Morgunblaðið - 09.01.1962, Side 13
Þriðjudagur 9. janúar 1962
MORGUNBLAÐIÐ
13
Halldór J. Jónsson
simamaður
í ÞANN MUND er við sam-
starfsmenn Halidórs, vorum að
undirbúa okkur að kveðja líð-
andi ár, og fagna hinu nýja, bár-
ust okkur þau tíðindi að hann
hefði látizt þá að morgni 31.
desember s.l.
dulin hvert stefndi, bá setur
mann hljóðan við helfregnina,
og sættir sig ekki í svipinn við
það, að náinn samstarfsmaður í
yfir tvo áratugi, skuli vera horf-
inn af sjónarsviðinu á bezta
aldri. Þegar við íhugum öll þá
toaráttu sem við stöndum í, svo
að segja daglega. fyrir bættum
kjörum og auknum lífsþægind-
um með hávaða og heitum orð-
um, hlýtur okkur að finnast það
óendanlegir smámunir, þegar við
stöndum andspænis siíkri bar-
áttu og hér var háð hin síðustu
missiri — hljóðalaust.
Halldór Jón Jónsson var fædd
ur að Lamibhúsum á Akranesi 16.
október 1906. Foreldrar hans
voru Jón Halldórsson útvegs-
bóndi og kona hans Jónína Jóns-
— Minning
J dóttir. Ólst Ha ldór upp í for-
eldrahúsum þar til hann lagði
leið sina til Reykjavíkur og inn-
ritaðist í Verzlunarskólann, en
þaðan lauk hann burtfararprófi
1927. Eftir það hélt hann aftur
heim á Akranes, 6g stundaði
þar verzlun í nokkur ár, eða þar
til hann fluttist alfarinn til
Reykjavíkur, og gerðist skömmu
síðar starfsmaður við skeytaút-
sendinguna á Ritsímanum, þar
sem har(n starfa 'i alla tíð.
Halldór var frekar hlédrægur,
en vel greindur, og dagfarslega
prúður, og var því gott að hafa
við hann samvinnu. Hann var
fastur fyrir í skoðunum sínum,
á mönnum og málefnum, sem
hann þó flíkac, al.'rei, enda átti
hann aldrei í útistöðum við
neinn, en öllum var frekar vel
til hans. Síðustu tvö árin átti
hann við mikla vanheilsu að
striða, og eftir mikla skurðað-
gerð náði hann sér aldrei, þótt
hann byrjaði aftur að vinna,
enda duldist engum, að kraftar
hans roru á þrotum.
í dag kveðjum við Halldór og
þökkum honum samstarfið, en
geymum minninguna um góð'an
dreng. Aðstandendum sendum
við innilega hluttekningu.
I. E.
Óskum eítir að ráða
mann 25-30 ára
i fasta vinnu
Til greina kemur aðeins reglusamur snyrtilegur
maður. Þarf að hafa bílpróf. — Fyrirspurnum ekki
svarað í síma.
K,olsýruhleðslari S.f.
Seljavegi 12
Atvinna
Stúlka með stúdentspróf úr Verzlunarskóla íslands,
óskar eftir góðri atvinnu strax. Er vön skrifstofu-
störfum og hefur mjög góða kunnáttu-í ensku. Tilboð
sendist afgr. Mbl. íyrir 14. þ.m. merkt: „7412—210“
Skrifstofumaður
Stórt iðnaðarfyrirtæki óskar eftir að ráða ungan
skrifstofumann nú þegar. — Verzlunarskólapróf eða
önnur hliðstæð menntun nauðsynleg. — Umsóknir
merktar: „Framtiðarstarf — 209“, sendist afgr.
Mbl. fyrir 13. þ.m.
Hálf milljón króna vlnn'tngur í boði
í hverjum mánuði og auk þess
margir tugúr annarra stórvinnínga
Umboð í Reykjavík og nágrenni:
Reykjavík:
Vesturver, Aðalstræti 6
Grettisgötu 26
Halldóra ólafsdóttir
I
Laugavegur 74, Verzl. Roði
Hreyfilsbúðin, Hlemmtorgi
ÞÚSUND VINNINGAR Á MÁNUÐI AÐ MEÐALTALI
Söluturninn við Hálogaland
Kópavogur:
HEILDARFJÁRHÆÐ VINNINGA HEFIR HÆKKAÐ UM NÆRFETÆ 5 MILLJÓN
KRÓNUR Á ÞESSU ÁRI. KYNNIÐ YÐUR SKRÁ UM VINNINGA í UMBOÐUNUM
Ólafur Jóhannsson,
Vallargerði 34
Sigurjón Davíðsson,
Allra síðustu forvöð að kaupa og endurnýja
Verzl. Mörk. Álfhólsvegi 34
Haf nar f j örður:
Dregið á morgun
Fél Berklavörn, afgr.
Sjúkrasaml. Hafnarfjarðar