Morgunblaðið - 07.01.1962, Qupperneq 10
10
MORGVISBLÁÐIÐ
Sunnudagur 7. jan. 1962
Séð yfir mannfjöldann framan við Guennete Leul höliina.
Nýr hasköli
/ r
MÖRGUM fcom á óvart fyrir
ári, þegar tilkynnt var um út-
varpsstöðina í Addis Abeba,
að stjórn Haile Selassie I í
Eþíópíu væri lokið. Við völd-
um hefði tekið ný stjóm, sem
vinna mundi að bagsmunum
þjóðarinnar. Keisarinn var
um það leyti í Suður Ameríku
í opinberci heimsókn. í fjar-
veru hans hafði lítill hópur
embættismanna, studdir af líf-
verði kei&arans og lögreglu-
liði höfuðborgarinnar, gert
uppreisn. Hinn vinsæli keisari
brá skjótt við og hélt heim
þrátt fyrir ískyggilegt útlit.
Kom þá enn í ljós, hve vinsæll
hann er með þjóð sinni og
hvers trapsts hann nýtur. Eins
og kunnugt er var uppreisnin
bæld niður á skömmum tíma.
Ekki er því að leyna, að við-
burðirnir fyrir ári hafa haft
mikla þýðingu fyrir þróun
mála í landinu. Það er aug-
ljóst að gagnrýni uppreishar-
stjórnarinnar fékk góðan
hljómgrunn meðal mennta-
manna og stúdentá og hefur
vakið almenning til umhugs-
unar. Keisarinn lofaði þjóð-
inni nýrri stjórnarskrá í ræðu,
sem hann hélt skömmu eftir
uppreisnina. Kosningar hafa
farið fram í landinu. Samiband
þings og stjórnar hefur verið
eflt. Róðherrum var gefið auk
ið vald og voru jafnframt gerð
ir ábyrgir gerða sinna gagn-
vart þjóðinni. Vart er hægt að
segja, að málfrelsi ríki í land-
inu, þótt svo sé að lögum.
En á síðasta ári hefur frels'
til gagnrýni á stjórn landsins
aukizt.
„Keisari Haile Selassie hef-
ur gert meira £ sinni 30 ára
stjórnartíð en fyrirennarar
hans um aldir. Hann varð
fyrstur af 225 konungum af
ætt Salomions, sem ríkt hafa í
landinu, til þess að gefa þjóð-
inni stjórnarskrá. Hann hefur
lagt aftur undir landið héruð,
sem hafa verið því glötuð um
langan tíma. Undir hans stjóm
hefur Ebíópía fengið aðgang
að sjó. Hann hefur beitt sér
fycir menntun þjóðarinnar.“
Þannig fórust einu dagblað-
anna í Addis Abeba orð.
Sagan mun geta 30 ára
stjórnartíma Haile Selassie,
sem stærsta spors, sem tekið
hefur verið til að færa mennt-
un þjóðarinnar í nútíma horf.
Merkilegum áfanga var náð í
sl. viku, þegar háskóli vgr
stofnaður í Addis Abeba.
„Þetta er söguleg stund fyr-
ir oss og fyrir Eþíópíu." Með
þessum orðum hóf Eþíópíu
keisara Haile Selassie I ávarp
sitt við stofnun Haile Selassie
I háskólans í Addis Abeba
hinn 18. desember sl. Athöfnin
fór fram við Guennete Leul
höllina, sem keisarinn þennan
dag gaf eþíópsku þjóðinni til
afnota fyrir háskólann. Keis-
arinn erfði höllina eftir föður
sinn Ras Makonnen. Aðalbygg
ingin var reist 1930, árið, sem
keisarinn var krýndur. „Sagt
er, að ftalir hafi ætlað Musso-
lini höllina, sem hvíldarheim-
ili, en með Guðs hjálp öðlaðst
Eþíópía frelsi sitt aftur,“ sagði
keisarinn. „Vér höfum lýst
því yfir áður, að vegurinn til
framfara byggist á menntun-
þjóðarinnar á breiðum grund-
velli. Vér höfum ákveðið að
gefa höll vora þessari og kom-
andi kynslóðum Bþíópíu, svo
að þær megi njóta góðs af
þeirri fræðslu, sem þar fer
fram.“ Höllin mun héðan í frá
bera nafn keisarans og verða
höfuðstöðvar Haile Selassie I
háskólans.
Snemma morguns fóru gest-
ir og nemendur að ganga til
sæta sinna á svæöinu i._man
við höllina. Á meðan lek
skrautbúin hljómsveit lífvarð
arins. Eftir að fylking háskóla
manna hafði gengið inn á
svæðið, gekk keisarinn fram
og settist í hásæti, sem komið
var fyrir á tröppum hallarinn
Formaður stúdentaráðs
flyiur ræðu.
ar. Eftir að patriark Bþíópíu
Abuna Basilios hafði lýst bless
un, afhenti hans hátign keis-
arinn háskólanum höll sína í
stuttri ræðu. Fjármálaráð-
herra Ato Yilma Deressa, sem
einnig er formaður stjórnar-
Framhald á bls. 16.
Joseph Gundry &
Stofnsett 1665
GUNDRy nælon slldarnæturnar
vaxa sífellt 'i áliti. Með notkun kraft-
blakkarinnar hefur enn betur
komið i Ijós nauðsyn á sterku og
endingargóðu nótaefni.
EGGERT GÍSLASON, SKIPSTJÓRI
Co. Ltd.
Aflaskipið Víðir II. með fullfermi úr GRUNDRY nót
í vetur notar Eggert Gíslason GUNDRY-
nót með enn stórkostlegri árangri.
sagði s.l. haust:
„Ég notaði GUNDRY smá-
riðna síldarnót við Suður-
landsveiði sl. haust, vetur og
vor. Nótinni kastaði ég yfir
400 sinnum og fiskaði í hana
48.600 tunnur á tímabilinu
1. okt. til 15. júní. Nótin
reyndist mjög vel, efnið lif-
andi, snart og mjög ending-
argott“.
GUNDRY verksmiðjurnar eru meðal fremstu brautryðjenda með
notkur gerviefna til netaframleiðslu. Eigin rannsóknarstofur og
spunaverksmiðjur tryggja jöfn t)g fyrsta flokks gæði.
GUNDRY nælon-netin standast allan samanburð. Mörg afla-
hæstu síldarskipin nota GUNDRY snurpunætur.
Getum enn bætt við takmörkuðum pöntunum á nótaefni fyrir
nætu sumarvertíð.
Aðalumboðsmenn:
Olafur Gislason & Co. hf.
Hafnarstræu 10—12 — Sími 18370 — Símnefni NET.