Morgunblaðið - 26.11.1961, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 26.11.1961, Qupperneq 10
10 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 26. nóv. 1961 Jíacnah( HÖRPU MALNING 2 LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANNA S Bassi er mest við aS leika við hvolpana í sum ar, en í hvert skipti, sem hállinn eða dráttarvélin fara í gang, þá er eins og Bassi sé trekktur upp og þurfi að fara líka, hann er nefnilega með bæði pabbadellu og bíladellu. Fyrst var það Andri og Örn, svo Anna, og nú Bassi, sem pabbi þarf allt af að hafa með sér, ef hann fer eitthvað akandi og næst verður það svo auðvitað Steini, hann er nú bara búinn að fara tvisvar í bílnum í burðar rúrmnu sínu. Jæja — nú þarf ég að segja ykkur frá öllum skepnunum, það eru 2 hryssur og 2 folöld, 10 kýr og 3 kálfar, 70 kind ur, 300 hænsni og 100 hanakjúklingar, 2 stórir hundar og 2 hvolpar og 1 köttur. Svo ætla ég nú líka að telja silungana í læknum síðast en r'cki sízt, þótt þeir séu ekki húsdýr, en Andra og Erni fyndist nú mikið vanta ef þeir væri ekki. Þeir eyða miklum tíma í að veiða silungana í læknum og gefa oftast kisa þá, en stundum hef ur mamma soðið þá stærstu handa þeirn og þá eru þeir nú stoltir af að hafa sjálfir veitt í matinn handa sér. En oft kostar þetta blauta sokka, buxiur og stígvél, það er bara verst með stígvélin, þau eru svo lengi að þorna, en þá taka þeir það ráð að troða eins miklu af grasi eða heyi í þau, eins ag mögulega kemst fyrir í þeim. Fyrsta silunginn, sem örn veiddi þurfti mamma að geyma lengi í frystikistunni, því Hann vildi færa mömmu sinni hann, þegar hann færi heim til Reykjavik- ur um haustið, þó silung urinn væri efcki nema 15 cm. Þeir þurfa auðvitað ósköpin öll af ánamöðfc- um þegar þeir eru svona oft að veiða og hafa þá stundum gleymt að taka með sér dós til að tina þá í, þá hefur komið fyrir að þeir hafa bara látið þá í vasana. En þá er nú mamma reið, því þegar hún tekur buxurnar í þvott og fer að losa vas- ana, rekur hún fingurna í blauta og skríðandi ána maðka, Bassi var ekki nema 2ja ára þegar hann fór að hjálpa þeim að tina maðka, þá gat hann ekki gengið framhjá neinum steini nema velta honum við og vita hvort efcki fæl ist maðkur þar og hann er oftast með þá í vösun um. Örn og Andri eru bún ir að gefa Bassa veiði- stöng, það er nú bara spýta, með nælongirni og litlum öngli, hann hefur heldur ekkert veitt enn þá. En Anna veiddi sinn fyrsta silung í fyrra, þá 6 ára og var auðvitað mjög stolt, sá var aðeins 12 om á lengd, en mamma varð að sjóða hann fyrir hana og borðaði hún hann með beztu lyst. Það er bara bezt að halda á- fram með aflafréttir, því hér veiðast líka álar í ánni, en það er nú sjaldn ar, sem drengjunum tekst að ná í þá, en þeir eru herramannsmatur. Þeir eru ákaflega langir, sleip ir og lífseigir, stundum geta þeir gengið yfir land, þar sem votlent er. Mamma var alveg hissa einu sinni þegar hún kom á fætur oig sá að bað kerið og baðherbergið var allt óhreint og slettótt og bar helzt vott um ein- hvern bardaga. Þá höfðu drengirnir veitt ál J. F. Cooper SÍDASTi MÓHÍKABJI 43. Litlu síðar fundu húronarnir Magúa, þar sem hann var bundinn í fcofa veifcu konunnar. Hann var óður af reiði og morguninn eftir hélt hann af stað með flofck húrona til að hefna sín á Fálkaauga, Uneasi og Heyward. snemma um morguninn og látið hann í baðkerið í smá vatnssopa. Állinn slapp svo alltaf frá þeim, vegna þess hve hann er sleipur og þess vegna all ar sletturnar. En nú verð ég að hætta þessu í dag, því að ég sé að kýrnar eru komnar í slægjuna á túninu og pabbi og allir krakkarnir nema Bassi og Steini eru langt úti á engjum, svo við Bassi verðum að reka þær, en ég segi yfck ur meira seinna. Framhald. Meðan þessu fór fram höfðu Uncas, Fálkaauga, Alica og Heyward leitað hæiis í þorpi skajldböku indíánanna. Þar var Cora einnig. Þangað rakti Magúa slóð þeirra, og um morguninn kom hann inn í þorpið eins og friðsamur gestur. Hann sagði, að sér væri kunnugt um, að verstu fjandmenn sínir væru þar í þorpinu og bað um, að þeir yrðu framseldir. En Tamenud, öldungur dela waranna, svaraði: „Það er óhugsandi, þar sem þeir eru gestir okkar“. Delawararnir vissu ekki, að það var Fálkaauga sjálfur, sem var gestur þeirra, og þeir urðu mjög undrandi, þegar Magúa sagði þeim það. Allir gestirnir voru nú leiddir fram. Magúa hélt langa ræðu og krafðist | þess, að þeir væru afhent- ir sér sem fangar. Dela- wararnir hlýddu á hann, og þegar hann þagnaði, sagði öldungurinn Tam- enud: „Taktu stúlkuna með þér, hún kom hing- að sem fangi þinn, hún er því þín eign, en hina máttu efcki snerta". Magúa þreif til Córu, en hún kastaði sér á kné fyrir Tamenud gamla og grátbað hann um hjálp. En öldungurinn vildi efcki hvika frá því, sem hann hafði sagt. „Tam- enud hefur talað og þvi verður ekki breytt“, sagði hann. Fálkaauga og vinir hans gátu ekkert aðhafst til að koma í veg fyrir, að Magúa færi burt með Córu. Fálkaauga baðst jafnvel til að gefa sig fram sem fangi Mag- úa, ef harin sleppti Córu, en Magúa var ósveigjan- legur. — o—□—o Gátur 1. Stundum er ég á undan þér, stundum er ég á eftir þér, og vísa þér veg, þó fer ég aldrei að heiman frá mér. 2. Því meira, sem úr mér er tekið, því stærri verð ég, og því minni, sem meira er í mig látið. 3. Hvaða fuglstegund verður að hluta af húsi, ef skipt er um fyrsta starf, en að verkfæri, ef fyrsti fyrsti stafur er felldur burt? 4. Hvaða rándýrsheiti verða að mannsnafni, ef fyrsti stafur er felldur burt?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.