Morgunblaðið - 07.12.1961, Síða 1
24 *íður
48. árgangur
Lið S.Þ. beitir
orrustuþotum
í fyrsta slnn í Katanga
IHarðir bardagar — óljósar fregnir síð-
degis — Bretar og Bandaríkjamenn
ósammála um aðgerðir S.Þ. — Thsombe
hættur við BrazilíufÖrina
Elisdbethville, Leopoldville
og Parts, 6. desember.
( AP-NTB-Reuter-AFP)
BARDAGAR héldu áfram í
Katanga í dag og beittu
hvorir tveggja orustuflugvél-
um. Er það í fyrsta sinn sem
herlið Sameinuðu þjóðanna
beitir orustuflugvélum gegn
hermönnum Katangastjórn-
ar. Indverskar og sænskar
sprengjuþotur og orustuflug-
vélar gerðu loftárásir á flug-
velli Katangahers og aðra
mikilvæga staði. Er vitað, að
50°/o rrteir
en áður til
hernaðar-
þarfa
Moskva, 6. des. — AP.
í DAG kom Æðsta ráð Sovét-
ríkjanna saman til fundar í
Moskvu. Var þá lögð fyrir
ráðið fjárhagsáætlun fyrir
írið 1962, sem er sú hæsta,
sem nokkru sinni hefur verið
gerð í Sovétríkjunum. Þar er
meöal annars gert ráð fyrir
50% hækkun fjárframlaga til
Ihernaðarþarfa frá því sem
áætlað var árið 1961. Stjórn-
málasérfræðingar telja aug-
Ijóst, að Rússar vænti sízt
batnandi ástands í alþjóða-
málum á ári komanda.
Niðurstöðutölur fjárhagsá-
ætlunarinnar eru 81,9 milljarð
ar rúblna, að því er fjármála-
1 ráðherra Sovétrikianna Vasily
Garbuzov tilkynnti ráðinu.
a. m. k. ein orustuþota og
þrjár flutningavélar Katanga
hers eyðilögðust, benzíntank-
ar sprungu í loft upp og
eftirlitsturn á einum flug-
vellinum gereyðilagðist.
Herstjórn Sameinuðu þjóðanna
hafði í morgun borizt áreiðanleg-
ar fregnir um að Katangaher
hygði á loftárás á herstöðvar SÞ.
Var því brugðið við skjótt og
orrustuflugvélar sendar á loft.
Virtist sem tekizt hefði að lama
aðgerðir Katangaflughers þegar
í fæðingu. Fregnir berast af því,
að lítið samband sé milli her-
stjórnar Katangahers og ráðherr-
anna, en utanríkisráðherrann
Evarista Kimfoa lýsti í morgun
fullu stríði á hendur herliði Sam-
einuðu þjóðanna. Munongo inn-
anríkisráðherra flutti ávarp í út-
varpið í Elisabethville í morgun
Og hvatti íbúa landsins til upp-
reisnar gegn herliði SÞ. Væri
til þess beitandi öllum ráðum og
vopnum, örvum, hnífum, sverð-
um, spjótum, kylfum og hnot-
um. Sagði Munongo, að Katanga-
her hefði í fullu tré við her-
menn SÞ — og væri nú um að
gera að ganga milli bols og höf-
uðs á þeim.
Óáreiðanlegar fregnir
Fram eftir degi bentu fregnir
til þess, að heriíienn SÞ hefðu
betur í bardögum í Elisabethville,
en þeir voru víða harðir. Hins
vegar frétti belgíska stjórnin síð-
degis í dag, að hermenn SÞ hefðu
yfirgefið herstöð sína og misst
aðra mikilvæga staði á leiðinni til
flugvallarins í Elisabethville, eft
ir margra klst. harða bardaga. Á
flugvellinum hefðu þeir þins veg-
ar hreiðrað vel um sig og verð-
ust þar. Þessar fregnir hafa ekki
fengizt staðfestar frá öðrum
heimildum. Var lítið um fréttir
Framhald á bls. 23.
@---------------------------------
Fiskaklettur dreginn
logandi til Hafnarfjarðar
KL. 24 í nótt kom María iHafnarfjarðarbátinn Fiska-
Júlía siglandi inn um hafnar klett, en nokkur reykur stóð
mynnið í Hafnarfirði og dró UPP honum að aftan. Hafði
_____________________________ kviknað í bátnum um hálf
verið í venjulegum róðri og verið
staddur 5—6 sjómílur út af Kefla
vík, þegar eldur kom upp í véla-
rúmi. Ekki vissi hann um ástæð-
Frh. á bls. 2
Kennedy boöar tollaiækkun
New York, 8. des. — AP.
KENNEDY, Bandaríkjaforseti,
eagði í ræðu í dag, að nauðsyn
bæri til þess að efla samvinnu
milli . Bandaríkjamanna og
Efnahagsbandalags Evrópu, ann-
ars væri hætta á, að hinar
margþættu varnir hins frjálsa
heims veiktust og jafnframt að
greiðslu jöfnuður Bandaríkjanna
við útlönd yrði óhagstæður. —
Kvaðst hann mundu leggja til
við Bandaríkjaþing, að aðflutn-
ingstollar yrðu lækkaðir í
Bandaríkjunum i samræmi við
ráðstafanir Efnahagsbandalags-
ins í þeim efnum.
Ræðu þessa hélt forsetinn á
ráðstefnu iðnrekenda í New
York. Hann kvaðst ekki telja
ástæðu til þess að Bandaríkja-
menn gerðust aðilar að Efna-
hagsbandalaginu, því varðveita
yrði viðskipti þeirra við ríki í
hinum ýmsu heimsálfum.
★
Kennedy lagði á það mikla
áherzlu, að Evrópa væri ekki
lengur háð Bandaríkjunum. —
Hún væri öflug þjóðaheild, sem
>
væri fær um að taka á sínar
herðar hluta af ábyrgðum þeim,
sem fylgdu vörnum hins frjálsa
heims.
1 lok ræðu sinnar sagði
Kennedy: Geti vestræn ríki
komið sér saman um lausn
efnahagslegra vandamála, svo
sem Atlantshafsbandalagið hef-
ur stuðlað að lausn vandamála
á sviði hernaðar, munu áralang-
ar tilraunir kommúnista til
þess að sundra hinum frjáisa
heimi og umlykja hann, reyn-
ast unnar fyrir gýg.
níu leytið út af Keflavík.
Á hafnargarðinum beið
slökkvilið Hafnarfjarðar með
þrjá slökkvibíla og þar stóð
líka eigandi bátsins, Jón Gísla-
son. Skipstjórinn á Fiskakletti,
Ingimundur Jónsson stóð vfð
stýrið og allir skipsmennirnir 5
voru um borð, ómeiddir nema
hvað skipstjóri hafði skorið sig
lítils háttar á hendi, er hann
braut rúðu til að koma að vatns
slöngu.
• Eldur gaus tvívegis upp
i
Fréttamaður blaðsins fór um
borð og tókst snöggvast að ná
tali af skipstjóranum, þó
i slökkvistarf væri í fullum gangi.
I Hann sagði, að báturinn hefði
Gegn Castro
Madrid, 6. des. (NTB-Reuter
KÚBANSKI sendifulltrúinn í
Madrid, Luis de la Cuesta
Leanes, og fyrsti ritari sendi-
ráðsins, Pedro Barreda, hafa
látið af störfum — i mótmæla-
skyni við stefnu Fidels Castr-
os.
Barreda hefir látið svo um
mælt í sambandi við afsögn
þeirra félaga, að orsökin sé
ræða Castros í sl. viku, þar
sem hann lýsti þvi yfir, að
hann hefði verið marx-lenin-
isti allt frá 1953.