Morgunblaðið - 05.01.1962, Page 17
Fðstudagur 5. jan. 1962
M On CV NfíT. 4Ð1Ð
17
Ólafur Sigurðsson
veggfóðrari — IMinning
í DAG verður til moldar bor-
inn, Ólafjir Sigurðsson, vegg-
fóðrari. Hann andaðist 27. des.
sl. að hjúkrunar- og elliheimili
Grundar, þrotinn rð líkamskröft
lun, eftir langa og gifturíka
starfsævi. Þar um geta þeir
bezt borið, er þekktu hann bezt
og alla þá góðu mannkosti, er
hann prýddu.
Þessi fáu kveðjuorð eiga að
vera vinar- og þakkarkveðja.
Fæddur var Ólafur 27. okt.
1883 að Lómakoti í Fróðár-
hreppi, Snæfellsnessýslu. Fram-
an af ævi stundaði Ólafur al-
geng, sveitastörf og sjóróðra,
sem á þeim tímum var algeng-
ast hlutskipti ungra manna.
Að lífsförunaut átti Ólafur sál.
Ágústínu Kristjánsdóttur, hina
mætustu og ágætustu konu, er
reyndist honum að verðleikum.
Eignuðust þau tvö börn, stúlku
er andaðist fárra vikna gömul,
og einn son, Eggert Ólafsson,
Mávahlíð 29, kvæntan Önnu
Sigurbj örnsdóttur.
Konu sína missti Ólafur árið
1929 og eftir þa'ö bjó hann einn
síns liðs, þar til árið 1940, að
hann flutti á heimili sonar síns
og tengdadóttur og hjá þeim
hjónum dvaldi hann við mikla
umhyggju og ástúð, þar til árið
1959 að Ólafur sál. vegna var-
anlegs sjúkleika fluttist á hjúkr
unar- og elliheimili Grundar. —
Þau son .r hans og tengdadóttir
heimsóttu hann þar svo oft sem
önn daganna leyfði og umvöfðu
hann svo mikilli hlýju og ástúð,
að það má vera mörgum til
fyrirmyndar, er eiga skyld-
menni sín á elliheimili.
Er Ólafur sál. fluttist til Rvík-
ur árið 1928, hóf hann það starf
er varð hans ævistarf, að læra
veggfóðraraiðn og dúklagningar
hjá frænda sínum, Hallgrími
Finnssyni og var Ólafur á með-
al þeirra fyrstu sveina er luku
sveinsprófi í veggfóðraraiðn árið
1933. Starfaði hann svo óslitið
að iðn sinni á meðan kraftar
entust, þar til árið 1956, og
ávallt hjá frænda sínum, Hall-
grími.
Ólafur sál. tók virkan þátt í
málefnum stéttar sinnar. Þó
var hann hlédrægur maður, ekki
málrófsmaður, enn studdi fast
og drengilega þau málefni, er
hann taldi horfa til bóta og
uppbyggingar sínu samfélagi og
lét þá hvergi undan síga.
Er Sveinafél. veggfóðrara var
stofnað árið 1933, var hann á
meðal stofnenda, og var um
langt árabil gjaldkeri þess. Þá
gegndi Ólafur mörgum öðrum
trúnaðarstörfum fyrir félag sitt,
var um mörg ár í stjóm Sveina-
sambands byggingarmanna, svo
eitthvað sé nefnt.
Eftir að meistarar og sveinar í
veggfóð. araiðn voru sameinaðir
í eitt stétarfélag árið 1945, var
Ólafur sál. í því félagi til dauða
dags. Árið 1954 var Ólafur kjör-
inn heiðursfélagi í félagssamtök
um veggfóðrara, í virðingar og
þakarskyni fyrir vel unnin störf,
sem ég nú að leiðarlokum, leyfi
mér að þakka hinum látna fé-
laga okkar í nafni félagssamtaka
veggfóðrara.
Jæja, nafni minn, nú er kom-
ið að kveðjustundinni. Fyrir hug
skotssjónum líða myndir og
minningar liðinna ára, ég minn-
ist samstarfsáranna okkar, ég sé
fyrir mér hversu þú varst mik-
il fyrirmynd, til manndómsaukn
ingar, fyrir ungu mennina, er
þú tókst virkan þátt í að kenna
iðngrein okkar. Þar komu fram
þeir eðliskostir þínir, er þig
mest einkenndu, svo sem ein-
stök stundvísi til allrar vinnu,
sérstök hagsýni, að allt efni, sem
unnið var úr, væri fullnýtt, að
allt sem kom við vinnustað
væri frágengið af fyllstu reglu-
semi. Alltaf hinn prúði og sam-
starfsþýði vinnufélagi, sem ég
veit að margir byggingariðnað-
armenn, sérstaklega þeir eldri,
eiga um þig góðar og hlýjar
minningar fyrir gott og farsælt
samstarf.
Allir samstarfsmenn þínir
kveðja þig hinztu kveðju með
hlýjum þökkum fyrir sam-
starfið.
Nafni minn, að lokum mínar
persónulegu þakkir fyrir alla
vináttuna, hlýjuna og tryggðina
frá fyrstu kynnum til hinztu
stundar. — Eg sé í andá Sólar-
ströndina eilífu, þar sem þú og
margir aðrir fagna mér.
Guð gefi þér fararheill á Guðs
þíns fund.
Friður sé með þér.
Ólafur Guðmundsson.
H júkrunarkona
óskast nú þegar að
Landakotsspítala.
Elnkaritari óskast
Stúlka með góðri kunnáttu í ensku og frönsku, vön
bréfaskriftum og alhliða vinnu á skrifstofu, óskast
nú þegar. Uppiýsingar hjá Ragnari Þórðarsyni,
Glaumibæ, sími 22643.
VeSskuldabréf
Höfum verið beðnir að útvega 10—20 ára veð
skuldabréf tryggt með 1. veðr. í fasteign, að fjár-
hæð 100—200 þús.
MÁLFLUTNINGS- OG FASTEIGNASTOFA
Sigurður Keynir Fétursson, hrl.
Agnar Gústafsson, hdl.
Björn Pétursson, fasteignaviðskipti
AusturstrscÞ 14 — Símar 17994—22870
DaAókin
O
400 blaðsíður í þægilegu broti.
Verð aðeins kr. 56.65.
með þjónustu- og varningsskrá
er bæði hentug og falleg bók, og ómissandi öllum
sem þurfa að hafa reglu á hinum fjölbreyttu störf-
um hins dagslega iífs eða þeim, er halda vilja dagbók
í einhverri mynd.
Ein blaðsíða fyrlr hvern dag ársins.
Einfalt og handhægt reikningsform yfir allt árið fyrir innborganir og greiðslur.
Vöru- og þjónustulykill með fimmtán hundrað vöru og þjónustuheitum.
Fyrirtækjaskrá með á fjórða hundrað nöfnum fjrirtækja í R-vík og úti á landi.
Þeir sem óska, geta fengið gyllt nöfn sín i bólcina gegn 10 króna gjaldi.
PRENTSMIÐJAN HÓLAR H.F. Sími 24216.
Atvinna
Nokkrar stúlkur, vanar saumaskap geta fengið at-
vinnu nú þegar. Uppl. í síma 22108 í dag.
Cocktail
niöndlur
fást hjá
Silla & Vaida, Kjörbúð SÍS,
London, Austurveri, Egils-
kjöri og Örnólfi.
Heildsölubirgðir:
blué'
OIAMOND
ALMONDS
EIRÍKUR KETILSOIM
Garðastræti 2 — Sími 23472.
Klinikdama
óskast á tannlækningastofu við Miðbæinn. Um-
sókn er greini aldur, menntun og fyrri störf ásamt
mynd, ( sem endursendist) óskast send Morgun-
blaðinu fyrir næstu helgi merkt: „Þ—11 — 7724“.
Góð hl]óðeinangrun
léttir störf husfreyjunnar
Oll okkar framleiðsla úr vikurgjalli er gerð í hristivél
(vibration) og gufuhert, sem gerir það að verkum að
plöturnar eru sérlega sterkar og hafa mikla naglfestu. Milli
veggir hlaðnir úr vikurgjailsplötum frá okkur eru ein
bezta hlj óðeinangrun, sem til er á markaðnum í dag.
Plöturnar eru framleiddar í 5—7— og 10 em þykktum.
Gjönð svo vel að hringja og við mun-
um geta yður allar náuari upplýsingar.
Sínni 35785.