Morgunblaðið - 03.03.1962, Blaðsíða 13
Laugardagur 3. marz 1962
MORGVTSTtT AÐIh
13
Eini árangur orkuaukningarinnar sá,
aö myndirnar verða skýrari
Ræða Alfreðs G'islasonar bæiarstjóra
við útvarpsumræðurnar
ÞÁLTILLÖGUR þær, sem hér
eru til umræðu, hin fyrri frá
fjórum þingmönnum Alþýðu-
bandalagsins og hin síðari frá
fimm þingmönnum Framsóknar-
flokksins, ná misjafnlega langt
í kröfum sínum um hömlur á
sjónvarpssendingu vamarliðsins
á Keflavíkurflugvelli. Hin fyrri
Ihnigur í þá átt, að afturkallað
verði með öllu leyfi tii sjón-
varpssendingar varnarliðsins, en
í hinni síðari vilja Framsókn-
armenn ekki, af skiljanlegum á-
stæðum, ganga svo langt, heldur
láta sér nægja að krefjast þess,
að komið verði í veg fyrir þá
stækkun sjónvarpssviðsins, sem
þeir telja, að orkuaukningin úr
50 wöttum í 250 wött, sem leyfð
var fyrir tæpu ári eða 17. aþríl
1961, hefði í för með sér.
Að því er ég bezt veit, eru
deildar skoðanir um þessar sjón-
varpssendingar varnarliðsins í
öllum flokkum, ekki síður í
fiokkurh flutningsmanna en í
flokkum þeim, sem styðja ríkis-
stjórnina. Það er því ekki af
því, að hér sé um neitt flokks-
lega stórpólitískt mál á ferð-
inni. að tillögur þessar eru fram
komnar, heldur virðist sem
stjórnarandstaðan vilji nota
þetta nær ársgamla leyfi til
orkuaukningarinnar sem átyllu
til nýrra árása á ríkisstjórnina
vegna afstöðu hennar til vest-
rænnar samvinnu sem og til að
tortryggja varnir landsins í aug-
um almennings.
Guðm. í. Guðmundsson, utan-
ríkisráðherra, sem talaði hér á
undan mér, gerði öðrum hvöt-
um flutningsmanna til þessara
tillögu svo góð skil, að ég tel
ekki ástæðu fyrir mig að fara
nánar út í það.
Þrjú ár í ríkisstjóm án þess að
hafast nokkuð að
Eftir að hafa kynnt mér mál
þetta nokkuð, fæ ég ekki séð,
að veruleg breyting hafi átt sér
stað frá því 1955 eða frá því í
tíð vinstri stjórnarinnar vegna
þessarar margumtöluðu orku-
aukningu á útvarpssendingu
sjónvarps varnarliðsmanna. Hið
upprunalega leyfi til sjónvarps-
sendingar á Kefiavíkurflugvelli
var veitt af þáv. utanríkisráð-
herra, dr. Kristni Guðmunds-
syni, hinn 4. marz 1955. eða fyr-
ir nær réttum sjö árum. Oll
þessi ár hefur sjónvarpsstöðin
verið_ starfrækt árekstrarlaust
við íslenzk stjórnvöld og, að
því er ég bezt veit, aðfinnslu-
laust af hálfu núverandi stjóm-
arandstöðu, enda sat hún sjálf
að völdum í tæp þri '’ ár af
þessum tíma. án þess að hafast
nokkuð að til varnaðar ósóm-
anum.
•
Endumýjunar þurfti við
S j ónvarpsleyf ið frá 4. marz
1955 var veitt með því skilyrði,
að útvarpað yrði á bylgjulengd
308 til 186, að hámarksorka frá
eendi í loftnet færi ekki fram
úr 50 wöttum og að aðalút-
sendingargeislinn frá loftneti
yrði 345°. Eins og allir vita, sem
eitthvað þekkja til sjónvarps-
eendinga, eru sendiloftnetin
þannig gerð, að þau geta sent
frá sér _ geisla í allar áttir. eða
S60°. Utsendingargeislinn, sem
ieyfður var 1955, 345° geisli, var
talinn nægilegur til að ná til
vamarliðsmanna á dvalarstöð-
um þeirra. Ástæðan fyrir því,
að vorið 1961 var farið fram á
orkuaukningu, hefur mér verið
tjáð að væri sú, að útbúnaður
ellur hafi verið orðinn úr sér
genginn og úreltur og þyrfti
endumýjunar við, enda hefur
hæstv. utanríkisráðherra upp-
lýst það í ræðu sinni hér á
undan. Sjónvarpsstöðin á Kefla-
víkurflugvelli er sú 24. í röð-
inni af þeim sjónvarpsstöðvum.
sem Bandaríkin hafa komið sér
upp víðs vegar um heim á
varnarsvæðum sínum, og hafa
eflaust fjöldi stöðva bætzt við
síðan árið 1955. Sjónvarpsstöðv-
ar þessar munu yfirleitt hafa
verið leyfðar af viðkomandi
ríkisstjórnum hömlulaust og
munu engar þeirra með minni
útsendingarorku en 250—500
watta. Á nokkrum stöðum munu
þær þó vera allt að 1 kw orku,
enda þótt hin almenna regla
sé. að víðast hvar munu þær
vera um 250 til 300 watta.
Nær ekki til meira svæðis
Flutningsmenn beggja þess-
ara tillagna, sem hér eru til
umræðu, virðast hafa þá skoð-
un að með því að hækka orku-
sendingu úr 50 wöttum í 250
wött eða fimmfalda orkuna, þá
Alfreð Gíslason
hljóti sjónvarpssvið eða sjón-
varpsvídd stöðvarinnar að fimm
faldast, þ.e. nái yfir allt að
fimm sinnum stærra svæði en
áður. Kemur þessi skoðun greini
lega fram í greinargerð Fram-
sóknarmanna fyrir tillögu sinni,
því að þar tala þeir um, að sjón
varpið muni vegna þessarar
orkuaukningar ná um alla
byggð Faxaflóa og byggðanna á
Suðurlandi eða til meira en
helmings allra landsmanna. —
Þessi skoðun er hins vegar mik-
ill misskilningur. Sérfróðir
menn um sjónvarp halda því
fram, að þótt orkusending í loft
net sé fimmfölduð eða jafnvel
tífölduð, nái hinar sjónvörpuðu
myndir ekki lengra eða yfir
meira svæði en áður. Eini ár-
angurinn, sem af orkuaukning-
unni stafaði, væri sá að mynd-
irnar yrðu skýrari í sjónvarps-
viðtækinu en áður. Skýrleiki
myndarinnar vex heldur ekki
að sama skapi og orkuaukning-
in er aukin eða í sama hlut-
falli. Að sjónvarpsorka verði
hækkuð úr 50 wöttum í 250
wött þýðir því hvergi nærri, að
sjónvarpið nái fimm sinnum
meiri fjarlægð eða að myndirn-
ar verði fimm sinnum skýrari.
Brotnar sem Ijósgeisli.
Myndum þeim, sem koma fram
í sjónvarpsviðtækjunum, er út-
varpað frá 19 feta neti eftir svo-
kallaðri sjónlínu, sem brotnar
eins og Ijósgeislinn, er hlutur eða
mishæð verða á vegi hennar, en
hún bognar ekki. Er talið að
geislar þessir nái ekki yfir slétt-
lendi eða sjó lengra en sem sam-
svarar 75 til 80 km vegalengd,
'hversu mikil, sem sendiorkan
kann að vera, nema þá því að-
eins, að þeim sé útvarpað frá því
hærri sjónvarpsturnum. Nú mun
sannleikurinn vera sá, að loft-
r.et það, sem sendiorkan á Kefla
víkurflugvelli er látin í og endur
varpar í viðtæki, er fest á síma-
staura á vellinum og liggur sjón
lína þess því ekki hátt. Það er
því hreinn misskilningur, að
sendistöð þessi geti nokkru sinni,
hversu kraftmikil, sem hún væri,
sjónvarpað myndum til byggða
Suðurlandsundirlendis, því mikl
ir fjallgarðar skyggja þar á. Til
þess að mögulegt væri að sjón-
varpa til þessara byggða, yrði að
byggja a.m.k. nokkra endurvarps
turna á fjöllum og hæðum. Eg
tel það einnig rangt og villandi
að halda því fram,, að allir Reyk-
víkingar, hvar sem þeir búa í
bænum, geti náð til sjónvarpsins
frá Keflavíkurflugvelli, þrátt fyr
ir orkuaukningu sína, sem eins
og ég sagði áðan, mun hafa ver-
ið hækkuð upp í 250 þús. wött.
Það eru ekki nema beztu mót-
tökustaðirnir, sem liggja í beinni
sjónlínu frá sendistöð, sem hafa
bezt tækifæri, til þess að taka á
móti myndum frá Keflavíkur-
sjónvarpinu. Hinsvegar skal því
ekki neitað. að myndirnar kunna
að vera nokkuð skýrari í tækj-
unum en þær áður voru. Stór-
hýsin hljóta að skyggja á sjón-
varpsgeislann, með þeim afleið-
ingum, að langmestur hluti borg
arbúa nær ekki til sjónvarps-
ins. Svo mundi og einnig vera,
þótt íslenzk sjónvarpsstöð yrði
staðsett í miðri höfuðborginni, ef
sérstakar ráðstafanir yrðu ekki
gerðar, til þess að hægt yrði að
ná til allra hverfa borgarinnar.
Hættan ekki meiri en á
útmánuðum 1955.
Vegna þess að flutningsmenn
beggja þessaar tillagna. sem hér
liggja fyrir, láta í greinargerð-
um sínum í veðri vaka, að aukn-
ing sendiorkunnar sé aðaltilefni
þess, að tillögurnar séu fram-
komnar, hef ég hér að framan
reynt að færa rök að því, að sjálf
orkuaukningin hefur ekki frá
tæknilegu sjónarmiði breytt
neinu verulegu frá því, sem áð-
ur var. Sjónvarpið nær ekki
lengra né til fleiri staða en það
áður gerði. Það er staðreynd.
Að hættan fyrir andlegt líf og
menningu þjóðarinnar af þessu
sjónvarpi sé rn.eiri en hún var
eða hefði getað verið í útmánuð
um 1955, tel ég samkvæmt fram-
ansögðu á misskilningi byggt.
Flutningsmenn fara hörðum orð
um um dagskrá sjónvarpsins á
flugvellinum í greinargerðum
sínum, og telja Alþýðubanda-
lagsmennirnir, að varnarliðið
ausi soranum einum úr andlegu
lífi þjóðar sinnar yfir landsmenn.
Framsóknarmennirnir eru að
vísu ekki eins hvassyrtir, en telja
•þó, að sjónvarpið með orkuaukn-
ingu sinni muni trufla andlegt
líf þjóðarinnar og sénþjóðlega
menningarviðleitni.
Ekki skal ég leggja dóm á
dagskrá sjónvarps varnarliðsins,
til þess er ég henni of ókunn-
ugur. Eg hefi fyrir fjórum árum
síðan horft eina kvöldstund á
sjónvarp hjá kunningja mínum
í Keflavík og síðast fyrir tveim-
ur árum hjá þeim sama manni,
eftir að hann var fluttur til
Reykjavíkur. Og síðan ekki.
Eigin reynsla er því ekki fyrir
hendi, til þess að ég geti pensónu
lega lagt dóm á sjónvarpsefni
varnarliðsins yfirleitt. En hins
vegar er mér kunnugt um, að
innan ameríska hersins er starf-
andi svokölluð útvarps- og sjón-
varpsþjónusta, Afrts Armed
Forces Radio and Television
Serviee, sem af amerísku ríkis-
stjórninn hefur verið falið það
hlutverk að kaupa og velja út-
varps- og sjónvarpsefni fyrir all-
ar deildir hersins. Hvernig svo
sem dagskrár hinna fjölmörgu
sjónvarpa í sjálfum Bandaríkjun
um kunna að vera að efni og
gæðum, tel ég vafasamt, að rétt
mætt sé, að heimfæra þær undir
dagskrárlið sjónvarpsins á Kefla-
víkurflugvelli eða yfirleitt undir
sjónvörp annarra vamarliða
Bandaríkjanna. Þvi efnið mun
vera valið við hæfi þeirra, sem
í hernum eru, en flestir þeirra
eru óharðnaðir og óreyndir ungl-
íngar um tvítugsaldur. Því skal
hins vegar ekki neita, að ómerki-
legar kúrekamyndir munu all-al
gengar í Keflavíkursjónvarpinu
og leynilögreglumyndir eru og
sýndar þar, einkum sérstakan
dag vikunnar. Að öðru leyti er
það fjarstæða að halda því fram,
að allt, sem fram í sjónvarpi
þessu kemur, sé siðspillandi rusl
og sori einn saman. Mikið af því
mun vera hið vandaðasta efni,
fróðlegt og lærdómsríkt, enda
þótt mest af því muni vera til
dægrastyttingar, eins og hljóð-
færasláttur og því um líkt.
Ekki ástæða til að aftur-
kalla leyfið.
Af því. sem ég hefi sagt hér
að framan, einkum um áhrifa-
leysi orkuaukningarinnar sjálfr-
ar á útsendingar sjónvarps, fæ ég
ekki séð, neina rverulegar breyt
ingar hafi orðið síðan 1955, sem
gefur raunverulega ástæðu til að
afturkalla leyfi, sem þegar hafa
verið gefin til sjónvarpsstarfsemi
á Keflavíkurflugvelli. Skoðanir
manna um sjónvarp almennt eru
mjög skiptar. og fer því ekki
eftir flokkum, hvernig á þau mál
e rlitið. Er því hallmælt af mörg
um, en fleiri mimu þeir, sem
telja það eitt mesta menningar-
tæki, sem fundið hefur verið
upp á síðari tímum, ef það er
réttilega notfært til útbreiðslu,
þekkingar og lærdóms.
Við íslendingar þurfum ekki
að ganga þess duldir, að ís-
lenzkt sjónvarp hlýtur að verða
starfrækt hér á landi. fyrr eða
síðar, eins og annars staðar og
komumst við ekki hjá að not-
færa okkur þessa nútímatækni,
frekar en aðrar þjóðir. Ég er
þeirrar skoðunar, að því fyrr,
sem við komum upp okkar eig-
in sjónvarpssendingu, því betra,
og að Keflavíkursjónvarpið eigi
ekki að vera samkeppnislaust,
jafnvel á því takmarkaða svæði,
sem það nær yfir. Mjög hefur
verið rætt um, að stofnkostnað-
ur íslenzkrar sjónvarpsstöðvar
muni vera okkar litla þjóðfélagi
ofvíða og hefur í því sambandi
verið rætt og ritað um óskap-
legar fjárhæðir. Það er hins
vegar álit mitt. að ekki þurfi
neinar stórbyggingar til starf-
rækslu sjónvarpsstöðvar til að
byrja með og megi stilla stofn-
kostnaði í hóf, hvað bað snert-
ir. Tel ég, að til að byrja með,
megi bæði reka sjónvarpsstöð og
útvarpsstöð sameiginlega, jafn-
vel í þeim húsakynnum, sem
Ríkisútvarpið hefur nú og án
verulegrar fjölgunar starfs-
manna. Má í því sambandi benda
á, að hin óttalega sjónvarpsstöð
á Keflavíburflugvelli er starf-
rækt í sömu húsakynnum og út-
varp þeirra og við báðar stöðv-
Vestmannaeyjum 1. marz.
í DAG minnkaði aflinn að mun
frá í gær, enda var það að von-
um, þar sem hér var norðan
hvassviðri og slæmt sjóveður
var. Um. sjöleytið voru allmarg-
ir bátar komnir að, flestir með
6—7 tonn, en fór allt niður i
tvö tonn. Þess skal getið að yf-
irleitt höfðu bátarnir styttri línu
í dag en venjulega, af þeim or-
sökum að loðnan kom ekki fyrr
en liðið var á dag, og tími vannst
því ekki til að beita fulla línu-
lengd.
f gær (miðvikudag) mun hafa
komið á land um 750 lestir. Mest
an afla hafði bá Snæfugl, liðlega
19 lestir. — Það má til tíðinda
teljast hér í Eyjum að hið gamal
góða skip, sem Vestmannaeying-
ar ferðuðust tíðum með fyrir
stríð, Dronning Alexandrine,
kom hér inn að bryggju og lá
hér í dag og lestaði ýmsar sjávar
afurðir til Danmerkur. í sam-
bandi við komu Drottningarinn-
ar er nokkur hugur í útflytjend-
um hér að fá skipið til að koma
hingað og skapa þannig mögu-
leika til beins sambands við
Kaupmannahöfn varðandi út-
flutning á ýmsum sjávarafurð-
arnar vinna aðeins 8 manns. Er
þó útvarpað allan sólarhringinn
<og sjónvarpað 7 klukustundir á
degi hverjum. Mér hefur verið
tjáð, að sjónvarpsstöð þessi með
öllum útbúnaðinum muni kosta
um 100 þúsund dollara eða sem
lætur næst 4,5 millj. ísl. kr.
Ætti að vera metnaðarmál
að eignast sjónvarp.
Það er óhugsandi, að iislenzkt
sjónvarp verði rekið í stað með
innlendri efnisskrá einni saman.
Tiil þetss yrði reksturinn oÆ dýr.
Sjónvarpsefni þess hlýtur því að
verða byggt upp að verulegu
leyti af útlendu efni, svo sem
frétta- og fræðsluimyndum, sem
auðveflt er að setja íslenzkan
texta inn á, við sýningu hér
heima. Mikið af slíku efni er
hægt að fá með vægu verði frá
erlendum sjónvarpsstöðvum. Mik
ið er að því gert nú að taka
sjónvarpsefni upp á svokallað
sjónvarpssegulband eða VIDE-
TAPE, eins og það er kallað á
erlendu máii. Með þessari að-
ferð má jafnframt útvarpa sjón-
varpsefninu til sendingar í út-
varpi og er þetta VIDEO-TAFE
víða notað, þar sem sjónvarps-
og útvarpssendingar eru starf-
ræfctar undir sama þafci. A Kefla
víkurflugvelli mun um 50% af
útvarps- og sjónvarpsefninu vera
tekið á VIDEO-TAPE. . . Athug-
unar munu hafa fairið fram og
fara enn fram á möguleika tii
starfrækslu íslenzkrar sjónvarps
stöðvar, en hversu langt þær at-
huganir ná, er mér ekki kunn-
ugt um. Við erum svo heppnir
að eiga þrjá unga og efnilega
Islendinga, sem hlotið hafa sér-
mienntun sem sjónvarpsvirkjar
og kostað hafa miklu fé og tíma
í sérmenntun sína á erlendum
Skóium. Þeir hafa auk prófs sdns
þriggja ára reynslu sem tækni-
legir starfsmenn við Keflavíkur
sjónvarpið. Þess er að vænta, að
forráðamenn islenzkra sjónvarps
mála leiti ekki langt yfir
skammt og notfæri sér þekk-
ingu þessara ungu manna í sam-
bandi við væntanlegt sjónvap
hér heima og starfsrekstur þess.
Það ætti að vera metnaðanmál
okkar Islendinga að fá okkar
eigið sjónvarp, sem miðað er við
íslenakar þarfir og íslenakar að-
stæður, og því fyrr, sem þeim
athugunum lýkur, sem nú standa
yfir, og því fyrr, sem slíkt sjón-
varp getur tekið til startfa, því
betra er það, að mínu áliti. Að
erlent sjónvarp sé í landinu, þótt
á takmörkuðu svæði sé, ætti
frekar að ýta undir framkvæmd-
ir í þessu mikilvæga máli en að
draga úr þeim.
um, sem fyrir stríð var talsverð-
ur, einkum þó fyrri hluta vertíð-
ar, þegar góður markaður var í
Danmörku fyrir óverkaðan salt-
fisk. Er mér kunnugt um að einn
stórhuga útflytjandi, Friðrik
Jörgensen, hefur lagt sig nokk-
uð í framkróka við að úr þessu
geti orðið. — Björn.
Akranes
Akranesi, 1. marz. — Aðeins
fjórir línubátar eru á sjó í dag.
Aflahæstir í gær voru Farsæll
með 12 tonn og Ásmundur með
10,1 tonn. Aflinn var allt ofan í
3,5 tonn á bát. Enginn þorska-
netabátur vitjaði um í dag. Hring
nótabáturinn Haraldur er aust-
ur við Eyjar. Höfrungur II er í
slipp í Reykjavík. — Oddur.
Sandgerði
Sandgerði 1. marz. — f gær-
kvöldi komu hér að landi 23 bát-
ar, með samtals 254 lestir. Jón
Garðar vai hæstur með 22,1 lest,
Freyja 19,5 lestir og Muninn 17,2
lestir. — Jón Garðar hefur nú
fengið 52 lestir í tveimur síðustu
róður og þykir það rífandi afli.
Aflinn er að mestu þorskur, en
langa og ýsa slæðast með. — Páll.
Minnkandi afli Eyja-
báta vegna veðurs
Útílytjendur vilja fd Drottninguna til
að koma við í Eyjum