Morgunblaðið - 05.01.1962, Page 2
2
MORGVTSHLAÐIÐ
Föstudagur 5. jan. 1962
Þið eruð bræð-
ur Kongóbúa
segir Tshombe við þingmenn Katanga
Elisábethville, ý. jan. AP-NTB
ÞINGIÐ í Katanga kom sam
an til fundar í dag til að
ræða staðfestingu á samningi
sem þeir Tshombe forseti og
Adoula forsætisráðherra
Kongo gerðu í des. sl. um
sameiningu Katanga og
Kongo. Þingfundi var frest-
að í gær þar sem aðeins 19
af 70 þingmönnum mættu til
þings. Fundurinn í dag var
betur sóttur. Mættu nú 35
Fyrsti
fundur
borgar
. stjórnar
í GÆR var haldinn fyrsti
fundur borgarstjómar Reykja
víkur en með nýjum sveitar-
stjórnarlögum, sem samþykkt
voru á síðasta þingi og gengu
í gildi 1. janúar 1962 var svo
ákveðið, að stjómir sveitar-
félaga, sem hefðu fleiri en 50
þúsund íbúa. skyldu sveitar-
stjórair nefnast borgarstjórn-
ir.
1 saimraemi við þetta munu
,,bæjarstjómarkosningar“ á
vori komanda verða „borgar-
stjóraarkosningar“ í Reykja-
v&. ,,bæjarfulltrúar“ eftir-
leiðis nefnast borgarfulltrúar,
„bæjarráð" nefnast borgarráð,
,.bæjarsjóður“ borgarsjóður o.
s. frv. Var tekið tillit til þess-
aj-a breytinga, þegar fjárhags-
áætlun Reykjavíkurborgar fyr
ir árið 1962 var til umræðu og
samþykktar í borgarstjóm
fyrir áramótin.
þingmenn og fundurinn þar
með lögmætur.
Tshombe flutti framsöguræðu.
Sagði hann að tveir af átta lið-
um samnings þeirra Adoula fælu
í sér ágreiningsatriði. í öðrum
þeirra er sagt að stjórnarskrá
Kongó eigi að gilda í Katanga og
í hinum að Sameinuðu þjóðirnar
skuli hafa frjájsar hendur í
Katanga. Tshombe sagðist ávalt
hafa talið stjórnarskrá Kongó
gallaða og kvaðst fela þinginu að
ákveða hve iangt skyldi ganga
til samkomuiags um þessa liði.
Tshombe taldi að afskipti SÞ að
málum Katangá hefðu sízt orðið
til þess að auka samningsmögu-
ieika. Þetta er lýðræðisland, sagði
hann, og við verðum að fá að láta
skoðanir okkar í ljós án gadda-
vírsgirðinga og án erlendra af-
skipta.
Þegar þið takið ákvörðun ykk-
ar, sagði Tshombe við þingmenn-
ina, þá munið að þið eruð frá
Katanga, en einnig að Kongóbúar
eru bræður ykkar og þið verðið
að vinna að uppbyggingu sam-
einaðrar öflugrar og auðugrar
Afríku.
Að lckinni framsögunni gekk
Tshombe af fundi ásamt erlend-
um fulltrúum og blaðamönnum
o.g þingmenn hófu umræður um
málið fyrir luktum dyrum.
INIýir varð-
stfórar
UM ÁRAMÓTIN voru skip-
aðir tveir nýir varðstjórar við
rannsóknarlögregluna í Rvík.
Eru það Kristmundur SLgurðs-
son, sem lengi hefur starfað
við umferðadeild rannsóknar-
lögreglunnar og Jón E. Hall-
dórsson, sem einnig hefur starf
að við rannsóknarlögregluna
um árabil.
| NA /5 hnóior IV* Slt50 hnútar H Snjökoma »OSi mm V Skúrir fC Þrumur was, ZfS KutíaM ^ Hihthit H HmS L*Lm'i
í GÆR kl. 11 var kröpp lægð
á Grænlandshafi. Var hún að
grynnast og á hreyfingu norð-
austur. SV-átt um land allt
og hiti 2—7 stig, hlýjast á
Dalatanga.
Skörp samskil voru skammt
út af Norðurlandi og Vestfjörð
um. Fyrir norðan þau var norð
austan rok með snjókomu. —
Suðvestanáttin var mjög bylj-
ótt á Suðvesturlandi og komst
í 9 vindstig í hryðjunum á
flugvöllunum í Reykjavík og
við Keflavík.
Veðurspáin kl. 10 i gærkvöldi:
SV-land, Faxaflói og miðin:
Allhvass SV með hvössum
éljum fyrst, vestan og síðar
NV stinningskaldi og smáél á
morgun.
Breiðafjörður og miðin:
Hægviðri fyrst en ailhvass
norðan í nótt. snjókoma með '
köflum.
Vestfirðir og miðin: Hvass
NA, stormur á miðunum,
snjókoma.
Norðurland og miðin: Hæg- 1
viðri og bjart fyrst en hvöss
NA átt með snjókomu í nótt.
NA-land og miðin. Breyti-
leg átt og bjart fyrst en senni-
lega NA stinningskaldi og
snjókoma með köflum þegar
líður á nóttina.
Austfirðir og miðin. SV og
síðan NV kaldi, léttskýjað.
SA-land og miðin: SV stinn
ingskaldi og él vestan til í
nótt vestan og NV kaldi og
bjart á morgun.
Mat á tækjum Faxa
Frá fundi borgarstjórnar í gær
GEIR HALLGRÍMSSON
borgarstjóri skýrði frá því á
fundi borgarstjórnar Reykja-
víkur í gær, að stjórn Faxa
s.f. hefði nú skipað menn til
þess að kanna hag félagsins,
m.a. til að meta öll tæki í
eigu þess, með það fyrir aug-
um að leita tilboða í þau hér-
lendis og erlendis. En eins og
áður hefur verið skýrt frá,
tilkynnti horgarstjóri á fundi
borgarstjórnar á sl. vori, að
hann hefði ritað bréf til
stjórnar Faxa sf., sem er sam-
eignarfélag Reykjavíkurborg-
ar og Kveldúlfs hf., þar sem
þess var óskað, að stjórnin
gerði tillögu um slit félagsins.
Mál þetta var á dagskrá fund-
ar borgarstjórnar í gær sam-
kvæmt tilmælum Þórðar Björns-
sonar, borgarfulltrúa Framsókn-
arflokksins, sem rakti í langri
ræðu sögu sameignarfélagsins
Faxa, og þá aðallega með tilliti
til afrfcipta sinna af málefnum
þess síðan hann fyrst tók sæti í
borgarstjórn. Þakikaði hann Geir
Haligrímssyni borgarstjóra sér-
staklega fyrir, að „hann skyldi
hafa dug í sér til að taka þessa
þróttmiklu ákvörðun“ (þ.e. um
slit félagsins) eins og hann komst
að orði, en gagnrýndi hins vegar
nokkuð formllega meðferð borg-
arstjóra og borgarráðs á málinu,
en þeirri gagnrýni mótmælti borg
arstjóri, eins og fram kemur hér
á eftir í frásögn af ræðu borgar-
stjóra. Síðan gat Þ.B. þess, að
eftir að núverandi borgarstjóri
hefði tekið við störfum hefði
hann falið aðalendurskoðanda
borgarinnar að athuga reikninga
Faxa sf. og tilkynna sér niður-
stöður. Á grundvelli þeirrar at-
hugunar hefði borgarstjóri síð-
an bersýnilega tekið ákvörðun
um slit félagsins, þvi að nokkr-
um mánuðum eftir að honum
barst skýrsla aðalendurskoðanda
hefði hann ritað stjórn Faxa sf.
bréf og óskað þess, að stjórnin
gerði tillögu um slitin, ,,þar sem
nauðsyn er á“, að slíta félaginu.
f skjölum borgarinnar væri svo
að sjá, sagði Þ.B. sem þetta bréf
og fleiri, sem send voru það
varðandi, hafi verið lögð fram
í borgarráði og samþykkt þar að
senda þau. Þetta kæmi þó alls
ekki fram í fundargerð borgar-
ráðs frá þeim fundi. Hvað veld-
ur þessu? spurði Þ.B.
„Ég er fullkomlega samþykk-
ur því, sem borgarstjóri hefur
gert í þessu máli,“ sagði ÞB. en
kvaðst þó telja, að formlega
hefði verið réttara, að málið hefði
verið borið unidir borgarstjóm
áður en fyrrnefnd bréf voru send
í stað þess að skýra borgarstjórn
frá fyrirhuguðum slitum nokkru
síðar, eins og gert hefði verið.
Að lokum beindi Þ.B. þeiiri
fyrirspurn til borgarstjóra, hvað
slitum sf. Faxa liði.
GEIR HALLGRÍMSSON borg-
arstjóri mótmælti því, að nokkuð
væri einkennilegt við meðferð
sína og borgarráðs á málinu og
þar væri engu leynt. Þó að bréf,
sem lögð voru fram varðandi
málið á borgarráðsfundi, hefðu
ekki verið bókuð, gæfi það alls
ekki tilefni til gagnrýni, enda
væri það alls ekkert einsdæmi,
að bréf, sem þar eru lögð fram,
séu ekki bókuð í fundargerð.
Fyrirspurn Þ.B. um það, hvað
slitum sf. Faxa liði, svaraði borg-
arstjóri á þá lund, að stjórn Faxa
hefði nú sett menn í að fram-
kvæma heildarkönnun á hag fé-
lagsins, m.a. með það fyrir aug-
um að leita tilboða í tæki félags-
ins, innanlands og utan. Þegar
greinargerðir þessara manna
lægju fyrir kæmi loks til kasta
sameigendanna að taka ákvörðun
um félagsslitin.
Sfómanna-
félag
Reykfa-
víkur
í DAG er kosið í Sjómanna-
félagi Reykjavíkur frá kl. 10
til 12 fyrir hádegi og kl. 3.
til 10. eftir hádegi. Kosningin
fer fram í skrifstofu félags-
ins í Alþýöuliúsinu við Hverf-
isgötu.
Lýðræðissinnar! Fjölmenn-
um á kjörstað og greiðum A-
listanum atkvæði okkar!
ÁRAMÓTIN í Keflavík fóru
vel og virðulega fram. Veður
var gott og unglingar höfðu
margar brennur utan við bæ-
inn og á opnum svæðum inn-
an bæjar. Dansleikir og aðrar
skemmtanir voru á öllum sam
komustöðum og allt með kyrrð
og spelkkt, og engin ölfun
áberandi. Fjölskyldur og vinir
fcrðuðust milli iiúsa að forn-
um sið og stækkuðu hópar eft
ir því sem á nýársuótt leið.
Fiskiflotinn var allur í höfn
og var Ijósadýrð þar mest, eins
og sjá má af meðfylgjandi
mynd, sem Heimir Stígsson
tók. — HSJ.
Hver er
maðurinn
LAUSN ir.yndagetraunar í ára«
mótablaði:
1. Fabíola Belgiudrottning.
2. Erich Mende, leiðtogi frjálsra
demokrata í V-Þýzkalandi.
3. Wilma Rudolph íþróttakona.
4. Habib Bourgiba Túnisforseti.
5. Adolf Heusinger hershöfð-
ingi, form. fastanefndar Atl-
antshafsbandalagsins í Was-
hington.
6. Enver Hoxa einræðisherra i
Albaníu.
7. Sukselainen forsætisráðherra
Finnlands.
8. Mamoun Kuzbari forsætisráð
herra Sýrlands.
9. Wisjinski kardínáli i Pól-
landi.
10. Mobutu hershöfðingi í Kongó,
11. U Thant framkvæmdastjóri
SÞ.
12. Savang Vatthana konungur i
Laos.
13. Salazar einræðisherra í Portú
gal.
14. Sir Roy Welensky forsætis-
ráðherra Rhodesíu.
15. Werner von Braun eldflauga
sérfræðingur Bandaríkjanna.
16. Jomo Kenyatta Ieiðtogi Mau.
mau í Kenya.
17. Kwame Nkrumah forsetl
Ghana.
18. Rafael Trujillo fyrrum her.
málaráðherra Dominikanska
lýðveldisins.
19. Amintore Fanfani forsætis-
ráðherra Ítalíu.
20. Galvao byltingamaður og sjó
ræningi frá Portúgal.
21. Diefenbaker forsætisráðherra
Kanada.
22. Titov geimfari frá Sovétríkj-
unuffl.
23. Cyrille Adoula forsætisráð-
herra Kongó.
24. Mongi Slim forseti AllshcrJ-
arþings SÞ.