Morgunblaðið - 09.01.1962, Page 11

Morgunblaðið - 09.01.1962, Page 11
Þriðjudag'ur 9. janúar 1962 MORGVNBL ÁÐ1Ð 11 Ásgeir Þorsteinsson, verkfræðingur Tæknimenntun VHD ATŒÍUGXJN á tæknifræði- legum rannsóknarstörfum í land- inu, sem fór fram á vegum rann- sóknarráðs rlkisins árið 1957, toom það í ljós, að innan hóps rannsóiknamanna var fjöldi há- skólamenntaðra manna allsæmi- legur, eftir ástæðum landsins í tæknilegum rannsóknum, en á (hinn hóginn var eyða í starfs- liðið, sem í öðrum löndum er fyllt í með fólki á lægra tækni- xnenntunarstigi. Þessi ^yða var að vísu áður tounn hér á landi, en ekki fyrr skýrð með óyggjandi tölum. Síðan þetta gerðist hafa marg- ir orðið til þess að ítreka þessa staðreynd, og færa hana yfir á fleiri svið en rannsóknastörfin. Áður en lengra er haldið er rétt að gefa nánari skýringu á iþví, um hvaða tækiiimenntunar- stig er að ræða. Fyrir 25 árum var engin skU- greining í lögum hér á landi um (hin ýmsu stig tæknimenntanar. Iðnaðarmenn voru að vísu skil- greindir, enda var hér á landi stofnaður iðnskóli upp úr síð- ustu aldamótum. En þar með var allt talið. Árið 1937 voru sett lög um rétt manna til að kalla sig verk- fræðinga, húsameistara eða iðn- fræðinga. Til þess þurfti leyfi ráðherra, og skilyrðin voru þau, að hafa lokið fullnaðarprófi við ’tækni'háskóla fyrir verkfræðinga, listaháskóla fyrir húsameistara eða tekniskan framhaldsskóla í einhverri iðngrein, fyrir iðn- fræðinga. Iðnfræðingar samkvæmt nefnd «m lögum eru að vísu ekki há- skólamenntaðir, en þurfa þó að tooma frá viðurkenndum tækni- skólum (miðskólum). Hér á landi er nú allstór hópur slíkra manna. >eir hafa upp á síðkastið toosið að kalla sig fremur tækni- fræðinga en iðnfræðinga. >að er ekki um auðugan garð að gresja í tæknifræðinámi hér é landi. Er því fljótt farið yfir sögu að rekja eftir hvaða leiðum unglingar geta helgað sig slíku rámi. Sem kunnugt er, er skóla- skylda barna- og unglinga alls 8 ár í kaupstöðum. Sjö ára barn fer í fyrsta bekk barnaskóla, lýkur barnaskóla- prófi 13 ára og skyldunámi 15 éra, eftir tvö ár í unglingaskóla. Eftir það tekur við frjálst nám nemandans. Framhaldsnám úr unglinga- skólanum fer fram í þriðja bekk gagnfræðaskóla. Þaðan má halda í iðnskóla og hafi verið tekið fullgilt landspróf þriðja bekkj- ar eru dyrnar opnar inn í mennta skóla. Auk hins bóklega gagnfræða- stigs er verknám þess, sem eru þriðji og fjórði bekkur, eins og bóknámið Iðnaðarnám er fjögurra ára verkstæðisnám og iðnskóli þar inn í falinn, sem er fjögur átta vikna námskeið. Inðskólapróf veitir rétt til sveinsprófs í iðn, en auk þess inngöngu i vélskóla. í menntaskólanum í stærð- fræðideild fer fram fyrsta und- irstöðufræðslan undir tækni- fræðinám við tækniháskóla. Stúdentspróf úr stærðfræðideild veitir rétt til inngöngu í verk- iræðideild háskólans hér, en þar líkur námi í undirstöðufræðum undir tækniháskóla erlendis, svo nefndu fyrri hluta námi fyrir véla-, rafmagns- og bygginga- verkfræðinga. >ar með er sagan öll, og þó ekki alveg. Vélskólapróf mun tekið gilt til ’ inngöngu í ýmsa tæknimiðskóla erlendis. En þar gem vélskóli er þriggja ára nám, auk iðnaðarnámsins, er þetta löng lyktoja á leiðinni, því nem- andi með prófi úr verkfræði- deild háskólans, fyrri hluta prófi og annar úr vélskólanum í Reykjavík, hafa verið jafnlengi á leiðinni, með eðlilegu námi. Það er því Ijóst, að vélskólanám hentar ekki sem undirbúnings- nám undir tæknifræðiskóla. En um aðra skóla í landinu er ekki að ræða. Hins vegar eru mörg störf hér á landi tæknifræðilegs eðlis, önnur en vélgæzla, sem vélstjórar geta fljótt sett sig inn í, t. d. margv.'sleg verkstjóra- störf, og hafa vélstjórar þvi gerzt verkstjórar víða á verkstæðum og vinnustöðum. En það hentar ekki vel á sviði þeirrar iðju, sem fæst við matvælafram- leiðslu. Það er því á þessu sviði, í mat- vælaframleiðslu úr síld og öðr- um fiski, sláturafurðum og mjólk sem eyðan í tæknifræðilegu til- liti er mest og alvarlegust hér, auk þeirrar eyðu. sem áður var getið um, í sambandi við aðstoð- arfólk rannsóknarstofnananna. Eg mun taka þennan þráð upp síðar, en langar fyrst að fara nokkrum fleiri orðum um gagn- fræðanámið. Til fróðleiks hef ég athugað lauslega námsferil ungl- inga, eftir að skyldunáminu er lokið. Haustið 1957 voru í síðasta bekk skyldunámsins alls 1009 nemendur í Reykjavík. Af þess- um hópi hættu námi 176, en 833 voru í miðskóla 1958. Afföll því um 16%. Miðskólahópurinn tvístraðist að loknu prófi í iðn- skóla, kennaraskóla eða mennta- skóla, en í fjórða bekk gagn- fræðaskólans urðu eftir 441, þar af í kvennaskóla 43. verknáms- skóla 175 og 223 aðallega í bók- námi. Fyrir þennan hóp var ekki um neitt ákveðið framhaldsnám að ræða, hvorki innan lands né utan. Þé hefi ég gert svipaða athug- uh á ferli landsprófsfólksins í Menntaskóla Reykjavíkur, sem veitir þeim viðtöku í þriðja bekk, en hann er neðsti bekkur skólans, sameiginlegur fyrir alla nemendur. Skólaárið 1957—58 sátu í upp- hafi í þriðju bekkjum Mennta- skólans í Reykjavík alls 157 nemendur. Næsta ár voru í fjórða bekkjum aðeins 125 og 1959 í fimmtu bekkjum 101. En skólaárið 1960—61 voru í sjöttu bekkjum 97 nemendur, þar af í stærðfræðideild 48 nemend- ur eða aðeins um 30% af þeim, sem voru í þriðja bekk 1957. Svo fáir höfnuðu í raunfræðunum. Sé nú dregið saman hið helzta úr þessum upplýsingum um skólakerfin, verður reyndin sú, að engin undirstöðufræðsla und- ir tæknifræðinám innan lands eða utan er á boðstólum önnur en sú, sem fram fer í stærðfræði- deildum menntaskólanna. Stærðfræðideild Menntaskól- ans í Reykjavík er elzt og var stofnuð 1919. Fram að þeim tíma var í rauninni kjarni fræðslu- kerfisins óbreyttur frá 1907, og í unglingafræðslunni er kerfið óbreytt að mestu þann dag í dag. Það getur því naumast komið nokkrum á óvart, þótt fræðslu- kerfið sé farið að stinga óþægi- lega í stúf við þjóðlífið, eins og það er í dag, eftir allar hinar miklu tæknilegu framfarir á öll- um sviðum atvinnulífáins. Það gefur því auga leið, að ef vér ætlum að bæta tæknimennt- unina al-mennt í landinu, verður unglingafræðslan fyrst fyrir oss. Ef fram hjá henni er gengið, og reynt að skjóta inn tæknifræðslu að henni lokinni, eins og hún er óbreytt í dag, verður árangur- inn í líkingu við það, áð hús sé reist á fáeinum staurum, í stað heilsteyptrar undirstöðu. Eg veit ekki, hvort yður er eins farið og mér með það, að mér finnst gæta oft fáfræðilegra viðbragða almennt í landinu, þegar fregnir berast um ýmsar tæknil-egar upplýsingar eða nýj- ungar erlendis frá. Það er eins og undur hafi gerst, í hugum okkar fólks, þegar aðrar þjóðir láta lítið yfir sér. Þetta stafar ekiki af því, að íslendingar séu heimskari en aðrar þjóðir í merk ingunni tornæmari, heldur 1 hinni gömlu merkingu orðsins, fáfróðari. Og á þessu á fræðslu- kerfi vort alvarlega sök. Eg skal leitast við að skýra þetta nánar og mun byrja á því að telja upp þau fræði, sem ' kennd eru á síðari hluta hins bóklega gagnftæðanáms, í þriðja og fjórða bekk, teknum saman. Fyrst eru tungumálin, íslenzka danska og enska, alls 28 stundir á viku; þá saga, náttúrufræði, landafræði, heilsufræði, félags- fræði og bókfærsla, alls 19 stundir; handavinn-a, söngur, teikning og leikfimi, alls 14 stundir; reikningur alls 9 stund- ir, samtals eru þetta 70 stundir á viku í báðum bekkjum. Þar af reikningur aðeins 9, en engin eðl isfræði. Engin fræðsla er heldur um atvinnu/vegi 1-andsins. Sé næst teknir sam-an þriðji bekkur landsprófsskóla og þriðji bekkur i menntaskóla, verður myndin þessi: Tungumálin alls 32 stundir, að 4 stundum í þýzku meðtöldum; saga, landafræði náttúru-fræði, bókfærsla. alls 12 stundir í stað 19; handavinna, teikning, leik- fimi, söngur, alls 8 stundir í stað 9; reikningur, eðlis- og efna fræði 19 stundir í stað 9; sam- tals 71 stund. Hér eru vikutímar í undir- stöðufræðum undir tæknifræði- nám að vísu 10 stundum fleiri, en engin fræðsla er um atvinnu- vegina. Fyrsta verkið, sem ég tel að þurfi að vinna hér á landi, er að bæta ástandið 1 gagnfræða- náminu. Auka þarf nám í raun- fræðum, en það nafn vil ég gefa reikningi, stærðfræði, eðlis- og efnafræði sameiginlega. Er nafnið hliðstætt raunvis- indum, sem er lok-astig tækni- fræðinámsins. En samtímis þarf að bæta við fræðslu um atvinnuvegi lands- ins, sem ég ætla að kalla at- vinnufræði. Það þarf að skýra atvinnu- greinina í skipulögðum erind- u-m, er segja frá öllum þáttum hverrar atvinnugreinar, svo að ljóst verði, hvaða raunfræði komi þar helst við mál. Taki maður sjávarútveginn sem dæmi yrði fyrst fyrir stutt saga hans, lýsing fisktegunda, skipa og véla, og veiðitækja á sjó og í vötnum, tegundir afla, og þar fram eftir götunum. Þar á heima sú landafræði, sem varðar ströndina og miðin og náttúru- fræði fiska og annarra sjávar- dýra. Á sama hátt þarf að fara með landbúnað, hverju nafni sem nefnist. eins orkustöðvar og efna verksmiðjur 1 landinu og allan Heilu línurnar tákna fræðslukerfið í dag. B ba rnaskólapróf, S skyldunámslok, L landspróf, GV gagnfræðapróf verknáms, I iðnaðarnámslok, V vélskólapróf, SM stúdentspróf stærðfræðideild- ar, HÍ verkfræðipróf, fyrri hluti. Tvöföldu stu tt-línurnar sýna aðaltillögu. GR gagnfræðapróf raunfræða, VERK verknám í iðnaði, N námskeið (verkstjóra. — Einföldu stuttlínurnar tákna framhaldstillögu. (U) raunfræði í unglingaskóla, (M) inntökupróf í stærðfræðideild. (IF) stytzta framhaldsnáim (iðnfræðingar), (TF) lengsta framhaldsnám (tæknifræðingar). Ásgeir Þorsteinsson. iðnað annan, svo sem mál-m-, plast- og byggingaiðnað. Þessa fræðslu má byrja með fyrirlestrum, unz bækur hafa verið samdar. Stíla þarf að gera á íslenzku og erL tungumálum, svo og teikningar. Unglingar frá skyldunámi ættu að geta valið um hvort þeir aðhylltust gagn- fræðanám hugfræða, en það vil ég kalla bóknámið, eins og það er nú, eða raunfræða, hið nýja nám. En gagnfræðaskólar verknáms ins héldust vitaskuld óbreyttir. Kem ég þá að bráðabirgðatil- lögu um gagn-fræðanám raun- fræða, þriðja og fjórða bekk saman: oLundir á viku Tungumál, með þýzku .... 32 Teikning, leikfimi og kennsla um mannslíkamann ........... 9 Reikningur, eðlis- og efna- fræði, eða raunfræði ...... 22 Atvinnufræði ............... 8 Samtals 71 stund á viku í báð- um bekkjum. Atvinnufræðin kemur í stað sögu landafræði og náttúrufræði, enda felast landafræði, jurta- og dýrafræði í atviniiufræðinni Teikning yrði meiri en í menntaskólanáminu tungumál eins, en raunfræði 22, stundir í stað 19. Hver er nú í aðalatriðum til- gangurinn með þessari námstil- högun? Þeim, sem ekki hyggja á frek- ara bóklegt nám, að sinni að minnsta kosti verður hægara um vik að átta sig á þeim tækifær- um sem atvinnulífið hefur upp á að bjóða Þeir hafa kynnst raun fræðum nægilega ve] til þess að renna grun í, hvort þar sé fram- haldsins að leita og í hvaða grein um. Þeir hafa fengið eins góða tungumálaundirstöðu og völ er á í öðrum skólum á sama tíma Verði nú lagt út í starf í ein- hverjum þeim gr., sem ekki eru sveinsprófsgreinar í iðnaði, því þær er áður búið að skipuleggja, þarf að vera til í landinu sá möguleiki að unglingar frá gagn fræðanámi raunfræða, sem hafa starfað í hæfilegan tíma í iðnaði, segjum fiskfrystingu, sildarsölt- un, niðurlangingu síldar, niður- suðu matvæla, mjólkurvinnslu og við mjólkurafurðir, í máln- ingar- eða feitiiðnaði, plastiðju o. s. frv., geti tekið upp þráðinn á ný, og menntað sig til bess að verða verkstjórar í einhverri þessara sérstöku greina. Hvað þarf þá til slíkrar viðbótar- fræðslu? Verkstjórastarfið nefni ég vegna þess að það er eitt þýð- ingar- og ábyrgðarmesta starf hvers iðnaðar eða iðju, sem allt getur beinlínis oltið á. Það þarf að vera hægt að halda námskeið fyrir verkstjóra í all- mörgum greinum, sem eru að sumu leyti skyldar hver annari, en að öðru leyti mjög frábrugðn ar. Slík námskeið eru kjarninn f því tæknifræðinámi, sem mest vanhagar um á íslandi í dag. Það verður tæplega hægt að hafa hvert námskeið árlega i nokk- urri grein til að byrja með, held- ur haldin þegar hæfilega margir Framh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.