Morgunblaðið - 07.12.1961, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.12.1961, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 7. des. 1961 MORCVHBLAÐIÐ 5 ><S><í><e>W<S’<S><S>«>«I*®’<e*8*e>«^^ MENN 06 = MALEFNI= NÚ TAKA margar borgir á sig jólabúning, verzlanir keppast um að gera útstillingar sínar sem jólalegastar og hengd eru upp alls kyns ljós og greni- greinar. Stórborgin London er engin undantekning og haia nú ver- ið hengdar upp fagrar Ijósa- skreytingar við helztu verzl- unargötur borgarinnar Regent Street og Oxford Street. x 3 x Maðurinn að baki þessara skreytinga heitir Beverley Pick hann er teiknari og verk fræðingur. Einnig er hann verksmiðjueigandi og eru það verksmiðjur hans í Chesham, sem framleiða jólaskreyting- arnar. Hundruð manna vinna allt árið um kring við teikn- ingar á götuskreytingunum, en Beverley Pick fylgist vel með öllu og lætur gera tilraunir með ný efni, því skreytingarn Jólaskreytingarnar í Regent Street í London. Beverley Pick ar þurfa að þola regn og frost. Einnig þurfa þær að vera létt ar, fallegar á daginn engu síð ur en á kvöldin, þegar kveikt er á þeim. í fyrsta sinn, sem Beverley Pick tók að sér götuskreyting ar var fyrir krýningu Elísa- betar II. og síðan hefur hann annast jólaskreytingar á helztu verzlunargötum Lund úna. Hann er alltaf viðstaddur, þegar verið er að koma upp skreytingunum því hann verð ur að fylgjast með þvá, að hvergi sé veikur punktur í uppsetningunni, sem gæti orð ið til þess að eitbhvað dytti niður og ylli slysum. íbúar Lundúna bíða alltaf eftirvæntingarfullir eftir því að skreytingarnar séu settar upp, og láta þá í ljós skoðanir sínar á því hvort þær sku fallegri í ár en í fyrra, eða öf ugt. Beverley Pick hefur einnig í öðru að snúast, en jólaskreyt ingum, þær eru aðeins auka- vinna. Han aðalstarf eru iðn aðarlegar teikningar. Hann var sæmdur gullheiðursmerki fyrir deild Lundúna á heims sýningunni í Brussel og nú er hann önnum kafinn við að und irbúa þátttöku Bretlands í næstu heimssýningu, sem hald inn verður í Seattle og verða. opnuð í apríl 1962. ' Flugfélag íslands h.f.: Millilandaflug: H. imfaxi er væntanlegur til Rvíkur kl. 16:10 í dag frá Khöfn og Glasgow. Fer í fyrramálið kl. 08:30 til sömu staöa. Innanlandsflug: í dag er áætl að að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða, Kópaskers, Vestmannaeyja og Þórshafnar. Á morgun til Akureyr ar (2 ferðir, Fagurhólsmýrar, Horna- íjarðar, ísafjarðar, Kiikjubæjarklaust- urs og Vestmannaeyja. Loftleiðir h.f.: 7. desember er Þor- finnur karlsefni væntanlegur frá NY kl. 08:00. Fer til Osló, Gautaborgar, Khafnar og Hamborgar kl. 09:30. Pan american flugvéd kom til Kefla vikur frá Glasgow og London og hélt áfram til NY. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.; — Katla er í Leningrad. Askja er á leið frá Grikklandi til Spánar. Skipdeild SÍS: Hvassafell er í Rvík. Arnarféll er í Gautaborg. Jökulfell er væntanlegt til Rostock í dag. Dísar fell lestar á Norðurlaridshöfnum. Litla fell er í olíuflutningum í Faxaflóa. Helgafell fer væntanlega í dag frá Stettin til Reyðarfjarðar. Hamrafell fór I gær frá Hafnarfirði til Batumi. Jöklar h.f.: Langjökull er á leið til Akureyrar. Vatnajökull er i Rvík. Eimskipafélag íslands h.f.: Brúarfoss er í NY. Dettifoss er í Rotterdam. Fjall foss er á leið til Aarhus. Goðafoss er á Jeið til NY. Gullfoss fór frá Khöfn 5. þ.m. til Kristiansand, Leith og Rvíkur. Lagarfoss er í Ventspils. Reykjafoss er á leið til Khafnar. Selfoss er 1 Dublm. Tröllafoss fór frá Norðfirði 6. J2. til Seyðisfjarðar, Siglufjarðar, Fat reksfjarðar og þaðan til Hull. rungu- foss er á leið til Rvíkur. Skipaútgerð ríkisins: Hekla fór frá Bvík i gær austur um land í hring ferð. Esja er væntanleg til Rvíkur í dag að austan frá Akureyri. Herjólf ur fer frá Vestmannaeyjum kl. 21:00 f kvöld til Reykjavíkur. Þyrill er í Bvík. Skjaldbreið er á Breiðafjarðar höfnum. Herðubreið er á Austfjörðum é norðurleið. Hafskip h.f.: Laxá kemur til Aarhus I dag. 1136 — Nei, ég hef ekki verið slást. Þetta er meSfætt. , að Orkt í tilefni kveðskapar um Ö S KJU G O S Merr en lítið metorð fæst af móðu Þingeyginga, þó ber alitaf höfuð hæst Hekla Rangæinga. Upp til Heklu horfa má og henni senda brosin, því nú menn líta niður á Norðlendinga gosin. Linað hefir langan móð hjá ijóða frómum jarli, nú er Askja gi-eyið góð að ganga í lið með Karii. Hallast nú til hliðar flest hjá Húsavíkur jarli, Þingeyinga mæðir mest móðan frá honum Karli. s. s. í skóla einum í Skotlandi I fengu nemendurnir ritgerðarefn ið „Framtíðaróskir mínar“. Sá, sem fékk hæsta einkunn fyrir ritgerð sína, skrifaði m.a.: — Eg vona að ég geti opnað karjmannafataverzlun og verzl- að með góðar vörur, sem gefa mér hagnað, svo mikinn, að ég geti gefið minum kæra kennara verulegan afslátt. Tvær upprennandi leikkonur sátu á tali í búningsherbergi sinu, Önnur segir: — Eg gæti ekki hugsað mér að giftast manni, sem ég elskaði ekki. — Eg er viss um að þú mundir giftast honum, ef hann væri vell auðugur. — Auðvitað, ef hann væri rík ur, yrði ég strax yfir mig ást- fangin af honum. Barnarúm Útdregið barnarúm óskast. Má vera notað. Uppl. í síma 23568 og 12861. ] Tapazt hefur s i 1 f u r armband (steypt) sl. priðjudag. — Upplýsingar í síma 35377. FINNSKAR ( DÝRT SOKKAHLÍFAR - IIMMSKÓR Stærðir: 30—37. Smásaia — Laugavegi 81. Eg kýs heldur að líða órétt en beita aðra rangindum. — Platon. Ekki er unnt að bæta fyrir rang- læti með því að skapa nýtt. — N. Hambro. Við erum sjaldan jafn ranglát við óvini okkar og okkar nánustu. — M. de Vauvenargues. 4 Gengið 4 Kaup Sala 1 Sterlingspund 120.65 120.95 1 Bandarikjadollar - 42,95 43,06 1 Kandadollar 41.18 41.29 100 Danskar krónur .... 622.68 624.28 100 Sænskar krónur .... 830,85 833,00 160 Finnsk mörk 13,39 13,42 100 Franskir frank 874,52 876,76 100 Belgískir frankar 86,28 86,50 100 Svissneskir frank. 994.91 997 46 100 Gyllini 1.194.92 1.197.98 100 Vestur-þýzk mörk 1.072,84 1.075,60 Leikskóli Steinunnar Bjarnadóttur í Hafnarfirði, hefur starf- semi sina á laugardag, þeir sem vildu gerast nemendur hringi í síma 50400. Listmunasýning . í Snorrasal að Laugavegi 18 3. hæð er opin daglega frá kl. 2—10 e.h. Knverskir hringir, armbönd, nælur og aðrir hlutir úr fágætum steinum. Rúmenskur vefnaður, keramik og fleira Listmunirnir eru 11I sölu. MÁL og MENNING. NYKOMIÐ : HOLLENZKIR KVEN KULDASKÓR SKÓSAL AIM Laugavegi 1. Laus staða Tilraunastjórastaðan við tilraunastöðina Skriðu- klaustur í Fljótsdal er laus til umsóknar. Staða« veitist frá 1. júní 1962. Laun samkvæmt VI. flokki launalaga. Umsóknir sendist Tilraunaráði jarðrækt- ar, pósthélí 215, Keykjavík. Umsóknarfrestur er til 15. febiuar 1962. Tilraunaráð jarðræktar. Vörulyftari óskast Óskum eftir að kaupa góðan vöru- lyftara strax. ísbjörninn hf. Sími 11574.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.