Morgunblaðið - 03.02.1962, Page 3
Laugardagur 3. febr. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
3
í BOGASAL Þjóðminjasafns-
ins héngu í gær skemmtilegar
myndir, tilbúnar á sýningu
Ísem opnuð verður kl. 2 í dag.
Þar sitja stórir grámévar á
Hornbjargi, hof trónar á fjalls
tindi í búsældarlegri sveit,
landvættir í hömrum og yfir
öliu sigla mjallahvít ský.
Aldrei hafa sézt önnur eins
ský á íslenzkum myndum. —-
Mér þóttu þessi svörtu skýja-
flókar hjá þeim hinum aldrei
fallegir, segir málarinn Xsleif-
ur Konráðsson. Mér þykir
fallegra að hafa skýin með
rósum og bólstrum. Annars
»er það allt eftir landslaginu í
myndinni hvernig skýin þurfa
að vera í laginu.
íslenzkur naivisti
Þetta er fyrsta málverka-
‘ sýning ísleifs. Hann byrj-
aði ekki að mála fyrr en
han var orðinn sjötugur, fyrir
þremur árum, og komst á elli-
laun. Það eru þó engin elli-
ísleitur Konráðsson með eina af myndum sínum.
Keypti
og fór
sér liti og striga
að mála á dívaninum
mörk á myndunum hans. 1
sýningarskrá segir Björn Th.
Björnsson: „Margar fremstu
listmenningarþjóðir h e i m s
hafa eignast frábæra alþýðu-
málara, svonefnda naivista.
Með hispurslausu sjálfræði
sýna þeir okkur gjarnan hlut-
ina á hinn óvæntasta hiátt,
rata ævintýralega stigu þar
sem aðrir sáu ekki nema
venjugróna slóð. Þann skiln-
ing getur engin lagt sér til.
Han verður að spretta innra
með manni sem ósnortinn er
af allri venju, manni sem hef-
ur til brunns að bera ósvikna
listræna gáfu. Að mínu viti er
ísleifur Konráðsson einn
slíkra“.
ísleifur er ættaður norðan
úr Strandasýslu. Hann á
langt dagsverk við alls konar
störf að baki. Var m. a. lengi
í veitingahúsinu á Hoved-
banegaarden í Kaupmanna-
höfn, sigldi í 5 ár á skipinu
Friðrik VIII til Ameríku og
„Alveg svona er
á Drangaskarði á
listamaðurinn.
Ströndum“, segir
síðast vann hann ýmiss konar
störf hjá Biíkiskip.
— En svo þegar ég var
hættur að vinna, þá fór mig
að langa til að hafa eitthvað
fyrir stafni, segir ísleifur. Ég
hafði lengi séð myndir eftir
málar.a sem voru að sýna hér,
þó mér dytti aldrei í hug að
fara á sýningar erlendis. Svo
ég fór bara niður í Málara og
keypti mér léreft og liti og
byrjaði að mála myndir á dí-
vaninum heima. Síðan hefi ég
haldið áfram og alltaf á dí-
vaninum. Trönur enu svo
dýrar.
— Hvað segir konan þín
við því?
— Hún segir ekkert. Ég
hefi bréf undir og það svínast
ekkert út. Það fer ekkert út
fyrir myndina. Það er líka
hættuminna þar eð ég blanda
ekki litina á spjaldi eins og
málarar gera, heldur í dósum.
Bara fikra mlg áfram
— Og þú reynir ekki að
mála eins og hinir málararnir?
— Nei, ég bara fikra mig
áfram eftir mínum hugsunum
og því sem kemur í hugann
af því sem ég hefi séð á ferð-
um mínum um landið. Ég hefi
ferðazt mkið með ferðafélög-
unum.
En það er ekkert aí
myndum frá veru þinni er-
lendis
— Nei íslenzka landslagið
er svo sterkt, eins og t. d.
Hornstrandir. Þetta meitlast
inn í hugann.
—i En þarna eru líka fallega
máluð blóm í vasa. Málarðu
eftir mynd?
— Nei. Mér datt í hug að
hafa blómin með. Kannske
einhver frúin vildi kaupa þau.
Þegar myndunum fór að
fjölga, þá hiugsaði ég að kann-
ske væri hægt að fá eitthvað
fyrir þetta. Ég hefi nú bara
ellilaunin og svo er maður að
klípa af þeim í striga og liti,
og það er dýrt. Efnið í eina
mynd kostar mörg hundruð
krónur, fyrir utan vinnuna.
— Hvernig lízt þér á ab-
straktmálverkin
— Sum eru þolanleg. Ég
dæmi þau ekki, ég hefi ekki
vit á þeim. Ja-jú, mér finnst
nú gaman að sumurn þeirra,
ef ekki er losaralegt form á
þeim.
— Ætlarðu að halda áfram
að mála?
— Já, ég held áfram ef ég
get — ef ég hefi efni á því
eftir þessa sýningu.
Þó ísleifur hafi ekki byrjað
að mála fyrr en á gamals aldri
og aldrei fengið neina tilsögn
er handbragðið undarlega
nett, myndirnar langt frá því
að vera viðvaningsleg nátt-
úrustæling, þær eru alveg
lausar við ofhleðslu og skynj-
un málarans, er mjög sérstæð.
Sýninguna opnar han kl. 2
fyrir almenning. Þar eru eng-
ir boðsgestir.
Þriðji fundur Tomp-
sons og Gromykos
Ræða eflingu varna
Varsfárbandalagsins
Moskvu, 1. febr. (NTB-AP)
1 D A G fór fram í Moskvu
þriðji viðræðufundur sendi-
herra Bandaríkjanna í Sovét
ríkjunum, Llewellin Thomp-
sons, og Andrei Gromykos,
utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna — en þeir hafa leitað
grundvallar til samkomulags
um Berlín, að tilhlutan
stjórna sinna.
Fundurinn stóð tæpar tvær
klst. og að honum loknum sagði
Thompson, að hann og Gromyko
hefðu ákveðið að ræðást við oft
ar, en ekki hefði verið ákveðið
hvenær næsti fundur yrði hald-
inn.
Thompson vildi ekki gefa nein
ar upplýsingar um viðræður sín
ar við Gromyko. Ekki hafa held-
ur verið gefnar neinar upplýs-
ingar um fyrri viðræður þeirra.
Heimildir á Vesturlöndum hafa
þó skýrt frá því, að Rússar hafi
slakað á þeim kröfum sínum, að
friðarsamningar við Austur-
Þýzkaland yrðu undirritaðir, áð-
ur en samið væri um Berlín.
Ekki hafði verið skýrt frá við-
ræðum Thompsons og Gromykos
í Sovétríkj unum, fyrr en Moskvu
blaðið Izvestija birti stutta frétt
um þær í gær.
Blaðið sagði jafnframt, að ekki
værl hægt að draga samningana
um Berlín mikið lengur Og menn
skyldu ekki ganga út frá því, að
friðarsamnmgar við Austur-
Þýzkaland yrðu ekki gerðir.
Viðstaddir viðræður þeirra
Thompsons og Gromykos í dag
voru Kenton Ienkins, sérfræðing
ur bandaríska sendiráðsins í
Moskvu um málefni Þýzkalands
og Ivan Iiychev frá utanríkis-
þjónustu Sovétríkjanna.
Berlín, I. febrúar. NTB-Reuter
LANDVARNABÁDHERBA aðild
arríkja Varsjárbandalagsins hafa
síðustu daga setið á rökstólum í
Prag í Tékkóslóvakíu. Þeir hafa
einkum fjallað um eflingu sam-
eiginlegra varna kommúnísku
ríkjanna.
Austur-þvzka fréttastofan ADN
Fez, Marokko, 1. febr. — AP.
HASSAN, konungur í Marokko
og forsætisráðherra alsírsiku út-
lagastjórnarinnar, Youssef Ben
Khedda, hafa orðið ásáttir um að
koma á fót ráðhcrranefnd, sem
vinni að stofnun sambands ara-
biskrar Norður-Afríku.
Þessi ákvörðun var tilkynnt
opinberlega í Fez í dag en Ben
segir frá bessu í örstuttri klausu
og tekur fram að sovézki mar-
skálkurinn Gretsjko hafi setið i
forsæti á fundinum. Ríkisstjórn-
ir aðildarrikjanna hafa verið
beðnar að samþykkja ályktun
fundarins, áður en næsti fundur
verður haldinn í ráðgefandi
stjórnmálanefnd bandalagsins.
Khedda fór þaðan til Túnis í
morgun. Hann hefur dvalizt
mánaðartíma í Marokko.
Hassan konungur sagði í dag
eftir að yfirlýsing þeirra var
birt, að slík ráðherranefnd, stm
hér væri um að ræða, ætti meðal
annars að hafa það hlutverk að
kynna sér og koma á framfæri
vilja arabískra þjóða í Norður-
Afríku.
Arabísk ráðherranefnd
STffSTEINAR
Svertingi
í Bandaríkjastjórn?
Kennedy Bandarikjaforseti hef
ur undanfarið unnið að stofnun
nýs ráðuneytis í ríkisstjórn sinni.
Á það að fjalla um borgarmál-
efni. Mun það ætlan forsetans að
skipa blökkumann í hið nýja
ráðherraembætti. Ef úr því yrði
myndi það verða í fyrsta skipti,
sem svertingi situr í rikisstjórn
Bandaríkjanna. Blökkumaður sá,
sem Kennedy hefur i huga í hið
nýja ráðherraembætti, er Robert
C. Weaver, sem hefur mikla og
langa reynslu á sviði byggingar-
og húsnæðismála.
Robert C. Weaver er 54. ára
gamall.
Mikil andstaða ríkir í Banda-
rikjaþingi, bæði gegn sköpun
hins nýja ráðherraembættis og
gegn skipun svertingja í það. Þó
má gera ráð fyrir, að forsetinn
hafi sitt fram, enda hefur demó-
krataflokkurinn yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða í báðum þing
deildum.
Samstaða Framsóknar
og kommúnista
Um skeið leit út fyrir það. að
til nokkurs ósamkomulags væri
að draga milli flokka niðurrifs-
bandalagsins, Framsóknarflokks-
ins og kommúnistaflokksins. En
þar hefur aðeins verið um stund-
arfyrirbrigði að ræða. Það kom
m.a. í Ijós í borgarstjórn Reykja-
víkur í fyrradag. Þar hjálpuðu
Framsóknarmenn og kommúnist-
ar hver öðrum. á víxl í kosning-
ingum.
Það er hinsvegar vitað, að inn
an Framsóknarflokksins rikir
megn óánægja og hinn mesti
glundroði vegna stuðnings Tim-
ans við málstað kommúnista.
Ekki alls fyrir löngu voru þessi
mál rædd innan flokksins og kom
þá í ljós að mikill meirihluti
þingflokksins og miðstjórnar
hans var n:.jög andvígur komm-
únistadekri Tímans. Hinsvegar
stóðu formaður flokksins og rit-
stjóri Tímans einhuga saman um
áframhaldandi nána samvinnu
við kommúnista. Má gera ráð
fyrir að Tíminn muni framvegis
slá úr og í, vera annan daginn
eindreginn bandamaður koir.mún
ista í öllum málum. en þykjast
hinn daginn gagnrýna stefnu
þeirra.
„Fram með áætlunina"!
Ótti Framsóknarflokksins við
framkvæmdaáætlun þá, sem rík-
isstjórnin hefur unnið að með
aðstoð erlendra sérfræðinga, held
ur áfram að nragnast. Er raunar
spaugilegt að sjá skelfingu Tím-
ans vegna þessarar merku fram-
kvæmdaáætlunar uppmálaða á
síðum hans dag hvern. I gær birt-
ir blaðið forystugrein, þar sem
látið er að því liggja að áætlunin
sé einhver óttalegur leyndardóm
ur, sem aumingja Framsóknar-
mennirnir fái ekkert að vita um.
„Fram með áætlunina“, segir
Tíir.inn !
Þetta er vitanlega eintóm vit-
Ieysa. Engin leynd hefur hvílt
yfir því undirbúningsstarfi, sem
unnið er í sambandi við fyrr-
greinda framkvæmdaáætlun.
Ríkisstjórnin hefur skýrt frá þvi
opinberlega að hún hafi fengið
erlenda sérfræðinga til aðstoðar
við þetta þýðingarmikla verk.
Frá þvi hefur einnig verið skýrt
að verkinu miði vel áfram og
áætlunin muni sennilega verða
tilbúin í lok þessa árs eða þar
um bil.