Morgunblaðið - 05.01.1962, Side 11
Föstudagur 5. jan. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
11
n
BITSTJÓBAR: BIRGIR ÍSL. GUNNARSSON OG ÓLAFUR EGILSSON
LITIÐ FRAM A VEGINN
TJM nýliðin áramót eins og
öninur hafa menn staldrað við,
litið yiir farinn veg og reynt
að gera ser grein fyrir, hvað
framtiöin muni bera í skauti
sinu. hinstaklingar hafa litið
í eigin barm og hugað að
því, hvað betur megi fara.
Flokksleiðtogar hafa ritað ára
mótagreinar, þjóðarleiðtogar
og þjóðhófðingjar hafa flult
þjóðumim hoðskap sinn,
kirkjuhöfðingjar hafa prédik-
að og 'þannig mætti áfram
telja.
Scnnilegt er, að á tímamót-
um sem þessum líti unga fólk-
ið öðrum fremur fram á veg-
inn og reyni að gera sér grein
fyrir framtíðarhorfum sínum.
Það er eðlilegt, að þeir, sem
eru að ganga út í lífið, geri
minna að því að líta til baka
en þeir, sem komnir eru til ára
sinna. Ungu fólki ber þó að
hafa í huga orð skáldsins:
Að fortíð skal hyggja
ef frumlegt skal byggja.
Þeir menn eru þó til, sem
telja það nauðsynlegt, að
rjúfa öll tengsl milli fortíðar
og framtíðar, ef árangur eigi
að nást. Bylting sé lausnar-
orðið. Enginn vafi er á því,
að slíkt á lítinn hljómgrunn
meðal ungs fólks á íslandi. ís-
lenzk menning og þjóðiíf
stendur svo djúpum rótum í
fortíðinni, að fátt er líklegra
til að granda þjóðarverðmæt-
um okkar en að rífa hugsun-
arlaust upp með rótum það,
sem forfeður okkar hafa unn-
ið.
Ef litið er til framtíðarvið-
horfa æskufólks víða um heim
í dag, verður niðurstaðan því
miður sú, að munur á aðstöðu
hinnar ungu kynslóðar er svo
mikill, að enginn samaniburð-
ur kemst þar að.
íslenzk æska getur horft
fram á bjarta framtíð. Sjald-
an hefur verið búið betur að
un.gu kynslóðinni en í dag.
AUir, sem hafa hug á geta
aflað sér þeirrar menntunar,
sem hugur þeirra stendur til.
Þar er engum mismunað,
hvorki eftir stéttum né öðr-
um annarlegum sjónarmiðum.
Framtíðarverkefnin blasa hvar
vetna við. Ónumið lanid, óbeizl
uð orka, aukið fjármagn, allt
þetta og margt fleira gerir það
að verkum, að meiri líkur eru
á því nú en nokkru sinni fyrr,
að sérhver þegn í náinni fram
tíð megi lifa frjáls af ótta,
frjáls af skorti og frjáls til
að vera sinnar eigin gæfu
smiður. Ungt fólk á íslandi í
dag trúir því a. m. k. ekki að
óreyndu, að óábyrgir menn
brjóti niður þann grundvöll,
sem verið er að byggja á.
Sé litið til annarra Vestur-
landa má segja að viðhorfið
sé svipað og hér á íslandi.
Þessar þjóðir hafa borið gæfu
til að velja sér það stjórn-
skipulag, sem enn í dag hefur
reynzt það fullkomnasta, sem
reynt hefur verið. Þjóðskipu-
lag, sem gefur hverjum ein-
staklingi olnbogarúm í þjóðfé-
laginu, honum sjálfum og jafn
framt þjóðarheildinná til
heilla.
Því miður er ekki unnit að
segja það sama um þá æsku,
sem nú er að alast upp í rikj-
um kommúnismans. Sú kyn-
slóð, sem nú er að ganga út í
lífið í þeim löndum, þekkir af
eigin raun ekkert annað en
þjóðskipulag kommúnismans.
Leiðtogarnir í þeim ríkjum
hafa heldur einskis látið
ófreistað til að ala æskuna
upp í hinum rétta hugsunar-
hætti. Ákveðið magn af göml-
um fræðisetningum og úrelt-
um kreddum er borið á borð
fyrir sérhvern skólanemanda
og honum beinlínás skipað að
læra það. Af þeim hræring-
um, sem bærast í ríkjum
kommúnismans liggur þó ljóst
fyrir, að unga fólkið er ekki
alls ekki ánægt. Það var ungt
fólk, sem stóð fyrir uppreisn-
inni í Ungverjalandi 1956,
stærsti hlutinn af þeim milljón
um manna, sem flýðu frá Aust
ur-Þýzkalandi var ungt fólk
og þannig mætti áfram telja.
Frelsisþráin, sem sérhverjum
manni er í blóð borin, er
sterkust hjá ungu og heil-
brigðu fólki og sú þrá verður
ekki lamin niður með vopnn-
valdi eða henni útrýmt með
gömlum trúarkreddum. Lík-
legt er þó að þetta unga fólk
megi búa við ófrelsi enn um
sinn.
Erfitt er að segja fyrir um
það, hvaða framtíð sé búin
þeirri ungu kynslóð, sem nú
er að alast upp í hinum svo
iM-fndu vanþróuðu ríkjum.
Enda er aðstaðan í þeim
mörgu ríkjum svo ólík, að þau
verða varla nefnd í sömu
andrá. Enginn vafi er á því, að
í sumum þessara rikja mun
þetta unga fólk eiga eftir að
lyfta Grettistökum sjálfum
sér og afkomendum til heilla
Enn er blekkingum beitt
Festival-áróður kommúnista
ALLT síðan landssamtök
æskulýðs og stúdenta í
Finnlandi lýstu yfir al-
gjörri andstöðu sinni við
áform kommúnista um að
halda næsta „Festival“
sitt í Helsingfors árið 1962,
hefur því stöðugt verið
haldið fram í áróðri
kommúnista fyrir móti
þessu, að þorri finnskrar
æsku sé því eindregið
fylgjandi — aðeins „aftur-
haldssamir æskulýðsfor-
sprakkar“ standi gegn því.
>"... ........... 11
og hagsældar. I öðrum lönd-
um er aöstaðan aftur sú, að
litlar likur eru á því, að íbúar
þeirra muni í náinni framtið
ná verulegum árangri í fram-
faraátt. Þeirra bíður því miður
eymd og volæði og ólíklegt er,
að þær komizt af villimennsku
stiginu fyrst um sinn, þrátt
fyrir aðstoð góðviljaðra
manna.
Allt það, sem hér hefur ver-
ið sagt um auknar framfarir
ungu fólki til heilla, er þó
bundið því skilyrði, að friður
haldist í heimiiuim. Sá háska-
leikur, sem einræðisöfl heims-
valdsinna í austri leika, getur
orðið að háskabáli, ef menn
ekki gæta sin. Slíkt bál mundi
sennilega brenna til grunna
allt það, sem byggt hefur verið
til heilla og varpa manmkyn-
inu aftur i gráa forneskju.
Ungt fólk hlýtur að taka
höndum saman til að varast
þá óheillaþróun. — B.
Kommúnísminn fjötrar — meðan
lýðræðið skapar þjóðum frelsi
FRELSI IIAFA ÖÐLAZT
7 670 milljónir manna
Æ, Frá Belgum '
(1314 millj.)
,00
i0 SS*t
Frá Breturn
(523 millj) .
Frá Frökkumt §
') (63millj.) .
-v' .......l 1
\j^-,
Frá Hollendingum
(70 milljónir)
■
u
ENGINN efi leikur á því, að
nú á dögum er mestu nýlendu
kúgara heimsins fyrir að hitta
í Kreml. Hvað sem segja má
um stjórn nýlenduveldanna
gömlu á nýlendum þeirra og
hagnýtingu í eigin þágu á
margvíslegum nilttúruauðæf-
um, sem þai> var að finna, fær
nú engum d llizt, að þrælkun
þjóða og algj.'ir undirokun hef
ur með útþenslu kommúnism-
ans komizt á nýtt stig. Þó að
vöxtur kommúnismans hafi
sem betur fer verið sáralítill
allraseinustu árin, er full á-
stæða til að huga ofurlítið að
því, hverju kiigunarstefna
þessi hefur fcngið áorkað. Enn
er bæði ljóst og leynt unnið
að framgangi hennar — og
of margir hafa í blindni og
hugsunarleysi látið glepjast af
fögrum orðum og fláttskap
þeirra, sem um þræðina halda
í Kreml. Það er heilög skylda
allra þeirra, sem varðveita
vilja frelsi sitt og sjálfstæði,
að standa vakandi á verði.
Fátt ætti að vera fólki til alvar
legri áminningar um slíkt en
upprifjun á örlögum þeirra
þjóða og einstaklinga. karla
og kvenna, ungra og aldraðra,
sem orðið hafa kommúnism-
anum að bráð. — Á teikningu
þeirri, er hér birtist, er brugð-
ið upp glöggri mynd af þeim
breytingum, sem orðið hafa á
sjálfstæöismálum þjóða síð-
ustu 20 árin. Þar kemur skýrt
fram hvernig einræði komm-
únismans hefur fjötrað mill-
jónir manna í viðjar kúgunar
og ófrelsis — jafnvel útrýmt
sumum þeirra á sama tima og
lýðræðið hefur skapað þjóðum
frelsi og farsæld.
Lygaáróðurinn hrakinn
Af þessu tilefni, hefur
Æskulýðssamband Finnlands
(SNE) — sem hefur innan
sinna vébanda félög með um
1% milljón félagsmanna —
séð sig tilneytt, að gefa út
sérstaka yfirlýsingu, sem
skýrir hina raunverulegu af-
stöðu finnskrar æsku til
„festivalsins“. Var m.a. sagt
frá yfirlýsingu þessari £ blað
inu „Helsingin Sanomat“ í
Helsingfors ekki alls fyrir
löngu.
Þar er tekið fram, að
aðeins tvö félög — af
meirá en 50 — séu hlynnt
þessu móti, sem alþjóðleg
samtök kommúnista, með
ráðamennina í Kreml að
baki, eru að reyna að
þröngva upp á Finna. I
umræddum félögum báð-
um saman. er meðlima-
fjöldinn aðeins 1% af
heildartölu meðlima í
finnska æskulýðssamband-
inu.
Þá hafa samtök sveita-
æskunnar í Finnlandi (MNL)
gefið út sérstaka yfirlýsingu,
til þess að ítreka andstöðu
sína gegn „festivalinu“. Töldu
samtökin slíkt nauðsynlegt,
vegna „rangra upplýsinga,
sem dreift hefur verið í Finn
landi og utan þess í pólitísk-
um tilgangi“ og bera með
sér, að samtök sveitaæskunn-
ar hafi vikið frá mótmælum
Dagskráin endurspeglar
blekkingamar
Dagskrá þessa 8. „festivals"
kommúnista, sem birt var
nýlega, hefur vakið mikla
gremju meðal finnska stúd-
enta, enda er hún glöggur
vitnisburður um þær aðferð-
ir, sem kommúnistar beita í
viðlsjtni sinni til að læða
því inn hjá fólki, að almenn-
ur stuðningur sé við móts-
haldið. M.a. er í dagskránni
greint frá því, að stúdenta-
samtökin í Turku muni
standa að heimsókn þátttak-
enda þangað. Er með þessu
gjörsamlega skellt skollaeyr-
um við þeirri staðreynd, að
samtök þessi hafa lýst yfir
andstöðu sinni við „festival-
ið“, ekki síður en stúdentar
annars staðar í landinu. Á
sama hátt er því haldið
fram, að félag stúdenta í
þjóðfélagsfræðum við Hels-
ingforsháskóla, er Kontakti
nefnist, sé aðili að undirbún-
ingi „festivalsins“. Þessu var
samstundis mótmælt af um-
ræddu félagi. Varð það til
þess, að forvígismenn „festi-
valsins" viðurkenndu, að að-
eins fimm meðlimir í Kon-
takti hefðu við þá samstarf.
Sannleikskornið að því er
áformaða heimsókn til Turku
varðar er ekki stærra en það,
að einungis félagsskapur ung
kommúnista meðal stúdenta
þar mun eiga hlut að þess-
um þætti „festivalsins" — en
meðlimir í honum eru aðeins
30 talsins — að vísu jafn-
margir og silfurpeningarnir
forðum.