Morgunblaðið - 26.01.1962, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.01.1962, Blaðsíða 24
Fréttasímar Mbl. — eftir iokun — Erler;tlar fréttir: 2-24-85 Innlendat fréttir: 2-24-84 21. tbl. — Föstudagur 26. janúar 1962 Blástursaðferðin Sjá bls 13. Mál Huberts dómtekið ■ I GÆR var flutt í Saka- dómi Reykjavíkur mál Huberts R. Morthens, er varð konu sinni að bana 1. okt. sL Verjandi í mál- inu er dr. Gunnlaugur Þórðarson, hdl., en sækj- andi Einar B. Guðmundsson hrl. Dómari er Logi Einars- son, yfirsakadómari. Mál- flutningi lauk í gær og var málið tekið til dóms. Verjandi lagði einkum á- herzlu á að hér hafi verið um að ræða „crime passio- nell“, afbrýðissemiglæp, og fór fram á refsilækkun eða refsilinun. Sækjandi lagði hins vegar áherzlu á að hér væri um brot á 211. gr. almennra hegningarlaga að ræða. Brún lyftist á matmönnum í Bolungarvík BOLUNGARVÍK, 24. jan. — A laugardagskvöld héldu konur í Bolungarvik eiginmönnum sín- um hið veglegasta þorrablót. Lyftist bá brúnin á matmönn- um, því að öll borð svignuðu þar af trogum, fullum af góðum mat. Þess má geta, að í einu troginu vöiu 16 íslenzkir réttir, og eitthvað svipað er í flestum þeirra. Þc-tra er í 18. skipti, sem þorrablót er haldið hér, og hefur það aldrei verið jafn fjölmennt Og nú. — Frú Ebba Þórðardóttir flutti snjallt ávarp í upphafi, en þorrablótsnefndin sá um skemmti atriði, leikþætti og söng. Þórður Hjaitason, sveitarstjóri, færði konum þakkir fyrir hönd eigin- manna. Síðan var stiginn dans af miklu fjöri fram til kl. 4 um morguninn. — Formaður kvennanefndarinnar er frú Mar- grét Þorgildsdóttir. — Þorrablót eru hér jafnan talin til beztu mannfagnaða. — Fréttaritari. Fjölskylda í Mosfellssveit! missir allt sitt óvátryggt 1 G Æ R brann býlið Sveins- staðir í Reykjahverfi x Mos- fellssveit, en það stóð á melnum austan við Álafoss- verksmiðjuna. Húsið brann til kaldra kola á rúmri klukkustund og bjargaðist fólk úr því fáklætt, en þar voru fullorðin hjón með þrem börnum sínum og einu barnabarni. Ofsaveður var á er eldurinn kom upp, norð- austan stormur og slagveður. Krakkar hlupu berfættir að næsta býli, Meltúni, og sóttu hjálp. Húsið að Sveinsstöðum var timburhús, skúrbyggt. Það var frá hernámsárunum og upphaf- lega sett niður sem sumarbústað- ur. Þar bjó nú Magnús H. Magn- ússon starfsmaður á Álafossi og kona hans Halldóra Halldórsdótt Dagsbrún á aö halda sig utan við pólitísk átök Frá kosningafundi Dagsbrúnar k kosningafundi Dagsbrúnar, haldinn var í Iðnó í gær- kvöldi, lagði Björn Jónsson frá Mannskaðahóli, formannsefni B- listans við stjórnarkosningarnar í Dagshrún, á það áherzlu, að verkalýðssamtökin ættu að halda sig utan við pólitísk átök. Taldi hann enn fremur, að verkamönn um> hefði gefizt illa hin siðari ár að knýja fram kauphækkanir með löngum verkföllum, það hefði einatt kostað miklar fórnir lítið gefið í aðra hönd. Minnt- ist hann i því sambandi sérstak- lega á hin pólitísku verkföll, sem háð voru í sumar. Þá taldi hann, að i kjarabaráttunni yrði að leggja höfuðáherzluna á bætta vinnutilhögun og benti hann á., að með ákvæðisvinnu mætti stórbæta kjör verkamanna. Kommúnistar reyndu eftir megni að trufla málflutning Björns með hrópum og köllum og höfðu þeir þann hátt á, meðan allir stuðningsmenn B-listans töluðu. ----★---- Jón Hjélmarsson sýndi fram á, að reynslan hefði sannað, að verkamenn hefðu tapað á að fella miðlunartillögu sáttasemj- ara á s.l. sumri, enda hefði póli tisk sjónarmið ráðið því, að stjóm Dagsbrúnar lagðist gegn þeirri tillögu. B-listinn hefði þvi verið lagður fram til að reyna að kuraa í veg fyrir, að menn gerðu atvinnu verkamanna að pólitisk um leiksoppi. ir og fjögur börn þeirra. Húsið sneri því sem næst austur og vestur og í vesturhluta þess var útbygging móti suðri og var þar aðalstofan. Norður af henni var eld'húsið. Gangur var um mitt 'húsið frá suðri til norðurs og við enda hans bað og snyrting, en austur af ganginum 3 herbergi og gengið gegnum tvö þeirra inn í hið þriðja. Gluggar á herbergj- unum voru mót suðri. • Missti allt sitt f fyrrnótt dvöldust í húsinu, hjónin Magnús og Halldóra og 3 börn þeirra svo og dótturson- ur. Sonur, nær tvítugu, var fjar- verandi. Fjölskyldan missti allt sitt, föt og innbú og var það mik- ils virði, því margt var þar nýrra muna, svo sem ísskápur, svo til ný svefnherbergishúsgögn og margt nýtt í stöfum. Húsið var allt teppalagt. Allt innbú var óvá tryggt og húsið sjálft mjög lágt virt. Hitað var upp með hita- veituvatni og ekki annað eldfæra en rafmagnstæki í húsinu. Rústir Sveinsstaða í Mos- fellssveit. Að baki sést skúr inni, sem fólkið flúði í, út í veðurofsann. HelgafeU sést gegnum grámann. — Ljósm. vig. • Allt horfið Fréttamaður blaðsins brá sér í gær að Sveinsstöðum og var þá ekiki að korna að öðm en rústum einum, því húsið var gersamlega horfið. Bráðnaðir miðstöðvarofn ar og geiflaðar járnplötur lágu á rústunum. Lítilsháttar rauk enn úr rústunum skömmu eftir há- degið. Við hittum fyrst Eirík Guð- mundsson í Meltungu, en til hans kom fólkið frá Sveinsstöðum fyrst, er bað hafði flúið brenn- andi húsið og leitað skjóls í úti- skúr, sem var skammt norðan við húsið. Eiríkur sagði að boðin um brunann hefðu komið klukkan um 5.30 í gærmorgun og hefði Framh. á bls. 23 Happdrættis- bíllinn sóttur EIGENDUR vinningsnúmers i happdrætti Krabbameinsfélags Reykjavíkur, sem dregið var í á Þorláksmessu sl., hafa nú gefið sig fram og fengið afhentan vinnlnginn, sem var nýr og ó- keyrður Volkswagenbíll. Vinn- inginn hlutu Erla Hannesdóttir og Jón Hannesson, Rvik. Jóhann Sigurðsson lagði einn- ig mikla áherzlu á, að stjórn Dags brúnar hefði tekið pólitíska hags muni kommúnista fram yfir hags muni verkamanna, og að leita yrði nýrra leiða í kjarabarátt- unni. Á fundinum voru milli fjöigur og fimm hundruð manns og stóð hann enn yfir, er blaðið fór í prentuní gær. Þá höfðu Eðvarð Sigurðsson, Björn Jónsson, Jón Hjájíharsson, Guðm. J. Guð- rnundsson og Jóhann Sigurðsson tekið til máls. Svik Eðvarðs og spurn- ing til Hannibals í LJÓS er nú komið, að Eð- varð Sigurðsson, formaður Dagsbrúitar, er staðráðinn í að reyna að hindra raunhæfar kjarabætur verkamanna, þótt hann flytti ásamt Hannibal Valdimarssyni o. fl. þingsálykt unartillögu, sem miðaði að rannsókn á því, hvernig kjara bóta yrði aflað án verkfalla. Tillögu þessa samþykktu allir þingmenn. En þegar Eðvarð sá, að mál það, sem hann sjálf ur flutti, mundi ná fram að ganga, snerist hann gegn því og nefnir það í gær „orða- gjálfur" og „óljós slagorð“. í ritstjórnargrein í dag er fjallað um þetta mál og jafn- framt kom fram sú fyrirspurn til forseta A.S.Í., hvort stuðn- ingur hans við málið hafi líka byggzt á áróðri, en hann sé í rauninni andvígur því eins og Eðvarð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.