Morgunblaðið - 07.12.1961, Qupperneq 15
Fimmtudagur 7. des. 1961
MORÖÚNBLAÐIÐ
15
KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR »
3
hiqnaimmiam skrifar um kvikmyndir * kvikmyndir
Laugarásbíó:
DAGBÓK
ÖNNU FRANK
ÞETTA er frásögn af einum af
mörgum átakanlegum atburðum,
er gerðust í heimsstyrjöldinni
síðari, byggð á dagbók hollenzku
gyðingatelpunnar Önnu Frank,
sem ásamt foreldrum sínum og
systur og fleira fólki af Gyðinga-
ættum 'hefst við uppi á háalofti
í húsi einu í Amsterdam til þess
að forðast fanga'búðir nazista og
grimmdaræði þeirra gegn Gyð-
ingum, sem er einn allra óhugn-
anlegasti þáttur í sogu nazismans
og reyndar mannkynsins alls, er
seint mun gleymast. Óþarft er
!hér að rekja efni myndarinnar,
því að öllum hér mun í fersku
minni leikritið um sama efni,
sem sýnt var hér í þjóðleikhús-
inu fyrir nokkrum árum við
mikla aðsókn, enda var það
áhrifamikið verk og frábærlega
vel leikið. — Kvikmyndin, sem
gerð er eftir handriti Franees
Goodriöh og Al'berts Hacketts,
fþræðir mjög efni leiksins, lýsir
ó áhrifamikinn hátt hinum sí-
fellda nagandi ótta flóttafólksins,
hinum ólíkustu manngerðum,
sem búa þarna í þröngu nábýli.
Millie Perkins, ung amerísk
stúlka, sem aldrei hefur leikið
áður, fer með hið vandasama
hlutverk Önnu Frank. Hún fékk
yfirleitt ekki góða dóma gagn-
rýnenda, en þó finnst mér margt
í leik hennar mjög athyglisvert
og sumt ágætlega gert. Föður
Önnu leikur hinn mikilhæfi aust-
urrísk- ameríski leikari Joseph
Schildkraut og fer snilldarlega
með það hlutverk. Móður Önnu
leikur Gusti Hulser og fer hún
einnig mjög vel með hlutverk
sitt. Aðrir leikendur fara og
prýðilega með hlutverk sín, þó
að þeir séu ekki nefndir hér sér-
staklega.
Mynd þessi er mjög áhrifamikil
og vel gerð, en hún er þyngri en
leikritið og verð ég að játa að
leikritið hreif mig meira. Enhver
tæknileg mistök voru á talinu
um tíma og veit ég ekki við
hvern um það er að sakast.
Stjörnubíó:
ÞRJÚ TÍU
ÞESSI ameriska bófamynd gerist
nokkru fyrir s. 1. aldamót í
Arizonafylkis í Bandaríkjunum.
Efnið er svipað og í svo mörgum
myndum af þessu tagi: Bófar ráð
ast á póstvagn og ræna þeim verð
mætum, sem hann flytur. t>eir
drepa ekilinn og rsena hestum
bónda, sem ber þarna að. Við svo
búið halda bófarnir á brott og
hefst nú hinn venjulegi eltinga-
leikur með tilheyrandi skothríð-
um og manndrápum. .... Skal
atburðarásin ekki rakin hér frek
ar. Þess skal aðeins getið að
spenna myndarinnar er allmikil
og þeir Glenn Ford og Van
Heflin, er fara með aðalhlutverk-
in, gera þeim hin prýðilegustu
skil.
J. C. Klein formað-
ur Dansta félags-
ins
DANSKA félagið í Reykjavík
(„Det Danske Selskab i Reykja-
vík“) hélt nýlega aðalfund.
Fráfarandi formaður, .O.
Kornerup-Hansen, flutti árs-
skýrslu, en baðst eindregið und-
an endurkjöri.
Voru honum færðar þakkir
fyrir margra ára vel unnin
störf.
Formaður var kosinn J. G.
Klein, kaupmaður. Aðrir í stjórn
félagsins eru: Victor Strange,
Sören Bögeskov, frú Rigmor
Koch Magnússon og K. Bruun.
Skemmtun (Andespil og dans)
heldur félagið í Tjarnarcafé þ.
18. desember.
Kristófer Egp;erts-
son, skipstjóri
F. 29/11 1892. D. 16/11 1961.
ENDALOK lífsins á þessari jörð
eru óumflýjanleg. Strax og mað-
urinn kemst á vitsmunaskeiðið,
skilur hann þennan veruleika, en
meðan lífsþróttur og fjör er fyrir
hendi, þagna þessi rök. Kristófer
Eggertsson var sérstæður maður.
Við áttum oft tal um ýmsa hluti í
þessum heimi og öðrum, er full-
vissaði mig um að hann var ætíð
viðbúinn að horfa upp á endalok
þ«ssarar tilveru.
Þó held ég að hvorki hann né
aðrir hans kunningjar, hafi lagt
hug að því að hann mundi hverfa
okkur sýn svo fljótlega. Sem bet-
ur fer var dauðastríð hans ekki
langt, enda ekki honum að skapi,
eins þróttmikill og hann var allt
til banalegu. Hér verða ekki rak-
in æviágrip Kristófers, þótt ekki
verði komizt hjá þv£ að þakka
honum ráðsnilld hans og fyrir-
hyggju í margvíslegum málum
varðandi félagsskap yfirmanna á
fiskiflotanum. Hann var einn af
stofnendum skipstjórafélagsins
Hafþórs á Akranesi, og síðan
framámaður í ýmsum félögum
yfirmanna og nú síðast kjörinn
fulltrúi Skipstjóra og stýrimanna
félagsins Aldan á nýafstöðnu 20.
þingi F.F.S.Í. Kristófer var dreng
skapar og hugkvæmismaður, sem
gott var að umgangast. Var
glaður í vinahóp, en ætíð happa-
drjúgur til ráðdeildar.
Við félagar þínir minnumst
þín ætíð sem vinar.
G. H. O.
I. O. G. T.
St. Frón nr. 227.
Fundur fellur niður í kvöld,
en afmælisfagnaffur stúkunnar
hefst í Templarahöllinni kl. &Vt
síðdegis.
Skemmtiatriffi:
1. Ávarp: Þorsteinn J. ’ Sigurðs-
son, kaupmaður.
2. Ræða: Séra Árelíus Nielsson.
3. Kaffisamsæti.
4. Dans.
Félagar mega bjóða með sér
gestum. Fjölmennið, bræður og
systur.
Æt.
HANNES HAFSTEIN
sfisaga
eflir Hristján Albertsson
-*■
I ilefni af .100 dra afmæli Hannesar Hafst
gefur AB út þessa stórmerku bók
Þetta er fyrra bindi ævkögu. Hannesar. Bókin fjallar um
bernsku hans og skólaár skáldskap hans embættisár í Reykja
vík og ísafirði og stjórnmáiaferil hans fram til 1904 er hann
varð ráðherra. Gerð er rækileg grein fyrir sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar frá láti Jóns S'gurðssonar til heimastjórnar, en sá
þáttur sögunnar heíur aldrei verið rækilega kannaður í heild
hingað til. Kemur hér fram ótalmargt nýtt, sem breyta mun
skoðunum manna á ýmsum atriðum. Bókin er prýdd mörgum
myndum, m. a. litprentun af málverki eftir Hannes Hafstein.
Bókin. kostar 245 00 auk söluskatts. Félagsmenn AB fá%
afslátt. — Afgreiðsla AB-bóka til félagsmanna AB er j
Austurstræti 18.
Ég undirritaður óska að gerast félagi í Almenna
bókafélaginu. Ég greiði engin árgjöld til félagsins, fæ
Félagsbréfin ókeypis og bækur félagsins eftir eigin
vali 20% ódýrari en utanfélagsmenn. Ég lofa að kaupa
minnst fjórar AB-bækur á ári meðan ég er í félaginu.
Nafn ......................................
Heimili ...................................
Kaupstaður ..............................
Hreppur ...................................
Sýsla .....................................
ALMENNA BÖKAFÉLAGIÐ
Tjarnargötu 16 — Reykjavík.
ALMENNA BÖKAFÉLAGIÐ