Morgunblaðið - 05.01.1962, Síða 22

Morgunblaðið - 05.01.1962, Síða 22
22 MORGl’IVBLAÐIÐ Föstudagur 5. jan. 1962 Heimsmet og ægihörð keppni Japans og Ástraiíu Jopan hafði 8 stiga forskot eftir 5 greinar en 19 greinar eru eftir SUNDKEPPNI Japana og Ástralíumanna vakti enn meiri spenn- ing en búizt var við. Löngu fyrir auglýstan byrjunartíma voru öll sæti og öll stæði í sundlauginni í Sidney troðfull. 3300 manns höfðu komizt að, en fjöldi varð frá að hverfa. Þessi keppni er lands- keppni milli Japana og Ástralíumanna. Verður lceppt fjögur kvöld og var hið fyrsta í gær. Sá er hefur fleiri stig að fjórum keppn- um loknum, vinnur fagran bikar — og sætan sigur í baráttu þess- ara tveggja stórvelda á sundsviðinu. ★ Heimsmet. Eitt heimsmet var sett — í 220 yarda flugsundi. Ástralíu- maðurinn Neville Hayes bætti sitt eigið heimsmet sem er nær ársgamalt úr 2.17,3 í 2.14,9. Hayes er 18 ára gam- all. Skólalæknar hans bönn- uðu honum harðar og erfiðar æfingar fyrir þessa keppni. „Eg held að þetta bann hafi hjálpað mér mjög. Eg var af- Allir út á völl að moka > ENSKU knattspyrnufélöginj: > standa nú í miklum vanda. ' Svo mikill snjór er á völlum] ^félaganna flestra að án átaks f og moksturs verður ekki leik Jjið á flestum þeirra. En fyrir; ¥ dyrum stendur um þessa helgi > leikir allra liða í öllum deild I um. Mörg félaganna hafa beðið % áhangendui sína um hjálp og. ; orðið vel ágengt. Er fjöldi • fólks við mokstur og hjólböruf ; akstur. M. a. var unnið á New-| > castele-velli langt fram á nótt sem leið. en þó f jöldi fólks mokaði var ekki lofcið við f nema um helming vallarins. skaplega vel fyrirkallaður“, sagði hann. Keppni landanna var afarhörð. Eftir þrjár greinar höfðu báðir aðilar 15 stig. En síðan unnu Japanir á og eftir 9 greinar höfðu þeir 29 stig gegn 21. Um 6. greinina vitum við ekki vegna þéss að hlustunarskilyrði eyði- lögðust. ★ Fyrstu greinar Fyrsta greinin var 110 yarda baksund. Þar unnu Japanir tvö- falt Fukusima sigraði á 1.04,3 mín. Hann sigraði m. a. japanska metihafann Tomita sem varð 2. á 1.04,7. Tomita sló nokkrum sinnum í brautarkaðalinn og tapaði áberandi við það. Þriðji varð Fingleton Ástralíu 1.05,8 og 4. Carroll á 1.06,4. Ástralíumenn leyfðu öðrum áströiskum sundmönnum að fylla riðilinn, en landskeppnin stendur milli 2 mann frá hvoru landi. Þetta kom einkennilega út í hæstu grein sem var 110 m skrið sund. David Dicksón Ástralíu sigraði á 56,2 sek. Næstur honum í mark var landi hans Staples á 56,6 sek. En hann var ekki i landsliði Ástralíu — heldur „uppfylling- •armaður“ í riðlinum. Japan fékk því stigin fyrir 2. og 3. mann, þvi næstir komu Fujimoto á 57,2 og Ishihara á 57,4. Antfhony Straha sem var annar keppandi Ástralíu kom 6. í mark. I flugsundinu var Hayes á nýju heimsmeti sem áður getur 2.14,9. 2. var Ástralíumaðurinn Berry á 2.15,9 (undir gamla heimsmetinu sem var 2.17,3) og 3. Yoshimutdto Japan á 2.17,4. Sato Japan var 4. á 2.19,2. ★ Tvöfaldur sigur í 100 m bringusundi sigraði Shigimatsu Japan á 1.12,4 og hefur enginn synt hraðar í Ástra líu. Hann átti í harðri baráttu við landa sinn Nakagawa sem varð annar. Þriðji varð 14 ára gamli ástralski drengurinn O’Brien á 1.14,2 og landi hans Humprey 4. á 1.16,6. Mikil keppni en öruggur japanskur sigur. Yananaka — frægasti sund- maður Japana —J hafði forystu alla leið í 440 yarda skriðsundi. Hann sigraði á 4.25,1 en landi hans Sukui varð annar á 4.27,8. Robert Windle varð 3 á 4.28,1 og 4. Alan Wood á 4.36,5. Eins og sjá má á tímunum var keppnin æðisleg 3 sek. milli 1. og 3. manns og 3/10 milli annars og þriðja. Það er von að fólkið ætlaði að tryllast, enda hafði Windle ver- ið í 2. sæti unz fáir metrar voru eftir. Eftir 5 greinar hafði Japan 29 stig, Ástralía 21. UM áramótin dvaldist nokkur sýningar og sýnir myndin hér hópur fólks í skíðaskálanum í með hvernig sú athöfn fór Hveradölum. Var þar skíða- fram. Það eru eins margir flug kennsla og „jólavaka“. Var eldarnir og í hverfum Reykja verið í fleiri skálum um ára- víkur, en myndin sýnir hversu mótin en hvergi fleira en í vel og skemmtilega flugeldun- Hveradölum. Luku allir upp um var skotið. einum rómi um gleði- og ánægjudaga á fjöllum um ára- Myndina tók Sigurður Harð- mótin. arsson. Hafði hann ljósop vél- Á gamlárskvöld var áramót arinnar opið í 7 mín. Ljósop anna minnzt veglega. Meðal var 3,5 en filman kodak 17 annars var efnt til flugelda- din. Þeir myndu slá mig í rot sagði Ásbjörn í bréfinu til Dana EINS Og kunnugt er var svo ráð fyrir gert að ísland tæki þátt í keppni unglingaliða Norður- landa í handknattleik, sem fram fer um páskana í Danmörku. Ás- björn Sigurjónsson ræddi þetta mál er hann var úti fyrir skömmu og eftir heimkomu hans sam- þykktu verðandi unglingalands- liðsmenn að leggja sinn stóra skerf til að af ferðinni gæti orð- ið. Hétu þeir góðri þátttöku í fjársöfnun svo sem handknatt- leiksfólk hefur ávallt gert við utanfarir. Fyrir nokkru sendu Danir HÉR eru myndir sem minna á nokkuð löngu liðna tíð en urðu út- undan í plássleysi jólaannanna. Þetta eru KR-ingar sem fögnuðu sigrum á haustmótum knattspyrnumanna í Reykjavík. Yngstu piltarnir eru keppendur og sigurvegarar í haustmóti 5 flokks C-liða. Þetta er í fyrsta sinn sem keppt var i þeim flokki en hann ber vott um aukinn áhuga yngstu manna fyrir knatt- spyrnunni. Á þeirri mynd sjást. Aftari röð frá vinstri: Matthías Gunnarsson, Gunnar Guðmundsson, Jón Ásgeirsson. Steinn Jóns- son, John Fenger, Guðm. Scheving, Kjartan Guðmundsson, Björn Árnason. Fremri röð frá vinstri: Þorsteinn Árnason, Stefán Sævar Guðjónsson, Barði Valdimarsson, Stefón Eiríksson, Magnús Kjart- ansson og Gunnar Jónsson, þjálfari flokksins. 3. flokur A, haustmeistarar 1961 3. flokkur B, haustmeistarar 1961 5. flokkur C, haustmeistarar 1961 bréf til Ásbjörns, að því er Ekstrabladet skýrir frá 4. janúar. í því sagði formaður danska sambandsins að svo gæti farið að ekki væri hægt að hafa íslendinga með þar sem Finntar vildu verða með í mótinu og 3 keppnisdagar leyfðu ekki alla leikina. Það stóð ekki á svari segir blaðið. I hraðbréfi sagði Ás- björn, að hann myndi aldrei tilkynna íslenzka liðinu um þessa ætlun Dana, að hafa Is- lendinga ekki með. „Þeir myndu berja mig nið- ur“ segir blaðið að Ásbjörn hafi sagt i bréfinu. „Og ég á auk þess mjög erfitt með að ná sambandi við þá, því sumir eru farnir á sjóinn til að afla sér farareyris til Danmerkur. Þeir verða úti á sjó í mánuð og fiski þeir vel fá þeir 10— 12000 ísl. kr. upp í ferðakostn- aðinn. Viljið þér kæri dan>skl formaður, hafa það á sam- vizkunni að valda drengjunum svo miklum vonbrigðum að þeir fái ekki að vera með. Það vildi danska handknatt- leikssambandið ekki og í stað- inn verður unglingamótið „risastórt" Norðurlanidamót. Leikdagar verða þrír 16., 17. og 18. marz í Köge, Roskilde og Næstved. Við reiknuðum með 4 lið- um, Svíum, Norðmönnum og Finnum auk okkar, sagði danski formaðurinn. En svo vildu ís- lendingar verða með. Og þá varð vandinn meiii. En við leystum hann á þann hátt að bæta enn einu liði við. Danmörk sendir sitt B-iið. Þá eru komnir 6 að- iljar. Þeim er skipt í 2 riðla, í hvörum riðli leika allir við alla og svo koma úrslit miili sigurvegaranna. —>

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.