Morgunblaðið - 03.02.1962, Síða 23

Morgunblaðið - 03.02.1962, Síða 23
Laugardagur 3. febr. 1962 MORGTJNBL AÐ1Ð 23 Kjalarnesi Kjalarnieshreppi, 30. janúar. ÁRIÐ 1961, sem nú er liðið, hef- ur að mínu áliti verið farsælit ár til landis og sjávar. Heiisufar fóLksins hefur þó ekki verið upp á það bezta, því nokikuð kvilla- samt hefur verið, en mun þó hafa rætzt betur úr að sögn hóraðs- læknis. Hér í sveitinni er nokkuð xnargt af fólki, sem komið er um og yfir sjötugs ára aldur, og hefur liðið vel og haft góða heiisu. Aldursforsetinn er Gurnn- hildiur Ólafsdóttir, fyrrverandi húsfrú á Vallá, sem varð 92 ára 20. 10. 1961. Engin dauðsföll urðu hér síðastliðið ár. Fólksekla. Á sveitaheimilunium ©ru aðal- vinnukraftarnir fjölskyldurnar, sem þar búa, með aðstoð ungl- inga yfir sumarmánuðina — með nokkrum undantekningum, er fullgilt verkafólk fæst. Reynast uniglingarnir duglegir og áhuga- samir oftastnær, sem rétt er að rneta og þakka. En hinsvegar er það mikið alvörumál fyrir bænd- ur, hve erfitt það er að fá gegn- ingarmenn við skepniuhirðingu og mjaltastörf, sem mun stafa af jþví, að fólk vill ekki vtnna þessi störf, eða þá að það setur upp það hátt kaup, sem bsgndiur eiga erfitt með að greiða. Heyin góð til gjafar. Haust- og vetrarveðráttan hef- Ur verið bér syðra mild með litl- um undantekningum. Að visu gekk hér yfir um 22. nóvember síðastl. norðan garður með 6—8 stiga frosti og snjóéljum, en það veður gerði ekki neitt verulegt tjón. Sauðfé var tekið í hús um þetta leyti og kom fallegt af fjalli. Nautgripum var beitt víð- ast hvar fram um veturnætur og geldneytum sumstaðar lengur. Búsmalinn hefur verið fremur af- urðagóður, sem má þa'kka góðri meðferð og veðráttunni. Heyöfl- unin gekk eftir vonum vel eftir miðjcin júlí og varð heyiskapur vel í meðallagi að vöxtum, þegar slætti var lokið, sem mun hafa verið fyrri hluta septembermán- aðar. I>á má fullyrða að heyin réynist góð til gjafar, en svo er enn sem fyrr, að fóðurbætir er all mikið notaður handa mjólkur- kúm„ Síðan frá áramótum hefur verið mifkil umhleypingatíð og nokkuð frost, stormar og snjó- gangur. Var kocminn nokkur snjór, og til fjalla er sem jökull yfir að líta, eða vetur sem í gamla daga. Á láglendi tekur upp. Bóndadagurinn er liðinn hjá og miður vetur sagður eftir alm- anakinu, en bændur verða að eiga meira en heiming heyja sinna eftir ef diuga skal fram úr, þvi sú reynsla er að vorin eru gjafafreik. -•* **•-----• ‘T—inrnn .......' sjóstanga- veiðimótið ÁKVEÐIÐ er, að halda sjó- stangaveiðimót í Vestmanna- eyjum í vor svo sem s.l. tvö ár. Sjóstangaveiðifélag Reykjavíkur gengst fyrir mót- inu og er þess að vænta. að margt útlendinga sæki mót- ið. Hefur Sjóstangaveiðifélag- ið leigt strandferðaskipið Esju til fararinnar og munu þétt- takendur búa nm borð í skip- inu meðan mótið stendur, eða 31. maí til 3. júní. í Esju er rúm fyrir 180 farþega í þess- ari ferð og eru áhugasamir veiðimenn þegar farnir að hugsa sér til hreyfings. Félagslíf. Hér var þorra fagnað með Þorrablóti, sem var vei sótt að vanda. Þar var rikulegiur og góð- ur sveitamatur. Um hönd voru höfð ýmis skemmtiatriði og lesn- ir upp ýmisir molar úr blaðinu Kjalniesimga, sem koma allt í einu í leitirnar. >á var á milli jóla og nýjárs haldin jólatrésskerrumitun, sém var fjölmenn sérstaklega af börnum, sem skemmtu sér ágæt- lega. Byggingarefni af Kjalarnesi. Hér í hreppi (og Reykjavík) eru starfandi tvö fyrirtæki, sem selja sand og möl til bygginga í Reytkjavík. Er það mál manna að Reykjavík sé mú byggð og við- haldið með byggingarefni fluttu úr Kjalameshreppi. Er þessi starfræksla rekin í landi 3ja jarða, sem eru Esjuberg, Móar og Álftanes, og eru þar stórvirk- ar vélar að verki. Til Reykjavíík- uir er efnið flutt daglega með stórvirkum bíliuim, fleiri hundruð bíilfarmar á dag. Hefur þessi rekstur staðið síðan 1956 og eykst með ári hverju. Er ekki mema gott um þessa samvinmu að segja, en mig er farið að gruna að hlut- ur Kjalarmeshrepps sé ekki nægi- lega góður í þessum viðskiptium — fjárhagslega. Og að siðustu í þessu máli vil ég það segja, að í raiun og sannleika er það éfcki frekt eða heimskulegt að óska efitir þvi, að vegurinn frá Móum og Esjubergi til Reykjavíkur verði mjög fljótlega steyptur, þar sem allt þetta byggingarefni er um þemnan veg keyrt, sem áður er sagt, til viðbótar þeirri miklu umferð þeirra fólks- og vörubíla, sem fara til vestur —, norður—, og austurlandis dag- lega nær því allt árið. Nokkuð hefur verið rætt af aknemningi um önnur fyrirtæki, sem eru á byggingarbraut hér. í Kollafirði er í byggingu uppeld- isstöð fyrir lax og hafa verið hafnar miklar byggingar þar í haust og fram á vetur, en nú snýst starfið þó aðallegia um gæzlu við laxastofnimn. Eru mikl- ar vonir tengdar við þá starfsemi, sem er mikið til ný grein í fram- leiðslu hér og ætti að verða til góðs fyrir alla landismenn. >á hief ur Ólafuir í Álftanesi sett á stofn amdabú og byggt þar hús með til- heyrandi vélum. Ég vil ekkert um þennan rekstur segja niú, en það rétt mæla, að voniandi er að honuim takizt að yfirstíga alla byrjunarerfiðleika og geti séð þessum rekstri sinum fjárhags- lega borgið. Fréttamiaður Ríkis- útvarpsins staddur í Álftanesi um daginn sagði Álftames vera í Mos- fellshreppi, sem er rangt því sú jörð er í Kjalarneshreppi. — Ó.B Filmíuklúbbur stofnaður á Selfossi SUNNUDAG-INN 28. jan. s.l. var boðað til stofnfundar Filmíu- klúbbs á Selfossi, að frumkvæði nokkurra áhugamanna þar. Tilgangur klúbbsins er að skapa aðstöðu til útvegunar og sýninga á úrvalskvikmyndum, sem torfengnar eru, í samvinnu við hliðstæðan félagsskap utan- lands og innan. Fund þennan sóttu um 40 manns, og voru þar samþykkt lög fyrir félagið, að mestu snið- in eftir lögum Filrníu í Reykja- vík og kom fram mikill áhugi fyrir þessu máli. Fyrsta sýningin verður n.k. miðvikudagskvöld í Selfossbíó, og hefst kl. 23,00 og verður þá sýnd amerísk mynd, The Sun Shine Bright, sem John Ford hef ur gert, og verða félagsskírteini afhent sýningarkvöldið frá kl. 22 í Selfossbió. Konan hjá kunnin^jum í OÆRKVöLDI auglýsti Iðg- reglan eftir konu um fertugt, sem hafði íurið að heiman frá sér í Reykjavík i fyrradag um kL 13. Óttast var um konuna vegna þess að hún átti vanda til ýfir- liða. Um klukkustund síðar hafði lög reglan spurnn af því að konan væri heii a núfi. Hafði farið til hunningja sinna utan Reykja- víkur, en iáðst að láta vita um sig. Mynd þessi var tekin af Antoine Gizenga á fiug- vellinum í Leopoldville, 20. jan. s.l. Eginkona hans (t.h. á myndinni) var í för með honum. ViðgerSarmaður milli bæja AKRANESI, 2. febr. — Rúm vika er nú liðin síðan viðgerðar- maður kom að Belgsholti i Mela- sveit. Er hann þangað kominn á vegum Vélasjóðs og á að fara eins og logi yfir akur bæ frá bæ og gera við landbúnaðarvélar bændanna. Viðgerðarmaðurinn heitir Halldór Kristjánsson. — Oddur. Tollvöriigeymsla EFNT verður til hádegisverðar í Klúbbnum í dag og mun Gunn- ar Ásgeirsson, stórkaupmaður, flytja þar framsöguerindi um stofnun hlutafélags um tollvöru- geymslu. Frjálsar umræður verða að ræðu hans lokinni. Akstur í hálku FÉLAG íslenzkra bifreiðaeig- enda gengst fyrir kvikmynda- sýningu um umferðamál í Gamla Bíó kl. 3 í dag. Sýnd verður m. a. kvikmynd með ís- lenzku skýringartali um akst- ur í hálku og slæmri færð. Kvikmynd þessi er gerð af danska bifreiðaeigendafélaginu og hefur verið sýnd víða í Dan mörku við góðan orðstír. Mynd in er tekin við sambærilegar að stæður og tíðkast hér á landi að vetrarlagi. Myndin sýnir ökumönnum hvernig haga beri akstri við hin erfiðustu skil- yrði, hvemig unnt sé að aka í hálku og slæmri færð, án þess að hlekkjast á. Auk þess eru sýndar tvær stuttar, bandarískar myndir um akstur í þéttbýli og umferð fót gangandi manna. Vetrarumferðim er orðið geysi legt vandamál hér á landi. Alls hafa yfir 220 árekstrar verið til kynntir til rannsóknarlögregl- unnar í síðastliðnum mánuði, og mun það vera hæsta tala, sem um getur yfir einn mánuð, enda oft slæm færð í mánuð- inum. í árekstrum þessum varð mjög mikið tjón fjármuna, auk þes varð 21 maður fyrir meira og minna tjóni á líkama. >að er sorgleg staðreynd, að í all-flestum tilfellum verða árekstrarnir og slysin fyrir gá- leysi og vankunnáttu öku- manna. >ví ber að fagna, að Félag íslenzkra bifreiðaeigenda gengst nú fyrir þessari kvik- myndasýningu, og er að vona að sem flestir notfæri sér þann fróðleik, er þar er að finna. Sérstaklega er kvikmynda- sýningin tímabær, þar sem marg ir aka nú á snjóbörðum sem krefst kunnáttu í akstri. Hug- fast ber að hafa, að akstur í hálku og slæmu færi er vanda samur, en hægt er þó að læra hann. Knut G. Fadnes, bankastjóri, Stord >AÐ var mjög óvænt og sorglegt að frétta að þessi ágætismaður I væri fallinn í valinn um aldur fram, eða aðeins tæplega 55 ára gamall. Hann var fæddur og uppalinn í Evanger sem er í Uxabotnum við Finse, hæsta byggðarlag í Noregi. Knut Fadnes var góðum gáfum gæddur og lauk ungur prófi frá verzlunarskóla í Bergen, síðan jók hann við þá menntun með fram'haldsnámi í Danmörku, Englandi og Þýzkalandi. Hann 'hóf síðan sfcarfsferil sinn sem bankamaður í „Voss Veksel- og Landmannsbank“, en eftir tveggja ára starf þar, réðist hann til Vestlandsbanken í Bergen og gegndi þar störfum aðalritara eða skrifstofustjóra starfi. Árið 1956 var hann svo skipaður banka stjóri Sunnhordlandsbanken í Stord og gegndi hann því starfi til dauðadags. Fadnes var því mjög vel þekktur bankamaður í vestur Noregi, svo sem sjá má á skrifum fyrrverandi yfirmanns hans Hr. A. Skaasheim, sem var einn af aðalbankastjórum Vest- landsbanken um langt árabil, en er nú setztur í helgan stein sök- um aldurs. En við sem þetta skrifum þekkjum hann ekki fyrst og fremst sem bankamann, heldur sem áberandi félags frömuð, bæði í Ungmennafélags hreyf- ingunni, átthagafélögum, íþrótta félögum og einnig mun hann hafa veitt Rotaryklúbb forstöðu. Okkar fyrstu kynni af þessum ágætismanni voru í sambandi við glímuför U.M F.R. til Noregs 1947 og síðar hafði annar okkar tæki- færi til að kynnast þessum mann ko-stamanjn, og eftirlifandi konu hans Thorbjörgu, er hann var við tæknifræðinám í Bergen. Við þessi kynni kom fram mikill hlý- ihugur þessara hjóna beggja til íslands og íslenzkra málefna, enda hafði Fadnes mikinn áhuga á söng og ljóðum, og var vel að sér um þau fræði. Það var hon- um því kærkomið tækifæri þeg- ar hann gat, í fyrrgreindri ferð, fræðst (af Lárusi Salómonssyni) um íslenzkan kveðskap, sérílagi forna háttu, byggingu, drótt og hrynhendu háttar og einnig fer- skeytlu ættar og sléttúbanda formsins, og vai- bann mjög hrif- inn af þessum ljóðformum. Nú er þessi hugljúfi ágætismað ur, og íslandsvinur horfinn sjón um tiil mikillar sorgar fyrir eftir- lifandi eiginkonu, vini og félaga. Við viljum því bæði persónulega, og fyrir hönd þeirra sem þátt tóku í áðumefndri Noregsför, votta eiginkonu hans og aðstand- endum okkar dýpstu samúð og við munum geyma kynninguna við hann sem fagra minningu um góðan og göfugan dreng. Hvíldu í Guðsfriði góði vinur. Daniel Einarsson. Lárus Salómonsson. Brynhildur Steinnnn Jónsdóttir NÝLEGA lézt í Seattle í Banda- ríkjunum Brynhildur Steinunn Jónsson, 68 ára að aldri. Bryn- hildur var ættuð frá Mörk í Húna vatnssýslu, dóttir Erlendar Guð- mundssonar og Ingibjargar Krist mundsdóttur. Brynhildur fór með foreldrum sínum vestur til Kanada þegar hún var 5 ára og bjó þar og í Bandáríkjunum alla sína ævi. Brynhildur giftist Þorbirni Jónssyni trésmið, en hann var ættaður úr Borgarfirði syðra. Þau eignuðust þrjú mannvæn- leg börn: Kristínu Smedvig, konsertmeistara Seattle Women’s Symphony Orchester, Elínu Mc- Dougall, hjúkrunarkonu, og Jón Marvin, fyrrverandi fylkisþing- mann í Washington fylki, lög- fræðing. Sumarið 1959 kom Brynhildur til íslands og dvaldist hér sum- arlangt. Ekki var að finna á mæli hennar, að þar færi kona, sem hefði farið frá íslandi fyrir 60 árum. svo vel talaði hún islenzkuna, enda dáði hún allt islenzkt og lagði sig mjög fram um að kenna börnum sínum mál feðra sinna. Meðan Brynhildur heitin dvald ist hér heimsótti hún skyldfólk sitt, fór á æskustöðvar sínar í Húnavatnssýslu og víðar um landið. Brynhildur heitin var hinn bezti fulltrúi íslands í Vestur- heimi, og í henni var að finna allar þær dyggðir, sem bezt geta prýtt oss. Það er því sannarlegt tap islenzkri þjóð að hafa misst þennan góða fulltrúa. O. H.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.