Morgunblaðið - 03.03.1962, Blaðsíða 5
Laugardagur 3. marz 1962
MORGHTSBLAÐIÐ
5
Af þeim ellefu „Oscar“-ver3
launum er kvikmyndin Ben-
Húr hlaut f. sínum tíma, voru
tvenn veitt fyrir „beztu drama
tísku 'músík“ og „beztan
hljóm“. Og í tilefni af sýning
um á Ben-Húr hafa verið sett
upp í Gamla bíó tóntæki af
nýjustu og fullkomnustu gerð,
fyrir svokallaðan margrása
segultón. Tóntæki þeasi, sem
eru frá Philipsverksmiðjunum
hollenzku, framleiða sterófón
ískan hljóm, og gera það mögu
legt að hljómflutningur á tali
og tónlist kvikmyndarinnar
verði með sem mestum raun
veruleikablæ. Slílkur hljóm-
flutningur var fyrst notaður
erlendis í Cinema-kvikmynd-
um og síðar í sambandi við
Todd-AO kvikmyndirnar. Til
þessa hefur verið notuð ein
hátalara-samstæða í kvi’k-
myndahúsum, sem komið var
fyrir bak við mitt sýninga-
tjaldið ,og tal og tónlist kom
ávallt frá einum og sama stað.
Hin nýja aðferð notast við
margar hátala-samstæðrr,
sem eru dreifðar bak við sýn-
ingatjaldið, þannig að það er
tryggt að hljóðið komi í hvert
skipti frá réttum stað mynd
flatarins. Ennfremur er há-
tölurum komið fyrir frammi í
áhorfendasalnum, til að auka
enn áhrif hljómflutnings og
gera hann sem eðlilegastan.
Kostir hinna nýju tækja munu
greinilega koma í ljós, þegar
sýningar á Ben-Húr heíjast.
Tóntækin, sem hr. Gunnar
Þorvarðsson annaðist uppsetn
ingu á, munu verða notuð við
allar meiriháttar kvikmyndir,
sem Gamla Bíó fær í framtíð-
inni.
Peningalán
Get látið í té kr. 150—200 þús. krónur til nokkurra
mánaða gegn öruggri tryggingu. Tilboð sendist af-
greiðslu blaðsins merkt: „Trygging — 40?4“.
Vé’stjári
Vanur vélstjóri óskast. á góðan vertiðarbát sem stundar
veiðar við Suðurland.
Upplýsingar gefnar í símum 1-10-20 og 1-85-50.
Trésmíðavél
Bútsög (Radial) Walker Turner til sölu.
Sími 17558 og 36387.
Lán — Hagnaður
Óska eftir 120—150.000 kr. láni í 5 ár, með venju-
legum bankavöxtum Trygging í fasteign. í þóknun
fær lánvertandi vandaðar innréttingar (eldhús,
skápa) eða aðra nýsmíði að verðmæti 16—20.000 kr.
Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir þriðjudags-
kvöld merkt: „X—120 — 4055“.
60 ára er í dag frú Helga
Einarsdóttir, Barónsstíg 30. Á
afmælisdaginn dvelur hún á
Laugarn-eovegi 66.
I da-g verða gefin saman í
hjónaband af séra Sigurjóni Þ.
Árnasyni ungrú Elín Eggerz, —
Stefánsson, yfirhjúkrunarkona,
Vífilsstöðum, og hr. Árni Frið-
finnsson, bókari, Hafnarfirði. —
Heimili þeirra verður að Herjólfs
götu 10, Hafnarfirði.
Nýlega hafa opinberað trúlof
un sina Elín Björk Magnúsdóttir,
Vitastíg 10, Hafnarfirði og Gísli
Vjörnsson, Sveinatungu, Borgar
firði.
Nýlega hafa opinberað trúllof
un sína ungfrú Erla Gunnla-ugis
dóttir skrifstofumær Skeiðarvogi
2 Reykjavik og Ólafur Unn-
steinsson iþróttakennari Reykj-
um, Ölfusi.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Ólöf H. Guðjónsdótt
ir, Suðurgötu 10, Hafnarfirði og
Aðalsteinn Einarssón, Hólabraut
8, Hafnarfirði.
90 ára er í dag Brynjólfur Þórð
arson, fyrrum bóndi að Gölt í
Grímsnesi. Hann dvelur nú hjá
syni sinum Kristni bónda í Gölt.
Loftleiðir li.f.: Snorri Sturluson er
væntanlegur frá Stavanger, Amster-
dam og Glasg. kl, 22:00 annað kvöld.
Fer til NY kl. 23:30.
Hafskip li.f.: 1 .axá er á leið til ís-
lands frá Spáni.
Jöklar ii.f.: Drangajökull er á leið
til Mourmansk. L,angjökull er í Kefla
vik. Vatnajökull lestar á Vestfjarða-
höfnum.
Skipadeild SÍS: Hvassafell er í Rvík.
Arnarfell er væntanlegt tU Gufuness
5. þ.m. Jökulfell lestar á Norðurlands
höfnum. Disarfell er 1 Rotterdam. l.itla
feU er á leið tU Rvíkur. Helgafell er
á leið tU Bremerhaven. Hamrafell er
væntanlegt tU Batumi 5. þ.m. Mar-
gethe Robert er í Gufunesi.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er í Rvík. Askja er i Rvík.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er vænt
anleg tU Rvíkur í dag að vestan úr
hringferð. Esja er á Austfjörðum á
suðurleið. Herjólfur fer frá Vestm.-eyj
um kl. 21 í kvöld til Rvíkur. Þyrill
er í Hamborg. Skjaldbreið er á Norð
urlandshöfnum. Herðubreið er á leið
frá Kópaskeri tU Reykjavíkur.
Það er auðveldara að skrifa tíu
bindi af heimspeki, en koma einni
meginreglu í framkvæmd. — Tolstoi.
Það eina, sem þii getur lagt tU lífs-
málanna, ert þú sjálfu-r. — F. Crame.
Hin lengsta ferð byrjar með einu
skrefi. — Kínverskt.
Marguo morgunroðinn hefur enn
ekki ljómað. — Indverskt.
fyrst duggunarlítill hávaöi. dagurinn hángir í snöru. hvað
skyldu margir lifa hvaö skyldu margir deyja. þetta er pínu-
óskulitill hávaði meö táfýlu úr skóm ráöskonunnar. nú er
einkvur aö leika sér í túnfœti ráöskonunnar. einkvur. —
viö skulum tiggja á hleri — og kannski er einkvur stein-
sofnaöur — æi já . . .
11
nú leggst þögnin yfir ráöskonuásjónuna grámyglulega og
gœgsnislega eftir heingdan daginn. í austri siglir naglfar
gegnum rauö ský og þerripappír og haughús og grafhýsi
opnast og missa glœpinn út yfir lafmóöa mannhunda. —
kannski ég mœtti annars kynna ykkur: jónína jónasdóttir
ráöskona og tímaritiö satt og logiö. — öats fœn. —
kannski viö bjóöum svo kiljani og jobba og jónileifs í partí
einsogskot. og elínborgu. hvaö munar okkur um soleiöis
húmmbúkk. o sosum ekkert góöa. svo byrja kinnar ráös-
konunnar aö grænka. þaö er ekki seinna vœnna.
ó je minn góöur: kannski ég rauli mér annars íslenzkt
ástahljóö í vörpu: jú ar mœ happiness
jú ar mæ jóhanness —
avo flýtur naglfar yfir hlandforirnar þar eystra — — —
III
bvo kemur aftur hávaöinn — óskulítill og inndœll hávaöi.
þáldég. kannski hefur einkvur keypt svitameöal handa
ráöskonunni. þaö er állavegana gott aö fá sér frískt loft
eftir saltfiskinn.
i skotinu bákviö öskutunnuna: njóli botnlaus fata úrkynj-
aöur fífiU brotin skóbbla aska skvísa meö eldrautt hár
og grœnar kinnar —
— kannski slœr maöur hundraökáll í kvöld —
adjö —■
SELFOSS OG NÁGRENNI
Þegar lífssaga
manna er
Hvenær mun það verða
og hvernig?
Um ofanskráð efni talar Svein B. Johansen sunnu.
daginn 4. marz ki. 20:30 í lðnaðarmannahúsinu
á Selfossi.
Kvartetísöngur — Einsöngur.
Allir velkomnir.
rannsökuð
Tilboð
óskast í smíði og uppaetningu á verzlunarinnrétt.
ingu. Þeir sem, áhuga hafa á að taka verkið að
sér leggi nafn og heimilisfang inn á afgreiðslu
blaðsins merkt: „Verzlun — 4051“.
Happdrœtti
St. Jásepsspítala
dregið 1 marz. — VINNINGUR NtlMER 128.
Vinnandi vinsamlega snúi sér til skrifstofu
spítalans.
Kliáiikdama
óskast á lækningastofu í Miðbænum. Vélritunar-
kunnátta nauðsynleg. Umsóknir með upplýsingum
um menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu blaðsins
fyrir 6. þ.m. merkt: „Klinikdama — 4020“.
Tæknilegt
skrifstofustarf
Starfsmaður við IBM skýslugerðarvélar óskast nú
þegar, eða 1 apríl n.k. Æskileg menntun: verzlunar-
eða samvinnuskólapróf. kennarpróf, stýrimanna-
próf, vélstjóiapróf, eða tilsvarandi menntun.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf, ásamt meðmælum ef fyrir hendi
eru, sendist blaðinu fyrir 9. þ.m. merkt: „4019“.