Morgunblaðið - 03.02.1962, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 03.02.1962, Qupperneq 14
14 MORCUNTtL AÐIÐ Laugardagur 3. febr. 1962 Asgeir Þorvaldsson Minning 4/8 1881—25/1 1962 í DAG mun verða borinn til graf- ar að Blönduósi einn af elztu og merkustu borgurum þess bæjar, Ásgeir Þorvaldsson múrarameist ari. Hann var fæddur að Hjalta- bakka 4. ágúst 1881, sonur síra Þorvalds prests þar og til Þing- eyraklausturs, en áður að Þing- múla og Hofteigi, Ásgeirssonar dannebrogsmanns á Lambastöð- um á Seltjarnarnesi Finnboga- sonar, af ætt Teits vefara og síra Björns í Bólstaðarhlíð, en kona síra Þorvalds var Hansína Sigur- björg Þorgrímsdóttir prests í Þingmúla, Arnórssonar prests á Bergstöðum, Árnasonar Hóla- biskups Þórarinssonar, og er það Bólstaðarhlíðarætt einnig og Engeyjarætt. Systur Ásgeirs eldri en hann voru Guðríður, gift Kristjáni Berndsen og Sigriður, gift Þórarni alþingismanni á Hjaltabakka. Ásgeir missti föður sinn, er hann var sex ára, en móðir hans bjó áfram á Hjalta- bakka, þangað til þórarinn tengdasonur hennar tók þar við búi, en þá eða skömmu síðar keypti hún sér lítið hús á Blöndu ósi og fluttist þangað ásamt Ás- geiri syni sínum. Stækkaði hann það hús síðar og bjó þar þangað til hann varð ekkjumaður. Ás- geir vann fyrst við verzlunar- störf hjá Jóhanni G. Möller og síðar lengi hjá Magnúsi kaupm. Stefánssyni, en nokkuð snemma fór hann að leggja fyrir sig múraravinnu, sem varð hans að- alstarf seinni hluta ævi. Á æsku- árum Ásgeirs var Blönduós fá- mennt þorp. en þó var þar tals- vert um glaðværan félagsskap að ræða. meðan synir Möllers og Péturs Sæmundsens verzlunar- stjóra voru í föðurhúsum, og tók Ásgeir sinn þátt í honum. Árið 1909 kvæntist Ásgeir Hólmfríði, einkadóttur Zophóní- asar steinsmiðs og símstjóra Hjálmssonar, alþingismanns í Norðtungu, og konu hans Sigríð- ar Árnadóttur frá Neðri-Þverá, Snorrasonar hreppstjóa í Klömbr um. Eignuðust þau tíu börn, sem öll komumst upp og eru þau þessi: Hrefna dáin 1939, f.k. síra Marínós Kristinsson- ar, Sigríður, gift Arnold Tayl- or, prófessor í Leeds í Englandi, Ása, gift Þóri Jóns- syni rafvirkja, Soffía, gift Hjálm- ari Gíslasyni fiskimatsmanni, Amdís, gift Halldóri Erlends- syni iþróttakennara, og eru þær þrjár búsettar í Reykjavík, Þor- valdur bílaviðgerðarmaður á Blönduósi, kvæntur Sigurborgu Gísladóttur, Olga, ógift, kjör- dóttir Magnúsar Stefánssonar kaupmanns og bónda á Flögu í Vatnsdal, Maggý, gift Hans Berndsen, rafvirkja á Gufuskál- um, Zophónías, vélstjóri í Hafn- arfirði, kvæntur Ingibjörgu P. Kolka, og Valgarð, múrara- Innjlegt þakklæti færi ég öllum beim mörgu vinum mínum, sem glöddu mig á áttræðisafmæli mínu með heimsóknum, gjöfum, skeytum og Jjóðum, og bið guð að launa ykkur, tryggð og vináttu við mig. Guð blessi ykkur. Hannes Hjartarson, Herjólfsstöðum. Eg þakka innilega börnum mínum tengdabörnum, systkinum, tengdafólki og öllum vinum fyrir heimsókn, blóm, gjafir og skeyti á sjötugasta fæðingardegi mínum. Guðbrandur Gíslason. Maðurinn mirn SIGUBDUR BREIÐFJÖRÐ SIGURÐSSON frá Bof-Akri, andaðist 31. janúar í sjúkrahúsinu Sóiheimum. Sesselja Bæringsdóttir. Maðurinn minn og faðir EBENESER BERGSVEINSSON andaðist í Landakotsspítala þann 1. febrúar. Jarðar- förin auglýst siðar. Guðrún Hansdóttir, Friðbjörg Ebeneserdóttir. Konan mín og móðir ÁSTRÍÐUR RUNÓLFSDÓTTIR Urðarstíg 12 andaðist 28. janúar. — Bálför hefur farið fram. Bóas Pálsson, Jón Bóasson Þökkum innilega auðsýnda vináttu og samúð við andlát og útför konu minnar MATTHILDAR GUNNARSDÓTTUR Árni Jónatansson og ættingjar. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför KARÍTASAR JOCHUMSDÓTTUR Gústaf A. Ágústsson, Ditjá Tómasdóttir, Sigurður Jónsson, Guðmundur Gústafsson, Else Zimsen, Sigurður Gústafsson, Oddur Gústafsson, Sigrún Gústafsdóttir, Diljá Gústafsdóttir, Gunnai- Guðmundsson. ¥ meistari á Blönduósi, kvæntur Önnu Árnadóttur. Auk þess ólu þau Ásgeir og Hólmfríður upp dótturson sinn, Hrafn Marinós- son, rafvirkja í Reykjavík, og Sigríður, tengdamóðir Ásgeirs, var á heimili hans sín síðustu ár, þrotin að heilsu. Þau kom sér vel, að þau Ás- geir og Hólmfríður voru bæði mjög dugleg og samhent, er sjá þurfti fyrir svo mikilli ómegð á erfiðum árum. enda var efna- hagur þeirra jafna þröngur, þótt allt blessaðist vel. Konu sína missti Ásgeir 1957, en henni hafði hann unnað hugástum, og festi hann eftir það lítið yndi á Blöndu ósi, þótt hann væri ýmist með börnum sínum þar eða í Reykja- vík, en allra síðast einnig vestur á Gufuskálum hjá dóttur sinni, og þar tók hann banasótt sína, lungnabólgu. var fluttur helsjúk ur á Landspítalann og andaðist þar 25. jan., á 81. aldursári. Ásgeir Þorvaldsson var karl- menni að burðum, fríður maður og vel á sig kominn, vóiskleika- maður til verka, meðan hann hélt fullu starfsþreki, og vel látinn af samtíðarmönnum sínum í kaup- túninu, þar sem hann ól mestall- an aldur sinn. Hann vann að byggingu fjölda húsa þar og í héraðinu og var hringjari við Blönduóskirkju í hartnær 40 ár, en þangað var flutt skömmu fyr- ir aldamótin kirkja sú, er faðir hans þjónaði síðast. Þar mun hann og verða hringdur til hinnstu hvíldar í dag, eftir lang- an og vel unnin starfsdag. P. V. G. Kolka. Sr. Sigirrður Einarsson í Holti: Stjarna leitandans Afmæliskveðja til Sveinbjamar Jónssonar Yzta-skála áttræðs Leitandi hugur er stjarna, sem stafar ljósi stillt um gervalla heima til myrkranna yztu og skín þar að lokum, sem lífsins vötn hafa upptök og líða djúp að ósi. Sú veröld skynjast innar en augans myndir og ofar ljúfustu tónum í hljómanna ríki, en þar til hún rís oss röðulfögur við sjónum, reikum vér daufir og blindir. Svo gefst þér heilög stund á einför þíns anda, þá opnast sjón þín á tveggja veralda mörkum og þér er leyft að skynja án þess að skelfast, ert skyggn til beggja landa. Og þaðan af gengur þú götu þína hljóður, glaður og rór í tveggja veralda ljósi, heill eins og sá, sem á himnanna drottinn að föður, en hnígur í skaut sinnar móður. Og þegar Ijós hennar líður þér síðast frá augum og luktar brár þínar hinnstu náttskuggum vefjast. er andi þinn kominn að upptökum lífsins vatna og ævin þín að 'hefjast. Þar stafar þín leitarstjarna á eilífðardjúpin, á ströndinni mæta þér baráttan, lífið og árin, þín fagra vina, þinn fögnuður, vonirnar, tárin, — svo fellirðu síðasta hjúpinn. En því er ég reyndar að þessu hjali lengur, og því skyldi ég vera reyna kenna þér veginn? Þú kannt þetta sjálfur, og kanski ert þú, góður drengur, kunnugri öllum hnútum hinum megin. Holti 14. jan. 1962, VETTVANGUR Frh. af bls. 13. vísku æsku síðastliðið Þorláks- messukvöld. Mundi þetta vera hinn rétti jóldtónn, hin sanna trúardýpt, sem við hin eldri, með öllu þessu umstangi gefum hinum ungu og uppvaxandi? Ætli, þeg- ar saman er dreginn allur sá tími, öll sú hugsun, sem hjá okkur fer í baráttuna um kaup- skapinn og hégómann, að hann verði ekki helzt til of smár sá tími, sem við verjum til að þroska og glæða hinn trúarlega skilning æskunnar á helgi og tign jólanna og því gildi sem sú helgi og tign hefur fyrir líf okkar, hamingju og heill. Ég hygg, að ef við viljum vera hreinskilin við sjálf okk- ur, komumst við ekki hjá að játa, að í sambandi við jólahald okkar, hafi tildrið, hégóma- skapurinn og háreystin orðið trúartilfinningunni um of sterk- ari. — Og er það ekki í beinu framhaldi, hvað af öðru, að með an húsmæður og heimilisfeður og við hin eldri, gerum undir- búningsdaga jólanna að tímum mesta gróðabralls, og hins há- vaðasamasta hégómaskapar, sem um getur á árinu, finnist van- þroskaskaðasta hluta æskunnar ekki fjarri lagi, að gera þann tima jafnframt að stærstu stundum svalls og spellvirkja. Sannleikurinn er sá. að allur sá verzlunaráróður, öll sú fjár- i sóun og öll sú yfirborðsmennska, sem nú orðið er, ár frá ári, stund uð í sambandi við hátíð jólanna er svo fjarstæð þeim boðskap og atburðum, sem jólin eru tengd við, að við erum á góðri leið með að gera þessa dýrðarhátíð að blótveizluhátíð mammons og munaðar. — Og með því erum við að kippa sterkustu stoðun- um undan þeirri guðsríkishug- sjón. þeim manngöfgiskenning- um, sem hin kristna trú er borin uppi af. Hinn mikli sjáandi bóndinn á Sandi, Guðmundur Friðjónsson, kemst svo að orði í einu fegursta ljóði, sem á íslenzka tungu hef- ur ort verið: Úr gullmálmi hjartans á Guðs- ríkisborg að gnæfa yfir átvagla og og mangaratorg. Og síst er það fjáraugnahöfðingj- um hent, að halda uppi í borg þeirri göfgi og mennt. Því Guðsríki byggðu þeir blá- snauðu menn og brjóstgóðu, er sagnirnar lifa um enn. Og tómhentir gengu frá landi til lands og lífinu fórnuðu í kærleik til manns. Það er þessi andi, hinn dýrðlegi gullmálmur hjartans. kærleikur- fórnarhugur og innri trúarþrá, sem gefið hefur jólunum hið óvið jafnanlega gildi, það gildi, sem um ára og aldaraðir hefur borið frið, fögnuð og yl inn í hvert hjarta og í þessum harðviðra heimi, blóðs og styrjar bjargað því, sem bjarga hefur tekizt. — En þessi andi verður aldrel vak- inn né verndaður með verzlun* arflóði, gróðahyggju, hégóma* skap yfirborðsmennskunnar eða ölæði. Því hærra. sem þau teikn ber í sambandi við jólahald okk ar, því nær erum við því marki, að þurrka út þann anda. sem sönn jól hafa skapað og eiga að skapa í lífi okkar og lífsstefnu. Máske þykir slíkt góð latína nú á dögum, þegar voldugir stjórnmálamenn, ríkja, sem til þess þykjast borin að sigra all« an heiminn, stæra srg af því, að stjórnmálastefnur þeirra og þjóð félagsskoðanir geti ekki sam- rýmst kristinni trú. — En ætll okkur misvitrum og skamm.sýn* um jarðarbörnum hafi þó nokk. urn tíma verið þess meiri þörf en einmitt nú, þegar frelsiskúg. un, helryk og atómsprengjur ógna gjörvallri heimsbyggð, að varðveita þann anda, sem boð- skapur jólanna, friður þeirra og helgi hefur að flytja. — Og ef við meinum það, að við unnum frjálsri menningu, sem byggð sé upp af kristnu siðgæði einstakl inga og þjóða eigum við og verð um að gera jól okkar að sönn- um fagnaðarjólum vaxandi göfgi, hófsemi og friðar, en bera ekki fögnuð þeirra út á torg „átvagla og mangara.“ Með því erum við að bjóða slíkum atburðum, sem þeim, er hér gerðust síðasta Þor- lákskvöld og gefa þeim mönn* um og stefnum byr undir vængi, sem vilja útrýmingu og feigð þeirra lífssanninda, er kærleiks* boðskapur jólanna helgast af.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.