Morgunblaðið - 05.01.1962, Síða 10

Morgunblaðið - 05.01.1962, Síða 10
10 MOKKTlNTtT AfílÐ FBstudagur S. Jan. ÍSSS Víðir II við bryggju í Sandgerði ' Aí-* 'w ^ ' ' Myndina tók ljósm. Mbl. Mag. i fyrradag. Víðir II setur Islands- met í fiskafla Aflaði 4-5 fa’t verðmæti bátsins árið 1961 VÍÐIR II úr Garði er bú- inn að fá 21 þús. tunnur af síld á haustvertíð og síldarafli bátsins á sl. ári varð því 81 þús. tunnur og mál síldar, auk þess sem 450 lestir veiddust af öðr- um fiski. Heildarafli Víðis II á árinu er því orðinn rúmar 9000 lestir. Þessi frétt barst blaðinu frá fréttaritara blaðsins í Sand gerði eftir áramótin. Víð- ir II mun því á sl. ári hafa aflað meiri fisks en nokk- urt annað íslenzkt skip á einu ári. Þegar við svo fréttum að Víðir II hefði legið inni yfir áramót in og veður ekki svo hagstætt í fyrrad. að hann kæmist út, þá gripum við tækifærið til að aka suðureftir og mynda þessa merku fleytu og freista þess að hitta aflaklóna, Eggert Gíslason, skipstjóra. Það var mikið brim úti fyrir Sand- gerði þennan dag, brimið er næstum búið að mala Geir goða, sem strandaði um dag- inn, og inni í höfninni var talsvert sog. Svo ókyrrt var, að Víðir var með akkeri úti, þar sem hann lá við bryggju í Sandgerði og togaði í festar. Stýrimaðurinn, Víðir Sveins- son, var að huga að bátnum. — Báturinn er svo skellóttnr eftir haustvertíðina, að ekkert gaman er að mynda hann núna, sagði hann. Okkur fund- ust skellur bara virðulegar á slíku skipi og spurðum í stað- inn hvört stýrimaður héti í höfuðið á bátnum eða bátur- inn í höfuðið á honum, og fengum það svar að hann hefði ekki verið á Víði II nema eitt ár og ekkert sam- band væri milli nafnanna. Skömmu síðar kom Eggert Gíslason akandi í Volksvagni úr Garðinum, þar sem hann býr. Þeir eru sýnilega með hugann við bátinn sinn skips- menn á Víði, jafnvel þó þeir séu í sjaldfengnu fríi. Við gátum ekki slitið okkur frá þessum merkilegu tölum, sem fréttaritarinn hafði sent okkur, og báðum Eggert um að hjálpa okkur um fleiri. Það kom í ljós, að útflutnings- verðmæti ársaflans á Víði II mun vera 25—30 millj. kr. eða 4—5 falt verðmæti bátsins, sem keyptur var til landsins fyrir hálfu öðru ári. Ekki kemur slikur afli fyr- irhafnarlaust upp í hendurnar á sjómönnunum. Til að afla þessara verðmæta hefur Eggert og skipshöfn hans kast að nót 600 sinnum eða nærri tvisvar á dag og aflað 25 lesta af fiski alla 365 daga ársins. Okkur langaði mest tál að vita hvernig Eggert færi að þessu, hvort hann reiknaði út hvar síldin væri eða hvort hann hefði það á tilfinning- unni. En hann gaf lítið út á slíkar spurningar, sagði bara: — Við höfum haldið okkur að þessu, verið heppnir með að vera á réttu róli og lánsamir með nótina, höfum ekki þurft netamann í nótina á þessu hausti fyrr en nú, að við erum að feila hana upp. Þetta leiðir til spjalls um nætur þær, sem Eggert hefur haft á síldveiðunum við Suð- vesturland. Hann byrjaði veið ar með hringnót 1958, þá sá eini. Áður var að vísu búið að gera tilraun með ’þetta, en það hafði ekki gengið. Fyrsta haustið var hann með 60 faðma djúpa nót, en segir að þeir hafi ekki ráðið við hana, svo 'hún vildi rifna. Haustið eftir hafði hann 35 faðma nót og 1960 40 faðma djúpa. Nú er hann með 52 faðma djúpa nóta, nælon nót, um annað er ekki að tala. Flestir síldarbátamir munu nota þetta 52—60 faðma djúpar nætur. Síldarnæturnar eru semsagt alltaf að dýpka. — Það liggur við að maður haldi að síldin hafi skilningavit, sem hjálpar henni til að forða sér alltaf lengra undan okk- ur, segir hann. Á Víði II er sjálfleitari og dýptarmælir. Eggert kiveðst fyrst hafa fengið þau taeki með þessu skipi fyrir lVz ári. -— Ef menn kunna með tækin að fara og hafa þau í lagi, eru allt aðrar aðstæður að hafa þau, segir hann. Annars vil ég bæta þvi við, að við sjómenn erum mjög þakklátir þeim sem starfa að síldarleit. Leit- arskipin þyrftu bara að vera fleiri, a.m.k. þrjú. Sumarsíld- veiðarnar eru á svo stóru svæði, allt frá Strandagrunni og suður með öllum Austfjörð um. Og á haustin veitti ekkert af tveimur leitarskipum. Það er jú allt þjóðarbúið, sem hef- ur tekjur af fiskinum. Al- mennt hafa sKÍpstjórar mikla trú á Jakobi Jakobssyni fiski- fræðingi til að stjórna síldar- leitinni. Hann hefur sýnt það á undanförnum árum, að hann 'hefur til þess mikla hæfileika og lifandi áhuga. Hann er í senn góður fiskimaður og menntaður fiskifræðingur. — Ætlarðu að halda áfram á síldveiðum, Eggert? Borgar það sig betur en að skipta um, þó síldin sé svona smá og fari mikið í bræðslu? — Það er ekki komin nein þorskveiði sem talandi er um og ekki ástæða til að breyta til. Annars vil ég ekki sam- þykkja að síldin sé eins smá og af er látið. Hún er mjög blönduð. smá annan daginn og gtór hinn daginn. Af okkar haustafla hefur um helmingur farið í frystingu, salt og flök- un hér í Sandgerði, hitt í bræðslu, mest í bræðsluna í Njarðvíkum. Annars er allt að verða fullt hjá bræðslunum — Hefur haustsíldin verið lengra sótt núna en í fyrra? — Hún hefur verið á svip- uðum slóðum út af Jökli. En á Skerjadýpi hefur hún verið lengra úti. Annars er þetta misjafnt, bún getur fært sig um 20—30 sjómílur á 2—3 dögum. Það er aldrei hægt að reiða sig á að hún sé stund- inni lengur á sömu slóðum. Þetta er svo brellótt kvikindi. — Finnst þér skemmtilegra að veiða síld en aðra fiska ? — Ja, ég veit ekki. Kannski í einstöku tilfelli. En skemmti legast finnst mér að veiða á handfæri. Að lokum fáum við upplýs- ingar um sundurliðaðan met afla Víðis II á árinu. Á síld- veiðunujn frá 1. jan. til 18. maí var aflinn 32.700 tunnur. Frá því mannsikapurinn var skráður á sumarsíldveiðar 1. júní og til 1. sept. veiddust 27.400 mál og tunnur og nú frá 21. október 21 þús. tunnur. Á línuveiðum frá 23. febr. til 30 marz og á öðrum tímum ársins veiddust 450 lestir af öðrum fiski. Stýrimaðurinn á Víði II heitir Víðir — Sveinsson. Áður en við förum, ætlar Eggert að lána okkur mynd af Víði II drekkhlöðnum, er tekin var í sumar. En þó hin brellna síld sleppi aldrei lengi frá honum, er yngsti sonur hans, tveggja ára snáði henni snjallari, og hefur falið lykil- inn að skattholinu svo vel að jafnvel mesta aflakló íslenzka flotans verður að játa sig sigraðan. Kannski er þar einn enn slingur af Kothúsaættinni. — E. Pá* Unglinga vantai til að bera blaðið FI.ÓKAGATA BLÓNDUHLÍÐ GRENIMEL MEÐALHOI,T FÁLKAGÖTU HÁV ALLAGÖTU SÖRLASKJÓL VÍDIMEL LAliGARTEIG HJALLAVEGUR GRETTISGATA (I) FJÓLUGATA Kennsla VORDINGE.ORG, húsmæðraskóli ca lVz st. ferð frá Kaupmanna- höfn. Nýtt námskeið byrjar 4. maí. Fóstrudeild, kjólasaumur vefnaður og handavinna. Skóla- skrá send. Sími 275 — Valborg Olsen. Enskukennsla Kennsla hafin. Nokkrir tímar lausir Kris*ín Óladóttir Sími 14263. 4 SKIPAUTGCRB RIKISINS HEKLA austur um land í hringferð hinn 9. þm. Vörumóttaka í dag til Fáskrúðsfjarðar. Reyðarfjarð- ar, Eskifjarðar, Norðfjarðar, Seyðisfjarðar, Þórshafnar, Rauf- arhafnar, Kópaskers og Húsa- vikur. Farseðlar seldir á mánu- dag. Samkomut Kristniboðssambandið Almenn samkoma laugardag- inn 6 jan. kl. 8,30 í kristniboðs- húsinu Laufásvegi 13. Kristileg skólasamtök koma í heimókn. — Allir eru hjartanlega velkomnir. Málf lutningsski ifstofa JON N. SIGURDSSON hæstaréttarir gmað’r Laugavegi 10. Sírni ’4934 Til leigu jarðýta og amokstursvél, mjög afkastamikil, sem mokar bæði fóstum jarðvegi og grjóti. Vélsmiðjan Bjarg hf. Simi 17184. Þrettándabrenna Á LAUGARDAGSKVÖLD verð- ur þrettándabrenna við Hlégarð í Mosfellssveit og stendur ung- mennafélagið Afturelding fyrir henni. Ungmennafélagið hélt brennu fyrir tveim árum. Þá kom ust að um 3000 áhorfendur, en þsð reyndist of lítið, en nú verð- ur brennan á öðrum stað, þar sem um 10 þús. manns geta horft á hana. Kveikt verður í bálkestinum ki. 8. Að báliau koma álfakóngur < Þórður Guðmundsson á Reykj. um) og álfadrottning (Gerður Lárusdóttir) og 40 manna fylgdar lið, púkar, álfar og fl. Um söng- inn sér kirkjukór Lágafellssókn- ar. Þá kemur riddaraliðssveit með blys og sjá félagar úr hestamanna félaginu Herði um þann lið. Eins og síðast verða þarna dýr, en þá voru ljósum prýdd geit, naut og hrútur. Ef veður verður gott, mun flugvél fljúga yfir og varpa niður fallhlífarblysi. Á eftir verð ur dansleikur í Hlégarði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.