Morgunblaðið - 16.03.1961, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.03.1961, Blaðsíða 6
MORGUISBLAÐIÐ Fimmtudagur 16. marz 1961 viðurkenndar grunnlínubreyting- ar, sem tryggja okkur þýðingar- mikil fiskimið innan landhelgi okkar. Til þess að fá þessa mik- ilsverðu viðurkenningu höfum við orðið að fórna nokkru en að- eins í bili. viðskipti Utvarpsræða Jónasar G. Rafnars á Alþingi HERRA forseti. — Góðir hlust- tndur! Fyrsta verkefni núverandi rík- isstjórnar var að leita úrrseða til þess að koma þjóðinni út úr ó- göngunum, sem vínstri stjórnin hafði leitt hana í. Vegna þess, hvernig komið var, gat engum dulizt, að ekki yrði komizt hjá rótlækum aðgerðum sem í bili krefðust fórna af öllum almenn- ing: í landinu. Þjóðin var í sömu aðstöðu og einstaklingur sem nfað hefir um efni fram_ Síðustu 5 árin hafði greiðslu- hallinn við útlönd numið sam- tals um 1100 milljónum króna. Erlendis hauguðust upp skuld- ir, er greiða átti á svo skömmum tíma, að óviðráðanlegt var. Greiðslur aflborgana og vaxta þerrra lána, sem samið hafði ver- ið um í árslokin 1959, komu til með að nema á árinu 1960 og 1961 um 374 milljónum kj-óna. Á árunum 1951—1955 greiddi þjóðin um 3% af gjaldeyristekj- um sínifm í afborganir og vexti af lánum. Nú var sá útgjaldalið- ur kominn yfir 10% af gjald- eyris tekjunum. Leið skuldasöfnunar varð ekki lengur farin, ef þjóðin átti að halda efnahagslegu sjálfstæði sínu. En þá var ekki um aniað að gera en að hverfa frá upp- bótakerfinu, og skrá gengið — miðað við þarfir og nauðsyn út- flutningsframleiðslunnar. Jafn- framt varð ekki komizt hjá ráð- stöfunum til þess að tryggja jafn vægi í efnahagsmálunum innan lands og í viðskiptunum við út- lönd — og þá ekki sízt til þess að koma i veg fyrir verðbólgu- þróun, sem eyðilagt hafði allar fyrri aðgerðir. Breytingin borið tilætlaðan árangur Nú, eftir rúmt ár, er fengin reynzla af breytingunni í efna- hagsmálunum. í öllum megin- atriðum hefur hún borið tilætlað,- an árangur. Atvinna hefir yfirleitt verið góð um land allt og einnig í þeim byggðarlögunum, sem oft hafa átt við þröngan kost að búa í þeim efnum. í sumum atvinnu- greinum hafa ráðstafanirnar leitt af sér samdrátt, sem búast mátti við, en hleypt aftur á móti nýju lífi í aðrar. Eftir verðhækkanirnar, sem óhjákvæmilega leiddu af gengis- breytingunni, hefir verðlag hald- izt stöðugt, og framboð verið á vörum, sem áður skorti. í viðskiptunum við útlönd hefir orðið mikil breyting til batnað- ar, og sparifjáraukning veruleg. Þegar aðstæður eru metnar, verður að taka tillit til þess að árið, sem leið varð þjóðarbú- skapurínn fyrir miklu áfalli vegna aflaleysis togaraflotans og verðfalls á mjöli og lýsi. Stjórnarandstaðan hefir ekki sparað að deila á aðgerðirnar í efnahagsmálunum. Nú halda Stjórnarandstæðingar því fram, að vandalaust befði verið að stýra þjóðarskútunni yfir brot- sjóa verðbólgunnar, sem forsæt- isráðherra Vinstri-stjórnarinnar taldi þó á sínum tíma, að væri að keyra allt í kaf —- og yfirgaf því stjórnarvölinn, án nokkurra björgunartilrauna. Nú eins og 1958, uppgjafarár Vinstri-stjórn- arinnar, varast þessir menn að benda á ráðin og því síður að marka nokkra stefnu. Sannleik- urinn er líka sá, að þeir hafa engan boðskap að fiytja, og láta sér því nægja andófið í orði og verki þar sem því verður við komið. Framundan eru margvísleg verkefni, sem ríkisstjórnin er ýmist að vinna að eða hefir til athugunar og frekari undirbún- ings. Vii ég geta nokkurra þeirra. Ræktunarsjóður var gjaldþrota Þannig, hafði verið skilið við aðalstofnlánasjóð landbúnaðar- ins, Ræktunarsjóð, að hann var raunverulega gjaldþrota, eftir lög festingu yfirfærslugjalds Vinstri stjórnarinnar og svo gengisbreyt inguna. Þrátt fyrir þennan hörmu lega viðskilnað var á síðastliðnu ári lánuð hærri upphæð úr Ræktunarsjóði en nokkru sinni áður eða 49,6 milljónir króna. Úr Byggingarsjóði voru lánaðar um 13,3 milljónir króna, sem einn- ig er hæsta lánveiting á einu ári. Nú er verkefnið að finna leiðir til þess að tryggja fjárhag sjóð- anna svo þeir geti gegnt hinu merka hlutverki sínu fyrir land- búnaðinn. Bændur landsins vita hvaða þýðingu það hefir. Þá er knýjandi nauðsyn að finna úrræði til þess að tryggja Veðdeild Búnaðarbankans starfs grundvöll. Varla er unnt að segja að hann hafi verið fyrir hendi. Hámarkslán úr veðdeildinni hafa til þessa verið um 35 þús. krónur, sem í langsamlega flestum til- fellum er allskostar ófullnægj- andi. Sjávarútvegurinn hefir átt í erfiðleikum, sem m. a. stafa af áföllum eins og verðfalli á mjöli og lýsi og aflaleysi togaraflotans. Það er svo annað mál, að út- gerðina hefir skort lánsfé, með hagstæðum kjörum, til þess. að standa undir fjárfestingunni. Af því hefir leitt allverulega bind- ingu rekstrarfjár og söfnun lausa skulda, einkum í bönkunum. Til þess að létta undir með útgerð- inni í þessum efnum hefir ríkis- stjórnin gert ráðstafanir til þess að komið verði upp nýjum lána- flokki við stofnlánadeild sjávar- útvegsins — í þeim tilgangi að breyta allmiklu af skuldum, sem eru til skammt tíma, í löng lán. Með þessu er raunverulega verið að -.iána út á framkvæmdir lið- inna ára, sem þá fengust ekki löng lán til, en voru í þess stað greidd með bráðabirgðalánum. Að hve miklum notum þess.ar ráðstafanir í peningamálunum koma fyrir útgerðina í heild, verð ur ekki sagt að sva komnu máli — en tvimælalaust er stefnt í rétta átt með bessari nýbreytni. Með hverju ári, sem líður, hefir þýðing iðju- og iðnaðar í atvinnu lífinu farið vaxandi. Iðnlánasjóði tryggðar 15 millj. kr. Af hinni öru uppbyggingu iðn- aðarins hefir leitt brýna þörf fyrir aukið stofnfé. Hæstvirtur iðnaðarmálaráðherra, Bjarni Benediktsson, hefir látið athuga eftir hvaða leiðum mætti efla Iðnlánasjóð og mun álitsgerð þeg ar liggja fyrir eða vera á næstu grösum. Á þessu ári hafa sjóðnum verið tryggðar 15 millj. króna 'lánsfé til þess að endurlána iðn- aðarf yrir tækj um. Jónas G. Rafnar Verið er að framkvæma víð- tæka athugun á því, hvaða stór- iðja komi einna helzt til greina hérlendis og hvaða skilyrðum hún muni háð. Tvímælalaust er hér um að ræða eitt mesta hags- munamál þjóðarinnar, ef hagstæð ar niðurstöður fást og vel tekst til um framkvæmdir. Rannsóknir á virkjunarskilyrðum í stórám landsins eru nátengdar þessum athugunum, og eru þær nokkuð á veg komnar. f tilefni af ádeilum stjórnar- andstöðunnar varðandi húsnæð- ismálin, er fróðlegt að kynna sér lánveitingar úr veðlánakerfinu síðustu árin. Árið 1955, er lögin um húsnæð- ismálastjórn og fleiri tóku gildi, voru lánaðar 27,4 millj. króna. Ári síðar 63,6 millj. króna. í valdatíð Vinstri stjórnarinnar varð mjög verulegur afturkippur í lánveitingum, þannig að árið 1957 voru ekki lánaðar nema 45,6 milljónir og árið 1958 48,7 millj. króna. Þessi mikli samdráttur stakk illa í stúf við loforð vinstri flokkanna um útvegun fjár í veð lánakerfið. Á sl. ári lánaði veðdeildin 71,8 millj. króna, sem byggist á því, að ríkisstjórnin hafði forgöngu um að útvega dtjildinni fjármagn. Þegar veðdeildinni vex fiskur um hrygg sem vonandi verður innan tíðar, þarf að endurskoða ákvæði laganna um hámark láns upphæðar, en það er nú þegar ófullnægjandi vegna hækkunar byggingarkostnaðar, enda staðið óbreytt siðan 1955. Ríkisstjórnin hefir beitt sér fyrir allverulegum spa/rnaði í fjármálum ríkisins og spornað gegn hækkunum á rekstrarliðum fjárlaganna. Hins vegar hafa út- gjöld til Almannatrygginganna og til niðurgreiðslna á vöruverði hækkað vegna efnahagsráðstaf- ananna. Einnig hafa framlög til verklegra framkvæmda, eins og vegamála og raforkumála, verið allmíkið aukin. Skiljanleg afstaða Að undanförnu hefir fiskveiði- deilan við Breta verið efst á j baugi. Víst er, að þeir, sem á ann i að borð óskuðu eftir lausn deil- unnar, una vel við þá samninga, sem nú hafa tekizt. Afstaða kommúnista til þessa máls hefir allt af verið skýr. Þeir hafa viljað hald-a deilunni — hern aðarástandinu — áfram til þess að geta með því móti spillt fyrir samskiptum okkar við vestrænu ríkin. 1 Afstöðu Framsóknarleiðtog- anna verður og að skilja og raun- ar að afsaka, í ljósi þeirrar stað- reyndar, að þeir hafa í einu og öllu verið á móti stjórnarflokk- unum. í umræðunum hér fyrir skömmu kom það meðal annars fram, og var ekki andmælt, að Vinstri-stjórnin, undir forustu formanns Framsóknarflokksins, bauð á sínum tíma upp á sam- komulag um að hleypa brezkum fiskiskipum upp að 6 mílunum, allt umhverfis landið, og án nokkurrar útfærslu á grunnlín- um. Nú segja þessir sömu menn, að „samningur" sé svik við þjóð- ina þótt hann sé á allan hátt miklu hagstæðari en sá, sem þeir höfðu sjálfir einu sinni forgöngu um að bjóða upp á. Þá upplýstist það einnig, að Vinstri-stjórnin lagði til á Genf- arráðstefnunni árið 1958, að að- gerðir strandrikis, utan hinnar eiginlegu fiskveiðilögsögu, skyldu háðar úrskurði gerðar- dóms. Þessi tillaga var að efni til tekin upp af núverandi ríkis- stjórn á Genfarráðstefnunni síð- ari, með fullu samþykki háttvirts 2. þ.m., Vestfirðinga, Hermanns Jónassonar og háttvirts 4. þ. m. Austlendinga, Lúðvíks Jósefsson ar. Munum vinna að frekari útfærslu Það situr því sízt á Framsóknar mönnum og kommúnistum að ær ast yfir því, að komist sé að nið- urstöðu um að íslendingar leggi ágreining um fiskveiðiréttindi utan 12 mílna landhelginnar und ir Alþjóðadómstólinn — stofnun- ina, sem smáríkin fyrst og fremst telja sina aðalstoð og styttu í bar áttunni fyrir rétti sínum. Ég læt mér naegja að benda á þetta sem dæmi um ósámræmið í athöfnum stjórnarandstæðinga og orðum þeirra hér i þingsölunum. Með orðsendingum íslenzku og brezku ríkisstjórnanna varðandi landhelgina, sem Alþingi hefir nú staðfest, hefir okkur íslendingum verið tryggður rétturinn til 12 mílna landhelgi, frá tilteknum grunnlínum, um aldur og ævi. Jafnframt fáum við þegar í stað Eftir því sem þróunin verður í þessum' málum og eftir því sem fært þykir, munum við íslend- ingar halda áfram að vinna aS útfærslu fiskveiðilögsögunnar. Ef til ágreinings kemur munum við flytja mál okkar fyrir þeirri stofnun, sem á að skera úr um það, hvort rétt sé að farið í samskiptum þjóða. Sigurinn í landhelgismálinu • sr meðal annars í því fólginn, að s& aðilinn, sem við höfum staðið í illdeilum við, hefir nú fallizt á að hlíta samkvæmt dómsúr- skurði réttum lögum, ef til ágrein ings kemur, í stað þess að beita okkur valdi. Herra forseti, Tími minn er á þrotum. Með tilvísun til þess, sem ég hefi nú gert nokkra grein fyrir, og aðgerða ríkisstjórnarinnar yf-* irleitt, tel ég, að henni hafi vel tekizt að leysa verkefnin og legg því til, að tillagan á þingskjali nr. 432 um vantraust á ríkisstjórn ina verði felld. Dásamlegt, alltaf ung og fal- j leg, ég nota daglega Rósói- j crem með A vitamini. — Það hefur undraverð áhrif á húð- ina, engar hrukkur, en mjúka og fallega húð. 4 — 4 „Með piparmintubragði og virku Cuma- sina-silfri, eyðir tannblæði og kemur í veg fyrir tannskemmdir". mum „Sérlega hressandi með Chlorophyll, hinni hreinu blaðgrænu, fjarlægir leiða munn- þefjan“. □ □□□□ „Freyðir kröftuglega með piparmintu- bragði“. VEB Kosmetik-Werk Gera Deutsclie Demokratische Republik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.