Morgunblaðið - 22.10.1961, Side 10
10
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 22. okt. 1961
:
■
KVÖLDIÐ 17. apríl, þeg-
ar Elizabeth Taylor fókk
Óskars-verðlaunin fyrir
bezta leik ársins og Shir-
ley Jones fyrir bezta auka
hlutverkið, sat sú stjarn-
an, sem bezta aðsókn fær,
Doris Day, heima hjá sér
og drakk súkkulaðigos,
sem hún hafði sjálf fram-
reitt við eigin gosbar.
Hvorki bölvar né
guðlastar.
Margir voru óánægðir
vegna fjarveru hennar, þar á
meðal slúðurdálkahöfundur-
inn Louella Parsons, sem
fannst synö og skömm að ekki
var mögulegt að geta ungfrú
Day, þó hún að öðru leyti
væri samþykk verðlaunaveit-
ingunum.
Jafnvel í slúðurbælinu
Hollyv9ood er Doris Day tákn
hinnar venjulegu, hreinlífu
stúlku; hún reykir ekki, bragð
Hin óhemjumikla lífsorka
Doris fær útrás í leik
hennar.
ar ekki áfengi, hvorki bölvar
né guðlastar og fer í sturtu
þrisvar á dag.
Doris hefur verið lýst sem
heimakærri konu, sem ekki
hefði áhuga á næturlífinu,
ástríkri eiginkonu og innilega
trúaðri. Allt er þetta satt, en
þessi lýsing er dálítið svip-
laus og ófullkomin. l>ótt hún
sé ekki taugaveikluð, eru
skapbrigði hennar afar breyti
leg og hún er ekki sú síhlæj-
andi blómarós, sem hún lítur
út fyrir að vera. I>egar hún
kom til Hollywood var hún
svo öryggislaus og hrædd, að
hún var sígrátandi, og leik-
stjórinn í fyrstu mynd henn-
ar nefndi hana ,,ungfrú grát-
konu“. Hún þolir ekki að tví-
ræðar sögur séu sagðar í nær
veru hennar. En hún hefur
ágæta kímnigáfu. Ein af beztu
vinkonum hennar er hressi-
leg, fyrrverandi gamanleik-
kona, Ronnie Cowan. Doris og
Ronnie kalla hvor aðra hinum
furðulegustu nöfnum og senda
hvor annarri oft kúnstugar
gjafir.
Alltaf um þrítugt.
Ungfrú Day er afar við-
kvæm vegna aldurs síns, sem
er 37 ár. Hún lítur út fyrir að
vera tæplega þrítug og vill
helzt halda því áfram. Hún á
19 ára gamlan son, Terry,
sem er 183 sm. á hæð og er
nýbyrjaður í háskóla. Hún
hefur haldið Terry frá sviðs-
ljósinu síðan hann var um
það bil 14 ára gamall og gæt-
ir þess að láta ekki ljósmynda
sig með honum. Sumir segja
að það sé vegna þess að hún
sé hrædd um að aflrauna-
mannsvöxtur hans gæti leitt
athygli að aldri hennar, en
aðrir að hún geri þetta vegna
frelsi sonar síns og til þess
að hann geti byggt framtíð
sína í utanríkisþjónustunni
óáreittur.
Þó að Doris og maður henn
ar eigi a. m. k. sex millj. doll-
ara, lifa þau tiltölulega ein-
földu lífi. Hún geymir öll föt,
sem eru saumuð fyrir kvik-
myndahlutverk hennar og
saumakona hennar, hin fræga
Irene, átti fyrir fáum árum í
erfiðleikum að að fá föt henn
ar úr kvikmyndinni „Miðnæt
urknipplingar" að láni til að
sýna við Öskarsverðlauna-
veitingu.
Tilfinningar hennar sýna
sig í leik hennar. Þó að hún
sé með betri leikkonum Holly
wood hefur hún aldrei lært
neitt í leiklist. Hinsvegar lif-
ir hún sig algerlega inn í
hlutverkin. Ef til vill á for
tíð hennar sinn þátt í þeim
hæfileika. Þegar hún leikur
skelfda konu, lifir hún á ný
afbragðs vinsældum. A end-
anum var ég farinn að borga
henni 500 dbllara á viku og
það voru miklir peningar,
meðan á kreppunni stóð.
Tvískilin 23 ára.
Þegar hún var nýorðin 17
ára, stakk hún af með trom-
bónleikara frá Chincinnati,
A1 Jorden. Hjónabandið varð
óhamingjusamt og þau skildu
skömmu eftir að Terry fædd-
ist. Hún fór þá aftur að syngja
með Les Brown eg skildi
Larnið eftir bjá móður sinni.
Ues Brown segir, að hún hafi
verið niðurdregin, þegar hún
kom aftur.
Dorist giftist aftur árið
1946, í þetta sinn George
Weidler, saxófónleikara hjá
Les Brown.
Annað hjónaband hennar
varð engu betra en hið fyrsta.
Weidler, átti erfitt með að fá
atvinnu og þau bjuggu í hús-
vagni við Los Angeles. Hún
varð brátt að fara að vinna
aftur, og fékk atvinnu í New
York. Þegar hún kom aftur
til Los Angeles varð annar
skilnaður hennar óumflýjan-
legur.
Þau hjónÍR eyða oftast sumarleyfutn sínum í Palm Springs og
Nýja Englandi. Meðfylgjandi mynd er af Doris í Palm Springs,
sem er frægur vetrardvalarstaður kvikmyndastjarna við upp-
sprettulindir í Colorado-eyðimörkinni.
^JJún lijJi
mr
rótcióafci
L
c^eóíum
hcítti
cí
★ ★ ★
í huganum. einhvern skelfileg
an atburð, sem hún hefur orð
ið fyrir.
Móðirin stritaði.
Doris Day er af þýzkum
ættum, fædd í Cincinnati.
Ættarnafn hennar var von
Kappelhoff. Foreldrar hennar
skildu 1936, þegar Doris var
12 ára.
Doris hefur frá barnæsku
þráð að verða dansmær. Móð-
Lr hennar vann í brauðgerð-
arhúsi til að geta greitt dans-
tíma dótturinnar. Þrettán ára
gömul fór hún að dansa op-
inberlega með jafnaldra sín-
um, Jerry Doherty. Mæður
þeirra fóru með börnin til
Los Angeles til að þau gætu
lært stepp hjá frægum kenn-
ara, sem hafði aðgang að
kvikmyndaverunum. Pening-
arnir dugðu þó skammt og
þau urðu að fara heim aftur.
Fjórtán ára gömul varð hún
fyrir flutningalest og lær-
brotnaði. Framtíð hennar sem
dansmeyjar var eyðilögð.
En móðir hennar hafði tek-
ið eftir að hún hafði skæra
og mjúka söngrödd. Hún fór
því að taka að sér sauma til
að greiða söngtíma fyrir
Doris.
Doris fékk brátt að syngja
í útvarp — kauplaust. En
skömmu seinna var hún ráð-
in á næturklúbb fyrir 25 doll-
ara á viku. Hljómsveitarstjór-
inn átti í miklum erfiðleikum
með að koma nafninu von
Kappelhoff fyrir í auglýsingu
svo vel færi á, og gaf henni
því ættamafnið Day. Bob
Crosby heyrði eitt sinn í
henni og réði hana þegar sem
söngkonu við hljómsveit sína
x New York. Hún var þá sex-
tán ára gömul. Skömmu
seinna fór hún að syngja með
hljómsveit Les Brown og var
lengi með henni. ,,Eg var í
vandræðum með hana fyrst,“
sagði Les. ,,Hún var svo mik-
ið barn, en til allrar hamingju
hef ég alltaf haft prýðisstráka
í hljómsveitinni og hún hætti
fljótlega að vera hrædd við þá.
Hvert lagið á fætur öðru náði
Of
★ ★
upp
,, 1,1
CýU
9
(-
Einmana og döpur fór hún
í samkvæmi í Hollywood ár-
ið 1947. Þar hitti hún texta-
höfundana Sammy Cahn og
Jule Styne. Þeir mundu eftir
henni og daginn eftir réði
Michael Curtiz hana til að
leika í myndinni ,,Ástir á út-
hafinu“. Hún fékk aðalhlut-
verk í þriðju mynd sinni.
í skrifstofu umboðsmanns
hennar vann Martin Melcher.
Hann tók ekki aðeins að sér
að stjórna leikferli hennar
Martin Melcher, þriðji eigin-
maður hennar, er jafnframt
umboðsmaður hennar og neit-
ar að láta hana leika í lítil-
fjörlegum kvikmyndum.
heldur og einkalífinu. Þau
giftust 3. apríl 1951, daginn
sem hún varð 27 ára. Martin
var áður giftur Patti
Andrews, einni af Andrews
Sisters.
I leit að trú.
Doris Day hefur alltaf verið
í leit að trú. Vinir hennar
urðu því ekki hissa, þegar hún
gerðist meðiimur „Vitringa-
kirkjunnar“ (Christian Sci-
ence), skömmu áður en hún
giftist Melcher. Hún tók að
lesa Biblíuna daglega, hætti
að bragða áfengi og reyking-
um (áður.hafði hún reykt ZVz
★ ★ ★
pakka á dag). A hverjum
sunnudegi fór hún í kirkju,
hvar svo sem hún var stödd.
Skömmu eftir giftinguna tók
Melcher, sem verið hafði Gyð
ingur, einnig trú hennar.
Hin nýja trú hennar átti
nokkurn þátt í erfiðleikum,
sem hún varð fyrir 1954. Vin-
kona hennar Ronnie Cowan
segir: „Doris var búin að
vinna afskaplega mikið. Hún
var orðin slæm á tugum og
Félag blaðakvenna í Holly-
wood kaus hana ,,afundnustu
leikkonu ársins". Þetta féll
henni illa. Hún fór einnig að
eiga erfitt með öndun. Á end-
anum komst ég að því, að hún
hafði fengið ber í brjóstið, og
það hafði skelft hana ákaf-
lega. Hún var hrædd við að
þetta væri krabbamein, en
fannst hún bregðast trú sinni
með því að leita læknis.
Martin var afar þolinmóður
og fékk hana á endanum til
að gangast undir uppskurð.
Æxlið reyndist góðkynjað og
skurðurinn var aðeins smá-
vægilegur.
Sívaxandi vinsældir.
Gengi hennar var farið að
minnka vegna þess. hve mynd
ir hennar voru lítilfjörlegar,
en þetta ár fór hún að leika í
dramatískari myndum. Síðan
hafa vinsældir hennar farið
sívaxandi. Næsta mynd henn
ar mun verða „Loðskinn eru
dýr“, þar sem hún leíkur í
fyrsta sinn á móti Cary
Grant. A þessun. árum hefur
hún öðlast þann sess að plöt-
ur hennar seljast nú betur en
nokkurrar annarrar söng-
stjörnu í heiminum.
Samkvæmislíf þeirra hjón-
anna er ekki upp á marga
fiska. Irene saumakona segir:
„Manni er boðið til þeirra í
kvöldverð og yfirleitt eru að-
eins ein hjón þar í viðbót, —
iðulega Audrey Hepurn og
Mel Ferrer. Hanastél er ekki
borið fram heldur gulrótasafi
rétt fyrir kvöldverð, sem er
'kl. 6; eftirrétturinn er borð-
aður við gosbarinn kl. 6:45;
síðan sýna þau kvikmynd í
dagstofunni og gestirnar fara
kl. 9.“
Hefur góða matarlyst.
Þegar Doris er ekki að
vinna, eyðir hún hínni óhemju
miklu lífsorku sinni við sund,
tennis, gönguferðir með hund
unum og fer í verzlanir. Vin-
ir hennar segja að þessi hreyf
ing sé henni nauðsynleg, því
hún hefur góða matarlyst. Ef
hún vinnur ekki af sér hita-
einingarnar, hættir læium
hennar til að gildna. Annars
hefur Doris ekki þurft að hafa
áhyggjur af fitu síðan hún tók
að vinna í kvikmyndum árið
1947.
Svæfði hana með
sálmasöng.
Vinna hennar, trú og eig-
inmaður eru stoðir hennar í
lífinu. Eitt sinn, er nærri var
liðið yfir hana við kvikmynda
töku, fór eiginmaður hennar
með hana heim. Ollum að ó-
vörum mætti hún þegar næsta
morgun, hress og glöð að
vanda. „Gærkvöldið var dá-
samlegt,“ sagði hún, „veiztu
hvað Martin gerði?“
„Nei,“ svarstði Hunter leik-
stjóri. „Hvað gerði hann?“
Doris sagði: „Strax og við
komum heim, háttaði hann
mig og kom til mín með kvöld
verðinn á bakka. Síðan sett--
ist hann á rúmstokkinn hjá
mér og söng fyrir mig sálma
í þrjár stundir, þangað til ég
sofnaði. Hvað myndu margir
eiginmenn hafa gert þetta?“
„Ekki margir,“ svaraði
Hunter.
•%*«
V I K A N
óskar eftir að taka á leigu liúsnæði fyrir
afgreiðslu, 100—150 ferm. á jarðhæð í
Miðbænum eða Austurbænum.
VIKAN