Morgunblaðið - 09.01.1962, Side 1

Morgunblaðið - 09.01.1962, Side 1
20 slður Ási^ling á Ermarsundi og HörmuEegt járnbrautarslys í Hollandi 28 farast í ásiglingu Dover, 8. jan. (NTB). BREZKT skip sigldi aðfaranótt mánudags á júgóslavneska skipið Sabac. Við áreksturinn brotnaði Sabac sundur og sökk á fúnm eða sex mínútum. Óttast er að 28 af áhöfn Sabac hafi farizt en fimm björguðust. 1 Svarta þoka var á er slysið vildi til. En skömmu seinna létti Iþokunni og fundust þá fimm menn á lífi í sjónum, þeirra á meðal skipstjórinn, 2. stýrimaður og yfirvélstjóri. Einnig fundust 17 lík. Ekki er talið að fleiri af áhöfn Sabac finnist lifandi. Sjór- inn er mjög kaldur og ekki tókst Júgóslövunum að koma út björg unarbátum. Litlar skemmdir urðu á brezka skipinu, Dorington Court, og komst það til hafnar án aðstoðar.^ Öttast aö yfir 100 manns hafi farizt Woerden, Hollandi, 8. jan. — (AP — NTB) — Al) minnsta kosti 93 manns biðu bana og 70 særðust í mesta járnbrautarslysi sem orðið hefur í Hollandi. Slysið varð á mánudagsmorgun er hraðlestin frá Rotterdam til Utrecht ók með 120 km. hraða á farþegalest frá Ut- recht, sem hafði numið stað- ar. Báðar lestirnar voru full- setnar, með samtals um 500 farþega. Margir hinna særðu eru illa meiddir og er óttast að dánartalan kunni enn að hækka. Við áreksturinn hlóðust níu vagnar hver ofan á og inn í annan en ultu síðan niður þriggja metra uppfyllingu. Urðu björg- unarmenn að nota logsuðutæki til að komast að farþegunum. ÞOKA Mjög mikil þoka var er slysið vildi til, skyggni aðeins 20 metr ar, en ekki er vitað um orsök þess. Báðir lestarstjórarnir fór- ust og torveldar það mjög rann- sókn slyssins. Mjög mikil um- ferð er á þessari braut og fara þarna daglega um 100 farþega- lestir auk hraðlesta og flutn- ingalesta. Sjálfvirkt merkja- kerfi stjómar umferðinni. Talið er að brautin verði lokuð í tvo' daga vegna viðgerða. Vegna þokunnar sáu íbúar nærliggjandi húsa ekki slysið. En hávaðinn af árekstrinum heyrðist víða og héldu flestir, sem til heyrðu, að flugvél hefði hrapað. ÞEIM VARÐ EKKI BJARGAÐ Meðal þeirra, sem björguðust, var nítján ára hermaður. Voru föt hans öll sundurtætt og blóði drifin. Skýrði hann frá því að Frh. á bls. 19 ISTÓRU jakarnir sem berastf<s>=- hingað norðan úr höfum eru ;ógnvaldar fyrir sjófarendur,' en þeir eru mikilúðlegir og > fagrir á að líta, þar sem þeir i koma siglandi þessir hvitu risar með græna slikju á ís-, i brúnunum. Síðustu daga 1 gamla ársins voru aðvaranir til sjófarenda um borgarísjaka á siglingaleiðum tíðar. Þá var þessi mynd tekin af Land-< helgisgæzlunni út af Vestfjörð um. Barðinn sést í baksýn. Jakinn mældist 814 m upp úr sjó, og telst ekki hár, því Íjakarnir voru þá upp undir 22 m á hæð. Molotov aftur til Vínarborgar Engar skýringar gefnar í Moskvu Togarasölur erlendis MAÍ í Þýzkal. 95 lestir fyrir 98 þús. mörk og er það hæsta meðal verð, sem ísl. togari hefir fengið fyrir afla sinn í Þýzkal. í Bretlandi Þorsteinn Ingólfs- son 171 lest fyrir 9815 pund, Geir 205 lestir fyrir 11,864. Tilræði við Sukarno Makassar, Celebes, 8. jan. (NTB-AP): Á SUNNUDAG var gerð tilraun til að ráða Sukarno forseta Indó- nesíu af dögum í Makassar á Suður-Celebes. Sprengja sprakk um 100 metrum fyrir aftan bif- reið hans og fórust þrír menn í sprengingunni en 28 særðust. Hef ur f jöldi manns verið handtekinn í sambandi við tilræðið. Sukarno var væntanlegur aftur til Jakarta á mánudagskvöld eftir ferðalag um Indónesíu. Sagði hann eftir árásina að það væru hollenzkir njósnarar, sem staðið hefðu fyrir henni. En til skamms tíma hefur verið mikið um óeirð ir í nágrenni Makassar. Að þeim óeirðum stóðu aðallega öfgamenn úr hópi Múhammedstrúarmanna (Darul Islam), sem vilja koma á fót trúarríki í Indónesíu í stað frihyggjuríkis Sukarnos. Ekki er ósennilegt að þessir öfgEimenn hafi, átt nokkurn þátt í árásinni. Moskvu, 8. jan. — (AP) — UTANRÍKISRÁÐUNEYTI Sovétríkjanna tilkynnti í dag að Molotov fyrrverandi utan ríkisráðherra væri nú á leið til Vínar að taka þar aftur við stöðu sinni hjá Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni. — En Molotov hélt heim til Moskvu frá Vín hinn 12. nóv. sl. eftir að hafa sætt harðri gagnrýni á 22. flokks- þingi kommúnista í Moskvu fyrir Stalínisma. ALDREI REKINN Talsmaður utanríkisráðuneyt- isins sagði við blaðamenn að hann vissi ekkert um stöðu Molotovs í kommúnistaflokkn- um en bætti við: Molotov hefur aldrei verið rekinn úr stöðu sinni hjá kjarnorkumálastofnun inni og er nú að nýju á leið þangað. Sagði fulltrúinn að Molotov hefði lagt af stað frá Moskvu á laugardag og ætti því að koma til Vínar á þriðjudags- morgun. I FYRSTA SINN Tilkynningin um för Molotovs til Vínar hefur vakið talsverða furðu. Ekki er vitað til þess að Molotov hafi verið rekinn úr kommúnistaflokknum og velta menn því nú fyrir sér hann hafi getað komið fyrir tilraunir Krúsjeffs átt. Þetta er í fyrsta sinn Molotov unni sem nokkuð þessu líkt hef- ur komið fyrir í Sovétríkjun- um. Venjulega er mönnum, sem verða fyrir jafn alvarlegum á- sökunum og Molotov, ekki leyft að fara úr landi. Eftir árásirnar á flokksþing- inu töldu flestir erlendir full- trúar í Moskvu að Molotov yrði vikið úr embætti og hann vænt- anlega sendur aftur í útlegð til Síberíu. Hann hefur ekki sézt opinberlega í Moskvu eftir kom- una þangað í nóvember. Blöðin Frh. á bls. 19

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.