Morgunblaðið - 03.02.1962, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.02.1962, Blaðsíða 15
Laugardagur 3. febr. 1962 MOBGTJTSBL AÐIÐ 15 Frá Holti ÞAÐ er eins og Ingimundur Jóns- son kaupmaður, sé enn að stíga túnþúfurnar í Holti og Hala, þegar við göngum Aðalgötuna í Keflavík á leið að Læknishúsinu, sem svo er enn kallað af eldri kynslóðinni, en það reisulega hús ásamt garði og túni, keypti Ingi- mundur á 16 þúsund krónur áður en núllin bættust aftan við krónu tölurnar. Snjóföl hylur blómabeðin í garðinum og lauftrén eru krækl ótt og ber, en beinvaxin tré gnæfa yfir og þar hvíla snjófugl ar sig á flögrinu um mannbyggð- ir. Ingimunidur heifur hugsað vel um garðinn sinn, haft þar sam- band við moldina og gróður jarð- ar og gefið á báðar hendur blóm og stikla, svo að margt af blóm- skrúði Keflavikur er þaðan ætt- að. — Við göngum til stofu í Ingi- mundarhúsi, því ætlunin er að tala við íngirnund um fortíð og nútíð og hans fjö'lbreytta ferða- lag í 75 ar, því svo gamall verð- ur hann þann 3. dag febrúar. — Það eru bara þessir stóru menn sem hafa gert eitthvað, sem segja ævisögur sínar, ég er bara einn af fjöldanum, sem hefur lifað svona lengi. Það þanf að vísu ekki langt aftur í tímann til að andlit lífsins taki breyting- um, sem eru óþekkjanlegar nú- timafólki, en það er tæpast frá- sagnarvert — Ég er fæddur 3. febrúar 1887 að Oddagörðum í Stokks- eyrarhreppi, en fluttist þaðan á öðru ári, ásamt foreldrum mín- um Ingibjörgu Grímsdóttir af Bergsætt og Jóni Jónssyni, að Holti í Árnessýslu, þar komiumst við 4 systkinin á fót og Sigur- grímur bróðir er þar ennþá. — Afkoman í Holti var mjög sæmileg, þó margt væri í heimili — 12 til 14 manns og fleira á sumrin. Foreldrar mínir voru •hjúasæl og bæði dugleg, faðir minn var formaður á Stokkseyri Og stundaði sjóinn alltaf jöfnum höndum og þaðan kom mikið •búsílag bæði hvað mat og önnur gæði snerti. — Faðir minn keypti Holt á 2 þúsund krónur og stofnaði þá til þúsund króna skuldar í Reykja vík, sem honum þótti ekki gott. Ég held það hafi verið 1895, sem einm enskuir kaupmaður Coghill að nafni ferðaðist xnn og keypti sauði gegn greiðslu í gulli, þá seldi faðir minn alla sína sauði og fór gangandi með gullið til Reykjavíkur og börgaði skuldina frá jarðakaupunum. Við söknuð- um sauðanna, því þetta voru fallegar og indælar skepnur, en jþað vár hafizt handa um að koraa tipp nýjum sauðum. — Ég óíst alls ekki upp í fá- tækt — hana skapaði ég mér seinna — frá sjónum höfðum við fiskmeti, salt, hart Og nýtt, kar- töflur nægar og hrossakjöt var notað. Nvtni og sparsemi var við- haft í hvívetna og ennþá sárnar mér ef einhverju er hent. Það er mannskemmandi að henda og kasta nothæfum hluitum og vezt ®f öllu þykir mér þegar illia er farið með mat. — Einstaklingur eða þjóð, sem viðhefur ekki nýtni og sparsemi, kemst aldrei til bjargálna. — Nei, ég fór aldrei í barna- skóla. Faðir minn kenndi okkur heima, skrift, lestur og einskon- ar tölur, en alltaf langaði mig í skóla. Námsþráin yfirgaf mig eldrei og hefur ekki gert ennþá. Þess vegna hryggir það mig að nú skuli þurfa lagaboð og heil- mikil átök á heimilunum til að halda ungdóminum að skólaver- unni. Á þeirri tíð þekktist ekki ann- ®ð en að allir færu til sjávar, hvort sem 1 var dugur eða ekki. Mín eina von til að komast í ekóla var að vinna duglega fyrir mér. og erfiður. bæði einstaklingum og þjóðfélaginu í heild. Það á ekki að vera eftirsóknarvert að búa bara á einhverri jörð án þess að þjóðfélagið njóti arðs af starfinu — það er jafn tilgangslaust eins og fara á sjóinn án veiðarfæra. — Jú, satt er það, útþráin yfirgaf mig aldrei og hefur ekki gert ennþá. X þá tíð var Danmörk fyrirheitna landið og þannig æxlaðist það svo til að ég fékk 250 króna styrk til náms í Dan- mörku, vegna þess að Flóa-áveit an var á dagskrá og ég úr Flóan- um, þá var ég sendur til Hessel- vig-gaard; sem er tilraunastöð á heiðum .Jótlands, en þar var allt ólíkt Flóanum, og varla verið búsældarlegt, ef íslendingar hefðu verið fluttir þangað þegar það stóð til Þeu- var ég í 3 mán- uði, en komst þaðan á tilrauna- stöðina í A.skov — ég var þar á tilraunastöðinni um sumarið en fjósameistari um veturinn og sótti fyrirlestra á Lýðskólanum. Það var fyrirmyndarstaður — dá- samlegur staður á þeim tíma, og er það sennilega enn. Það eru nú 50 ár síðan ég var þar og ég til Keflavíkur Strax eftir fermingu varð ég beitustrákur á Stokkseyri og fékk svo að fara á sjóinn — en þá upplýstist sá óþægilegi leynd- ardómur að ég var óskaplega sjó- veikur, þá var það ráð tekið af föður mínum að senda mig til Keflavíkur til að læra á sjó — því sagt var að þar væri sjór- inn svo sléttur að jafnvel sjó- skussar eins og ég, gætu þar ver- ið liðtækir. Ólafur póstur réði mig í verið, og fór ég fótgang- andi um Selvog, Grindavík Og til Keflavíkur þar sem var ég í 4 vertíðir en sjóaðist lítið. Hjá Ólafi Ásbjörnssyni og Arnbirni Ólafssyni var gott að vera og þeim líkaði ekki illa við mig að öllu leyti. — Mig langaði alltaf til að verða bóndi, þótti ekki mikil framtíð í sjómennskunni og aldrei ætlaði ég aftur til Kefla- víkur, mér leiddist staðurinn og varð sjóveikur við tilhugsunina eina saman — það hlutu að vera óumflýjanleg örlög, en ekki frí- vilji ef leið mín lægi aftur á þann stað. — Jú ég komst í skóla. Það var árið 1906, sem ég komst einn vetur í Flensborg, en var óhepp- inn með skólaveruna, því misl- ingar voru um haustið og tauga- veiki kom upp í janúar og dróg það mjög úr notum kennslunn- ar. — Ég komst á Hvanneyri 1907 Og var þar í 2 vetur. Á vorin ferðaðist ég með Jóni Jónatans- syni bústjóra og unnum við að plægingum o.þ.h. og kom það að mestu í stað verklegrar kennslu og það sem ég lærði í grasafræði var mest af umræð- um þeirra séra Kjartans í Hruna og Jóns Jónatanssonar þegar ég kom heim frá Hvanneyri var keyptur plógur að Holti og ráð- ist á þúfurnar og móana, en þó allt í svo smáum stíl að barna- kropp var á móts við þær sitór- virku vélar, sem notaðar eru í dag. — Þegar faðir minn brá búi í Holti var iokið við að slétta allt gamla túnið og byrjað á mó- unum, síðan hefur Sigurgrímur bróðir minn haldið verkinu áfram og nú er stórbú í Holti óg ef til vill eitt sérkennilegasta bú á landinu, því þar er félagsbú. —■ Sigurgrímur og þrír synir hans, allir kvæntir menn, búa þar félagsbúi, það er gott bú- skaparlag þegar það heppnast, með því móti geta þeir haft stærstu og beztu vélar oig mis- munandi hæfileikar leggjast á eitt og einn eða tveir af fjórum geta farið í smáferðalag þegar svo ber undir. — Einyrkjubúskapurinn er dýr skammast mín fyrir að hafa ekki komið þangað síðan, en farið í þess stað til Afríku og Ameríku. — Jú, jú, ég hefi fengizt við sitthvað um dagana. Eitt sinn var ég barnakennari í Þykkva- bænum. — Ég kenndi krökkun um það sem ég kunni og séra Ófeigur í Fellsmúla var prófdóm- ari hjá mér og hrósaði kunnáttu krakkanna og kennslu minni — og hans hrós var betra en ekki. — Jú, jú — dr'aumurinn um bónda og búskap rættist. Ánð 1914 flyt ég að Hala í Rangár- vallasýslu og byrja þar búskap, með könu mína Sigríði Þórðar- dóttur eina efna, byrja þar í fá tækt með lítinn bú^tofn og gam- allt fólk sem fylgdi mér. Svo kom stríðið með hækkanir á öllu bæði afurðum og notavörum, en ég naut hækkana á afurðunum mjög lítið, því bústofn var svo smávaxinn, en aðrar hækkanir mæddu á með fullum þunga. Ég varð um þetta leyti að stunda jarðabótamælingar um alla Rang árvallasýslu, því það gaf mér tekjur, en háði búskapnum. Ég var á Hala í 18 ár. Það voru erfið umbrotaár — það voru stríðsár og eftirstríðsár. Allt hækkaði og menn urðu bjart- sýnir, en svo kom hrunið og ég og aðrir sátu eftir með skuld- irnar. 1932 seldi ég jörð og bú í Hala og við burtförina skuldaði ég engum og átti ekkert nema konuna og 3 dætur, en hafði þá misst 4 unga drengi — það gekk barnaveiki og aðrar plágur. — Svo var lagt af stað í þá göngu, sem forlögin höfðu víst fyrir ævalöngu ákvarðað mér — til Keflavíkur, þangað átti ég að fara þó ég reyndi að þrjózíkast við í lengstu lög og þó mig hefði dreymt fyrir því fyrsta sumarið sem ég var í Hala — þá þótti mér ég vera á ferð í myrkri, kulda og gaddi og allt í óbæri- legum erfiðleikum, en svo birtir og léttir allt til og er ég þá sitadd- ur á Vatnsleysuströndinni og framundan er beinn og breiður vegur til Keflavíkur. Ég fékk um stund vinnu hjá Friðrik í Mið koti í Þykkvabænum, reyndi hjá kaupfélaginu á Selfossi og hjá vegamálastjóra — en ekkert þýddi að þrjózkast við, og til Keflavíkur kom ég og hitti þar fyrir gamla vini og velunnara frá mínum útróðraárum þar og ég hafnaði beint í búðinni hjá Ólafi J. A. Ólaís syni, syni Arnbjarn- ar Ólafssonar, sem ég var ver- tíðarmaður hjá fyrir mörgum ár um, en við það heimili hafa bönd kunningsskparar og velvildar í minn garð aldrei brostið. Ólafur hætti svo verzlun sinni skömmu síðar Og bauð þá Guð- rún Einarsdóttir kona hans, mér að taka búðina á leigu fyrir lítið verð og hvatti mig til þess, en mér fannst ég fákunnandi og fé- laus til slíkra stórræða. — Það varð samt úr. Ég leitaði til vina minna Emils Jónssonar, núver- andi ráðherra, Kjartans Ólafsson- ar í Hafnarfirði og Guðm. Odds- sonar og ábyrgðust þeir fyrir mig 500 króna víxil til að kaupa mér verzlunarleyfi. 250 krónur átti ég eftir til vörukaupa, keypti ég % mill af Commander Og eitt- hvað annnað smávegis, svo sem til hrökk. Ég gekk einnig á fund þeirra stóru í verzluninni, þeirra Natan & Olsen, Helga Bergs, Garðars Gíslasonar og Eyjólfs í Mjólkurfélaginu, naut ég frá þeim bæði trausts og góðra ráða — minnist ég þess sérstaklega að Garðar Gíslason ráðlagði mér að ástunda gött bókhald. Ég hefi gjarnan farið að ráðum þessara góð'u manna oig gefizt vel í hví- vetna, en illa þegar útaf var brugðið. — Ég lánaði af litlum enfum, en aðrir höfðu minni efni Og gátu ekki borgað, því hart var í ári og vertíðarhlutur oft um og undir 8—900 krónum. Það sagði til sín að tapa 100 krón- um, hvað þá heldur mörgum hundruðum — en hvað um það, þetta þokaðist í áttina með mik- illi vinnu, nýtni og sparsemi. Margir spáðu illa fyrir því að vera beint á móti verzlun Þor- steins Þorsteinssonar, en mér gafsit það engiu að síður. Ég hafði það einhvern veginn á tilfinning- unni að betra væri að vera þar sem umferðin er mest, og það reyndist svc að alltaf slæddist einhver inn til mín. — Nú svo kom að því að Guð- rún Einarsdóttir bauð mér búð- ina til kaups, en það var stór- ræði, sem ég réði ekki við. Þá Rabbað við Ingimund Jónsson, kaupmann í Keflavík hafði ég haft afgreiðslu Steindórs bílanna um nokkur ár og fór þvi til Steindórs og tjáði honum vand ræði mín. Steindór ráðlagði mér að kaupa og lánaði mér kaup- verðið allt — Ég hélt fast utan um þann seðlapakka á leiðinni suður. — Já, svöna fór það og svona er það. Ég er sáttur við lífið og samferðamenn mína og umfram allt er ég sáttur við Keflavík, nú finnst mér jafn ómögulegt að fara þaðan eins og mér fannst á stundum að fara þangað. — Keflavík hefur farið vel með mig — þar hiefi ég eignazit vini sem hafa stutt mig með ráðum og dáð Og reynst mér vel. Þó ég sé ennþá í gamla læknis- húsinu Og gömlu Ingimundarbúð, sem ekki ber þann glans, sem aðrar búðir gera í dag, þá er það þvi að kenna að ég þekki skuldir og basl — það koma aðrir yngri og endurreisa Ingimundarbúð, alveg eins og búiskapurinn í Holti og Hala. Hér í Keflavík hefur mér og mínum liðið vel — ég hefi fengið að vera ungur með ung- um og gamall með gömlum — fólkið hefur skilið mig og ég hefi leitast við að skilja það. — — Mín lífssaga er ekki frá- sagnarverð. Það sem hæst ber í mínum huga skiptir engan máli, nema mig. Mín saga er eins og ótal margra annara, saga um von ir sem ekki rættust, um mark- mið, sem ekki náðust, en að nær því lokinni vegferð er ég mest þakklátur góðu fólki, sem ég hefi átt samleið með og hvernig for- lögin hafa farið vel með mig og ætlað mér þægilegt kvöld eftir mismunandi erfiðan dag. — Margt fieira bar á góma. þessa kvóldstund í Ingimundar- húsi, og að lokum segir hann mér að þau hjónin verði ekki heima á afmælisdaginn, þau séu orð.in svo gömul — en hvað um það, hin nýja Keflavík er í þakk- lætisskuld við þau hjón fyrir þann ríka þátt sem þau hafa átt í mótun bæjarins neð fordæmi sínu og störfum. Alla þá sem langar til að óska Ingimundi til hsuningju með af- mælið og þakka honum alla góða viðkynningu — þeir geta hitt hann í Ingimundarbúð — gang- andi sínar gömlu þúfur — ljúf- an og hressan og ávalt viðbúinn að véita hverri góðri hugmynd sína aðstoð og brautargengi. —» Svo er giarnan um geðþekka ménn, sem hafa mikið lært á langri leið. Undir heillaóskir til handa Ingi- mundi veit ég að allir samborg- arar mínir taka. Helgi S. Utan úr heimi Framh. af bJs. 12. Nehru og Nasser eru engir að- dáendur hans. Þeir telja hann of tilfinninganæman og álíta að hann skipti sér of lítið af stjórn landsins. Leiðtogarnir í Kína hylla Sukarno sem byltingarsinna, en treysta honum ekki fyllilega. Rússar, sérstaklega Krúsjeff, bera litla virðingu fyrii Asíubúa, sem skortir framkvæmda- semi. Það voru Rússar, sem gáfu Sukarnc viðurnefnið „Quisling Indónesíu" vegna samvinnu hans við Japani í síðustu heimsstyrjöld. Jap- anir hafa í dag ekki mikið álit á Sukarno. Þeir álíta að hann eyði of miklum tíma í byltingu sína en of litlum í stjórnarstörf. Hollendingar telja að Sukarno sé mjög óá- reiðanlegur, honum sé ekki treystandi til að standa við gérða samninga. Jafnvel heima í Indónesíu verður Sukarno fyrir gagn- rýni. Aðallega er hann gagn- rýndur fyrir að vera helzt ti'l stimamjúkur gagnvart kon- um. FJÓRKVÆNTUR Sukarno er heillaður af lífinu í stórborgum heimsins. Hann er mesti myndarmaður og hrifinn af og stimamjúk- ur við konur á öllum aldri frá öllum löndum. Hann er fjórkvæntur og hefur skilið við tvær af konunum. Fjórða kona hans hafði verið gift áð- ur. en var fráskilin. Vakti brúðkaup þeirra mikla gremju ýmissa kvennasamtaka í Indó nesíu. En Sukarno lét sig gagnrýnina litlu skipta og nú eru báðar eiginkonur hans sjálfsagðir gestir í öllum op- inberum veizlum. Margir stjórnmálaleiðtogar í Indónesíu eru þeirrar skoð- unar að heppilegt væri að Su- karno léti af störfum og yngri menn fengnir til að ráða fram úr fjárhagserfiðleikum lands- ins. En allur fjöldinn stendur með Sukarno. Hann er í þeirra augum hetjan, sem sat í mörg ár í fangelsi og útlegð vegna sjálfstæðisbaráttu sinnar. Þeif mæta enn þúsundum saman til að hlusta á heillandi mál- snilld hans. Og þessir fylgis- menn hans láta sig það engu skipta þótt hann sé lítt fær um að annast dagleg vanda- mál varðandi stjórn landsins. Það er þrennt, sem Su- karno fyrirlítur — nýlendu- stefna, heimsvaldastefna og auðvaldsstefna. Þeir sem þekkja hann eru sannfærðir um að af þessum sökum muni Sukarno ekki vera í rónni fyrr en hann hefur á einn eða annan hátt hrakið Hollend- inga burt frá Nýju Guineu. (Lausl. þýtt úr U. S. News & World Report)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.