Morgunblaðið - 26.01.1962, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 26.01.1962, Blaðsíða 9
Föstudagur 26. jan. 1961 VORGVNfíT4fílÐ 9 Karitas Jochumsdótti HÚN bar nafnið Karítas, eins Og margar frændkonur hennar af Kjalarnesi. Það þýðir kærleikur. Fá nöfn sómdu betur skaphöfn hennar og eðli. Æðrulaus bar hún íeigð sína: Fyrst heilauppskurð í KauprnannahÖfn í sumar og síð asta spölinn til að deyja í sjúkra- húsi hér í bæ. Hún kvaddi fag- urt. heitnili sitt í hinzta sinn fyr- ir jól og skildi við allt hreint og fágað eins og henni var jafnan lagið. Hún skipti jafnvel um lín í rúmum. Þannig var síðasta at- fcöfn þessarar sómakæru konu táknræn fyrir hreinan feril henn ar í þessan jarðvist. Aldrei var skain né skurn að finna í slóð hennar, jafnt í orði sem athöfn. Hún mætti dauðanum þögul og asðrulaus ems og skyldustörfun- um á lífsíeiðmni. Með líknsöm- um höndum og næmri nærveru hjúkraði hún fársjúkum föður- bróður, sem hún tók inn á heim- ilið Og launaði þannig á falleg- an hátt uppfóstur í æsku. Þessi fóstri hennar var fyrsti forsæt- isráðherra lýðveldis okkar, Björn Þórðarson dr. juris. Hann lifir enn á niræðisaldri. Enginn veit um leikaðferðir mannsins með 'ljáinn. Hinn hugdjarfi heims- skautafari Amundsen lagði ó- trauður út á endalausa ísbreið- una til að bjarga týndum starfs- bróður, Nobile hinum ítalska, sem var talinn af. Nobile komst af eigin ramleik til byggða, allt heim til síns fagra föðurlands, úr heimsskautamyrkri í suðræna sól. En Ámundsen, hetjan með sitt vaska víkmgablóð í æðum, hvarf inn i kalt fang feigðarinn- ar. örlög manna eru óútreiknan- ieg. Karítas var líknsöm mannkær- leikakona eins Og márgar frænd- konur hennar í báða ættliði. Halldóra iangamma hennar Ólafs dóttir tók á móti fimmhundruð börnum í Kjalarnesþíngi við slíka giftu, að orð fór af. Sú hafði meðfæddar græðarahendur í beztu merkingu þess orðs. Aldrei heyrði ég Kaiítas fara með slúð- ur né slefburð. Hún hafði lítil afskipti af nábúum sínum, en rækti skyldustörf þeim mun bet- ur á heimiii sínu. Ef jafn fá- skiptin kona um háttu nábúans hefði gifzt auðmanni, hefði hún jafnvel ranglega verið talin stærilát. Hefði slík kona aftur á móti verið fátækum manni gef- in, hefði slíkt afskiptaleysi verið talið bera vott um hlédrægni. En þegar eitthvað alvarlegt bjátar á hjá náunganum, er slíkt fólk oft fyrst til að hlaupa undir bagga ótilkvatt og bjóða hjálp sína. Það eru oftast beztu ná- búarnir í raun og reynd. Þannig var sýndarmennskulaust eðli hennar og geðlag. Hún var það, sem jafnan reynis stærst og bezt hverri konu: mikil móðir og húsmóðir, sem helgaði alla krafta sína uppeldi barna sinna, án þess þó að dekra við þau um of og ala upp sem viðkvæm og fíngerð vermihúsablóm, sem fölna og sölna við fyrsta hret. Ávöxtur þess holla uppeldis mun veita þeim styrk við þetta mikla áfall, móðurmissinn. Þau eru öll vel gerð og óvanalega fallega innrætt og enga vanmetakind er að finna í þeim fríða hópi. Foreldrar hennar voru Jochum Þórðarson, skipstjóri frá Móum, i sem hvarf í hafi í fyrri heims- styrjöld, og kona hans Diljá Tómasdóttir frá Lykkju á Kjal- arnesi. Þau eignuðust sjö börn. Diljá gekk seinna að eiga Sigurð Jónsson, skipstjóra, frá Bakka. Þau lifa bæði í hárri elli. Joch- um var systursonur séra Matthí- asar Og bróðursonur konu séra Matthíasar. Þannig var hann teknískur albróðir barna skáld- jöfursins, átti alla sömu afana og áana, ömmur og formæður. Séra Matthías, frændi hennar, varp eitt sinn fram þessari veð- urlýsingu, er hann sat í Móum, og kaldir stormar gnauðuðu. Vís- an gæti líka lýst nöprum og nistandi nágusti dauðans: Kalt er nú um Kjalarnes, Kári hátt í morgun blés. Esja horfir heljugrá, hrýtur kóf af • gnýpum blá. En Esjan er blæbrigðarik og margbreyttleg eins og mannlífið. Hún verður alltaf litglöð og falleg á nýjan leik. Karítas gekk að eiga Gústaf Adolf Ágústsson, endurskoðanda, fyrir 2'5 árum, góðan dreng og tryggðatröll. Hann hefir reynzt mér vinur heill og velviljaður alla tíð. Börn þeirra eru: Guð- mundur, skrifstofumaður, gift- ur Else Zimsen úr Stykkishólmi, Sigurður, bankamaður, Oddur, iðnnemi í bátasmíði, Sigrún í Menntaskólanum Og Diljá Mar- grét í Verzlunarskólanum. Maki og börn fylgja nú eiginkonu og móður síðasta spölinn í dag, en kærleikur hennar mun fylgja þeim og styrkja ævina alla. Örlygur Sigurðsson F. Ólafsson lögfr. Austurstr. 9 Sími 16462. AÐSTOÐ við skattframtöi Jón Eiriksson hdl. og Þórður GAMALT OG VELÞEKKT innflulnings og umboðsfirmn sem hefur mjög góð sambönd í Englandi, Þýzkalandi og víðar, er til sölu. Þeir, sem áhuga hafa á þessu sendi nöfn sín í lokuðu umslagi merkt: „Umboðsverzlun — 7155“, á afgr. Mbl. fyrir lok þessa mánaðar. Bújörðln IMorður Hvoll í Mý/dal er til sölu oe laus til ábúðar í næstu fardögum. — Semja ber við eiganda og ábúanda, Kristján Bjarna- son. FLUG — BINGO /r jr í LIDO sunnudag MÁLFUNDARFÉI AGIÐ ÓÐINN li e 1 d u r ÞORRABLÓT í Sjálfstæðishúsinu föstudaginn 26. þ.m. kl. 8,30. Ávarp: Geir Hallgrímsson, borgarstjóri Þorra-rabb: Séra Jón Thorarensen Skemmtiþáttur: Steinunn Bjarnadóttir leikkona D A N S Aðgöngumiðar á kr. 125,— fyrir manninn, seldir í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í dag. Skemmtinefndin Sjálfstæðiskvennafélagið EDDA í Kópavogi heldur aðalfund 30. janúar 1962 í Sjálfstæðishúsinu við Borgar- holtsbraut 6, Kópavogi — (Gengið inn frá Hábraut). Fundurinn hefst kl. 21.— Fundarefni: Inntaka nýrra félaga Venjuleg aðalfundarstörf Lagabreytingar Kosning í fulítrúarráö og kjördæmaráð. Kaffidrykkja að loknum fundi. STJÓRNIN T#7 sö/u Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir: Dodge ’54 vörubifreið, 5 tonna með farþegahúsi. Chevrolet ’5l, sendiférðabifreið, 1% tonn yfirbyggð. Mercedes Benz 170S ’51, fólksbifreið. Bifreiðar þessar verða til sýnis í porti Áhaldahúss Reykjavíkurborgar föstudaginn 26. janúar frá kl. 9—-5. — Tilboð skulu send oss og verða þau opnuð í skrifstoíu vorri Tjarnargötu 12 kl. 10.00 f.h. laug- ardaginn 27. janúar n k. Innkaupastofnun Reykj avíkurborgar Veitingahúsrekstur Maður sem hefur rekið sjálfstæðan veitingahús- rekstur í mörg ár, óskar eftir að taka á leigu eða veita forstöðu hóteli eða veitingahúsi. Sumargisti- hús eða veitingastofa úti á landi kæmi til greina. — Alger reglusemi. —■ Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 20. febr. merkt: „Veitingahús—7831“. Jörðtn Laugaból í Nauteyrarhreppi, N.-ís., fæst til ábúðar í fardög- um 1962. Jörð og hús eru í góðu lagi. Sauðland er mikið og gott. Á býlinu er ágæt Lister-dieselrafstöð og ,,Titan“ rafmÓTor til súg-þuirkunar. Til hitun- ar á íbúðarhúsi eru tveir katlar á sama kerfi, ann- ar fyrir olíu, hinn fyrir kol o. fl. auk nógs rafmagns til suðu og eldunar, ásamt ágætri, sænskri AGA eldavél. — Nánari upplýsingar veitir undirritaður. Laugabóli, 21 ianúar 1962. Sig. Þórðarsson. Lögtak Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undan- gengnum úrskurði verða lögtök látin fram fara án frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu þess- arar auglýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum: Ógreiddum viðbótum við skatta og önnur þing- gjöld ársins 1961 og eidri ára, álögðum frá 1. nóv. sl. til dagsins í dag söiuskatti 4 ársfjórðungs 1961, svo og vangreiddum söluskatti og útflutningssjóðs- gjaldi eldri ára, aföllnum og ógreiddum skemmt- anaskatti og miðagjald) gjöldum af innlendum toll- vörutegundum og rnatvælaeftirlj csgjaldi, lesta-, vita og skoðunargjöldum al skipum árið 1962, trygg- ingaiðgjöldum af lögskráðum skipshöfnum fyrir ár- ið 1961 og 1. ársfjórðungs 1962 ásamt skráningar- gjöldum. Borgarfógetinn í Reykjavík. 24. jan. 1962 Kr. Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.