Morgunblaðið - 07.01.1962, Side 5

Morgunblaðið - 07.01.1962, Side 5
Sunnudagur 7. jan. 1962 MORGVTSBLAÐIÐ 5 <V VMM< JÓN KRISTÓFER er 50 ára í dagr. Margir kannast við hann úr kvæði Steins Steinars — „Jón Kristófer, kadett í hern- um c^>.frv.“, en kunnastur er hann fyrir ævintýraríka og stormasama ævi. Blaðið hitti Jón Kristófer að máli í tilefni afmælis hans og kaus hann helzt að ræða um AA samtök in. — Eg tel það hið merkasta, á þessum tímamótum ævi minn ar, sagði hann, að ég hef eikki bragðað áfengi í 303 daga sam fleytt. Er það lengsti tíminn sem ég hef verið alls gáður í þau 22 ár, sem ég hef verið á valdi áfengisbölsins. Þetta á ég AA samtökunum að þakka. — Eg hef í 22 ár reynt allar hugsanlegar leiðir og maður hefur gengið undir manns hönd til að rífa mig upp úr þessu, en það tókst ekki fyrr en ég byrjaði að fara eftir leiðum AA. AA er félagsskapur manna, sem hafa gert sér ljósan vand an, sem fylgir ofnautn áfeng is og er ekki sjálfrátt þegar hún er annars vegar, því þetta eru sjúkir menn. Samtökin eru stofnuð til að finna leið út MENN 06 = MALEFN/= úr ógöngunum. Þau hlutast ekki til um áfengislöggjöfina í heild eða framkvæmd henn ar. Hlutverk þeirra er bundið hverjum einstaklingi. Leitast þau við að hjálpa honum til að svara spurningunni: — Get ég hætt að drekka? í upphafi stefnukkrár AA segir svo: — Vér viðurkennum vanmátt vorn gegn áfengi og að oss var orðið um megn að stjórna lífi voru. Annað atriði stefnuskrórinn ar er: — Vér fórum að trúa, að æðri kraftur miáttugri vorum eigin vilja gæti gert oss heil brigða að nýju. Samkvæmt minni reynslu hvað snertir bindindi og drykkjuskap eru bæði þessi atriði nauðsynleg viðhorf hverjum þeim, sem reynir í einlægni að sigrast á áfenginu. Eg trúi því að ekki sé hægt að finna rót áfengisbölsins í vírusum eða bakteríum. Ég þykist 'hafa reynt það, að vera haldinn annarlegum anda, sem hafði þau áhrif, að ég hneigð- ist til ofdrykkju, og ég hef sloppið frá honum með bæn til guðs. Eg kýs að ræða um þetta í dag, þar sem mér er kunnugt um fjölda manna og kvenna í í þessu þjóðfélagi, sem berjast enn við þennan voða, drykkju sýkina. Og þar sem ég tel mig hafa fundið örugga leið og og sjálfur komizt úr þessum voða, er mér áhugamál að sem flestir reyni að kynna sér þá aðstöðu, sem AA samtökin veita drykkjumanninum í bar- áttunni gegn áfengi og hagnýti hana með því að mæta á hin um vikulegu fundum samtak anna og hafa samneyti við þá einstaklinga, sem náð hafa ár angri eftir leiðum þeirra og jafnvel sigrast á vandanum. Opinberað hafa trúlofun sína ungfrú Gunnvör Björnedóttir, Tjarnargötu 47 og Sigurður Þor- steinn Guðmundeson, Karlagötu 21. Opinberað hafa trúlofun sína Vigdis Ketilsdóttir, afgreiðslust. Gunnarssundi 8, Hafnarfirði og Halldór Halldórsson rafvirki, — Hringbraut 76, Hafnarfirði. A jóladag voru gefin saman í hjónaband af séra Magnúsi Frið jónssyni í Eyrarbakkakirkju ung frú Halldóra V. Jóhannsdóttir, Háeyri, Eyrarbakka og Kjartan Hreinn Pálsson, Vestmannaeyj- um. Heimili þeirra verður á Hvít eyjarvegi 12, Vestmannaeyjum. Einnig ungfrú Jóna Árný Jó- hannsdóttir, Háeyri Eyrarbakka og Gunnar Hallgrímsson, Grunnu vik. Heimili þeirra er að Bogahlíð 7, Rvík. Á jóladag voru gefin saman í hjónaband í Eskifjarðarkirkju eftirtalin brúðhjón: Þóra G. Valdimarsdóttir, Eslci- firði, og Páll Þ. Elísson, Reyðar- firði. — Pálína Imsland, Eskifirði og Hilmar Símonarson, Neskaup stað. — María Hjálmarsdóttir, Neskaupstað og Ingvi R. Aliberts son, Eskifirði. — 29. des. voru gefin saman í hjónaband á Eski firði Hildur Bóasdóttir og Hlöð- ver Kristinsson. — Á gamlársdag í Eskifjarðarkirkju: Sigurlaug Stefánsdóttir frá Mjóanesi, Völl um og Egill Guðlaugsson, Reyð arfirði. — Edda S. Laing, Eski- firði og Bóas Sigurðsson, Reyðar firði. — Á nýársdag í Reyðar- fjarðarkirkju: Bergljót I. Þórar insdóttir frá Víðivöllum í Fljóts- dal og Benedikt Brunsted Róberts son Eyri við Reyðarfjörð. — Séra Jón Hnefill Aðalsteinsson sóknarprestur Hólmaprestakails gaf brúðhjónin saman. Nýlega voru gefin saman í hjónaband í Kirkju óháða safn aðarins af séra Emil Björnssyni ungfrú Helga Jóhannsdóttir og Ómar Ragnarsson, stud. jur. — Heimili ungu hjónanna er að Austurbrún 2. Lælcnar fiarveiandi Eyþór Gunnarsson til 12. jan. (Victor Gestsson). Esra Pétursson i?m óákveðinn tíma (Halldór Arinbjarnar). Kjartan R. Guðmundsson frá 21. sept. 1961 til 31. marz 1962. (Samlagssj. Ol- afur Jóhannsson. Taugasj. Gunnar Guðmundsson). Ólafur Þorsteinsson frá 6. jan. til 20. jan. (Stefán Ólafsson). Sigurður S. Magnússon um óákv. tíma (Tryggvi Þorsteinsson). Víkingur Arnórsson til marzloka 1962. (Olafur Jónsson). Látið af heimskunni, munið þér lifa, og fetið veg hyggindanna. Sá, sem áminnir spottara, bakar sér smán, og þeim, sem ávítar óguðlega, verður það til vanza. Með munnLum steypir hinn guðlausi náunga sínum í glötun, en hinir rétt- látu frelsast fyrir þekkingu. Auður ríks manns er honum öflugt vígi, en fátækt hinna snauðu verður þeim að falli. Hinn góði hlýtur velþóknun af Drottni, en hrekkvisan mann fyrirdæm ir hann. — Oorðskviðirnir. + Gengið + Kaup Sala 1 Sterlingspund ... 121,07 121,37 1 Bandarikjadollar - 42,95 43,06 1 Kanadadollar ...... 41,18 41,29 100 Danskar krónur .... 624,60 626,20 100 Sænskar krónur .... 829,85 832,00 100 Norskar kr....... 602,87 604,41 100 Gyllini ......... 1.189,74 1.92,80 Bíll tíl sölu Hillmann ’50 til sölu. Verð eftir samkomulagi. Uppl. í síma 22781. íbúð óskast Ung hjón með barn á fyrsta ári óska eftir ibúð strax. Uppl. í síma 33694. Keflavík Óska eftir 2ja herb. íbúð nú þegar eða um næstu mánaðamót. Uppiýsingar í síma 1269. Gæzla óskast fyrir dreng 4 ára fimm daga vikunnar kl. 9—5, helzt í Vestur- bænum. Góð greiðsla. — Kaplaskjólsvegur 64. Sími 18732. íbúð til sölu Stór og góð 3ja herbergja íbúð á hitaveitusvæðinu tii sölu. Uppl. í sírna 15986. Blokkþvingur veztur-þýzkar. fimm búkk- ar til sölu sem nýjar. Verð kr. 10.000,00. Sími 50174. Stúlka óskast í vefnaðarvöruverzlun hálf an daginn. Tilboð sendist Mbl. merkt: „7295“. Nýlenduvöru verzlun I fullum gangi á góðum stað í bænum til sölu eða leigu. Tilboð sendist Mbl. merkt: ,.Austurbær 7296“. Til sölu eitt herbergi og eldhús í húsi við Snorrabraut. Góð- ir greiðsluskilmálar. Uppi. í síma 15795. Verzluiarpláss til leigu Upplýsingar í síma 12335. Skemmtikvöld í G. T.-húsinu í kvöld kl. 8,30. Ó. M. og Agnes. Ungtemplarafél. Einingarinnar. Guðnýjar Pétursdótfui Kennsla hefst að nýju þriðjudaginn 9. janúar. Nemendur frá fyrra námskeiði mæti á sömu tímum og áður. ínnritun fyrir nýja nemendur í síma 12486. i' \ \ » •• - SEM KUNNUGT er áttu prins arnir þrír í Laos fund með sér 27. des. s.l, til að reyna að komast að samkomulagi um myndiun samsteypustjórnar, en sú tilraun fór út um þúfur. Á myndinni sést Boun Oum forsætisráðherra stjórnar þeirrar, sem fylgir Vesturveld unurn að mólum, á milli prins Souvanna Phouma fyrrv. for sætisráðherra hlutleysisstjórn arinnar (t.v.) og prins Soup- hanouvong, leiðtoga Pathet Lao kommúnistanna (t.h.). Dansskóli Heiðars Astvaldssonar Kennsla hefst mánudaginn 8. jan. Jóladansleikurinn verður í Sjólfstæðishúsinu þriðju- daginn 9. jan. Nemendur, sem ekki hafa fengið miða sína, eru beðn ir að sækja þá í Alþýðu- húsið eftir kl. 5 mánudag- inn 8. jan Vinsamlega athugið. Þar eð skólinn er enn full- setinn verður engum nýj- um nemendum bætt við. Guðbjörg og Heiðar Ástvalds. Titboð óskast í nokkrar fó'ksbifreiðir er verða sýndar í Rauðarár- porti þriöjud. 9. þ.m. Ki. 1—3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri ki. 5 sama dag. Sölunefnd varnarliðseigna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.