyrir svo til samtím- is. Á flestum fundum nefndar- innar er einu eða fleiri fyrirtækj um hótað lokun. Er það þó sjaldnast gert nema eftir langan aðdraganda. Starfsmenn við heilbrigðiseft- irlitið reyna með viðtölum og skriflegum fyrirmælum að fá bætt úr því, sem ábótavant er hverju sinni, og er þá ýmist um að ræða þrifnað og umgengni eða endurbætur á húsakynnum. Fá fyrirtækin ætíð hæfilegan frest til úrbóta, áður en málið er lagt fyrir heilbrigðisnefnd. Komi málið til afgreiðslu nefndarinnar, veitir hún eftir atvikum enn nýj an frest, oftastnær að viðlagðri Framh. á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.