Alþýðublaðið - 07.07.1920, Side 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
E.s. Skjöldur
fer aukaferð til Borgaraess föstud. 9. júlí 1920 kl. 11 árdegis.
Reykjavík 6. júlí 1920.
H.f. Bg'g’ert Ólafsson.
,, F A X I “
hleður í dag til Sig-luf jarðar og ^Lliiireyrar. — Vörur
skilist sem fyrst. — Burtfarartími ákveðinn lil. X2 á morgun.
Sig’urjón Pétursson.
Sími 137. Hafnarstræti 16.
Aðvörun.
Benzin má hvergi geyma i bænum nema fengið
sé samþykki slökkviliðsstjóra og gætt ákvæða laga
og reglugerðar um brunamál um geymslu á eldfim-
um vökvum og þeirra ítarlegri varúðarreglna, sem
slökkviliðsstjóri setur í hvert sinn.
í íbúðarhúsum og í kjöllurum undir íbúðarhús-
um er algerlega bönnuð geymsla á benzíni, nema þar
sem benzínmótorar eru með leyfi brunamálanefndar.
í slíkum húsum getur slökkviliðsstjóri leyft að geyma
alt að 40 lítrum af benzíni, ef gætt er þeirra varúð-
arráðstafana, sem hann krefst í hvert sinn.
Samkvæmt þessu aðvarast allir, sem hafa benzín
undir höndum, að gera slökkviliðsstjóra aðvart þegar
í stað um hve mikið benzín þeir hafi og hvernig
það sé geymt.
Brunamálanefndin 1 Reykjavík 6. júlí 1920.
K. Zimsen.
Xoli konungnr.
Eftir Upton Sinclair.
Þriðja bók:
Pjónar Kola konungs.
(Frh.).
»En sú hepni fyrir félagið!“
sagðí Percy hæðnislega.
„En þú getur reyndar huggað
þig við það, að rannsóknir mínar
skulu líka ná til Werner-félags-
ins“.
„Þá veit eg ekki betra ráð, en
að benda þér á, að koma með
okkur, eg get skilið þig eftir hjá
einhverri námu þess, sem við
förum fram hjá“.
« XX.
Hallur hitti Jessie sitjandi við
einn vagngluggann, og starði
hún sorgbitin út um hann. Hún
sagði honum hvað hún væri ó-
hamingjusöm vegna þessa ástands,
sem hann hafði komið henni í
gagnvart honum sjálfum og gest-
gjafa hennar og hvað sér hefði
fallið það þungt, að finna hann
hér og í þessum fötum! Einmitt
þegar hún hélt að hann væri á
geitaveiðum uppi í fjölluml
Hallur gat ekki að því gert að
hlægja, en Jessie stökk ekki bros.
„Og svo, drógstu ást okkar
inn í þetta — og það fyrir allra
auguml" Jessie bar skrautsaumaða
vasaklútinn sinn upp að aug-
unum.
„En, eískan mín“, sagði Hallur
vandræðalega, „geturðu ekki hugs-
að þér, eitt augnablik, að þú
værir í mínum sporum? Hugsað
til mannanna niðri í námunni!"
„En, þú hefir heyrt, að þeir
hefðu hvort sem var opnað nám-
unal“
„Þér skjátlast hrapalega, Jessie,
þeir ætluðu sér alls ekki að opna
hana“.
Hún leit steinhissa á hann tár-
votum augunum. „Því segir þú
það, Hallur? Percy sagði —“
„Eg get sagt þér það, af því
að eg veit það. Heyrðu mér,
Jessie, ef við eigum nokkurn tím-
an að geta orðið hamingjusöm,
verðurðu að hætta að vera barn,
sem gerir sér enga hugmynd um
tilveruna. Þess vegna gleður það
mig, að þú ert hér — því nú
getur þú orðið áhorfandi".
„En, eg verð að fara, Hallur.
Ekki get eg beðið Percy Harri-
gan að verða hér kyrran og koma
glundroða á ferðaáætlunina I “
„Getur þú ekki orðið hér eftir,
án hans? Biddu einhverja konuna
að verða hér eftir með þér!“
Hún starði mállaus á hann.
„En, ertu búinn að steingleyma
því, sem maður getur gert og
getur ekki gert? Hugsaðu þér,
hvernig það Iiti útl Hugsaðu þér,
hvað hún mamma myndi segja •—“
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ólafur Friðriksson.
Prentsmiðjan Gutenberg.