Morgunblaðið - 07.12.1961, Side 10

Morgunblaðið - 07.12.1961, Side 10
10 MORCVNVLAÐIB Fimmtudagur 7. de*. 19ðl sem vmni/m ■ Steikt yfir gldö 1>EGAR íjárveitinganefnd Ai- þingis heimsótti Gunnarsholt fyrir skömmu, var borin á 'borð fyrir nefndarmenn holda nautasteik, sem steikt var yfir glóð. Steikin þótti með afbrigð um gómsset og dró athygli xnanna að tæki því, sem notað var við steikinguna. Leikhús- kjallarinn sá um veitingarnar í Gunnarsholti umræddan dag og Þorvaldur Guðmundssóji, forstjóri veitti okkur góð- fúslega allar upplýsingar varð andi glóðartækið: — Eins og þið sjáið, er tækið afar einfalt að gerð (sjá meðfylgjandi mynd), sagði Þorvaldur, svo einfalt, að hver maður sem haldið getur á logsuðutæki, ætti að geta búið það til. Tækið saman- stendur af hringlaga grind, sem stendur á þremur fótum. I grindina er sett trekt úr blikki; neðarlega í trektinni er gatað lok, eins og í gömlu eldavélunum, og nefnd voru trekkgöt eða loftgöt. Viðarkol eru sett í trektina, en hún ekki alveg fyllt. Síðan er kveikt í kolunúm og myndast glóðin á 30—45 mínútum. Þá er þar til gerð rist, sem gerð er úr teinum, lögð ofan á — og eldstæðið er tilbúið til notk unar. Maturinn, sem aðallega er steiktur á þessum glóðartækj- um er buff, Berlínarpylsur og leturhumar í skel. Það tók yfirmatsveininn, Halldór Vil- ’hjálmsson, aðeins 8 mínútur að steikja holdanautasteikina í Gunnarsholti, eftir að glóðin var kviknuð, og ekki er hægt að bera saman, hversu matur, sem steiktur er á þennan hátt, er Ijúffengari en sá, sem steikt ur er á venjulegri heimilis- pönnu. En taka skal með í reikning ' inn, að ekki er hægt að vera með tæki sem þetta inni í eldhúsum. Um leið og steik- Halldór Vilhjálmsson, yfirmatsveinn Leikhússkjallarans, steikir kjöt af holdanauti yfir glóðartæki. ingin hefst, leysist fita úr kjöt inu, sem rennur niður í eld- inni. Við það myndast mikill reykur. Því verður að steikja utandyra, þar sem svo hagar til. Það sem steikt er, er látið jafnóðum á diskana og borið á borð. Oll meðferð á kjötinu, krydd og þess háttar, er sú sama og venjulega tíðkast. Kökur með hnetum í Súkikulaðiterta 1 b saxaðar döðlur, 175 g smjörlíki, 4 egg (aðskilin) 375 g sykur, 220 g hveiti, 2 tsk lyftiduft, Vt tsk negull, V2 tsk allrahanda, 1 b mjólk, 14 b kakó eða 100 g súkkulaði (brætt), 1 b bamba-bökunar- hnetur, 1 tsk vanilludropar. Smjörlíki og sykur hrærist vel, eggjarauðunum bætt í og hrært vel. Kryddi, hveiti, lyfti dufti og kakó er blandað sam- an út i hræruna ásamt mjólk- inni og súkkulaðinu (ef notað er). Hnetunum og döðlunum bætt við, síðan stífþeyttum eggjahvitunum. Látið í tvö tertuform og bakað við meðal hita ca. 50 mjn. Bambaterta 4 egg, 100 g sykur, 100 g hnetur, 100 g súkkulaði. Egg og sykur þeytist vel. Hneturn- ar og súkkulaðið mulið eða hakkað í möndlukvörn; bland að síðan varlega saman við vel þeytt eggin og sykurinn. Látið í tvö tertuform og bakað við meðalhita í ca. 20 mín. Tert- an er skreytt með 14 dós af kokteilávöxtum aða ananas og þeyttum rjóma. Smákökur 2 b haframjöl, 214 b sykur, 2 b hveiti, 375 g smjörlíki, 1 b kúrenur, 1 b Bamba kökuhnet- ur, 2 egg, 1 tsk. natron, 14 tsk. salt. Öllu blandað saman með höndunum í skál. Kúrenur og hnetur settar í síðast. Lagaðar eru litlar kúlur Og raðað gis- ið á plötu. Bakist við mikinn hita. Tvæi nýjai bainabækui Áintanns Ki. Einaissonai ÚT ERÚ komnar tvær nýjar barnabækur eftir Ármann Kr. Einarsson. Eru þetta bækurnar „Óskasteinninn hans Óla“ og „Ævintýri í borginni". Þetta eru 14. og 15. barna- og unglingabók Ármanns. Bækur hans hafa notið mikilla vinsælda og oft verið í flokki metsölubóka. Sögur hans sumar hafa verið þýddar á erlend mál og hlotið góða dóma. Ár- mann er einn örfárra rithöfunda sem rækt leggja við barna- og unglingabækur, og er landsþekkt ur fyrir. „ÆVINTÝRI í BORGINNI“ Nýja bókin „Ævintýri í borg- inni“ er framhald sögunnar „Ævintýri í sveitinni", seín varð gífurlega vinsæl, er hún kom út og var auk þess framhaldssaga í barnatíma útvarpsins Segir þair frá Rósu, sem heimsækir Möggu vinkonu sína í Reykjavík, og lenda þær í mörgum ævintýrum. Halldór Pétursson hefur gert margar myndskreytingar í bók- ina. „ÓSKASTEINNINN HANS ÓLA“ Hin bókin er „Óskasteinnirin hans Óla“. Það er fyrsta bók í nýjum flokki. Það er ævintýri um ungan dreng sem finnur óska stein og óskar sér m.a. poka af gulli, bíl og sælgætisbúð. Segir frá reynslu hans og því að lok- um, að hann' finnur, að bezt er að þurfa að vinna fyrir hlutun- um, en fá þá ekki fyrirhafnar- laust. Falleg og sérkennileg kápa prýðir bókina. Ráðgert er að þessi bók verði gefin út erlendis. Eldur í býli á Akranesi AKRANESI, 4. des. — Kl. 10 árdegis á sunnudaginn kom upp eldur í Borgartúni, sem er grasbýli rétt innan við bæinn. Sagt er að kviknað hafi í út frá rafmagni. Slökkviliðið var kallað út og kom með atóm- hraða á staðinn í tveim bíluum. Voru þeir á aðra klukkustund að slökkva eldinn og tókst að verja íbúðarhúsið skemmdum að mestu. En geymsla áföst hús inu, þvottahús og búr urðu eld- inum að bráð. Býlið er eign Akranesbæjar, en bóndinn heit- ir Halldór Grímsson og hefur þarna svínarækt. — Oddur. Ný bók eftir Jónas Arnason SETBERG hefur nýlega sent á jólamarkaðinn „Tekið í blökk- ina“ eftir Jónas Árnason, en hann hefur lagt sig fram um að skrifa um sjó og sjómennsku. Flestar bækur hans lýsa lífi sjómanna, sem hann hefur kynnzt af eigin raun og við störf á fiskiskipum. Svo er og um þessa bók. Jóngeir D. Eyrbekk er sjóanað- ur. Hann kemur víða við í frá- sögn sinni, segir frá æskustöðv- unum í Skagafirði, en þó fyrst og fremst frá veru sinni á fiski- bátum og togurum, félögum á sjónum og sérkennilegum sam- ferðamönnum. Ferðaskrifstofa í nýium húsakynnum FORRÁÐAMENN ferðaskrifstof- unnar Lönd og Leiðir buðu fréttamönnum á sinn fund í gær, en skrifstofan hefur r.ú opnað að Tjarnargötu 4 ný glæsiieg skrif- stofuhúsakynni. Fyrirtæki þetta hefur nú verið rekið um eins árs skeið og telja stjórnendur þess reksturinn hafa gengið framar öllum vonum. Lönd og Leiðir telja sig nú geta boðið alla þá þjónustu sem hinn almenni ferðamaður kann að óska sér Selur skrifstofan far- seðla með flugvélum, skipum, Hjúkiunaikona ú nætmvakl óskast að heilsuhælinu að Vífilsstöðum sem fyrst til lengri eða skemmri tíma. Vaktin er 4 nætur á viku — deildarhjúkrmiarkvennalaun með næturvinnu- álagi. Frekari upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkon- an. Sími 15611 virka daga frá kl. 10—12 fyrir hádegi. Ævintýrabœkur fyrir lítil börn Ævintýrabækurnar Álfabörnin og Fóstursonur tröll- anna eftir Ingólf Jónsson frá Prestsbakka fást í öllum bókaverzlunum. Bækurnar eru með |;eikni- myndum eftir Þóii Sigurðsson teiknikennara við Laugarnesskólann. Bækurnar eru sérstaklega ætlað- ar fyrir böm á aldrinum 7—10 ára. Bókaútgáfan FEYKISHÓLAR Ausiurstræti 9 — Sími 22712. IMýkomið Mikið úrval af Olíupermanentum fynr allar hártegundir. Pantið jólapermanenti5 tímanlega í síma 33968. Hárgreiðslu- og snyrtistofan P E R M \ Garðsenda 21. Til leigu Einbýlishús til Upplýsingar i leigu frá áramótum. síma 36848. járnbrautum og langfei;ðabifreið- um, sér um leigu á bílum, bátum, flugvélum og jafnvel húsum. Geta menn snúið sér til skrif- stofunnar og. leigt sér fjalla- skála í Noregi eða ef þeir kjósa heldur smáhýsi á Spánarströnd. Húsið getur verið einfalt og fá- brotið eða ef vill með frönskum gluggum og fullkomið að þjón- ustuliði. Skrifstofan skipuleggur hóp- ferðir jafnt innanlands og til út- landa. Næst á dagskránni hjá Ferða- skrifstofunni Lönd og Leiðir er skemmti- og verzlunarferð nú á fimmtudaginn sem áður hefur verið getið í fréttum. Af öðrum innanlandsáformum má nefna hreindýraveiðiferð næsta haust og næsta ferð til útlanda verður skíðaferð til Noregs. Þessi ferð verður farin í febrúarmáriuði og tekur 14 daga. Kostnaður er á- ætlaður rúmlega átta þúsund krónur, allt innifalið. Staðurinn sem dvalizt verður á er í Nore- fjell sem er eitt hið þekktasta skíðahérað veraldar. Forráðamenn ferðaskrifstof- unnar Lönd og Leiðir lögðu að síðustu aðaláherzlu á að fólk al« mennt gerði sér ljósa grein fyrir í hverju starfsemi ferðaskrif- stofa er fólgin. Ferðaskrifstofur eru milliliður án aukaþóknunar. Þannig getur fólk verzlað við ferðaskrifstofu með sömu kjör- um og það fær annars staðar og fær það aldrei þessa þjónustu ódýrari en hjá ferðaskrifstofunni. Hins vegar fá ferðaskrifstofur þóknun sína hjá þeim aðilum, sem t. d. eiga flutningatækin, hótelin eða veitingastaðina, sem þjónustuna veita. Stjómendur ferðaskrifstofunnar Lönd og Leiðir eru Valgeir Gestsson, Gunnar Ólafsson og Ingólfur Blöndal.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.