Morgunblaðið - 09.12.1960, Blaðsíða 15
Föstudagur 9. des. 1960
MORGUlSfíLAÐlÐ
15
María Magnúsdóttir
Minning
F. 8/12 1910 D. 3/12 1960.
ÞEGAR jólin eru að nálgast og
aðeins fáum dögum fyrir afmælið
Iþitt, kvaddir þú þennan heim,
elsku frænka mín og vinkona.
Helfregnin er alltaf sár þegar
hún berst okkur, en treganum
blandast þakklæti til guðs, að
þú ert laus við margra ára sjúk-
dómsstríð og nú síðast 11 mánaða
samfellda sjúkrahúsavist, sem
þú barst með æðrulausu þreki
og þolinmæði. Þú kvartaðir
aldrei, þú tókst á móti okkur
í heimsóknum til þín glöð og
elskuleg og leiddir talið alltaf að
öllu öðru en líðan þinni, en þú
varst sátt að fara, þegar kallið
kom, því þú varst orðin svo
þreytt og eftir að þú þurftir að
sjá á bak þínum elskulega eigin
manni svo óvænt að manni
fannst fyrir 4 árum og börnin
þín voru öll flogin úr hreiðrinu
fannst þér ekkert vera þér að
vanbúnaði. Minningarnar hvarfla
um huga minn frá því að við
sem smátelpur í sveitinni heima
bundumst órofa vináttu sem
aldrei slitnaði, þótt leiðir lægju
ekki alltaf saman. En nú ertu
horfin yfir landamærin miklu en
eftir lifir minningin um elsku-
lega konu sem æðrulaus bar sína
byrði og öllum vildi vel. Það er
venjulega ekki haft hátt um al-
þýðukonuna sem lifir lífi sínu í
kyrrþey og fórnar sér fyrir ást-
vini sína, en saga hennar gæti
verið stór væri hún skráð. Ég
enda þessi. fátæklegu kveðjuorð
með bæn til guðs að hann megi
styrkja börnin þín og tengda-
börn og aldurhnigna þrekkonuna
tengdamóður þína í sorg þeirra,
og kveð þig að lokum vina mín
með hjartans þökk fyrir allt og
allt. Far þú í friði.
Vinkona.
AvALkT TilLeiGu:
Flutningav'agnaf
DráttQrbílar
Krav\a,b«\ar
"Vclskóflur
IþuNGAVlNNUVílA^
Ll sírti 3*/333
Magnús Thorlatius
næstaréttarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Aðalstræti 9. — Sími l-1873t
LÆKKAÐUR
KOSTIMAÐUR
við heimilisreksturinn er takmark flestra hús-
mæðra. — Ein leiðin, til að ná þessu marki, er
að nota alltaf
LUDVIG DAVID í KÖIMNUVA
NÝR FLOKKHR 12” L. P.
(hæggengra) hljómplatna
við sérstöku lágu verði.
Sígild úrvalstónlist — Upp'
tökur afbragðsgóðar —
Glæsileg umslög.
BEETHOVEN: 9. (Choral) & 5. Syniphónía — GILBERTS & SULLIVAN:
Overtures - BEETHOVEN: Emperor Coneert - BALLET MUSIC - MOZART:
40 & Jupiter Symphonía — POPULAR FRENCH OVERTURES — TCHAI-
KOWSKY: 5. Symphonia — BRAHMS: Concert No. 1 — TÓNVERK
WAGNERS — BEETHOVEN: Pastoral Symphónía — TCHAIKOWSKY: Con-
cert No. 1 — BEETHOVEN: 1 & 4. Symphónía — GRIEG: Per Gynt Svíta
1 & 2 — MOZART: Night Music — FAVOURITE WORKS OF CHOPIN —
og fleira.
Stjórnendur: C. SCHURICHT — SIR MALKOLM SARGENT — R. KEMPE —
C. SILVERI — W. SCHOCHTER — C. DAVIS og fleiri.
Hljómsveitir: — Paris Conservatoire Orch. — Berlin Philharmonic Orch. —
Royal Philharmonic Orch. — Paris Opera Orch. — Westdeutsch Rundfunk Orch.
og 'fleiri.
H.M.V. Concert Classics flokkurinn hefir verið sérstaklega skipulagður til þess
að kynna betzu tónlist veraldar fyrir nýjum áheyrendahópi. Sir Malcolm Sargent
kynnti þennan nýja hljómplötuflokk á þennán veg: — „Allt það, sem gerir
tónlistaunnendum kleift að kaupa eina hljómplötu, eða tvær í stað einnar áður,
er tónlistinni til eflingar”.
Concert Classics plötuflokkurinn er ætlaður til þess að örva áhuga almennings
á sígildri úrvalstónlist, sérstaklega á meðal ungra hljómplötukaupenda, og til
þess að skapa markað fyrir sígildar hljómplötur.
Ofangreindar plötur í flokki þessum eru flestar fáanlegar nú þegar, og fleiri
koma síðar.
Vér teljum rétt að kynna almenningi þennan nýja H.M.V. plötuflokk. Plöturnar
eru allar með HIS MASTERS VOICE MERKI, og útsöluverð þeirra hið sama
og verð 12” L. P. plötum „Hljómplötuklúbbs Alþýðublaðsins", eða . . .
Aðeins kr. 295.— Aðeins kr. 295.—
F Á L K I IM IM H. F.
( H1 jómplötudeild )
'fí?a.//rnsitA of Gua/i/f
CONCERT
CLASSICS
Kaffibætisverksmiðja
. Jdhnson & Kaaber 7,
HIIMAR LJUFFENGIJ
Spönsku appelsfnur
meðHESTAIVIERKIIMU
Fást nú aftur ■ flestum verzlunum
BRAGÐGÓÐAR BÆTIEFIM ARÍKAR