Morgunblaðið - 07.12.1961, Síða 14

Morgunblaðið - 07.12.1961, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIB Fimmtudagur 7. des. 1961 Ég þakka hjaitanlega öllum þeim, sem heiðruðu mig á sjötugsafmæli mínu 2. des. Hjalti Gunnarsson, Grænuhlíð 5. Hjartanlega þakka ég alla vináttu mér sýnda á sjöt- ugsafmæli mínu 23. nóv. sl. Halldór Jónsson, Akranesi lSTANLEYj Handverkfæri SKEKKINGATANGIR TRÉRASPAR LAMAMÁT STÁLMÁLBÖND 15— Einkaumboðsmenn; SKRUFJARN 6”-8”-10” STJÖRNUSKRtJFJÁRN STUTTHEFLAR LANGHEFLAR BLOKKHEFLAR PtJSSHEFLAR NÓTHEFLAR GRATHEFLAR SVÆHNÍFAR HALLAMÁL mtr. Ludvig Storr & Co. sími 1-3333. IMóðir okkar SARA ÞORSTEINSDÓTTIR kaupkona, lézt að heimili sínu þann 6. þ.m. Hafsteinn Sigurðsson, Reynir Sigurðsson. Faðir okkar GUÐMUNDUR JÓHANNESSON framkvæmdastjóri, Flókagötu 66, andaðist í Landsspítalanum að morgni 6. þessa mánaðar. Börnin. Systir okkar HÓLMFFÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR frá Stóra-Skógi andaðist miðvikudagiim 6 þ.m. á Landakotsspítala. Systkinin Faðir okkar EINAR RUNÓLFSSON hússmíðameistari, sem andaðist 1 des. verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 8. des. kl. 10,30. Athöfninni verður útvarpað. F. h. vandamanna. Katrín Einarsdóttir, Guðlaug Einarsdóttir. Jarðarför KRISTJÁNS JÓNASAR GUÐBJARTSSONAR sem andaðist að Sólvangi í Hafnarfirði 2. desember, fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 8. desember kl. 1,30. Aðstandendur. Jarðarför föður og tengdaföður okkar FILIPPUSAR JÓHANNSSONAR verður gerð frá Dómkirkjunni Rvík föstudaginn 8. des. kl. 1,30 e.h. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Ingveldur Filippusdóttir, Sigurður Einarsson. Hjartanlega þökkum við öllum sem auðsýndu okkur samúð og kagrleika við andlát og jarðarför mannsins míns og föður, BENEDIKTS SÆMUNDS HELGASONAR Sigríður Jóhannsdóttir Ragnheiður Þórunn Benediktsdóttir Deildarlœknisstaða í Kleppsspítalanum er staða deildarlæknis laus til umsóknar frá 5. jan. 1962 að telja. Laun greiðast samkvæmt launalögum. Umsóknir með upplýsingum um aldur, nám og fyrri störf sendist ti’ skrifstofu ríkisspítalanna, Klapparstíg 29, Reykjavík, fyrir 1. jan. 1962. Reykjavík, 5. des. 1961. Skrifstofa ríkisspítalanna. Ryrjum í dag jólatréssölu grenisölu, kransa og krossa, skálar, körfur mikið úr- val af allskonar jóiaskrauti á góðu verði. Fyrir þá, sem vilja skreyta sjálfir alls konar skraut í körfur og skálar. Gott verð, góð þjónusta. Bláma og Grænmetismarkurinn Laugavegi 63. og Blómaskálinn við Nýbýlaveg. Athugið að Blómaskálinn við Nýbýlaveg er opinn alla daga fra kl. 10—10. T ilkynning til kaupmanna Að gefnu tilefni skal athygli kaupmanna vakin á ákvæð- um 152. gr. Brunamálasamþykktar fyrir Reykjavík um sölu á skoteldum svohljóðandi: 152. gr. „Sala skotelda er bundin leyfi slökkviliðsstjóra, er ákveður, hve miklar birgðir megi vera á hverjum stað og hvernig þeim skuli komið fyrir“. Reykjavík, 6. desember 1961 Slökkviliðsstjóri. i Hvað viltu verða? Leikspilið í sérflokki að fjölbreytni og skemmtan, til yndis og ánægju börnum i sem fullorðnum kemur í verzlanir um helgina. Heildsölubirgðir: Péur Einarsson h.f. ÁSAÞÓR Sími 11795 — 11945. Laufásvegi 4 Aðalstræti 9 C sími 13492. Úr ýmsum áttum Framh. af bls. 12. völdum mislingaveiranna, og er talið, að a.m.k. 800 þeirra bíði bana af (þar af sést, hve ákaflega ófullkomnar hinar opinberu tölur eru — 552 dauðsföll, sbr. að fram- an). Um 2.000 munu lifa af, með mismunandi miklar heilaskemmdir — en hinir vinna alveg bug á sjúkdóm- inum og ná fullri heilsu. * Ætlaði að verða enskukennari Prófessor John F. End- ers, sem hefir framleitt og reynt allýtarlega bóluefni við mislingum, er nú 63 ára að aldri. Hann varð fyrst heimsfrægur fyrir rannsókn- ir sínar á mænuveikiveirum — en honum og tveim öðr- um vísindamönnum, dr. Frederick Robbins og dr. Thomas Weller, sem með honum unnu, tókst fyrstum allra að einangra og rækta mænuveikiveirur, og á nið- urstöðum þeirra byggðist starf dr. Jonas Salks og ann- arra, sem fundið hafa upp bóluefni við lömunarveiki. Enders og félagar hans hlutu Nóbelsverðlaunin árið 1954 fyrir rannsóknir sínar á þessu sviði. Það er eiginlega af tilvilj- un, að próf. Enders sneri sér að sýklafræðinni. Hann er sonur auðugs bankaeiganda, sem lét eftir sig miklar eign- ir og fé, sem hinn ungi End- erg naut góðs af, en hann var byrjaður á háskólanámi, þegar faðir hans lézt. Lagði hann einkum stund á ensku og hugðist gerast háskóla- kennari í þeirri tungu. Árið 1919 tók hann BA próf frá Yale-háskóla og þrem árum síðar MA próf frá Harvard. Var hann langt kominn með doktorsritgerð sína, þegar kunningi hans kynnti hann eitt sinn fyrir hinum mikla sýklafræðingi í Harvard, Hans Zinsser. Urðu þau kynni til þess, að Enders hætti við að gerast ensku- kennari, en sneri sér að sýsklafræðinni. Hann sökkti sér niður í námið og tók það geyst, svo að hann hafði lok- ið doktorsprófi árið 1930 — og hóf þá kennslu og rann- sóknarstörf í grein sinni við Harvard. ir Merkilegur árangur Enders hóf mislingarann- sóknir sinar árið 1953. Tókst honum að einangra veirurnar og rækta þær, á svipaðan hátt og hann hafði fyrr gert með mænuveikiveirurnar. — Eftir nokkurra ára rannsókn- ir hófu þeir Enders og dr. Samuel L. Katz bólusetning- artilraunir á öpum — með góðum árangri. Eftir enn frekari rannsóknarstörf hóf svo dr. Katz bólusetningartil raunir á börnum — en þar sem próf. Enders hefir ekki læknismenntun má hann ekki bólusetja fólk sjálfur . Tilraunir þessar hafa gef- ið góða raun. Nokkur hundr- uð barna hafa verið bólusett — og myndað nauðsynlegt varnarefni gegn „náttúrleg- um“ mislingum. Flest hafa reyndar veikzt smávegis af bólusetningunni, en vísindat mennirnir telja þáð í raun- inni fremur kost en ókost, þar sem þá fari ekki milli mála," að bóluefnið verki. —. Ef víðtækari bólusetningar- tilraunir, sem fram munu fara á næstu mánuðum, gefa svipaðan árangur, má gera ráð fyrir, að bóluefni við mislingum fái nauðsynlegá viðurkénningu heilbrigðisyfir valda — og framleiðsluleyfi — innan tveggja ára.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.