Morgunblaðið - 09.01.1962, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.01.1962, Blaðsíða 20
Fréttasímar Mbl. — eftir lokun — fnnlendat fréttir: 2-24-84 Erlendar fréttir: 2-24-85 6. tbl. — Þriðjudagur 9. janúar 1962 INDONESÍA Sjá bls. 10 Vindhviður tóku bíl á loft, köstuðu honum 6 m. af vegi VESTMANNAEYJUM, 8. jan. — Á þrettándanum sl. laugardag gerði ofsarok af suðaustri og magnaðist þá mjög mikið brim. Var veðrið verst um morguninn, en lygndi upp úr hádeginn. Var komið sæmilegt veður seinni hluta dags, svc skátar og félagar úr knattspyrnufélaginu Tý, er voru búnir að aflýsa hinni ár- legu blysför sinni um kvöldið, gátu haft hana. Hefur veðurhæð- in vafalaust verið 12 vindstig með an verst var og meira í hviðun um. Fyrir hádegið, þegar rokið var mest, var Magnús Magnússon, símstöðvarstjóri, á leið út í Sæ- fell í Volkswagenbifreið, til að sinna skyldustörfum sínum í fjar- skiptastöðinni. Skaspur vind- strengur lá milli Snæfells Og Helgafells. Þegar Magnús kom þangað varð hann var við að bíllinn var tekinn að hreyfast til á veginum og sá að pollarnir þurrkuðust alveg upp í vindhvið unum. Hann var að beygja upp að fjarskiptastöðinni og að hugsa um að snúa við, þegar allt í einu kom vindhviða, er svipti bílnum upp í loftið Og 6 m. út fyrir veginn, en þar kom hann niður á hjólin. Þá tók hann annar svipur bíllinn á loft og skellti honum niður á hliðina. Magnús slapp ómeiddur, en bíllinn er nokkuð mikið skemmd- ur. ■— Bj. Guðm. Sj fleygð ormn i ufsa á •'ryggju upp SANDGERÐI, 8. jan. — Að- faranótt sunnudagsins var hér brim. Gekk sjórinn langit upp á bryggju. I bryggjuna hafal myndast nakkrar diældir, Þær fylltust af sjó um nóttina og' daginn eftir synti í lónunum* smiáufsi, sem skolazt hafði upp á bryggjuna með sjónum. Tveir bátar, Stefán Þór og Guðmundur Þórðarson, sem lágu við bryggjuna og brotn- uðu lítilsháttar — P. P. BRIMAR Á STOKKSEYRI _ STOKKSEYRI, 8. jan. — Á sunnudaginn var hér milkið brim, með því mesta sem hér, gerist. Gekk sjórinn alveg uj))» að görðum. Engar skemmdir, urðu. Bátarnir eru að búa sig, á vertíð Og allir í landi. — ÁG Sementstankar og bryggja í Artúnshöfða Á SÍÐASTA bæjarráðsfundi var samþykkt að gefa' Sementsverk- smiðju ríkisins kost á landi í Ár- túnshöfða undir sementsgeyma. Mbl. spurði dr. Jón Vestdal, verksmiðjustjóra, um hvaða framkvæmdir væru fyrirhugaðar þarna. Jón sagði að frá upphafi hefði Sementsverksmiðjan haft augastað á þessu landi, yzt á Ártúnshöfða, þeim megin sem snýr að Reykjavík, í þeim til- gangi að reisa þar geyma undir sement. Hefðu verið gerðar athuganir á því og komist að raun um að hægt er að gera þarna bryggju og koma skipum að höfðanum. Væri gert ráð fyrir því að byggja þarna geyma, er tækju 3 þús. lestir af sementi hver. Sementið yrði þá flutt ópakkað frá Akra- nesi og dælt úr skipi upp í geymana. Þaðan. yrði svo af- greitt sement laust til neytenda og pakkað þvi sem pakka þyrfti. Þessi háttur á sementssölu er al- gengastur erlendis, þar sem meira en helmingur sements er flutt til neytenda ópakkað í þar til gerðum tankibílum. Með þessu móti sparast um- búðir, en þær kosta 50—60 kr. á hvert tonn, að því er Jón sagði og auk þess er sementið miklu auðveldara í meðförum, þegar það er flutt þannig með lofti í stað handafls. Jón sagði að nú stæði til að gera endanlegar teikningar og áætlun um mannvirkjagerð, en það yrði ekki til fyrr en ein- hvern tíma í sumar. Undirbúning að byggingum annast Almenna byggingarfélagið, en um annað sér F. L. Smidth, er sá um vélar Síidaraflinn kominn upp í 750 þús. tunnur Sl. laugardag voru komnar á land 749.989 uppmældar tunnur af síld á síldveiðunum við Suð- vesturland. Mest hefur borizt á land í Reykjavík, 219.727 tunnur, á Akranesi 141.453 tunnur, í Keflavík 137.749. Til Hafnarfjarð ar hafa komið 94.708 tunnur, og Sandgerðis 46.736 tunnur. Af bátunum hefur Víðir II úr Garði mestan afla, eða 22.564 tunnur. þá Höfrungur II frá Akranesi með 20.228 tunnur. 28 aðrir bátar hafa fengið yfir 10 þús tunnur. Þeir eru: Anna, Siglufirði......... 12 642 Arnfirðingur II, Rvík .. 13,067 Árni Geir, Keflavík .... 13.178 Auðunn, Hafnarfirði .. 10.415 Bergvík, Keflavík .. .. 16.105 Björn Jónsson, Reykjavík 16.517 Eldborg, Hafnarfirði ., 11.491 I k Guðbjörg, Sandgerði Guðm. Þórðarson, Rvík Halldór Jónsson, Ólafsvík Haraldur,Akranesi .. Héðinn, Húsavík .. Helga, Reykjavík .. Hilmir, Keflavík .... Hrafn Sveinbjarnarss Grindavík......... Ingiber Ólafss., Keflav Jón Garðar, Garði Leifur Eiríksson, Rvík Manni, Keflavík .. ✓ . Pétur Sigurðss., Rvík Rifsnes, Reykjavík .. Sigrún, Akranesi Sigurður, Akranesi .. Skírnir, Akranesi .. Stapafell, Ólafsvík .. Steinunn, Ólafsvík .. Þorbjörn, Grindavík Þórkatla, Grindavík 11.941 14.099 16.458 13,041 10.771 11.224 12.982 10.025 13.881 10.342 10.658 12 010 15.232 10.990 12.821 14.900 12.116 11.805 13.405 14.148 14.246 í Sementsverksmiðjuna. Fé til þessara framkvæmda er ekki enn fyrir hendi, en Jón sagði að haf- izt yrði handa strax og það fengist. Höínin slædd ón órangurs ENN HEFUR ekkert spurzt til sjómannsins Hilmars Guðmanns sonar, er týndigt í Bremerhaven af togaranum Frey. Þann 5. jan. kom Skeyti til útgerðarinnar frá þýziku lögreglunni þess efnis að daginn áður hefði höfnin verið slædd, en án árangurs. Iwmm Súkarnó Indónesíuforseti flytur ræðu á fjöldafundi — en hanr* hefir flutt ræður næstum daglega að undanförnu á eyjunnl Celebes. — Þaðan segir hann, að innrásin verði gerð á Hol- lenzku Nýju Guineu. Á bak við Súkarnó, sem sést ógreini- lega neðst til vinstri á myndinni, er risastórt spjald með myná af honum — og minna stellingar hans á myndinni óneitanlega á tilburði annars illræmdasta einræðisherra allra tínra, Adolfs Hitlers. — Sjá „Utan ú? heimi“ á bls. 10, þar sem segir lítillega frá hinum frumstæðu Papúum á Nýju Guineu. Geysiíegt sog i Vestmanneyjahöfn: Goðafoss siitnaði frá og skemmdi tvo báta VESTMANNAEYJUM, 8. jan. — í gær hvessti hér á suðvestan (eftir nokkurt hlé frá því í SA- veðrinu í fyrradag) og komst rokið upp í 8 vindstig. Myndaðist geysilegt brim. Segjast menn aldrei hafa séð annað eins. T.d. sá ég að sjórinn gekk alveg upp í grös í Bjarnarey og flug- val'larstjórinn, Skarphéðinn Vil- mundarson, sem var á vakt í flug turninum og hafði þaðan góða yfirsýn, kveðst aldrei muna eftir öðru eins brimi, en hann hefur verið hér frá því flugsamgöngur hófust.. í þetta brim myndaðist gífur- legt sog í höfninni, enda mjög há- streymt. Er talið að munurinn í sogunum hafi verið upp undir 2 m. Sogaðist sjórinn inn og út, eins og fljót. Goðafoss féll 2 metra. Goðafoss var kominn hingað, til að lesta fisk. í mestu sogun- um um hádegisbilið sleit hann af sér afturvírana. í því sogaðist út/ úr Friðarhöfninni og lækkaði skipið því allt í einu um 2 m. Við það kubbuðust sundur fram vírarnir. Sogið reif skipið þá með sér út á miðja höfn. Þó Goðafoss hefði bæði fram- og afturakkeri úti og væri með vélina í gangi, réðist ekki við neitt. Svo gífur- le,gt var sogið. Goðafoss rak þannig um höfn- ina og í einu soginu rak hann suður undir Básaskersbryggju, þar sem hann lenti á mótorbátn- um Ófeigi og dældaði hann. Fyr- ir innan Ófeig, em er stálbátur, lá mótorbáturinn Sídon við bryggju. Við höggin frá Goða- fossi þrýsti Ófeigur svo að Sídoni, sem er tréskip, að hann brotnaði verulega. Brotnuðu í honum ein- ar 8 „stunnur", skjólborð o. fl. og dekkið laskaðist. Eru skemmd irnar ekki fulJrannsakaðar, en víst er að viðgerð á bátnum tekur 8—10 daga. Báturinn var tilbú- inn á veiðar og mannskapurinn skráður á hann, en nú missir hann róðra. Meðan á þessu gekk, fór Lóðs- inn út og einnig báturinn Stíg- andí og tókst að ná Goðafossi aft- ur að bryggju. Er vandséð hvem- ig farið hefði, ef Lóðsinn hefði ekki komið til hjálpar, en hann hefur mjög kröftuga vél. Sást þarna hvílíkt þarfaþing þessi bátur er hér í höfninni.. — Bj. Guðm. Ferðomenn írú Ousseldorísvæð- inn bólusettir Heilbrigðisyfirvöldin hafa gert ráðstafanir til að láta fylgjast með þeim ferðamönnum, er koma til íslands og hafa kömið frá DúsSeldorfsvæðinu í Þýzkalan.di, sem er lýst bólusóttarsvæði. —■ Verða þeir bólusettir og fylgst með þeim. Þessar upplýsingar fékk Mbl. hjá landlækni, dr. Sig urði Sigurðssyni, í gær. j Hingað til hefur aðeins einn maður komið hingað, frá þessu svæði, en hann hafði aðeins kom- ið við á flugstöðinni í Dússel- dorf og beðið þar í klukkutima. Var hann bólusettur. Ef einhver breyting verður á gangi bólusóttarinnar úti, verða heilbrigðisyrfirvölcMln hér strax látin vita. Kviknaöi í báti AKRANESI 8. jan. — Siðdegis í bær, kl. 16.45, kviknaði í vél- bátnum Skipaskaga, þar sem hann lá við bryggju. Kviknaði í eldhúsinu út frá eldavélinni. Slökkviliðið kom og var stundar fjórðung að slökkva. Bátadekkið hitnaði svo mikið að sumt af nótinni sviðnaði og soðnaði, aðal lega net í pokanum. Vélstjórinn var að starfi niðri í vélarhúsinu, en þegar hann kom upp var eld húsið orðið alelda. Seinast í gærkvöldi veittu menn því athygli að vélbáturinn Ásmundur var orðinn óeðlilega siginn og þegar betur var aðgætt, náði sjórinn upp á vél. Haldið er að Ásmundur hafi slegið úr sér á leiðinni í land í norðaustanrok- inu í gær. Hringnótabátarnir fóru út á veiðar í dag. Hér er hollenzkt skip, er lest- ar 400 lestir af síldarflökum og dýrafóðri. Þetta skip hefur Har- aldur Böðvarsson & Co tekið á leigu Og kemur það aftur hingað. Búið er að selja hið landfræga aflaskip, vélbátinn Sigrúnu til Keflavíkur Kaupandinn er Hreggviður Bergmann. — Oddur,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.