Morgunblaðið - 07.12.1961, Side 2
2
MORGUNBLAÐIL
Fimmtudagur 7. des. 1961
Banzai
UM BORÐ í flugvélamóður-
skipinu Akagi hafði Nagumo
aðmíráll látið draga að húni
fána Togo aðmíráls, sem sigr-
aði rússneska flotann við
Tsusohima árið 1905. í birt-
ingu morguninn 7. desember
1941 hófu 90 sprengjuflugvél-
ar, 50 steypiflugvélar og 50
orustuflugvélar sig á loft frá
sex móðurskipum. Um borð í
skipunum gullu „banzai“ hróp
áhafnanna, heróp Japana.
Japanski flotinn var 275
mílum fyrir norðan Oahu
eyju, en á eyjunni var banda-
ríska flotastöðin Pearl Harbor.
Þetta var sunnudagsmorgunn
og í flotahöfninni lá megnið af
Kyrrahafsflota Bandarikj-
anna, eða um 70 herskip.
Klukkan 7,55 sprungu fyrstu
sprengjurnar við höfnina og L
á flugvelli Bandarikjamanna. I
Þetta var fyrir tuttugu ár-l
um. Á þessum sunnudegi íl
desember 1941 varð styrjöld- /
in, sem þá hafði staðið í rúm
2 ár, að raunverulegri heims-
styrjöld.
Meðfylgjandi mynd er tek-
in um borð í japönsku flug-
vélamóðurskipi þennan sunnu-
dagsmorgun þegar fyrstu flug
J vélamar voru að leggja af
l stað í þessa sögulegu ferð.
’arfðtrá'
ALÞINGIS
FUNDIR eru í báðum deildum Al-
þingis kl. 1:30 í dag:
Efri deild: — 1. Bráðabirgðabreyting
og framlenging nokkurra laga, f-rv. —
Ein umr. — 2. Jarðgöng á þjóðvegum,
frv. — 3. umr.
Neðri deild: — 1. Innflutningur á
hvalveiðiskipum, frv. — 1. umr. —
2. Alþjóðasamþykkt um vamir gegn
óhreinkun sjávarsins, frv. — 1. umr.
— 3. Félagslegt öryggi, frv. — 3. umr.
— 4. Sjúkrahúsalög, frv. — 1. umr. —
5. Sveitarstjórnarkosningar, frv. —
2. umr. — 6. Lausaskuldir bænda, frv.
— 2. umr.
Hafa baslað í níu daga
við að ná fé sínu heim
GRÍMSSTÖÐUM, 6. des. — Féð
sem var vestan við Nýjahraun
komst í gaerkvöldi niður í byggð
og þjappaði snjóbíllinn slóð fyr-
ir það, eirns og skýrt var frá í
gær. Er nú að mestu búið að
smala saman fénu austan við
Nýjahraun og var ætlað að reyna
að koma því út að veginum. Síð-
an var ætiunin að senda snjóbíl-
inn til þeirra 1 kvöld, til að að-
stoða þá við að koma því heim.
En nú er snjóbíllinn bilaður.
Þetta er níundr dagurinn, sem
fjármenn eru þarn-a austurfrá að
leita kinda, en stórhríðarveður
hefur verið a. m. k. hluta af
hverjum einasta degi í hálfan
mánuð. Yar þeim færður matur
í snjóbílnum í gær ,og nú fara
menn aftur þeim til 'hjálpar, á
Landsliðin
unnu
í GÆRKVÖLDI fóru fram að
Hálogalandi leikir landsliða og
pressuliða svo og leikur úrvals-
liða í unglingaflokki.
Landsliðin voru sem vænta
mátti sigurstrangleg í þessum
leikjum og báru sigur úr být-
um í báðum viðureignunum við
pressuliðm. 1 kvennaflokki sigr-
aði landsliðið með 14 gegn 8. í
knrlaflokki vann landsliðið með
20—17. 1 unghngaflokki vann A-
liðið með 19—13.
Leikirnir voru yfirleitt vel vel
leiknir einkum þó leikur ung-
lingaliðanna. Kvennalandsliðið
náði algerum tökum á sínum leik.
Landslið karla átti alltaf í erfið-
leikum og var það aðallega
reynsla leikmanna sem færði
þeim sigur — þrátt fyrir betra
spil, hraðara Og margbreytilegra
en hjá landsliðinu.
snjóbílnum, ef hann kemst j lag,
annars gangandi.
Fé gengur nijög langt suður
eftir þarna og því hefur verið
langt að leita. >ar er gott beiti-
land og flatlendi. og hefur fé
verið talið minna hætt þar en
á heiðunum hér heima við. Venju
lega gengur ágætlega að ná fenu
heim. Það kemur fyrir að hríð
skelli á, en nær aldrei eins lengi
í einu og nú. Eru nokkúr ár síð-
an annar eins stórhríðarkafli
kom, er verið var að sækja fé
og voru leitarmenn þá Vz mán-
uð. — Jóhannes.
Metsala í Þý/ka-
landi
TOGARINN Jón forseti seldi í
Bremerhaven í gær 98 lestir
fyrir 96 þúsund mörk, en það er
hæsta meðalverð, sem íslenzkur
togari hefur fengið í Þýzka-
landi. Fékkst um 10 kr. fyrir
kg. —
Þá seldi Surprise frá Hafnar-
firði í Grimsby 93,3 lestir fyrir
7114 sterlingspund.
Vitni vantar
A TÍMABILINU frá hádegi til
kl. 8 e. h. í fyrradag var ekið
á bifreiðina R-6 á bifreiðastæð-
inu fyrir ofan Ægisgarð. Bif-
reiðin, sem er ljós-kremlit
Studebakerbifreið, tveggja dyra,
skemmdist allmikið. Brotnaði
framrúða hennar og vinstri
hurð laskaðist. Telur eigandinn
að vörubíl hafi verið ekið aftur-
ábak á bifreið hans. — Rann-
sóknarlögreglan biður þann,
sem valdur var að þessu óhappi
að gefa sig fram, svo og vitni,
ef einhver væru.
Vopnahlé erlendra
fréftamanna í Katanga
Elizabethville 6. des.
NTB-Reuter.
JAFNHLIÐA því að vopna-
hléð í Katangr. var rofið milli
herliðs Sameinuðu þjóðanna
og herliðs Katangastjórnar
var komið á öðru vopnahléi —
annars eðlis, það er að segja
með öllum fréttamönnum er-
Iendra blaða og fréttastofnana.
Fréttamenn eru, sem kunnugt
er, vanir að starfa einir síns
liðs, keppa hver við annan,
hver reynir að vera fyrstur —
og helzt einn — með fréttirn-
ar.
En þegar bardagamir byrj-
uðu í Katanga í gær, sáu
fréttamennirnir fljótt hversu
alvarlegt ástandið var að
verða — það var of alvarlegt
til þess að þeir gætu nokkru
fengið áorkað einir síns liðs.
Því settust erlendir frétta-
menn á rökstóla, og réðu ráð-
, um sínum og komust að ágætu
samkomulagi um samvinnu.
Fréttaritari Reuters, Virgil
Berger, kom sér fyrir í
sjúkrahúsi í Elisabethville og
símaði þaðan reglulega fregn-
ir af ástandinu til póst- og
símstöðvarinnar, þar sem að-
alstöðvum fréttamanna var
komið fyrir. Aðrir fréttamenn
voru síðan sendir tveir eða
þrír saman í fréttaleit og til
þess að vera sjónarvottar að
meiriháttar atburðum.
Fréttamennirnir k o m u s t
fljótlega að raun um, að hinir
stríðandi aðilar tóku hreint
ekkert tillit til fréttaþjónust-
unnar. Leið ekki á löngu þar
til þeir stóðu í heljarmikilli
skothríð og forðaði sér hver
sem betur gat.
John Starr frá Daily Mail í
London og John Bullock frá
Daily Telegraph reyndu að
komast til flugvallarins en á
þá var skotið frá öllum hlið-
um. I örvæntingarfullri til-
raun til að forðast skothríðina
villtust þeir og komust ekki
til „ritstj órnarskrifstofunnar“
fyrr en seint í nótt. Þar unnu
aftur þeir Peter Flinn frá
BBC, Jean Louis Arnaud frá
AFP, Neil Smith frá UPI, og
John Latz frá AP sleitulaust
að því að koma fregnunum
til fréttastofanna víðsvegar í
heiminum og þar með fyrir
augu milljóna lesenda.
Heimild Færeyinga
til handfæraveiða
samþykkt samhljóða
Á F U N D I sameinaðs þings í
gær var samþykkt samhljóða að
staðfesta samkomulag það, er
gert var milli ríkisstjórnar ís-
lands og ríkisstjórnar Danmerk-
ur 1. ágúst sl. um aðstöðu Fær-
eyinga til handfæraveiða við
ísland.
Gísli Jónsson (S), framsögu-
maður utanríkismálanefndar,
skýrði frá því, að nefndin
hefði verið sammála um að
mæla með því, að tillagan yrði
samþykkt óbreytt. En mejð
henni væri gert ráð fyrir, að
skipum skrásettum í Færeyjum
sé heimilt að stunda hand-
færaveiðar innan fiskveiðilög-
sögu íslands á svæðum þeim og
árstíma, sem íslenzkum skipum
er heimilt að veiða með botn-
vörpu eða flotvörpu. Þá sé
þeim og heimilt að stunda
handfæraveiðar á svæðinu milli
4 og 8 mílna, innan fiskveiðilög-
sögu Islánds, við Kolbeinsey.
Þá geti hvor aðili um sig sagt
upp samkomulagi þessu með 6
mánaða fyrirvara.
Þá var og tekin fyrir þings-
ályktunartillaga um, að Alþingi
staðfesti samninga við Sam-
bandslýðveldið Þýzkaland, sem
eru samhljóða . samkomulagi
því, er náðist við Englendinga
til lausnar landhelgisdeilunni. —
Gísli Jónsson (S), framsögumað
ur meirihluta utanríkisnefndar,
skýrði frá því, að nefndin hefði
klofnað um tillöguna. — Það
hefði þó engum komið á óvart,
er Þjóðverjar leituðu fyrir sér
með svipaða samninga, heldur
gert ráð fyrir því af öllum. Og
þar sem þeir létu sér nægja að
mótmæla útfærslunni, sýndu
enga yfirtroðslu og settu ekki á
löndunarbann, eru engin fram-
bærileg rök fyrir, að neita þeim
um það samkomulag, sem við
Breta var gert.
Syrtir
í álinn fyrir
Furtsévu
Moskvu, 7. des. — AP. <
ÓSTAÐFESTAR fregnir, semf
þó eru taldar áreiðanlegar É
herma að menntamálaráðu- #
¥ neyti Sovétríkjanna, sem Eka- %
1 terina Furtseva hefur veitt forÉ
stöðu, hafi nú verið klofið nið- ¥
ur í smánefndir, sem hver um %
f sig fjalli um smágreinarjj
$ mennta- og menningarmála. <9
Þess er skemmst að minn-f
f ast frá 22. flx»kks[binginu í ^
f Moskvu, að frú Furtseva náðif
f ekki kosningu til framkvæmdaf
stjórnar kommúnistaf lokks f
f Ráðstjórnarrík janna. Eru nú <
uppi raddir um, að hún eigi<
fyrir höndum vaxandi erfið-<
leika á stjórnmálabrautinni. <
Skammt er Síðan hún var talin f
standa Krúsjeff einna næst <
sovézkra stjórnmálaleiðtoga.
í FYRRINÓTT myndaðist smá frostinu, og klukkan 8 um
lægð yfir Grænlandshafinu og morguninn var 4 stiga hiti á
var skammt undan Snæfells- Reykjanesvita.
nesi um hádegið eins og sjá Útiit var fyrir, að lægðin 1
má á kortinu. Hún olli tals- mundi hreyfast austur með 1
verðri snjókomu um vestan- suður-ströndinni í nótt og létta l
vert landið, meðal annars hér þá til með norðan-átt hér suð I
í Reykjavík. Um leið dró úr vestan lands. I
— Fiskaklettur
Frh. af bls. 1
una. Þeir kölluðu á Maríu Júlíu,
sem var komin á vettvang innan
hálftíma. Á meðan var reynt að
vinna á eldinum.
Bræla var, 5 vindstig, en María
Júlía lagðist upp að Fiskakletti
og var ráðist að eldinum með
vatnsslöngum. Héldu skipverjar
að þeim hefði tekizt að ráða nið-
urlögum eldsins ög var ákveðið
að María Júlía drægi Fiskaklett
til Hafnarfjarðar.
í þilinu milli vélarrúms og ká-
etunnar hafði samt leynst eldur
og um hálf ellefu leytið var hann
aftur orðinn magnaður.
Aðspurður um það hvort ekki
hefði verið hætta á að sprenging
yrði, svaraði skipstjórinn fálega:
— O-jú!
Gunnar Ólafsson, skipstjóri á
Maríu Júlíu, sagði að þeir hefðu
af tilviljun verið staddir á þess-
um slóðum. Þeir hefðu verið svo
nærri kl. 20.45, þegar Fiskaklett-
ur kallaði og skaut rakettu, að
þeir sáu SKÍpið. Voru sendir menn
með slöngur yfir í Fiskaklett og
eftir að aldurmn var talinn slökkt
ur, var lagt af stað til Hafnar-
fjarðar og gekk ferðin betur en
Gunnar bjóst við, tók 2y2 klst.
Slökkviliðið í Hafnarfirði réð-
ist þegar gegn eldinum, um leið
og Fiskaklettur lagðist að
bryggju. Gaus upp mikil gufa,
er vatnið kom á heitt skipið. Var
talsverður eidur í káetu og vél-
arrúmi og sögðu slökkviliðsmenn
að sennilega væru miklar
skemmdir orðnar á skipinu, en
slökkvistarfið stóð enn yfir er
blaðið fór í prentun, kl. 2 í nótt.
Var þá orðinn lítill eldur, en ekki
höfðu brunaliðsmenn enn komist
niður í káetuna til að kanna
skemmdir. Fiskaklettur er 102
brt. að stærð, byggður í Svíþjóð
1946.