Morgunblaðið - 07.01.1962, Síða 4
4
MORGUNHLAÐ1Ð
Sunnuda«ur 7. jan. 1962
Rennismiðir
og plötusmiðir geta fengið
atvinnu hjá okkur nú þeg-
ar. Talið við verkstjórann.
Sími 34981. Keilir hf.
Getum bætt við
nokkrum mönnum í fast
fæði. Verð 1200,00 á mán-
uði. Kaffi innifalið.
Austurbar — Sími 19611
Smurt brauð
Snittur, hrauðtertur. Af-
greiðum með iitium fynr-
vara.
Smurbrauðstof a
Vesturbæjar Sími 16311.
Faxabar
Heitar pylsur allan daginn.
Gosdrykkir, tóbak, sæl-
gæti.
Faxabar, Laugavegi 2.
Sængur
Endurnýjun gömlu sæng-
urnar, eigum dún og fiður-
held ver. Seljum gæsa-
dúnssængur.
Dún- og fiðurhreinsunin
Kirkjutei^ 29. Sími 33301.
19 ára stúlka
óskar eftir vinnu helzt sem
klinik-dama á tannleekna-
stofu. Tilboð sendist Mbl.,
merkt: „7397“.
Óska eftir
að koma 2ja ára hraustum
dreng í fóstur hjá barn-
góðum vel stæðum hjónum.
Ti'l'b. sendist Mbl. merkt:
„Framtíð — 7396“ fyrir
10 þessa mánaðar.
Jeppi
Willy’s landbúnaðar jeppi,
árgerð ’46, til sölu. Uppl.
í síma 32991.
Notað 15 lampa Philips
útvarpstæki, teg. 13x998 A,
óskast til kaups. Uppl. í
síma 3-76-11.
Karlmannsgleraugu
töpuðust fjórða dag jóla
um kl. 4 í Háaleitisvagnin-
um eða á leið frá Miklubr.
við StigahJíð og yfir í
Grænuhl. Finnandi vin-
saml. hringi í síma 35036.
Keflavík
Tek menn í fæði. — Uppl.
í síma 1631.
í dag er sunnudagur 7. janúar.
7. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 5:47.
Síðdegisflæði kl. 18:08.
Slysavarðstofan er opin allan .sólar-
hrínginn. — Læknavörður L.R. (fyrír
vitjanin er á sama stað fra kl. 18—8.
Sím: 15030.
Næturvörður vikuna 6.—13. jan. er
í Vesturbæjarapóteki sunnud. Apótek
Austurbæjar.
Næturlæknir í Hafnarfirði 6.—13.
jan. er Garðar Ólafsson, sími 50126.
Hoitsapótek og Garðsapótek eru
opin alla virka daga kl. 9—7, laugar-
daga frá kL 9—4 og helgidaga frá
kl. 1—4.
Kópavogsapótek er opið alla vlrka
daga kl. 9,15—8, laugardaga frá kl.
9:15—4, helgid. frá 1—4 e.h. Síml 23100.
LJósastofa Hvítabandsins, Fomhaga
8: Ljósböð fyrir börn og fullorðna.
Uppl. i síma 16699.
□ Mímir 5962187 — 1 atkv.
□ Edda 5962197 — 1 Atkv.
IOOF 3 = 143188 = II., III.
Frá kvenfélagi Háteigssóknar: At-
hygli er vakin á því að aldraðar konur
í sóknijini eru velkomnar á fundinn
9. jan., svo sem verið hefur á janúar
fundum félagsins undanfarin ár.
Fundurinn er í Sjómannaskólanum og
hefst kl. 8 e.h. Þar verður m.a. rvlk
myndasýning (Vigfús Sigurgeirsson)
og Upplestur (KarX Guðmundsson) —
Kaffidrykkja.
Kvenfélagið Hrönn heldur fund
þriðjudaginn 9. jan. kl. 8,30 e.h. að
Hverfisgötu 21. Handavinna.
Fundur verður haldinn í Bræðraiagi
Kristilegu félagi stúdenta, mánudag-
inn 8. jan. kl. 20 á heimili séra Jóns
Auðuns, dómprófasts, Garðastræti 42.
Frummælandi séra Eiríkur Eiríksson,
þjóðgarðsvörður. Fundarefni: Vandi og
vegsemd prestsembættisins. Stjórnin.
Rosknir stúdentar: Blaðið hefir verið
beðið að geta þess, að hinn árlegi fund
ur roskinna stúdenta „— 50 ára og
eldri —“ verði á þriðjudaginn 9. þ.m.
kl. 15 á sama stað og undanfarið — i
salnum á 2. hæð í austurenda Elli-
heimilisins Grundar Björgúlfur Olafs-
son læknir, þrófessor Sigurður Nor-
dal og væntanlega fleiri segja þar trá
minningum sínum frá latínuskólanum.
Fimmtíu ára stúdentar og eldri hafa
verið 55—70 oftast undanfarið, og
langflestir búsettir i Reykjavík. 36
stúdentar frá fyrri öld sóttu fyrsta
fundinn, sem haldinn var 1950 í Elli
heimilinu. 1. des. 1955 voru 50 ára stúd
entarnir alls 69, — þar af 40 frá fyrri
öld. Nú eru ekki nema 6 eftir af þess
um 40, og er Árni Thorsteinsson tón
skáld þeirra langelztur, stúdent trá
1890. Um þessar mundir eru „gómlu
stúdentarnír" ekki nema rúmlega 50
og eru þó 10 í „yngstu deild" eða frá
1911. Enginn er frá 1901, en 2 eða 4 frá
flestum hinna áranna. 1902—1910 eða
svo telst 65 ára stúdentinum til, sem
þetta hefur ritað. — S. Á. G.
SVARTUR HÖGNI með fáein hvít
hár á bringunni í vanskilum að Lyng-
haga 4.
Fermingarbörn
Fermingarbörn: Séra Emil Björnsson
biður börn, sem ætla að fermast hjá
honum á þessu ári að koma til viðíals
í Kirkju óháða safnaðarins við Há-
teigsveg kl. 8 e.h. 9. jan.
- M E S 5 U R -
Langholtsprestakall: Barnasamkoma
í safnaðarheimilinu kl. 10:30 f.h. Messa
kl. 2 á sama stað. Séra Árelíus Níels-
son.
Sunnudagaskóli óháða safnaðarins
verður í dag 1 kirkjunni kl. 10:30 f.h.
Öll börn velkomin. Séra Emil Björns-
son.
Flugfélag íslands li.f.: Millilandaflug:
Gullfaxi er væntanlegur til Rvíkur
kl. 15:40 í dag frá Hamborg, Khöfn
og Osló. Hrímfaxi fer til Glasg. og
Khafnar kl. 08:30 í fyrramálið. —>
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar og Vestmanna-
eyja. Á morgun til Akureyrr, Horna-
fjarðar, ísafjarðar og Vestmannaeyja.
Loftleiðir h.f.: Snorri Sturluson er
væntanlegur kl. 05:30 frú NY, fer til
Luxemburg kl. 07:00. Væntanlegur aft
ur kl. 23:00 Fer til NY kl. 00:30.
Hafskip h.f.: Laxá er í Keflavík.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er á leið til Danmerkur. Askja
er á leið til Noregs frá Kanada.
Jöklar h.f.: Drangajökull er í Grims
by. Langjökull er í Rvík. Vatnajökull
lestar á Vestfjarðahöfnum.
Skipdeild SÍS: Hvassafell er í Rvík.
Amarfell er á Húsavík. Jökulfell er
væntanlegt til Hornafjarðar á morgun.
Dísarfell er í Gufunesi. Litlaíell fór
í gær frá Rvík til Akureyrar. Helgafell
er á Svalbarðseyri. Hamrafell kemur
til Rvíkur 10. jan. Skaansund er á
leið til Hull. Heeren Gracht er í Rvík.
Eimskipafélag íslands h.f.: Brúarfoss
er á leið til Rvíkur. Dettifoss er á leið
til NY. Fjallfoss er á leið til Rvíkur
Goðafoss fór frá Rvík 5. jan til Vestm.
eyja. Gullfoss er í Khöfn. Lagarfoss
er í Hafnarfirði. Reykjafoss er , Rvík
Selfoss er í Rvík. Tröllafoss er í Ham
borg. Tungufoss fer frá Fur 7. jan. til
Stettin og Rvíkur.
Söfnin
Listasafn fslands er opið sunnudaga.
þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga
kl. 1:30—4 e.h.
Asgrimssáfn, Bergstaðastræti 74 er
opið priðjud., fimmtud. og sunnudaga
frá kL 1.30—4 e.h.
Þjóðminjasafnið er opið sunnud..
þriðjud., fimmtud. og laugard. kl.
1,30—4 e. h.
Liistasafn Einars Jónssonar er lok-
að um óákveðinn tíma.
Minjasafn Reykjavikurbæjar, Skúla
túni 2. opið dag'ega frá kl. 2—4 e.h.
nema mánudaga.
Bæjarbókasafn Reykjavikur —
ardögum og sunnudögum k) 4—7 e.h.
Opið á föstudögum frá 8—10 f.h., laug-
Laugardaga kl. 13—15.
Sími 12308 — Aðalsafnið Þingholts-
um fyrir börn ki. 6—7:30 og fullorðna
kl. 8:30—10.
daga, nema laugardaga 2—7. Sunnu-
daga 5—7. Lesstofa: 10—10 alla virka
daga, nema laugardaga 10—7. Sunnu-
daga 2—7.
Utibú Hólmgarðí 34: Opið 5—7 alla
virka daga, nema iaugardaga.
Ameríska Bókasafnið, Laugavegl 13
er opið 9—12 og 13—21, mánudaga, mið
vikudaga og föstudaga, 9—12 og 13—18
þriðjudaga og fimmtudaga
Bókasafn Kópavogs: — Utlán þriðju
Tæknibókasafn IMSf, Iðnskólanum:
daga og fimmtudaga i báðum skólun-
Opið alla virka daga kl. 13 til 19. —
Bókasafn Hafnarfjarðar er opið alla
daga kl. 2—7 e.h. nema laugardaga frá
velur að þessu sinni
Árni G. Eylands ogseg-
m. a. um val sitt:
Eg man Friðrik vinnumann á Reykjum kveða rímur fyrir
fólkið í baðstofunni beima, en þá var slíkt sjaldgæft orðið
í Hjaltadal. Eg man Bjarna vinnumann kveða fyrir mig
Göngu-Hrólfs rírnur og rímur um Þórð hreðu í heygeilinni
í Viðvík. Ekki var ég bænabókarfær, skammarlaust, þegar
beðið var með óþreyju eftir Alþingisrímunum, sem gengu
boðleið bæ frá bæ að láni. Og það var sjálfgefið að læra þær
utanbókar, svo að þær eru enn tiltækar niður á keralds-
botni mínum. Þetta var gleði æskunnar, og þetta var þá
gleði fólksins, einfaldletga og isma-laust. Úr þessum sinu-
akri endurminninganna er mér létt og ljúft að velja ljóð
dagsins, vísur Grims Thomsen um Svein Pálsson og Kóp.
Eg las þær sem barn í gömlu Sunnanfarablaði og lærði þær
auðvitað um leið. Mér voru þá, af eðlilegum ástæðum, ó-
kunn með ölliu slík orð og hugtök, sem list og kúnst og
hvað það nú heitir, þettu var bara tilveran, lífið. Síðar
ettist sagan við með Skúlaskeiði Gríms og Illugadrápa
■^tefáns G. eins og hún var upphaflega.
Þessi tvö kvæði eru víst í góðu gildi enn, jafnvel hjá
hinum lærðustu ljóðskýrendum og dómurum, en hvað um
vísur Gríms? Þegar ég lærði þær barn að aldri var mér hið
skáldlega gildi þeirra lokuð bók, en er ég hugleiði þær nú,
verður minn dómur að afburða vel sé á efninu haldið, engar
óþarfa umbúðir en mikið sagt í fáum ákveðnum orðum.
Myndin er glögg, allir aðilar koma ljóst fram, læknirinn sem
alltaf gerir skyldu sína og teflir lífi sínu hiklaust í tvísýnu,
bóndinn, sem ljær Sveini hestinn, og kveður hann eftirminni-
lega, fjölskyldan sem verður líknarverksins aðnjótandi, en á
ekkert til að launa með nema þakkar-blessun sína, og loks
hesturinn Kópur, stólpagripurinn mállaus en vitur, svo
vitur að hann skilur að hér liggur mikið við, án þess væri
hann ekki lagður í ána.
Mér er þetta meitlaða ljóð Gríms enn kjörgripur meðal
kvæða, alveg eins og mér finnst enginn hafa minnst Jónasar
Hallgrímissonar eins vel og Grímur gerir í hinuim einföldu
stökum sínum: Þú sem áður foldar fljóð —, og hafa þó marg-
ir lagt hönd að verki að minnast Jónasar. En mér verður
spum: Ef einhver gæti ort svona nú, og leyfði sér að gera
það, myndi hann talinn mikið skáld? Eg held að svo yrði
ekki, í herbúðum hinna svokölluðu bókmennta-manna, en
hinu trúi ég þó, að hann myndi ná eyrum fólksims, hinna
mörgu sem ekki koma því við að setja upp spekisvip og þykj-
ast skilja, það sem þeir skiija ekki, en lesa í þess stað af ein-
faldleik hjartans, það sem þeir skilja sem íslenzkt miál og ís-
lenzka hugsun. — Og þannig til dyranna genginn raula ég
enn, sem barnið fyrrum:
SVEINN PÁLSSON og KÓPUR
,— Ófær sýnist áin mér,
állinn þessa verstur,
stóra jaka straumur ber, ,
stendur hann enginn hestur .
Áin hljóp, sem oft til ber
eftir milda vetra;
vertu’ nú í nótt, því vísast er
að verði á morgun betra —
„ — Væri ei nauðsyn naesta
brýn,
náttstað yrði’ ég feginn,
en kona í barnsnauð bíður mín
banvæn hinumegin —“.
„ — Skal þá, læknir, ljá þér
Kóp,
láittu’ hann alveg ráða;
HONUM, sem fljóði fóstrið
skóp,
fel ég ykkur báða —“.
Vandlega kannar Kópur
straum,
í kvíslina drepur grönum;
slakan lætur læknir taum
leiðratanda vönum.
Var í strengnum stríðast fall, -
straums’ í ólgu halla
jakabóigin bylgjan svall,
blakk þó hrakti valla.
Óð hægt Kópur. — Yfir skall,
æðar jökuls þjóta,
drengs þó hjarta drap ei stall,'
drösull missti’ ei fóta.
Reyndi á beinin föst og fim
flaums í þriðja svipnum;
líkt og á skeri brýtur brim,
braut á stólpa-gripnum.
Komst þá Sveinn í kj-appa
dans,
Kópur skalf á beinum,
er hann náði loks til lands
laminn jökui-fleinum.
Af eðli göfgu fákur fann,
fæti’ að mátti’ ei skeika.
læknir skyldu verkið vann,
verkið mannkærleika.
Úr bams og móður bætti’
hann þraut,
blessun upp því skar hann,
önnur Iaun hann ekki hlaut,
ánægður þó var hann.
Þó að liggi lífið á,
láta þeir núna bíða
í jökulhlaupi Jökulsá
og jakaburð að ríða.
Hárgreiðslukona
óskar eftir atvinmi. Uppl.
í síma 23997 eftir kl. 2 á
sunnudag.
Unglingur
eða eldri maður óskast í
sveit^ nú þegar. Upplýsing-
ar í síma 23071.
Reykjavík, Hafnarfjörður
Húsasmiður óskar eftir
vinnu. Vanur úti og inni.
Tilboð sendist Mbl., merkt:
„7395“.
Skurðhnífur til sölu
(Geirskurðarhnífur) Uppl.
í síma 12335.
JÚMBÓ og SPORI í frumskóginum ~K Teiknari J. MORA
Rétt þegar strúturinn hafði rennt
niður síðustu hnetunni, kom Ander-
sen heim. Hann virtist ósköp niður-
dreginn og heilsaði þurrlega, þegar
Júmbó hrópaði fagnandi: — Góðan
daginn, kæri hr. Andersen!
— Nú hafa þessir þorparar enn
drepið þrjá af vatnahestunum mín-
um, sagði hann reiðilega. — Ég veit
sannarlega ekki, hvað ég á að taka
til bragðs. — Hvað .... þrjá í við-
bót? hrópaði Júmbó. — Þetta er
hræðilegt — við verðum eitthvað að
gera!
Þeir settust Jiú til borðs inni í
kofanum, allir þrír, og Andersen
sagði þeim, að hann hefði fundið
dauðu dýrin niðri við fljótið. —-
Við fljótið! hrópuðu þeir Júmbó og
Spori einum rómi og stukku á fæt-
ur. — Þá er ekki útilokað, að við
séum þegar komnir á sporið!