Morgunblaðið - 07.01.1962, Side 6

Morgunblaðið - 07.01.1962, Side 6
6 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 7. jan. 1962 Líkan af einni DC-6b-flugvél Loftleiða. neglur né bruðla. Auglýsinga- starfsemi er öllum fyrirtækjum jafn nauðsynleg og eldsneytið hreyflinum. Eftir að endurreisn félagsins hófst fyrir rúmum áratug með föstu ferðunum til Ameríku, var byrjað með því að verja stórfé á okkar mæli- kvarða til auglýsinga. — Fé má ekki eyða til aug- lýsinga. Fé á að verja til þeirra, og ef atvinnurekstur er hafinn með skynsamlegum auglýsing- um, þá á þar réttu lagi að vera um fjárfestingu að ræða, rétt eins og þegar fé er lagt til kaupa á atvinnutækjum. Hér heima gætir þess mjög að aug- lýsing sé vanmetin. Þess vegna tíðkast hér eilift auglýsingabetl. Það breytist vitanlega með tímanum. Hér munu rísa upp auglýsingafyrirtæki, sem starfa eins og tíðkast erlendis, gera fyrirfram áætlanir um hversu fénu skuli verja, og fá þóknim Síðan í Life kostar 100 þús. krdnur segir Sigirrður Magnússon og ræðir um auglýsingar LOFTLEIÐIR verja meira fé í auglýsingar erlendis en nokkurt annað íslenzkt fyrirtæki, enda á félagið í harðri samkeppni við útlend stórfyrirtæki og rekstur þess byggist í sívaxandi mæli ú erlendu ferðafólki. Á síðasta ári varði félagið um 16 milljón- um króna til margþættrar aug- lýsingastarfsemi og í tilefni þess átti Mbl. tal við Sigurð Magnússon, fulltrúa Loftleiða. Beinar og óbeinar auglýsingar — Beinar auglýsingar í dag- blöðum, tímaritum, útvarpi sjón varpi og sýningargluggum, og önnur sú upplýsingaþjónusta, sem á ensku nefnist „Publie Re- lations“, eru tvær greinar á ein- um og sama meiði, sagði Sig- urður. — Mörg erlend stórfyrir- tæki draga örugga markalínu þar í milli, en það gera Loft- leiðir ekki. Sums staðar er tal- ið árangursríkast að verja fé til beinna auglýsinga. Annars staðar er heppilegra að nota talsvert fé til óbeinnar kynning- arstarfsemi, t. d. með því að bjóða forstjórum eða starfsmönn um ferðaskrifstofa í orlofsferðir með flugvélum félagsins og að- stoða fréttamenn. Stundum geta greinar velvilj- aðs blaðamanns orðið miklu verðmætari en rándýrar auglýs- ingar, og góð kynni í sjónvarpi eru vitanlega mjög eftirsóknar- verð. Vandinn er sá að velja og hafna, meta réttilega hvað það er, sem hverju sinni er líklegt til að vekja góða athygli á starf semi félagsins. Þar kemur vitanlega annað og meira til en það, sem keypt er beinlínis við fé í þessu skyni. Allir starfsmenn félagsins eru á einn eða annan hátt starfandi við „Public Relations", allt frá því er hinn væntanlegi farþegi hefir fyrst samband við far- skrárdeild og unz hann er kom- inn á leiðarenda. Örugg sam- staða allra starfsmanna er hverju fyrirtæki lífsnauðsyn, en ég hygg að óvíða sé það jafn nauðsyn- legt og í flugstarfseminni. Ég held líka, að þó að stöku sinn- um hafi einhverjir misbrestir orðið í þessu efni hjá okkur, sarfsmönnum Loftleiða, þá sé óvíða jafngóð samvinna og inn- an félags okkar, jafn einlægur vilji til samstarfs, í því skyni að koma farþegunum þakklátum á leiðarenda, sagði Sigurður. — Full reikningsskil hafa enn ekki verið gerð frá erlendu stöðvunum vegna sl. árs, en mér þykir sennilegt að í ljós komi að féð, sem Loftleiðir hafa varið til kynningarstarfsemi ár- ið 1961 reynist um 16 milljónir króna. Væri hægt að eyða öllu á kvöldstund — Og þið áætlið auglýsinga- fé í upphafi ársins? — Já. Ég geri tillögur til fé- iagsstjórnarinnar um fjárveit- ingar vegna komandi árs. Hún gerir á þeim þær breytingar, sem henni þykja eðlilegar. Að því búnu tilkynni ég hlutaðeig- andi aðilum ákvarðanir stjórnar innar, og svo ber mér að fylgj- ast með eftir því, sem unnt er, að eftir þeim sé farið og hafa • Hvaða höfunda stældi Hannes? Ég hefi orðið var við að fólki hefur þótt gaman að því að spreyta sig á að þekikja stíl 19. aldar skáldanna, sem Hannes Hafstein tók fyrir í Þerriblaðs-vísum sínum. Ég sneri mér til dr. Stein- gríms J. Þorsteinssonar pró- fessors, og bað hann um að hjálpa okkur að finna skáldin, sem Hannes var að stæla. Varð hann fúslega við þeirri vakandi auga á að fénu sé vel varið. Eintakaskráning hlaffa er frumskilyrffi — Yfirleitt er gengið út frá vissum hundraðshlutum af á- ætluðum tekjum hverrar stöðv- ar. Þetta er talsvert breytilegt eftir aðstæðum. Miklu máli skiptir t. d., hvort félagið hefir nýlega hafið starfsemi á við- komandi stað eða það er gamal- gróið að vinsældum. Ýmislegt annað skiptir líka máli. Það er t. d. hlutfallslega dýrara að aug lýsa í Bandaríkjunum en í Ev- rópu. Mér þykir sennilegt, að það væri mjög auðvelt að eyða öllu ársfé Loftleiða til auglýs- inga á einni kvöldstund í amer- ískum sjónvarpsstöðvum, svo að dæmi sé nefnt. — Er hundraðstala auglýsinga fjár ykkar tiltölulega há? __ Nei. Við höfum þar hlið- sjón af því, sem okkur er kunnugt frá hliðstæðum at- vinnurekstri erlendis. Við reyn- um að skera hvorki um of við beiðni, og hér kemur lausnin á gátunni: I. Blaðið góða, heyr mín hljóð — Sigurður Breiðfjörð. II. Því var þerriblað. — Bjarnj Thorarensen. III. Þurkutetur, þægðar- blað. — Jónas Hallgrímsson. IV. Hvar sem hnígur hor- tittur. — Bólu-Hjálmar. V. Síðasti slagurinn er hann sló. — Grímur Thomsen (sbr. Rúnaslag). VI. Á himinskýjum skálds ins andi flaug. — Benedikt Gröndal. VII. Þerripappír þóknast og gildi þeirra hjá dagblöðum, tímaritum og öðrum þeim aðilum, sem birta auglýsingar. Frumskilyrði þéss er að hér verði upp tekin eintakaskrán- ing blaða og tímarita og upp- lýsingar gefnar um dreifingu þeirra. Félagið Sölutækni hefur að undanförnu verið með ráða- gerðir um að koma því í fram- kvæmd og vonandi kemur ein- hverntíma til þess hér, að aug- lýsendur fái öruggar upplýsing- ar um hvaða vöru þeir eru að kaupa. Siffan kostar 100 þús. kr. — Sjáðu, hérna hef ég upp- lýsingar frá New York auglýs- ingafyrirtæki Loftleiða, Wendell P. Colton, tun nokkur banda- rísk tímarit og amerísk blöð, sem gefin eru út í Evrópu. Af þeim get ég t.d. fengið örugga vitneskju um það hve mörg ein- tök eru keypt af Life og Time í Englandi, Þýzkalandi eða ann- ars staðar þar í Evrópu, sem við viljum ná til lesenda, og að þeim fengnum reyni ég að gera mér grein fyrir hvar skynsam- mér. — Páll Olafsson. VIII. Þerripappír, satt ég segi. — Gísli Brynjúlfsson (Sbr. m.a. Bragaljóð hans og fornlegan kveðskaparstíl). IX. Einn þerripappír, gljúpur, grár. — Steingrímur Thorsteinsson. X. Pappír pettaði. — Matthías Joohumsson. XI. Ég á blaðið. — Valdimar Briem (sbr. Bi'blíu- Ijóð hans). XII. Vér skulum ei æðr- ast. — Jón Ólafsson. XIII. Það tekur svo ákaft en öfugt við. — Einar H. legast sé að auglýsa, en eftir að búið er að ganga frá sjálfri auglýsingunni, þá bið ég Wen- dell P. Colton að koma henni á framfæri við tímaritin, semja um hvenær auglýsingin birtist o. s. frv. Við myndum ekkert græða á að hafa beint samband við Life, en hins vegar greiðir tímaritið auglýsingaskrifstof- unni þóknun fyrir milligöng- una, og þannig þarf þetta líka að verða hér. Þá fyrst er kom- inn fjárhagsgrundvöllur fyrir auglýsingaskrifstofur. — Við höfum núna samið þar um 13 auglýsingar. Sumar birt- ust í haust, hinar koma fjóra fyrstu mánuði þessa árs. Það kostar rúma 8 þúsund dollara, og er þetta þó ekki nema fjórði Sigurffur Magnússon fulltrúi j partur af síðu hverju slnnl, Heilsiðan í Life kostar því um 100 þúsund krónur. Auglýsa mest i Bandaríkjunum — Og þetta borgar sig? — Ég verð að svara því ját- andi — þó ekki væri nema til þess að skjóta skildi fyrir sjálf- an mig, sagði Sigurður. Ýmsir hafa talað um að auglýsingarn- ar, sem við höfðum í Time hafi fyrst vakið athygli þeirra á Loftleiðum, og vissar ástæður eru til að ætla að Life-auglýs- ingin verði a.m.k. ekki lakari. Svo er það nú satt bezt að segja, að fyrirtæki eins og Loft- leiðir þurfa stundum að „snobba“ dálítið upp á við. Við Framhald á bls. 17. Kvaran. (Kvæðið Bylur m.a. haft í huga). XIV. Ég vildi óska að það ylti nú. — Hannes Hafstein. XV. Það ber við tíðum hjá lenskum. — Einar Bene- diktsson. XVI. Frá Englum og Þjóð. verjum. — Þorsteinn Erlings. son. Jæja, bvað hafið þið haft margt r/tt? Velvakanda hafa þegar bor- izt nokkur bréf með lausnum, t.d. frá Birni K. Þórólfssyni, Magnúsi Kjaran og Guðjóni E. Jónssyni. Eru þeir sammála próf. Steingrími, nema hvað visa 8. vill þvælast fyrir sum- um, er telja að þar hafi Hannes ætlað að stæla Kristján Jónsson, fjallaskáld. Er það í rauninni mjög eðli- legt, þar eð undarlegt er að Hannes skyldi ekki hafa hann með og Gísli Brynjúlfsson er nú orðið lítt kunnur. • Ortar nálægt aldamótum Próf. Steingrímur telur sennilegast að Hannes Haf- stein hafi ort Þerriblaðs-vís- urnar nálægt aldamótum, á sýslumannsárum sínum á ísa- firði, því að þá hafa honum oft gefizt stundir til slíkrar gamaniðju og vísurnar voru orðnar allkunnar snemma á þessari öld, þótt Hannes birti þær ekki fyrr en 1 Ljóða-bók sinni árið 1916.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.