Morgunblaðið - 07.01.1962, Page 17
Sunnudagur 7. jan. 1962
MORGVNBLAÐIÐ
17
— Loftleiðir
Framhald af bls. 6.
auglýsum vitanlega í alls konar
sveita- og klíkublööum, t.d. í
Bandaríkjunum. En sumir eru
þannig gerðir, að þeir vilja ekki
ferðast með öðrum félögum en
þeim, sem auglýsa í Life og
hafa skrifstofu í Rockefeller
Center, og fyrir það blessað fólk
verður líka eitthvað að gera.
, , — Hvar auglýsið þið mest?
''’ — í Bandaríkjunum. Þaðan
fáum við meiri tekjur en ‘frá
nokkrum einum stað öðrum, og
þess vegna auglýsum við mest
þar. Náttúrlega mætti snúa
þessu við og segja: Við fáum
hlutfallslega mestar tekjur frá
Ameríku af því að við auglýs-
um þar mest, en það er nú
kannske að ofmetnast yfir gildi
auglýsinganna, og þess vegna
skulum við hafa það eins og ég
orðaði það fyrst.
— Hafið þið bein sambönd
við auglýsingaskrifstofur víðar
en í Bandaríkjunum?
— Já. Við höfum það. Þar að
auki höfum við okkar eigin
auglýsingaráðunauta sums stað-
ar í Evrópu, og er góð sam-
vinna með okkur. Bezti ljós-
myndarinn okkar er Svíi, sem
tekið hefur fyrir okkur margar
ágætar myndir, og einn fyndn-
asti og holdugasti kollega minn
er líka Svíi. Það er mikil veizla
að eiga með honum stund við
gott matborð, og sakar þá ekki
drykkuf.
Kjötsúpa í Hveragerði
— Þið bjóðið stundum hingað
ferðaskrifstofumönnum?
— Já. Árið sem leið komu
rúmlega 70 manns hingað frá
ferðaskrifstofum í boði Loft-
leiða, aðallega frá meginlandi
Evrópu, og núna fyrir vorið ger
um við ráð fyrir a.m.k. fimm
15 manna hópum. Erlendis gera
menn miklu meira af því en
hér að láta ferðaskrifstofur
skipuleggja ferðalög sín. Þess
vegna er það oft á valdi starfs-
manna ferðaskrifstofanna hvert
farið er, og fyrir því skiptir það
miklu máli að þeir minnist Loft
'leiða hlýlega þegar tækifærin
gefast til að leggja lóð á vogar-
skálina.
1 — Hvers vegna farið þið þá
ekki með þessa gesti alla leið
til Ameríku?
— Það er vegna þess að þeir
eru dekurbörn. Önnur flugfé-
lög þeyta þeim eftir hinum
troðnu ferðamannaslóðum og
halda þá vel í mat og drykk 1
Kairó, á Bermuda eða í Jó-
hannesarborg. Flestir, sem gaml
ir eru í hettunni hafa fyrir
löngu fengið nóg af því, en
margir þeirrá hafa aldrei til ís-
lands komið. Það ferðalag er
frábrugðið öllu, sem þeir eiga
að venjast, og ef vel tekst til
með sundlaugar, útreiðartúr
uppi í Mosfellssveit, blíðviðri á
Þórustöðum, goshver og kjöt-
súpu í Hveragerði, þá muna
þessir menn lengur og betur
eftir okkur en fylliríi í Holly-
wood, og þess vegna er þeim
peningum hyggilega varið, sem
goldnir eru vegna vel heppn-
aðrar Íslandsferðar.
— Er íslandsferð erlendra
ferðaskrifstofumanna hyggileg
fyrst og fremst vegna Ameríku-
flugs Loftleiða eða er hún mark
mið í sjálfu sér?
— Hvort tveggja. Loftleiðir
verða að auglýsa ísland af
tveim ástæðum. Það er nauð-
synlegt að gera fólki grein "fyr-
ir því, að hér sé hættulaust að
lenda á leið milli Ameríku og
Evrópu, og 1 öðru lagi trúum
við því, að ísland eigi mikla
framtíð sem ferðamannaland. 1
báðum tilfellum ætlum við nátt-
úrlega að hagnast, svo að þetta
er vitanlega ekki gert í guðs-
þakkarskyni, en því má ekki
gleyma, að mestur hluti þess
fjár, sem við verjum til aug-
lýsinga rennur á einn eða ann-
an hátt til íslenzkrar landkynn-
ingar almennt. Allar skrifstofur
félagsins halda uppi beinni ís-
lenzkri landkynningu með því
að dreifa bæklingum um ísland
og svara árlega hundruðum
bréfa, þar sem spurzt er fyrir
um eitthvað sem Island varðar,
en svo gerist þetta óbeint með
ýmsu móti. Ég skal nefna þér
dæmi:
Ísland var sá gullni lykill
— Við vorum 10 saman í
haust er leið í hálfs mánaðar
áróðursferð fyrir Loftleiðir vest
ur í Wisconsin. Við byrjuðum
ekki með því að segja: Nú ætl-
um við að vekja athygli ykkar
á ákaflega indælu flugfélagi,
sem Loftleiðir nefnist. Það býð-
ur upp á mjög lág fargjöld og
prýðilega fyrirgreiðslu. Fljúgið
með Loftleiðum.
— Nei, þetta datt okkur ekki
í hug. Við heilsuðum upp á út-
varps- og sjónvarpsmenn, rit-
stjóra blaða og aðra framámenn
og sögðust geta sagt þeim ýmis-
legt um Island að fornu og
nýju, og þegar við höfðum
gestaboð þá byrjuðum við með
því að sýna kvikmynd frá ís-
landi, og svara fyrirspurnum
um Leif heppna eða afstöðu ís-
lendinga til Atlantshafsbanda-
lagsins. Svo fórum við að gauka
einhverju að mönnum um Loft-
leiðir. En ísland var sá gullni
lykill, sem opnaði okkur allar
dyr. Það seldist nægjanlega mik
ið af Loftleiðafarmiðum meðan
við vorum þarna til þess að
borga ferðina, en sú íslenzka
landkynning, sem við höfðum
þarna uppi hefur vonandi líka
orðið til þess að auðveldara
verður að selja hraðfrystan
fisk frá íslandi en ella vestur í
þessu ágæta ríki, og þannig
styður þetta hvað annað, góð
kynni af Loftleiðum, verða líka
góð íslenzk landkynning og allt
sem jákvætt er hér að fomu og
nýju getur orðið til þess að
Loftleiðir eignist góða viðskipta-
vini.
Þýðingarlaust að auglýsa
vonda vöru
— Er áhugi útlendinga að
vakna á íslandi?
— Ég er sannfærður um að
þess verður ekki langt að bíða,
að ein af meginorsökum þess að
fólk vill fremur fara með Loft-
leiðum en öðrum flugfélögum
milli Ameríku og Evrópu verð-
ur sú, að hér. vilja menn fá að
eiga viðdvöl. Vitanlega kostar
það nokkra fjárfestingu, ekki
síður en annar atvinnurekstur,
en ég vildi fremur eiga gilt
hlutabréf í nýju gistihúsi á ís-
landi en flestum öðrum fyrir-
tækjum, að ég nú ekki tali um
ef það væri við einhvern af
hinum miklu heilsubrunnum
hveranna. Hér er nefnilega á-
gætt að vera, allan ársins hring.
Víða erlendis verða menn að
vera frostbólgnir flesta vetur og
kófsveittir öll sumur, en hér
getur maður byrjað alla ársins
daga með því að svamla í opn-
um sundlaugum og hressa sig í
morgunblænum. — Ég skal játa,
að mér finnst gaman að skreppa
til útlanda á vorin eða haustin,
en sumar og vetur er hvergi
betra en hér — og það eiga
túristarnir eftir að uppgötva.
— Hafið þið beint samband við
margar erlendar ferðaskrifstof-
ur?
— Þær skipta áreiðanlega þús-
undum. Eg hef enga hugmynd
um hve margar þær eru, en hitt
veit ég, að á vegum Loftleiða
starfa nú 12 sölumenn í Ameríku
og Evrópu, og er þeirra aðal-
starf að vera á sífelldu flakki
milli ferðaskrifstofanna, láta
þeim í té bæklinga og gefa upp-
lýsingar um starfsemi félagsins.
.— Nú eru starfsmenn Loftleiða
um 330 manns, þar af rúmlega
200 á íslandi og um 70 í Ame-
ríku. Auk þess hafa starfsmenn
umboðsfyrirtækja Loftleiða er-
lendis og viðhaldsliðið í Staf-
angri beinlínis framfærzlu af
starfsemi félagsins, og má því
segja að það sé nú allfjölmennur
hópur, sem Loftleiðir brauðfæða.
— Og telur þú að auglýsing-
Beriitz skóíinn tilkynnir
Innritun í tungumálanámskeiðin hafin.
Enska, þýzka, itaiska, spænska, franska.
8 manna hópar og minni einkaflofekar.
Innritun daglega frá kl. 2—7.
Berlitz skólinn
Brautaiholti 22 — Sími 1-29-46.
Stúlkur
Oss vantar stúlkur til starfa í frystihúsi voru í Sand-
gerði á komandi vetrarvertíð. Mikil vinna. Gott hús-
næði. — Upplýsingar í símum 7515 og 7518.
Utgerðarstöð Guðmundar Jónssonar
Rafnkelsstöðum.
Hraunprýði
heldur aðalfund þriðjudaginn 9 jan. kl. 8,30
í Sjálfstæðishúsinu.
Venjuleg aðalfundarstörf. Onnur mál.
Skemmtiatriði: Upplestur — Spurningaþáttur o. fl.
Konur eru hvattar til að mæta. STJÓRNIN.
arnar eigi ríkan þátt í því?
.— Já, það tel ég vitanlega. Auð
vitað verður einn áróðursstjóri
að trúa einhverju af því, sem
hann reynir að prakka inn á
aðra, en mér er þó ljóst, að ann-
ar þáttur er gildari. Við höfum
stundum beðið farþegana okk-
ar að svara ýmsum spurningum,
okkur til leiðbeiningar, t. d. um
hvað fyrst hafi vakið athygli
þeirra á félaginu og hvers vegna
þeir haifi svo valið það. Hlutur
auglýsinganna er þar allgóður,
einkum að því er varðar fyrri
hlutann, en þegar til þess kem-
ur að taka lokaákvörðunina, þá
verður það þyngst á metunum,
að einhver kunningi hefir vegna
góðrar reynslu mælt með félag-
inu. Og þannig verður það að
vera, ef vel á að fara. Það er þýð
ingarlaust að verja miklu fé til
þess að auglýsa vonda vöru, en
það er líka vonlaust að eiga góða
vöru, sem enginn veit að er á
boðstólum. Við reynum að gera
hvort tveggja kynna það sem
við höfum að bjoða og vanda
til þess.
IJtsala á skófatnaði
STÓRKOSTLEG ÚTSALA á skófatnaði hefst í fyrramálið
Kvenskófatnatiiir — Kuldaskór kvenna — Karimannaskór — Barnaskór
Mikil verðlœkkun — Notið þetta sérstœða tœkifœri
Skóbúð Austurbæjar Laugavegi 100