Morgunblaðið - 12.01.1962, Page 13

Morgunblaðið - 12.01.1962, Page 13
f'östudagur 12. janúar 1962 MORGUNBLAÐIÐ 13 Skrifstofustjórarnir Arnór Guðmundsson og Már Elisson. koma þeim 1 aðgengilegt kerfi. Þetta hafði þá mjög mkila þýð- ingu fyrir fiskverzlunina. Afla- skýrslurnar hafa jafnan verið mjög þýðingarmiklar, ekki ein- asta fyrir verzlunarsamtökin, sem selja aflann heldur, og fyrir þjóð- arbúið Og áætlanir allar á vegum ríkisstjórnarinnar. Sjávarútvegur inn hefir jafnan verið og er einn snarasti þáttunnn í efnahagsmála starfseminni og öllum áætlunum um þjóðarbúskapinn. Þá kostaði 15 kr. að búa i hendur skrifstofumanni Margt hefur þá verið með öðr- um hætti en nú er? — Já, hætt er við því. Það kostaði ekki alveg eins mikið að ráða nýjan starfsmann í þá daga og búa hann tækjum til að vinna með. Þá kostaði þetta 15 krónur, 5 kr. -stóllinn og 10 kr. borðið. Allt var handskrifað. 'Fyrstu rit- vélina eignuðumst við 1927 og samlagningarvél mörgum -árum síðar. Nú kostar fleiri tugi þúsunda Þetr finna hjartaslög útvegsins FYRIR fáum dögum barst blaðinu tilkynning þess efnis, að Arnór Guðmundsson, sem í fjölda ára hefur verið skrif- stofustjóri Fiskifélags íslands, væri að láta af störfum hjá þeirri stofnun, enda nú kom- inn fast að sjötugu. Arnór Guðmundsson er þekktur af öllum útgerðarmönnum lands ins og raunar flestum þeim, sem einhver afskipti hafa af sjávarafla og verkun hans. Hann hefur verið orðlagður fyrir lipurð og þægilegt við- mót við alla þá, sem til Fiskifélagsins hafa þurft að leita. Ekki hvað sízt eiga blaðamenn honum þakkir að gjalda, en þeir þurfa oft að leita upplýsinga til þéssarar fræðslumiðstöðvar sjávarút- .vegsins. Við brugðum okkur því niður i Fiskifélagshús og röbbuðum stutta stund við Arnór í tilefni þessara tímamóta. Hjá okkur sat Már Elísson, sem nú tekur við starfi Arnórs sem skrifstofu- stjón. Þrír starfsmenn þá En gefum Arnóri orðið: — Þegar ég byrjaði fyrir 37 ár um var starfslið Fiskifélagsins ekki ýkja fjölmennt. Þá unnu hér aðeins forseti félagsins, rit- stjóri Ægis auk mín, og vélfræði- kennarar eftir þörfum er starf- rækt voru vélfræðinámskeið, sem jafnan hafa verið haldin á veg- um félagsins, en 1931 réðist Þor- steinn sál Lofsson til félagsins, sem vélfræðiráðunautur og for- stöðumaður námskeiðanna og hafði þessi störf með höndum til dauðadags. Árið 1929 kom Árni Friðriks- son svo til stárfa hér og sinnti hann fiskirannsóknum á vegum félagsins þar til fiskideild at- vinnudeildar háskólans til til starfa. Um 1930 styrkti félagið Þórð Þorbjarnarson til háskóla- náms erlendis og að loknu námi tók hann við forstöðu rannsókna- stofu félagsins og er enn í því starfi. Rannsóknastofan hefur eflst með hverju ári og leysir af hendi ýms störf í þágu útvegsins og um skeið hefur verið unnið þar að ýmsum rannsóknum, sem enn eru á tilraunastigi. — Og hvert var aðalverkefni þitt til að byrja með? — Söfnun aflaskýrslna og að að búa einn fullkominn skrif- stofumann tækjum. Hann þarf gott skrifborð og stól, skjala- skápa, reiknivélar og ritvél. Það þarf ekki lengur að telja til að sjá muninn. — En fleira hafði Fiskifélagið á sinni könnu en aflaskýrslurnar? — Útgáfustarfsemi var talsverð á vegum félagsins. Það hefir gefið út Ægi allan tímann frá 1914. Einnig kennslubók í mótorfræði auk ársskýrslna og sjómanna- almanaksins sem ég hef séð um útgáfu á aiil frá því ég kom hing- að. Þegar félagið gerðist otíuinn- flytjandi Nokkuð minnisstæðra atburða, sem þú vildir geta frá gamalli tíð? — Það væri þá ifelzt það, sem gerðist fyrir mína tíð hér hjá fyrirtækinu. Einu sinni gerðist Fiskifélagið olíu- innflytjandi. Það var 1916. Flutti það þá inn einn skips- farm frá Ameríku frá Texas Oil Co. öll olía var þá flutt á tré- tunnum. Hér var þá fyrir ein- okun á olíusölu D.D.P. A. „Det Danske Petroleums Aktieselskab“ sem hér á íslandi var uppnefnt „Danskur Djöfull Pínir Almúg- Friðmey Pétursdótti In memoriam. Hinn 5. þ. m. andaðist að Landarkotspítala hér 1 bæ frú Friðmey Ósk Pétursdóttir. Hún var fædd 4. nóv 1902 í Reykja- vík. Foreldrar hennar voru þau Guðrún Gxóa Jónsdóttir og Pétur SigurðssO'n sjómaður. Friðmey ólst upp í foreldra- húsum. Hún giiftist árið 1940 Jóni Rogasyni, bryta, glæsi- menni og góðum dreng, en hann fórst með Dettifossi árið 1945. Þeim hjónutm varð ekki barna auðið, en ólu upp kjörson Jóns, Ólaf að nafni, og var hann á heimili þeirra meðan faðir hans lifði, og eftir það á vegum Friðmeyjar. — Hann er nú Ikvæntur maður. —. Ég hef ekki kunnugleika til þess að rekja ættir Friðmeyjar eða segja ævisögu hennar í smá- atriðum, en eittlhvað knýr mig til þess að taka pennann og minn- ast hennar með örfóum orðum, nú, þegar hún er öll. Samferða- mennirnir hverfa, einn af öðrum; sumir þeirra hafa hreyft streng í brjóstum vorum, — streng, sem ómar þægilega en með áleitinni orku og vill láta til sín heyra. — Svo er um Friðmeyju Péturs- dóttur. Ég, sem þessar línur rita, hafði þá ánægju að kynnast Friðmeyju, koma nokkrum sinnum á hið snotra heimili hennar og blanda geði við hana. Við áttum sam- eiginleg áhugamál, og mér fannst návist hennar góð. Friðmey var oftast glöð og gamansöm og hiafði yndi af því að ræða um andleg mól og einnig um „lands- ins gagn og nauðsynjar", því að hún hafði mörg áhugamál. — Viðkvæm var hún nokkuð, og tók sér því stundum nærri sitt af hverju, er til mótlætis mátti telja, og fer þannig stundum fíin- gerðum sálum, er exga sér fagra drauma, sem rætast ekki alltaf í þessum heimi, eða ekki á þann veg, sem ákjósanlegast þykir. — Friðmey var mörgum kvenleg- um kostum búirt. Hún var list- ræn kona og hafði hannyrðir á valdi sínu. Allt, sem hún gerði, gerði hún vel og fagurlega. •— Heimili sitt stundaði hún með prýði, og var ánægjulegt að koma þangað og njóta navistar hús- freyjunnar, sem var „gestglöð" í bezta lagi. — Ég held, að Friðmey hafi verið á þeirri þróunarleið, sem stund- um er nefnd leið fegurðarinnar; allar leiðir eru stundum vand- rataðar, og það er bessi líka, en hún er líka stundxwn full af heill andi töfrum. Friðmey var grekíd kona, vök- ul sál, sem hafði áhuga * lífinu, vildi skilja það og læra að fara þessa fyrirtækis nokkuð harður og að þeir notuðu all ónotalega aðstöðu sína. Sala á þessari olíu Fiskifélags- ins gekk dræmt og var að síð- ustu 400 króna tap á farminum, enda lak eitthvað af henni niður úr tunnunum. Þetta varð þó til þess að á meðan þessi olía var til var verð á olíu mun lægra en ella hefði verið. Til merkis um það má geta þess að D. D. P. A. hækkaði olíuíunnuna um 25 kr. strax og Fiskifélagsolían var bú- in. Félagið fór þess á leit að ríkið greiddi hallann, því fjarráðin voru ekki of mikil. Þessu var þó eftir miklar vangaveltur hafnað, en Hannes Hafliðason forseti *fé- lagsins mun hafa greitt hallann úr eigin vasa. því hann kom aldrei fram á reikningum félags- ins. Verkefnin aukast —Þótt þie ekki seljið lengur olíu þá hafa verkefnin sjálfsagt aukizt? — Já, þvi er sízt að neita. Árið 1933 var stúlka ráðin á skrifstof- una mér til aðstoðar, enda voru verkefnin þá vaxin mér yfir höf- uð. Nú er svo komið að hér vinna 14 manns hjá félaginu og þess utan aðrir 14 á rannsóknar- stofum, sem eru reknar af félag- inu. Þá fékk félagið allan rekstur Hlutatryggingarsjóðs árið 1949 og bætur úr honum verið greiddar héðan og nema tugum milljóna króna. Þess má svo geta að Báta- gj aldeyriskerfið, Útflutningssj óð- ur og fleiri efnahagsráðstafanir á vegum ríkisstjórna undanfarinna ára hefir notið meira og minna starfsemi Fiskifélagsins. Þetta er að sjálfsögðu eðlilegt þar sem segja fá að Fiskifélagið þreifi á hjartaslögum útgerðarinnar, Það hefir stöðugt samband við alla útgerðarmenn og fiskverk- endur og fylgist með öllum hreyf ingum á sviði sjávarútvegsins. — Og rannsóknarstörfin hafa verið margháttuð? — Já, víst er um það og þau hafa gefið góða raun. Þar má t. d. geta, svo eitthvað sé nefnt, að Geir Arnesen fann ástæðuna fyrir guiunni í saltfiskinum, en hún kom úr koparrennum, sem notaðar voru við saltframleiðslu erlendis. Nú er stál eða alumin- ium notað í stað koparsins. Þórð- ur Þorbjarnarson hefir unnið mjög þýðingarmikið starf í sam- bandi við nýtingu karfans svo Og lýsis. Þá er nú farið að fram- íeiða lifrarkæfu úr þorskalifrar- kjarna ©g kjöti og þykir herra- mannsmatur. Únnið er nú að því að nýta lýsi til málningargerðar. Þá vinnur Sigurður Pétursson gerla fræðingur og starfslið hans að ýmsum rannsóknum m. a. hefur Sigurður lagt mikla vinnu í að leiðbeina niðursuðufyrirtækjum og rannsóknir í því sambandi. Verði sú atvinnugrein efíd mun hann eiga þar stóran hlut að máli. Þegar félagið eignaðist hús — Hvað telur þú einna merk- astan áfanga í sögu félagsins á þínum starfstíma? — Eg mundi álíta að bygging þessa húss félagsins 1933 hafi verið einn með merkustu áföng- um þess. Það kostaði ekki nema 96 þúsundir, þriggja hæða hús, var allt unnið í ákvæðum á kreppuárunum, þegar erfitt var um atvinnu og gott að fá verk- tilboð. Tilkoma hússins veitti fé- laginu mjög bætt skilyrði til allr ar starfsemi eins og að líkum lætur og skapaði möguleika fyrir aukinm og víðtækari starf- semi. Þá tel ég vélstjóranám- skeiðin hafa verið mjög mikil- vægan þátt í starfi félagsins, en á vegum þess hafa nú verið út- skrifaðir á þriðja þúsund vél- stjórar með réttindum til að stjórna allt að 900 hestafla vél- um,» þeir sem hið meira próf hafa tekið. Þetta hefir að sjálfsögðu mjög eflt fiskiskipaflotann, sem nú orðið byggir allt á vélum og vélfræðiþekkingu. Og þér hefir fundist þetta ánægjulegt og verkefnadrjúgt starf? — Já, vist er um það Og verk- efnadrjúgt hefir það sannarlega verið. Við fylgjumst af ná- kvæmni með hvernig aflabrögð- in ganga, erum ánægðir ef vel veiðist en í vondu skapi er illa gengur. Hið stöðuga Og lifandi samband við þá sem útveginn stunda er ánægjulegt Og fræð- andi. Hér þarf manni því aldrei að leiðast. Hinn 10. marz 1940 er mér mjög minnisstæður. Þann dag tók nýr maður við forstöðu félagsins. Mér var satt að segja órótt inn- anbrjósts. Davíð Ólafsson var þá aðeins 23ja ára að aldrei nýkom- inn frá prófborðinu. Ég óttaðist að hann hefði fremur litla þekk- ingu á þeim verkefnum, sem hann átti að leysa af hendi og því væru erfiðleikgr framundan. Þessi ótti reyndist með öllu ástæðulaus. Á ótrúlega skömmum tima þekkti Davíð hvern krók og kima í kotinu og undir hans stjórn hefur félagið eflst Og fært út kvíarnar við vaxandi álit. Sam vinna ökkar Davíðs hefur verið með ágætum og í þau 22 ár, sem við höfum starfað saman hefur aldrei fallið aukatekið orð milli okkar. Arnór snýr sér nú að Má Elís- syni og spaugar við hann. — Jæja, nú er það þitt að taka við og spá um framtíðina. Þeir á Morgunblaðinu hafa svo viðtal við þig sjötugan 1998 og þá áttu eflaust langa og merka sögu að segja þeim. Með þessum gamanyrðum Arn- órs kveðjum við þá félaga, skrif- stofustjórann, sem nú nær sjö- tugur að aldri, lætur af störfum og hinn nýja, sem taka á við og finna hjartaslög útvegsins á kom- andi árum. — vig. PÁLL s. pAlsson Hæstaréttarlögmaður Bergstaðastræti 14. Sími 24-200. með það, sér og öðrum til sálu- bóta. — Og áreiðanlega vildi hún láta gott eitt af sér leiða. Hún var góð kona. Vér, sem þekktum hana og trúum á fram- hald lífsins eftir líkamsdauðann, getum ekki efast um, að hún hafi átt „góða heimvon", *— fæðst inn í yl og birtu, er hún hóf sitt nýja líf á nýju tilverusviði. — Þessi minningarorð eru aðeins | fáorð kveðja og tjáning þakk- lætis fyrir samfylgdina þann spöl, er leiðir okkar lágu saman hér í heimi. Yfir þeim minning- um er ekkert nema birta. j Systkinum Friðmeyjar, há- aldraðri móður og öðrum vanda- mönnum sendi ég samúðar- kveðju. Blessuð sé minning hennar! Gretar Fells. 1 Þekkt innflutningsfyrirtæki óskar að ráða nú þegar duglegan verzlunarmann með staðgóðri menntun og reynslu í starfi. — Nauðsyniegt er, að viðkomandi geti starfað sjálf- stætt að bréfaskriftum, sölumennsku o. fl. með það fyrir augum að gegna fulltrúastörfum í fyrir- tækinu. — Tilboð merkt: ,,Fulltrúastarf“ með nauð- synlegum uppl. um menntun og fyrri störf ásamt meðmælum ef fyrir hendi eru, óskast send skrif- stofu félags ísl. Stórkaupmanna, Tjarnargötu 14, fyrir 20. jan. n.k. — Með umsóknir verður farið, sem algjört trúnaðarmál.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.