Morgunblaðið - 03.02.1962, Qupperneq 2
2
MORCTJNBLAÐIÐ
L'augardagur 3. febr. 1962
Ráðvilltur á Axarfjarðarheiði
Eitthvað kalinn á fótum
EINS og skýrt var frá í frétt
blaðsins í gær, hraktist Árni
Gunnlaugsson frá Skógum í
Reykjahverfi í sólarhring á
Axarfjarðarheiði, en var
bjargað síðari hluta dags í
fyrradag og til hyggða
komst hann klukkan 10 í
gærmorgun. Tryggvi Helga-
son, sjúkraflugmaður á
Akureyri, fann manninn í
fyrradag fyrir myrkur og
reyndi að koma til hans orð-
sendingu. Maðurinn var þá
svo utan við sig, að hann
áttaði sig ekki á leiðbeining-
unni, en Tryggva tókst að
beina leitarmönnum til hans
og varð honum þá hjargað.
Blaðið átti í gær tal við Bald-
ur Jónsson í Garði í Þistilfirði.
Sagði hann að Ámi Gunnlaugs-
son hefði lagt upp frá Klifs-
haga á fimmtudaginn kl. 6 síð-
degis og hefði hann aldrei fund-
ið sæluhúsið, sem er á Axar-
fjarðarheiði skammt frá eyðibýl
inu Múla.
Á leið tii ættingja
Ámi hafði verið á ferð til að
heimsækja ættingja sína, sem
búa austur á Langanesi. Var
hann ekki vel búinn, í einum
sokkum t.d. og lélegum skóm.
Sigurgeir Sigur-
jónsson í Mann-
réttindanefnd
Evrópu
Ráðherraruefnd Bvirópuráðsiins
Ihefur kjörið Sigurgeir Sigurjóns-
aOn hæstaréttairlögimann tiil að
taka sæti í M a n nir é tti ndanefnd
Evrópu. Hefur Friðjón Sflcarp-
héðinsson, forseti Sameinaðs Al-
þingis, fyrir nokk.ru óskað eftir
að láta af störfum í nefndinni.
Saimkvæmt mannréttindasárt't-
miáia Evrópuráðisins skal miann-
réttindanefndin ásamt Mannrétt-
indadómstóli Evrópu vinna að
því að tryggja, að staðið sé við
skuldbindingar, sem sá/ttrmálinn
fjallar um. Tekuir mefndin við
feærum frá þeim ríkjum, sem eru
aðilar sáttmálans, og að aulki frá
einstaklingum og félagasamtök-
um, ef hið kærða ríki hefur sam-
þykíkt slíkan kærurétt. Einn mað-
ur frá hverju hinna 16 rfkja í
Evrópuráðinu á sæti í mannrétt-
indanefmdinni. Fyrsti íslenzki
nefndarmaðurinn var Hermamn
Jónasson, fyrrum forsætisráð-
(herra, en síðar tók Friðjón Skarp
héðinsson sæti hans.
pMMmB •••
Velvakandi
ÞESSI skopteikning átti að,
birtast með Velvakanda í dag j
en þar er gatnanbragur um.
konuna, sem ekki vildi sjá af
sápuvatninu sínn góða, er;
kviknaði í rusli í Hafnar-
stræti 11 á dögunum. Myndin I
'varð viðskila við braginn ogj
birtist því hér.
Berhentur var hann, er hann
farinst. Ámi lá úti í sólarhríng,
um tíma í hraungjótu, en var
þó mest á stjái. Eitthvað var
hann kalinn á fótum, en ekki
mjög mikið, að því er nánast
varð vitað í gærkvöldi. Árni
fannst milli kl. 15 og 16 í
fyrradag, þó skammt norðvestur
af sæluhúsinu. , en hélt það
vera bíl og mun þá hafa verið
orðinn svo hrakinn og utan við
sig að hann gat ekki hugsað
skýrt. Einnig var hann, svo, er
flugvélin kastaði til hans orð-
sendingum.
Kannaðist ekki við mennina
Jafnvel er hann sá leitar-
mennina hafið hann ekki sir.nu
á að sýna að hann hefði séð þá.
Loftleiðir
sækja um
byggingar-
leyfi
STJÓRN Loftleiða ritaði í
gær bréf til borgarráðs, þar
;sem þess var farið á leít að
félagið fái leyfi til að byggja
afgreiðsiuhús við hlið nýja'
flugtumsins á Reykjavíkur-
flug-velli. Er fyrirhugað að þar
komi veitingastofa og eldhús
í stað þess sem brann til
kaldra kola s.l. mánudag.
Samkvæmt teikningum, sem
þegar liggja fyrir að flugstöð-
varbyggingu á Reykjavíkur-
flugvelli er reiknað með að
flugturninn verði miðhluti
flugstöðvarinnar.
Borgarráð tók málið til með
ferðar í gær og var erindi Loft'
leiða visað til samvinnunefnd-
ar Reykjavíkur og rikisins nm
byggingarmál.
Þess má geta að Loftleiðir
hafa nú fengið inni í gamla
flugturninum fyrir nýjar
birgðir varahluta og annars
varnings sem það hyggst koma
sér npp hið bráðasta.
Leitarmenn voru alls átta, er
leituðu Árna, 5 úr Þistilirði og 3
úr Axarfirði. Fluttu þeir Áxna í
sæluhúsið en öxfirðingarnir
sneru strax í fyrrinótt til baka
til að sækja tæki til að flytja
Arna til byggða. Hann hafði
hrakizt talsvert, enda var norð-
vestan stormur og gekk á með
hríðaréljum af og tiL Þó mun
veður hafa verið skaplegt í Áx-
arfirði, er hann lagði á heiðina.
Frost var nokkurt. Ámi er á
þrítugs aldri.
Jafnaði sig eftir hvíldina
í gær hafði blaðið einnig tal
af Bimi Benediktssyni í Sand-
fellshaga, en hann var einn
leitarmannanna úr Axarfirðin-
um, sem fór fyrri ferðina upp
á heiðina. Hann sagði að eftir
að Árni var búinn að hvílast og
sofa í gær hafi hann verið bú-
inn að átta sig og þá getað
gengið um, ekki verr farinn af
kalinu en svo. Var hann í gær
fluttur til Húsavíkur.
í fyrrinótt kl. um 4 lögðu
tveir menn upp frá Klifshaga í
Axarfirði á lítilli dráttarvél með
beltum og var hún fengin að
láni á Kópaskeri. Á henni var
Árni fluttur til byggða og var
komið að Sandfellshaga kl. 10
í gærmorgun. Leitarmennirnir
úr Þistilfirði komu heim til sín
síðari hluta dags í gær, en þeir
dvöldust hjá Árna í sæluhúsinu
í fyrrinótt.
Gæftaleysi nyrðra
SIGLUFIRÐI. 2. febr. Tveir stór
ir bátar verða gerðir héðan út í
vetur og hefir afli þeirra verið
3—8 tonn í róðri, en gæftir eru
stirðar. Tvær og þrjár trillur
hafa róið þegar gefur en afli ver-
ið sáralítill.
Miklar afskipanir hafa verið
hér þessa viku. Fjallfoss lestaði
950 tonn af síldarmjöii frá
S.R. og Tröllafoss lestaði í gær
700 tonn af síldarinjöli. Tanikskip
ið Hertha lestaði 1100 tonn af soð
kjarna til útflutningsö Útlent
flutningaskip losaði hér tunnu-
efni til Tunnuverksmiðja ríkis-
ins.
Allmikill snjór er hér en bíl-
fært um allar götur. Mjög er hér
stormasöm tíð. — Guðjón.
<$—----------------------
Stjórnarskipti á Ítalíu
Róm, 2. febr. (NTB)
AMINTORE Fanfani, for
sætisráðherra ítalíu, gekk í
dag á fund Giovanni Gronc-
his forseta og baðst lausnar
fyrir sig og ráðuneyti sitt.
Forsetinn óskaði eftir því að
stjórn Fanfanis færi áfram
með völd um stundarsakir,
meðan verið er að ganga frá
myndun nýrrar stjórnar.
Fanfani er leiðtogi Kristilegra
demókrata, stærsta stjómmála-
flokks Ítalíu, og hefur fráfar-
andi stjóm hans farið með völd
frá því 26. júlí 1960. Flokkur-
inn hefur 273 þingmenn í full-
trúadeildinni en vantar 26 til að
hafa þar meirihluta. — Hefur
stjórnin udanfarið notið stuðn-
ings jafnaðarmanna, frjáls-
lyndra og repúblikana, sem
samtals eiga 46 þingfulltrúa.
Samvinna við Nenni
Á flokksþingi Kristilegra
demókrata, sem haldið var um
síðustu helgi, var samþykkt að
leita eftir samvinnu við sósíal-
istaflokk Pietros Nennis, þriðja
stærsta stjórnmálaflokk Ítalíu,
sem hefur 84 þingfulltrúa.
Samningum er svo til lokið um
stjórnarsamstarf. Er talið full-
víst að Fanfani verði forsætis-
ráðherra hinnar nýju ríkis
um, og hægri flokkunum. — Þórður.
NA /5 hnútar / SV50hnútar ¥: Snjókoma > 06 i 7 Skúrir K Þrumur WtZ, KuUaM HihtkH H Hmt L Lm«»
stjórnar og að flestir ráðherr-
anna verði úr flokki hans. En
jafnaðarmenn og repúblikanar
munu skipa nokkur ráðherra-
embætti. Nenni og flokkur hans
taka upp samvinnu við stjórn-
ina án þess þó að skipa í nokk-
ur ráðherraembætti.
Stjómarandstaðan verður þá
frá kommúnistum, ný-fastist-
Eins og skýrt hefur verið frá hér í blaðinu urðu miklar un>
ferðatruflanir í London s.l. mánudag vegna ólöglegs verkfalls
flutningaverkamanna. Neðanjarðarlestirnar stöðvuðust svo bif-
reiðaumferð jókst mjög. Olli þetta um tíma algjöru öngþveiti
í umferðinni. Meðfylgjandi mynd er tekin á Strand um kvöld-
verðarleytið á mánudag.
Argentína undirbýr
sambandsslit við Kúbu
Buenös Aires, Argentínu,
2. febrúar. AP.
Utanríkisráðuneyti Argentinu
tilkynnti i dag að álkveðið hafi
verið að kalla heim sendiherra
landsins á Kúbu, Julio Amoedo.
Bifreið skemmist
af eldi
f GÆRKVÖLDI kl. 21,24 var
slökkviliðið kvatt vestur á Sel-
tjarnarnes en þar logaði í fólks-
bifreið af Dodgegerð 1942,
R-7351.
Bifreiðin stóð mannlaus í
brekku Hrólfsskálavegar og var
mikill eldur í henni bæði fram-
sæti og mælaborði og undir vél-
arhlíf. *
Fólk í nágrenninu var byrjað
að ausa vatni á birfireiðina er að
var komið, en eigandi var ekki
nálægur. Slökkviliðinu tókst að
kæfa eldinn á skömmum tíma en
bifreiðin er mikið skemmd.
Ekkert lík fundizt
LÁTRUM, 2. febr. — f gær og í
dag hefir verið að reka ýmislegt
brak úr vélskipinu Særúnu, sem
fékk áfall í Látraröst í fyrradag
og missti brúna og þrjá menn
tók út. Mest hefir rekið í Breiða-
vík en einnig orðið vart reka á
Látrum og i Kollsvík. Ekkert lík
hinna drukknuðu manna hefir
enn fundist, en haldið verður
áfram að ganga á fjörur.
Búizt hafSi verið við þessari á-
kvörðun stjómarinnar, því Art-
huro Frondizi forseti hefur sætt
mikilli gagnTýni hersins eftir að
hann kom heim frá ráðstefnu
Ameríkuríkjanna í Punte del Este
í Uruguay. Er forsetinn gagn-
rýndur fyrir að hafa ekki verið
nógu ákveðinn gegn Castro á
ráðstefnunni. En Argentína var
eitt þeirra sex ríkja, sem sátu
hjá við atkvæðagTeiðsluna um
brottrekstur Kúbu úr samtökum
Ameríkuríkjanna.
Þótt sendiherrann verði kvadd-
ur hekn þýðir það ekki að Ar-
gentina hafi slitið stjórnmála-
sam-bandi við Kúbu. En talsmenn
hersins segja að Frondizi h'afi
fallizt á að slíta stjómmálasam-
bandinu sein-na. Ebki sé unnt að
gera það sem stendur „af tækni-
legum ástæðuim.“ Talið er að
„tæknilegu ástæðurnar“ geti ver-
ið þær að stjórnin þurfi tíma til
að flytja heim ýmsa helgidóma,
málverk og gu-llmuni, sem róm-
versk-kaþólska kirkjan á. En
frétzt hefur að munir þessir séu
gieymdir í argentínska sendiriáð-
inu í Havana.
KL 11 í gær voru skilin milli voru skilin við Hvarf og -ief-
sunnan áttarinnar og rigning- ur hraðinn því verið 69,5 km
arinnar og kalda éljaloftsins á klukkustund, en það er al-
komin nær aila leið austur gengur hraði á lægðum og
fyrir land. Sólarhring áður skilum að vetrarlagi.
MÁLFUNDUR
verður í Valhöll þriðjudaginn 6.
febrúar. Umræðuefni: Er „frið-
samleg sambúð“ við kommún-
istaríkin möguleg? Framsöguer-
indi flytur Hörður Einarsson
stud. jur.
BRIDGE-KEPPNI
Efnt verður til tvímennlngs-
keppni í bridge mánudagskvöld-
in 5., 12. og 19. febrúar. Vænt-
anlegum þátttakendum er bent
á að láta skrá sig í skrifstofu
félagsins í Valhöll, simi 17102.
LESHRINGIR
um kommúnisma, alþjóða- og
utanríkismál, og bókmenntir og
listir verða í næstu viku. Aug-
lýst jafnóðum.
NÝIR FÉLAGAR!
Gerizt virkir þátttakendur í fé
lagsstarfseminni. Lítið inn í
skrifstofuna í Valhöll.
Starfsáætlun síðari hluta vetr
ar hefur verið prentuð og ligg-
ur nú frammi í handhægu formi.
Náið ykkur í eintak og auð-
veldið þannig þátttöku ykkar.
Skrifstofan er opin frá kl. 9—7
daglega, sími 17102.